Þjóðviljinn - 30.08.1966, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 30.08.1966, Blaðsíða 8
3 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 30. ágást 1986 f H Ú S I MÓÐUR MINNAR Eftir JULIAN GLOAG hliðunum eins og þau hefðu framið einhvern glaep. Húbert leit á klukkuna og sá sér til undrunar að hún var ekki nema hálftvö. Sem snöggvast hélt hann að eldhúsklukkan hefði líka stanzað, en sekúndu- vísirinn snerist ennþá hring eft- ir hring. Kannski, hugsaöi hann, kannski tekst okkur þetta þrátt fyrir allt. — Getum við ekki búið til ka-kakó? sagði- Jimiee spyrjandi. Enginn svaraði honum strax. Svo sagði Húbert: Ég hef ekki lyst á því- — Mér finnst ekki viðeiga^li, sagði Díana, að drekka kakó núna. Jiminee saug upp í nefið og þurrkaði sér um nefið með hand- arbakinu, þannig að hrein rák birtist þvert yfir vangann. Dunst- an dró andann djúpt eins og til aðvörunar. — Fyrirgefðu, Dun, sagði Jiminee í skyndi. Það virtist miklu kaldara í eldhúsinu en úti. Það fór hroll- ur um Húbert. Heiti slátturinn var alveg horfinn- Hann fann að honum var ískalt á hnjánum og handarbökunum. Þau hefðu hæglega getað kveikt upp í elda- vélinni og hitað upp herbergið, en Húbert stakk ekki upp á því. Það var næstum eins og það væri viðeigandi að vera kalt núna. * — Vertu ekki með þessi læti, Jiminee, sagði Dunstan með háu röddinni og Jiminee hætti hinu •stöðuga hoppi sínu. Jiminee skrúfaði frá og fyrir brosið meðan hann reyndi að standa grafkyrr og hreyfingarlaus. Eiginlega var Jiminee aldrei kyrr með hendur og fætur nema þegar hann var niðursokkinn í að teikna- Húbert langaði mest HárffrteTfS«lan Hárgreiðslu- og snyrtistofa Steinn no Daugavegi 18 ITT hæð flyftaT SfMT 24-6-16 p E R M A Hárgreiðslu- og snvrtistofa Garðsenda 21 SfMT 33-968 D O M IJ R Hárgreiðsla via allra hæfl T.IARNARSTOFAN T.1arnargötn 10. Vonarstrætls megin — Síml 14-6-62. til að segja við hann að þetta væri allt í lagi. En það var of mikil fyrirhöfn að tala. Hann studdi sig við eldhús- borðið og góndi á foruga skóna sína. Sunnudagur var skóburst- unardagur — en kannski sleppti mamma þeim við það á morgun. Mamma! — ha«nn' leit upf) í skyndi eins og hann hefði gert gert sig sekan um guðlast. En hin tóku ekki eftir neinu. Hú- bert horfði á þau. Þau horfðu ekki á hann. Þau voru út af fyrir sig. Dunstan með hrukk- að ennið inn í sig, eins og hann sæi stóra, feita pöddu innan í sér, hugsaði Húbert. Hann varð að brosa og kæfði skyndilegan hlátur sem ásótti hann allt í einu. Díana — einhvers stað- ar var talað um hana í Biblí- 11 unni: Fögur er Díana frá Efes- os, nema þar var tekið dálítið öðru vísi til orða. Hann hugs- aði oft um þetta, þegar hann horfði á Díönu. Og Jiminee — vesalings litli Jiminee — hann rak tunguna laumulega út úr sér til að sleikja varirnar og svo dró hann hana í skyndi inn aftur. Þau sýndúst ein- hvernvegin svo ein. Af hverju tölum við ekki saman, hugsaði Húbert .— en hann vissi að það var of. langt á milli þeirra. Já, þótt hann hrópaði hástöfum, myndu þau kannski ekki heyra til hans. Nú var orðið svo heitt. Af hverju kom Elsa ekki? Hún var svo lengi og matama var að bíða eftir kalda rúminu sínu innanum lil.iukonvalana, Allt í einu voru þau orðin fimm. Húbert deplaði augunum. Það var Gerty. Hún stóð í dyr- unum með andlitið slétt eftir svefninn og hárið ófléttað og slegið. Blái sloppurinn, sem hún erfði eftir Jiminee í fyrra, var alltof stór handa henni og náði næstúm niður á gólf. Hendur hennar hurfu næstum upp í víðar ermarnar. — Hvað vilt þú? spurði Dun- stan. — Kess, umlaði Gerty. Hún gekk föstum skrefum að matar- skápnum. — Kex. sagði Dunstan. — Þú getur ekki fengið kex í hvert skipti sem þig langar í það. Þá hló Húbert. — Af hverju ertu að hlæja? glefsaðí Dunstan. — Þú ert alltaf á móti öllu, er það ekki Dunstan? Þú mátt ekki, þú getur ekki, þú mátt ,ekki — það er það sem að þér er. — Hættu að htæja og það und- ir eins. — Get ekki, get ekki, get ekki, hætt, hætt! söng Húbert og réð ekkert við hláturinn. — Haltu kjaftil hrópaði Dun- stan, en Jiminee tók undir' sönglið líka. Og með kexkökuna í bústnum lófanum tók Gerty tmdir kórsönginn. — Hætt, hættj hætt — get ekki, get ekki — hætt, hætt, hætt. Þessi „söngur“ var sérlega skemmtilegur og fyndinn og það var engin ástæða til að hann tæki nokkurn tíma enda. Húbert varð máttlaus í hnjánum, svo að hann gat varla haldið sér uppi. — Get ekki, get ekki, hætt, hætt, hætt! Þau sinntú því engu að Dunstan hrópaði allan tímann: — Haldið þið kjafti! Hláturrokurnar voru svo ákaf- ar hjá Húbert, að orðin urðu naumast annað en hiksti meðan hann tók andann á lofti. Svo var eins og eitthvað liði upp úr höfðinu á Húbert og lyftist og lyftist næstum upp úndir loft. Honum fannst hann horfa niður í eldhúsið ofanfrá — og hann sá Jiminee hoppa og ólmast og Gerty berja í kexkass- ann og Dunstan standa stirðnað- an og hreyfingarlausan. Og hann sá sjálfan sig standa og hlæja og halda um magann. Og hann sá Díönu með stóru augun gal- opin meðan hún horfði á þau á víxl. Svo sá hann að dyrnar opnuð- ust og Elsa kom inn. Hún hélt á skóflunni í annarri hendi og með hinni reyndi hún að strjúka buri hárlokk sem hafði losnað úr tíkarspenanum og hékk nið- ur á kinnina. Það tók hana lang- an tíma að koma hárinu aftur á sinn stað og allan tímann horfði hún á þau þegjandi. Há- vaðinn hætti — þó ekki Húbert. Hann heyrði í sjálfum sér, sína eigin rödd sem varð daufari og daufari en hélt þó áfram í sí- fellu: — Hætt, hætt, hætt — get ekki, get ekki, get ekki . . . — Ég heyrði til ykkar alveg út í garð. Þegar Elsa byrjaði að tala, féll þessi hluti af Hú- bert allt í einu niður úr loftinu og inn í höfuðið aftur. Gerty setti kexið á borðið. — Það var ekki ég sem byrjaði, Elsa. — Nei, sagði Dunstan. — Það var ekki Gerty. — Jiminee, sagði Eisa. — Þú hefðir átt að vita betur. — Vertu ekki reið, gerðu það, Elsa. — Ég er ekki reið ... — Það var ekki Jiminee held- ur. Það var Húbert. Díana hristi höfuðið. — Hann hagaði sér mjög illa. — Það ætti að refsa honum, sagði Dunstan. Húbert heyrði ekki til þeirra. Hann fann til undan augnaráði Elsu. í vöngum hennar voru tveir rauðir dílar — þannig var það ævinlega þegar hún reidd- ist. En þegar hún talaði, var rödd hennar mild_og vingjarnleg. — Dragðu upp sokkana þína, Húbert. Hann beygði sig. Það tók lang- an tíma að toga þykku ullar- sokkana upp að hnjám og bretta brúnina snyrtilega utanyfir sokkaböndin. Hann var með slátt fyrir eyrunum. Nú var honum aftur orðið heitt og hann var alveg máttlaus. — Við verðum öll að muna það, sagði Elsa, — að við verð- um að vera alveg hljóð. — Já, hvíslaði Díana. — Við megum ekki trufla mömmu. Elsa hikaði andartak. — Við megum ekki trufla neinn. — Það ætti að refsa Húbert. — Við getum hugsað um það á morgun, Dunstan, sagði Elsa. — Nú höfum við verk að vinna. Og röðin er komin að þér. Hún rétti honum skófluna. — Gerðu svo vel. Hún opnaði dymar fyr- ir honum. — Allt í lagi. Dunstan greip þétt um' skófluna, gaut augun- um til 'Húberts og lokaði á eftir sér. Elsa gaf Gerty kexköku og sendi hana í rúmið. Svo byrj- aði biðin enn einu sinni. Hvert þeirra fékk eina kexköku af þeim, sem þau fengu annars að- eins á sunnudögum. Þær voru með hörðu sykurkremi. Húbert var þurr í kverkunum og gat varla kyngt molunum. Hann skrapaði kremið af með tönnun- um og gaf Jiminee það sem eft- ir var af kexinu. Hann gat ekki horft á Elsu. Hann sat á eldhússtól og beið — beið eftir Dunstan, beið eft- ir Jiminee, eftir Díönu, eftir sjálfum sér. Hann mundi ekki eftir því hvort hann hafði farið út og komið inn aftur. Hann ’óar þarna bara, sat við eldhúsborð- ið og hita- og kuldastraumar fóru um hann á víxl. Andlit systkin- þörður Sjóari 4833 Peter Bitt hefur fundið skútuna. Flugvélin hnitar fyrir ofan hana og fallhlíf er kastað niður. Hún þenst út, lækkar og lendir á sjónum- Danny nær í hana með haka. — Við fallhlífina hangir vatnsþéttur poki og er þeir opna hann kemur í ljós lítil labb- rabb stöð sem stillt er á talstöð flugvélarinnar. Á þennan hátt kemst Peter Pitt í samband við Stanley Tailer. Hann hafði hugs- að fyrrr ölhi og hefur nú náð takmarkinu. Nú fær hamn viðtalið sitt SKOTTA Ég er ekki að kvarta en nú höfum við gengið framhjá 2 bíó- um, íþróttavelli og óteljandi sjopppum • . . TRYGGINGAFELAGIÐ heimirs IINDARGATA 9 REYKJAVlK SlMI 21260 SlMNEFNI i SURETY Leðurjakkar á stúlkur og drengi. Peysur ,og peysuskyrtur. Góðar vörur — Gott verð. Verzlunin O. L. Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu). Cgníiiteitíðl Utvegum eftir beÍG.., flestar stærðir hjólbarða á jarðvinnslutæki Önnumst ísuður og viðgerðir á flestum stærðum Gúmmmnnustofan h.f. Skipholti 35 - Sími 30688 og 31055 Auglýsíngasími Þjóðviljans er 17500

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.