Þjóðviljinn - 30.08.1966, Side 3
Þriðjudagur 30. ágást — ÞJÓí&VELJINN — SfÐA J
Alþjéðlef lög-
reglusýning í
Hannove^
Þeir skulu skotnir, sem eru gegn kosningunum
Kosningar til stjórnlaga-
þings undirbúnar í Saigon
SAIGON 29/8 — Lögreglan í Suður-Viétnam fékk í dag
fjrrirskipun um það að skjóta hvern þann félaga í ÞFF,
sem rekur áróður gegn kosningunum til stjórnlagaþings
sem haldnar verða 11. september næstkomandi.
Þessi fyrirskipun á við alla
sem bera áróðursspjöld gegn
kosningunum, skipuleggja kröfu-
gpngur og fremja hermdarverk
sagði talsmaður lögreglunnar.
I
ÞFF
1 leynilegri útvarpsstöð Þjóð-
frelsisfylkingarinnar var skýrt
frá því í dag, að ÞFF mundi ekki
tryggja öryggi frambjóðenda og
kjósenda í Saigonhéraðj við
kosningarríar.
Ekki voru settar fram neinar
ógnanir í yfirlýsingunni, en hins
vegar var það tekið fram að
ÞFF mundi vernda þá sem kjósa
að sitja heima og taka ekiíi þátt
í kosningunum.
Bardagar
Talsmaður herstjórnar Banda-
ríkjanna í Saigon skýrði frá því
að í dsg hefðu bapdarískar flug-
vélar eyðilagt tvo norður-viet-
namska fallbyssubáta á Tonkin-
flóa og laskað aðra tvo alvarlega.
Bsudaríkjamenn segja að úr
fyrsta bátnum hafi verið skotið
að bandarískum Skyhawk flug-
vélum, sem hefðu þá ráðizt að
bátnum með flugskeytum og
skothríð og hefði þá kviknað i
honum.
Báturinn var^miðja vegu milli
Haiphong og suðurstrandar Kína.
48 km sunnar hófu þrír fall-
byssubátar skothríð að bandar-
ískum flugvélum sem voru að,.
koma úr árásarferð yfir Norð-
ur-Vletnam-
Flugmennirnir voru búnir með
sprengjubirgðir sínar og kölluðu
því orustuflugvélar sér til að-
stoðar frá flugvélamóðurskipi-
Var þeim létt verk að laska bát-
an og flugmennirnir tilkynntu
seinna að einum bát hefði verið
sökkt. •
dufl sprakk í að^ins fimm metra
fjarlægð frá honum í skipa-
skurðinum milli Saigonhafnar og
hafs í morgun.
600.000
Bandaríska blaðið New York
Times skýrði frá því í dag að
bandaríska herstjórnin í Saigon
teldi nauðsynlegt að fjölga í liði
Bandaríkjamanná í Vietnam allt
upp í 600.000 hermenn á næstu
18 mánuðum.
Nú eru um 300.000 bandarískir
hermenn í Vietnam-
Bretar krafnir rót-
tækari ráðstafana
LONDON 29/8 — Forsætisráðherra Sierra Leone, Albert
Margai krafðist þess í dag, að gripið, yrði til nýrra. og harð-
skeyttari ráðstafana til að koma stjórn hvíta minnihlut-
ans í RÓdesíu frá völdum.
De Gaulle og Haile Selassie:
Albert Margai -er einn hinna
fyrstu leiðtoga Afríkuríkja sem
koma til London til að taka þátt
í ráðstefnu forsætisráðherra sam-
veldisins.
Forsætisráðherra Sierra Leone
sagði að efnahagsþvinganir Breta
gegn Ródesíu hefðu mistekizt Dg
nauðsynlegt væri að grípa til
i'íyri og raunhæfari ráðstafana
gegn ríkisstjórn Smiths.
Þessi krafa Margai er enn ein
bending um þann þrýsting gegn
Bretum sem er aukinn og undir-
búinn áður en ráðstefnan hefst
til þess að fá þá til að taka
harðar á Ródesíu.
Samveldisráðstefnan hefst í
næstu vikp og stendur 10 doga.
FuUtrúar Zambía og fleiri
landa halda því fram að efna-
hagsþvinganirnar og olíubannið
sem Bretar settu á Ródesíu hafi
ekki borið árangur.
Góðar heimildir eru hafðar
fyrir því að Harold Wilson sem
verður í forsæti á ráðstefnunni
muni enn einu sinni skýra frá
því greinilega að Bretar séu and-
vígir valdbeitingu til að fella
ríkisstjórn Smiths.
Bretar játa að meiri tíma þurfi
til að ná árangri af efnahags-
þvingununum en upphaflega
var taliö, en telja engu að
síður að þær muni hafa æski-
leg áhrif með tíð og tíma.
Alvarlegar áhyggjur
Vietnamstríðinu
De Gauile verður mjög fagnað við komuna til Kambodja
,þiop:
í V:
De Gaulle forseti og Haile Selassie |odja se^a ibúar. höfuðb°rg-
arinnar að ruður i husum i borg-
DJIBOUTI 29/8
keisari Eþíópíu lýsa yfir þungum áhyggjum sínum vegna
stríðsins í Vietnam í sameiginlegri yfirlýsingu, sem var
birt í Addis Abeba í dag, að lokinni þriggja daga opinberri
heimsóikn Frakklandsforseta.
í dag flaug de Gaulle .aftur
til höfuðborgar frönsku nýlend-
unnar Sómalí og gistír þar í nótt
og heldur síðan áfram ferð sinni
til Kambodja. •
Meirihluti afrískra íbúa ný-
lendunnar skipti sér ekkert af
þessari seinni komu de Gaulle
til landsins og ekki kom til
neinna óeirða eins og á dögun-
um.
í yfirlýsingu þeirra keisarans
og de Gaulle er ekkert minnst
á franska Sómalíland, en það
er síðasta nýlenda Frakka í
Afríku og hafa Eþíópíumenn
mikilla hagsmuna að gæta á
þessu 'svæði.
Haile Selassie keisari sagði ný-
lega. að framtíð franska Sómalí-
lands væri meðal þeirra mála
sem hann vildi ræða við de
Gaulle.
Kambodja
Norodom Sihanouk prins, þjóð-
höfðingi í Kambodja hefur gefið
fyrirskipun um það að de Gaulle
verði sýndar hjartanlegustu mót-
tökur, sem höfuðborgin Phnom
penh getur veitt erlendum gesti.
Búizt er við að um 200.000
manns verði á fánum skreyttum
inni hristist oft, þegar banda-
rískar sprengjuflugvélar gera
loftárásir í nánd við landamær-
in.
götum borgarinnar til þess að
fagna forsetanum og verða gríð- '
armiklar skrúðgöngur skipulagð-
ar.
Rúðurnar liristast
Stríðið í Vietnam er hættulega
nærri hinu hlutlausa ríki Kamb-
50.000 f jölskyld-
ur fá húsuæði í
Tasikenl
TASJKENT 29/8 — Meir en
50 þúsund þeirra fjölskyldna í
Tasjkent sem misstu heimili sín
í jarðskálftunum 26- apríl og
síðar hafa nú , flutt inn í ný
heimili.
Búa fjölskyldurnar ýmist í
nýjum húsum eða herbergjum
og aðrar eru aftur fluttar inn
í endurbyggð eða lagfærð hús.
70.000 byggingaverkamenn eru
önnum kafnir við að endur-
byggja borgina, en þriðjungur
þeirra sem misstu heimili sín
hafa enn ekki fengið frambúð-
arhúsnæði.
skekur hinn gamla
heim
PEKING 29/8 — Málgagn kín-
verska kommúnistaflokksins Al-
þýðudagblaðið í Peking segir í
dag að ra<uðu varðliðamir séu
hinar hetjulegu stormsveitir
menningarbyltingarinnar miklu.
Það er ekki langt síðan Rauða
varðliðið lét til sín taka, en það
er nú þegar búið að skekja aUt
samfélagið og hinn gamla heim,
segir í blaðinu.
Argentínu
BUENOS AIRES 29/8 — 60
manns voru handteknir í Argen-
tínu ,um helgina vegna kröfu-
gangna gegn ríkisstjóminni.
25 stúdentar voru handteknir
í Buenos Aires og 35 perónistar
voru handteknir i borginni
Bahia Blanca.
Dagana 27. ágúst til 11. sept-
ember n.k- mun Sambandslýð-
veldi Þýzkalands efna til al-
þjóðlegrar lögreglusýningar í
Hannover. Mörg lönd hafa þeg-
ið boð um þátttöku í sýningu
þessari, en tilgangur hennar er
að veita upplýsingar um þróun
lögreglumála í hverju þátt-töku-
ríkinu fyrir sig, svo og að gera
grein fyrir ört vaxandi alþjóð-
legu samstarfi lögreglunnar-
Þátttakendur á sýningunni
verða ennfremur mörg bekkt
fyrirtæki, sem framieiða og
verzla með lögreglubúnað og
lögreglutæki, og munu þau hafa
ýmiskonar nýjungar til sýnis.
Lögreglumenn frá ýmsum
löndum munu stjórna umferð
í sambandi við alþjóðiegu lög-
reglusýninguna, og var lög-
reglunni í Reykjavík boðið að
senda íslenzkan lögreglumann
til þess að taka þátt í þ’W sam-
statfi. Kostar sýningarstjórnin
ferðir lögreglumannsins og dvöl
hans ytra. Boð þetta var þegið
og fór Magnús Einarsson, varð-
stjóri bifhjóladeildar lögregl-
unnar nýlegh áleiðis til Hann-
over, þar sem.hann mun starfa
meðan sýningin stendur yfir-
(Fréttatilkynning frá lögreglu-
stjóranum í Reykjavík).
Sprenging
Bandarískur tundurduflaslæð-
ari varð fyrir hnjaski er tundur-
OLIUMÖL
BÆJARSTJÓRNÍR — SVEITARSTJÖRNIR :
OLÍÚMÖL ER LANGÓDÝRASTA VARANLEGA SLITLAGIÐ.
OlíumöJ hefur reynst vel hér á landi.
VÉLTÆKNI H/F hefur lagt olíumöl á vegi og götur
fyrir eftirtalda aðila: Vegagerð ríkisins; Garðahrepp,
Kópavogskaupstað, Hafnarfjörð, Seltjarnarneshrepp.
Næsta sumar verður hægt að bæta við verkefnum í
öðrum landshlutum þar sem olíustöð okkar er færanleg.
Tökum að okkur: Undirbúningsvinnu,Vinnslu steinefnis.
Lögn olíumalar. Lögn gangstéttarkants.
Athugið að nauðsynlegt er að hafa samband við okkur sem fyrst,
þar sem öll undirbúningsvinna tökur óhjákvæmilega langan tíma.
VELTÆKNIHf
I V/REYKJANESBRAUT PÓSTH 238 — SÍMI 24078