Þjóðviljinn - 21.09.1966, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 21.09.1966, Blaðsíða 1
f Mi&vikudagur 21. september 1966 — 31. árgangur — 213. tölublað. Dagsbrún velur fulltrúa á Alþýðusambandsþing: Listi uppstillinganefndar og stjórnar var sjálfkjörinn Rikisstjórnín veit ekki sitt rjúkandi róð niðurgreiðslur og styrkir Eskifjörður 1 dag birtum við inni í blaðinu grein um Eskifjörð efíir Grétar Oddssön- Myndina hér að ofan tók Grétar þar fyrir nokkrum dögum og sést á henni næst mikil uppfylling sem verið er að geía I sambandi við byggingu framtíðarhafnar fyrir' þorpið en fjaer rýkur upp úr strompum nýrrar s íldarvcrksmidju Alla ríka. — Sjá 4.—5. síðu. Tugir loftskeytamanna og símritara hætta 1. oktober — svo er embættisafglöpum Ingólfs á Hellu fyrir að þakka Allt útlit er nú fyrir það, að allur fjöldi símritara og all- margir loftskeytamenn leggi niður vinnu í Reykjavík og Gufunesi um næstu mánaðamót, og við það skapist algjort vandræðaástand í ritsímaviðskiptum. Póst- og símamála- stjórnin hyggst þó halda rekstrinum áfram eins og ekkert hafi 1 skorizt, þar eð fyrir-Hggi endanlegt tilboð ríkisstjórn- arinnar til símritaranna. Forsaga þessa máls er sú, að símritarar hafa búið við vond kjör, verið, í 12. launaflokki, en vonuðust eins og fleiri eftir leið- réttingu sinna mála við Kjara- dóminn margfraega. Allar þær vonir reyndust tálvonir einar, ©g ©k yfir á rauðu warð fvrir bsl HarSur árekstur varð síðdegis í gaer á mótum Nóatúns og Laugavegar milli bifreiðar og lögregluþjóns á mótorhjóli. Var lögreglumaðurinn á hraðri ferð inn Laugaveginn með rautt ljós á hjólinu og sírenur i gangi, en umferðarljósin á gatnamótunum skiptu rétt áður en hann kom að þeim og hélt hann áfram yf- ir Nóatúnið móti rauðu Ijósi. Bifreiðin kom upp Nóatúnið, ók yfir á grænu og á hjólið. Lög- regluþjónninn datt af hjólinu og lenti á næsta bíl og hjólið rann á annan. Maðurinn slas- aðist eitthvað og var fluttur á Slysavarðstofuna, en reyndist ó- brotinn og fékk að fara heim að rannsókn símritarar sneru sér því til Póst- og símamálastjómarinnar og fóru fram á hækkun upp í 14. flokk. Einnig ræddu þeir málið við fjármálaráðherra, en allt kom fyrir ekki- Uppsagnir 1 sjálfheldu Þessu sjónarmiði símritaranna var engu sinnt, og nú eru fram- undan hjá þeim víðtækar upp- sagnir, svo og loftskeytamönnum. Póst- og símamálastjómin hefur auglýst lausar til umsóknar stöð- ur síniritaranna og Póst- og símamálastjóri, Gunnlaugur Briem, sagði í viðtali við „Þjóð- viljann" í gær, að rekstrinum yrði haldið áfram þótt þessir menn færu, enda hefði ríkis- stjórnin sagt sitt síðasta orð í þessu i máli, því hefði ráðherra lýst yfir. Q Ríkisstjórnin veit nú ekki sitt rjúkandi ráð í viðureigiiinni við verðbólgudrauginn sem hún hef- ur sjálf magnað um sex ára skeið. Fyrir nokkrum mánuðum afnam ríkisstjórnin niðurgreiðslur á ýmsum neyzluvörum, og var þeirri ráðstöfun lýst í stjórnarblöðunum sem hinni mestu stjómvizku. Nú hefur ríkisstjórnin ákveðið að taka upp nýjar niðurgreiðslur og greiða niður verðhækkun bá sem átti að koma til framkvæmda á landbúnaðarvörum. 11 — 15% verðhækkun | | t gær var ekki enn lokið við að reikna út verðið að fullu, en meðalhækkun á kindakjöti er 15%, hækkun á mjólk nær 1 i%1 og hækkun á kartöflum um 11%. Sumt af þessari hækkun hefúr komið til framkvæmda fyrr á þessu ári, en afganginn ætlar ríkis- stjómin að greiða niður. Þó mun sá háttur hafður á niðurgreiðsl- unum að sumar vörur munu hækka eitthvað en aðrar lækka jafn- vel, en ekki á að verða um neina meðalhækkun að ræða- Nýtt styrkjakerfi landbúnaðarins Q Til þess að fá bændur til að fallast á nýja verðlagsgrundvöll- inn hefur ríkisstjórnin tekið upp nýtt og víðtækt styrkjakerfi. Hún hefur heitið því að útvega Veðdeild Búnaðarbankans 20 miljónir króna til jarðakaupa, og eigra jarðakaupalán að tvöfaldast úr 100 þúsundum i 200 þúsund. Vinnslustöðvar landbúnaðarins eiga að fá 30 miljóna króna lán, auk þess ætlar ríkissjóður að leggja fram aðrar 30 miljónir í svokallaðan hagræðingarsjóð landbúnaðarins, og eiga 20 miljónir króna af þeirri upphæð einnig að renna til vinnslustöðvanna. Þá ætlar rikisstjómin að leggja fram sex milj- cnir króna tii þess að koma á laggimar jarðakaupasjóði sem á að gera mönnum sem búa á lélcgum jörðum kleift að selja jarðir sínar við skaplegi| verði. Þessi framlög til Iandhúnaðarins nema samtals 86 miljónum króna. Einu sinni var... □ Þau ráð sem ríkisstjómin grípur nú til, styrkir og niðurgreiðsl- ur, eru gamalkunn, og á sínum tíma var það talinn einn megintil- gangur viðreisnarinar að afema það kerfi að fullu- En nú er svo komið að styrkja- og uppbótakerfi er orðið víðtækara á islandi en dæmi voru til áður. í gær klubkan sex rann út Erestur til að skila tillögum um fulltrúa Dagsbrúnar á þrítugasta Alþýðusambands- þing. Aðeins einn listi kom fram, tillaga uppstillingar- nefndar og félagsstjpmar, og var hann því sjálfkjörinn. Aðalfulltrúar Dagbrúnar á Alþýðusambandsþing eru nú 34 talsins og fara nöfn þeirra hér á eftir: Eðvarð Sigurðsson, Litlu-Brekku, Guðm. J. Guðms., Ljósvallag. 12, Tryggvi Émilsson Otrafeigi 4, Tómas Sigurþórsson, Skiph- 26, Kristján Jóhannss. Laugarn.v. 90, Halldór Bjömss. Hlíðarvegi 32, Hannes M. Steph. Hringbraut 76, Andrés Guðbrs. Rauðalæk 18, Árni Þormóðsson Hófgerði 2, Baldur Bjamas. Laufás v/Br.h.v., Bjöm Sigurðss. Grensásvegi 60, Eyþór Jónsson, Sólheimum 54, Guðm. Ásgeirsson Heiðargerði 29, Guðm. Gestss., Reykjahl., Rnesbr. Guðm. Óskarss. Kópavogsbr. 9, ' Guðm. Valgeirsson Sogavegi .150, Gunnar Jónsson, Hjarðarhaga 33, Hjálmar Jónss. Efstasundi 7, Hlynur Júlíusson, Meistarav. 23, Högni Sigurðsscn Hraunsholti 6, Ingólfur Haukss. Langholtsv. 11, Ir.gvar Magnúss. Hólmgarði 42, Jón D. GuÖms. Ránargata 1A, Kristinn Sigurðsson Dunhaga 11, Páll Þóroddsson Bragagata °3, Pétur Ó. Lárusson Melgerði 20, Ragnar Kristjánss. Brávallag. 44, Sigurður Gíslason Sörlaskjóli 13, Sig. Guðnason, Hringhraut 88, Sig. Ólafsson Laugamesvegi 58, Sveinn Gamalíelss. Kópav.br. 16, Sveinn Sigurðsson Bakkagerði 8, Þórir Daníelsson, Bergstaðastr. 45, Þorkell M. Þorkelss. Ránarg. 44. Leita fiugvélar- flaks á Græn- landsiökli Aðfaranótt þriðjudags hélt hóp- ur manna úr Flugbjörgunarsveit- inni til Grænlands og er ætlun- in að klífa Krónborgarjökul og Ieita að flugvélarflaki, sem sást þar í síðasta mánuði. Bandaríski ísbrjóturinn „Atka“ flytur leiðarigursmenn til Græn- lands og er svo ráð fyrir gert, að sjálf fjallgangan hefjist ídag, miðvikudag. Flugvélarflakið sem hér um ræðir, er talið vera af bandarískri könnunarflugvél sem fórst snemma árs *1962 með tólf ■manna áhöfn. Átta menn úr Flugbjörgunarsveitinni taka þátt í þessum leiðangri, auk sex manna frá hemórnsliðinu á Keflavíkurflugvelli. Þeir hafa með sér allan nauðsynlegan út- búnað; talið er að leiðangurinn geti staðið allt upp f tíu daga. í * Þessu vildu loftskeytamenn og símritar ekki una og sögðu upp starfi frá 1. júlí; Póst- og síma- málastjómin beitti lagaákvæði til þess að*framlengja uppsagn- |j arfrestinn til 1. október. Um sxð- J ustu mánaðamót lagði svo við- reisnarstjórnin, undir greindai*- forustu Ingólf9 á Hellu, sem með þessi mál fel — fraim tillögu um hækkun upp í 14. flokk með því skilyrði að símritarar færu á námskeið og tækju próf- Stöður auglýstar Þetta samþykktu símritarar í Reykjavík með þeirri breytingu þó, að þeir sem starfað hafa í 15 ár hækki f 15. launaflokk og prófin falli niður hjá þeim, sem starfað hafa í 25 ár eða lengur. Þykir símriturum að vonum hlægilegt, að menn, sem* unnið hafa við þessi störf í aldarfjórð- ung eða meira, þurfi að ganga undir próf. 3% innflutningsgjald á veiSarfæri 'Þjóðviljinn fregnaði það i gær eftir áreiðanlegum heim- ildum, að rikisstjó'min hefði nú ákveðið að leggja 3% inn- flutningsgjöld á öll tilbúin veiðarfæri, svo sem þorska- netaslöngur, síldarnótaslöngur o.s.frv. og á það fé sen inn kemur að renna í sérstakan sjóð cr hafi það hlutverk að styrkja innlenda veiðarfæra- framleiðslu. Er talið að þessi nýi skattur á útgerðina 'muni nema a.m-k. 9—10 miljónum króna. Orsök þessa nýja skatts er sú, að fyrirtæki þau sem framleitt hafa , veiðarfæri hér á' landi eru flest komin á hausinn eða á heljarþröminni, svt> sem Hampiðjan. Nú er að langmestu leyti farið að nota veiðarfæri úr ýmis konar gerviefnum, sem bæði ex*u endingarbetri og ódýrari. Af hálfu ríkisvaldsins hefur hins vegór verið búið svo að vfeið- arfæraiðnaðinum íslenzka. eins og raunar flestum iðn- greinum öðrum, að fýrirtækj- unum hefur reynzf erfitt að aðlaða sig bréýttum aðstæö- um og taka upp framleiðslu á veiðarfærum úr gerviefnum. en til þess þurfa þau að end- umýja vélakost sinn og gera aðrar, tilheyrandi breytingar á rekstrinum. Hyggst ríkis- stjómin nú þó seint sé reyna að bjarga Hampiðjunni frá gjaldþroti með þessum áðgerð- um- Fylgir sögunni að Hamp- iðjan eigi nýjar vélar á hafn- arbakkanum sem hún neiti að leysa út, ef hún fær ekki að- stoð. Ctgerðarmenn eru hins veg- ar ævareiðir yfir þessari nýju skattlagningu og ekki bætir það úr að það hefur kvisazt út, að ætlunin. sé að lækka bræðslusíldarverðið um næstu mánaðamót úr kr. 1.71, sem það hefur verið í sumar, nið- ur í kr- 1.20—1.30, eða um 40 — 50 aura. Sagði einn útgerð- armaður í viðtali við Þjóð- viljann í gær, að síldarflotinn myndi sigla heim af miðun- um í annað sinn, ef þessar ráðstafanir kæmu til fram- kvpemda. Þannig virðist „við- reisnarstefna" ríkisstjórnar- innar ætla að slá tvær flugur í einu höggi: drepa iðnaðirin og stöðva alla útwerð á Is- lan.di! I I I 1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.