Þjóðviljinn - 21.09.1966, Side 5

Þjóðviljinn - 21.09.1966, Side 5
Miðvikudagur 21. september 1966 — ÞJÓÐVILJlNN — SÍÐA g ið er að fyrstu hústmum í þorpinu, eru moldarhaugar og jarðrask langt í sjó fram. í>ar frammi á uppfyllingunni á líka helmingurinn af peninga- lyktinni upphaf sitt úr siromp- um nýrrar síldarvcrksmiðju Alla ríka og þeirra íélaga. Þessi verksmiðja komst í gagn- ið í sumar og nú geta Eskfirð- ingar breytt 5000 málum af síld í mjöl, lýsi og lykt á ein- um og sama sólarhring. Og til þess að ekki þurfi að treysta um of á daglegan landburð af hráefni, hafa báðar verksmiðj- urnar 5000 tonna þróarrými samanlagt. í sumar og fram í septemberbyrjun höfðu þær tekið á móti um 30.000 tonnum af hráefni, samsvarandi 300.000 tnrtnum til glöggvunar fyrir þá, sem enn hafa ekki samræmt tonrrrn og síldveiðamar. Framtíðarhöfn En ef við stöldrum við jarð- raskið og moldarhaugana, vél- skóflumar og jarðýturnar, þá er verið að gera framtíðar- höfn kauptúnsins einmitt hér. Hér á að koma heilmikil upp- fylling, bátakví og aðstaða til að losa og lesta skip. Með upp- fyllingunni, sem er geysivíð- áttumikil á okkar mælikvarða, fá Eskfirðingar loksins lang- þráð undirlendi. Þarna á að verða aðal athafnasvæði þorps- ins í framtíðinni, en trúlega verða söltunarstöðvarnar kyrr- ar á sínum gömlu stöðum um ófyrirsjáanlega framtíð. Nú sem stendur eru þær fimm talsins. Allar í eigu staðarbúa, nema hvað utanaðkomandi að- ilar em hluthafar í einhverjum þeirra. Venjulega eru það út- gerðarmenn og með því er aft- ur tryggt að viss hluti báta- flotans leitar þangað fremur en eitthvað annað. Þessu til viðbótar er svo hraðfrystihús á staðnum. Það er starfrækt af sömu aðilum og bræðslurnar og reyndar er því svo varið. að hraðfrystihúsið er talið eigandi þeirra. Kostnaðaráætl- un nýju hafnarinnar er 45 milj- ónir króna. Fjör í útgerðinni Og á Eskifirði er mest fjör- ið í útgerðinni austanlands, ef Neskaupstaður er talinn frá. Þaðan eru gerðir út fimm stór- ir bátar og tveir litlir. Stóru bátarnir sinna sér í lagi síld- veiðunum, en í vetur leið var tveim þeirra haldið út til J)orsk- veiða við suðausturlandið og gekk vel. Fiskinum lönduðu þeir heima og skapaðist af ])ví ómetanleg atvinnubót yíir dauðasta tímann. Ekki verður heldur sagt um Eskifjarðarbát- ana að þeir liggi' í láginni, þeg- ar lesnar eru síldarfréttir. Jón Kjartansson undir skipstjórn Þorsteins Gíslasonar varð hæst- ur í fyrrasumar og í sumar er hann næst hæstur. Af öðrum bátum, sem gert hafa garðinn frægan, má nefna Krossanes og Hólmanes og Guðrúnu Þor- kelsdóttur og þá er ekki úr vegi að geta þess, að undanfar- in sumur hafa Eskfirðingar gert út minnsta síldveiðibátinn, Eini litla. Nú hefur hann ver- ið seldur til Hornafjarðar og er í sumar gerður þaðan út. Varanleg gatnagerð Þegar komið er inn í þorpið á móts við hraðfrystihúsið. er gatan lokuð og vegfarendum — öðrum en gangandi — vísað upp í hliðargötu. í sumar hafa staðið yfir framkvæmdir við varanlega gatnagerð og er þeg- ar búið að steypa álitleean götn- spotta. í snœar er áætlað að Ijúka 200 metrum af* 12 metra breiðri akbraut og hólda síðan áfram í áföngum. Að sjálfsögðu munu slíkar framkvæmdir stuðla nð gerbreytlum bæjar- brag og yfirbragði öllu. Ekki væri þó öllu til skila haldið, ef ekki væri minnzt á Netagerð Jóhanns Clausens. Á sjávarbakkanum skáhallt fyrir ncðan og ulan barnaskólann, heíur hann bækistöð í báru- járnshöll, þeirri veglegustu sinnar tegundar á Austfjörð- um og með turni upp úr, en brygídu fram af. Barnaskólinn er aftur gam- alt hús og ekki hátt. Það var reist um aldamótin síðustu, en hefur verið endurbætt síðan. Yfir því er einhver blær, sem síldin hefur ekki breytt. Guði sé lof. Staðið í stór- ræðum Að sjálfsögðu stendur hrepps- félagið í stórræðum, öðrum en gatnagerðinni. T.d. er nú verið að byggja 6 íbúðir til útrým- ingar á heilsuspillandi húsnæði og ennfremur stendur það í hinni óhjákvæmilegu stækkun á vatnsveitu. Þenslan í síldar- útveginum hefur skotið vatns- veitunni ref íyrir rass, Jiar eins1- og víðar. En á Eskifirði hefur allt farið með friði. Einstaklingar og fyrirtæki standa í byggingunum. Lands- bankinn er að byggja yíir aur- ana sína og Kaupfélagið ofan á búðina sína og einstaklingar ofan yíir sjálfa sig. Póstur og sími eiga nýtt og vandað hús við aðalgötu bæjarins og þar við hliðina er nýr læknisbú- staður, sem tckinn var í notk- un nú í sumar. Þar er apó- tekið einnig til húsa og í íram- tíðinni er ætlunin að hægt verði að hafa þar tvær sjúkra- stofur. Einskonar vísi að sjúkrahúsi. Við hliðina á ' læknábústaðnum er félagsheim- ilið, myndarlegt hús, en Jxi ekki nema hálfbyggt. Seinni áfangi er nú í smíðum og verður von- andi lokið von bráðar. í þeim hlutanum, sem fullgerður er, eru haldin böll og sýndar kvik- myndir, en þegar húsið er full- gert skapast aðstaða fyrir fjöl- breytta félagsstarfsemi. Kaupstaður 1786 Eskifjörður var einn af sex stöðum á landinu, sem hlutu kaupstaðarréttindi með auglýs- ingu þ. 18. ágúst árið 1786 (um leið og Reykjavík). Hins- vegar er mér því miður ekki kunnugt um hvernig og hve- nær staðurinn var „degrader- aður“ niður í kauptún. Þar hafði vcrið óstöðug verzlun til ársins 1803, en varð óslitin síðan. Fyrsta „borgarabréfið" var geíið út þ. 12. apríl 1788 til herra Niels Örum kaup- manns, sem þá hnfði keypt konungsverzlunina í Slóru- Breiðvík, sem er nokkru ut- ar á Reyðarfjarðarströndinni. Örum þessi hefur þá að öllum líkindum verið annar hclming- urinn af hinum illræmdu Örum og Wullf, sem verzluðu m.a. á Djúpavogi og okkur eru kunnir úr skáldskap. Sýslumaður situr á Eskiíirði og hefur gert það allt síðan árið 1853 og læknissetur hefur kauptúnið verið síðan 1860. Af öðrum vörðum á vegi kaup- túnsins á leiðinni til dagsins í dag má nefna þessar: Þar var fullgerð raímagnsveita til ljósa árið 1911 og var það íyrsta • vatnsvirkjunin til raímagns- íramleiðslu til almenningsþarfa í heilu sveitarfélagi. Símasam- band við útlönd komst á árið 1906, sama árið og sæsíminn var lagður. Það var einkalína kostuð af Þórarni Tuliníusi kaupmanni í Kaupmanriahöfn. en hann varð aftur aJttfaðir Tuliníusanna og sýslumenn af þeirra stofni hafa um langt skeið setið Eskifjörð og Suður- Múlasýslu. Fríkirkja var byggð á Eskifirði árið 1884 og stóð fram á síðari styrjaldarárin, en þá var hún rifin. Þjóðkjxkjan var heldur seinna á ferðinni og reisti sitt hús yfir gr»ð árið 1900, sem stendur enn. Stór- viðburður í peningamáljum varð árið 1918, Jregar Landsbanki ís- lands stofnsetti útibú. á Eski- firði. Það er enn annar aðal- bankinn á Austfjörðlum. Hinn er útibú Útvegsbankams á Seyð- isfirði. (í Neskaupstað er starí- andi sparisjóður). í dag er engirai Örum á Eskifirði og heldur enginn Wullí. Tvær aða?verzlanirnar eru starfræktar af neytendum, Pöntunarfélag Eskfirðinga stofn- sett 1933 og Kaupfélagið Björk stofnsett 1935. Að vísu stend- ur enn eitthvað -af hinum gömlu verzlunarhúsum, en illþekkjan- leg og enginn sómi sýndur. Fulltrúi einkaframtaksins í verzlunarmátum er Elís Guðna- son með sérverzlun í rafmagns- vörum. Á Eskifirði er eitt hótel og tekur að mig minnir þrjá næt- urgestL Svo er þar veitinga- stofan Nýborg niðri við sjóinn með „jukebox" (glymskratta) og ölveitingar. Þar inni hefur mér verið næst að halda að ég væri kominn í eina af slakari hafnarknæpum Hamborgar, en „gestimir“ reyndust allir innan 16 ára aldurs fljótt á litið. „Bartenderinn" var á svipuðu reki, en að sjálfsögðu þarf ekki að taka fram, að þarna voru engar vínveitingar, né heldur vín haft um hönd svo ég sæi í örstuttu innliti. Hreppamörkin Nú er komið að því, sem er viðkvæmast allra mála á / Eskiíirði og það er hvorki t meira né minna en sjálfur hreppurinn og takmörk hans. Kaupstaðurinn írá 1786 varð að láta sér lynda að vera skip- að land úr Reyðarfjarðarhreppi árið 1907. Eskifjarðarhreppur, eða eí menn vilja heldur kalla það kauptún, á nú lar»d írá innstu mörkum byggðar í ])orp- inu út á svokallaða Mjóeyri, sem er svo að segja við yztu mörk þorpsbyggðarirmar. Þar hagar svo til að lág sandeyri gengur fram á íjörðínn og er að mestu þakin tunnustöílum, item hróíatildri til að tjalda á yfir þá ef sólin skyldi taka upp á því að skína. Utan við Mjóeyrina tekur Helgustaðahreppur við. Esk- íirðingar eru i sjálfu sór ekkert sólgnir þangað, þó að silfur- bergið liggi í fjallinu ein- hversstaðar úlmeð. Samkvæmt öllum lögmálum ætti vöxturinn að verða inneftir íirðinum, inn á undirlendið. en það tilheyrir Reyðarf j arðarhreppi. Svona er Eskifjörður innikró- aður á milli tveggja hreppa og á sór enga útþenslumöguleika, aðra en upp á við. Ástnndið er meira að segja svo slæmt, að á sínum tíma gáfu Reyðfirð- ingar Eskfirðingum land undir kirkjugarð! Þannig deyja Eskfirðingar inn í Reyðarfjörð nauðugir viljugir, en ekki hef cg heyrt þess getið að þeim hafi orðið það að bcinum sálarháska, enda Eskfirðingar íslendingar, þegar allt kemur til alls svona rótt álíka og Vestmnnnaeying- ar. Eskfirðingar hafa staðið í samningamakki undanfarið til að fá hreppamörkunum brcytt, en þar hefur lítið gengið í sam- komulagsátt. Sennilega vilja Eskfirðingar fá of mikið, en Reyðfirðingar gefa kost á of litlu, en þarna erum við Þjóð- viljalesendur komnir á hálan ís og því öruggast að leita lands. ★ Að síðustu vil ég þakka þess- ■ um mönnum: Ragnari Þor- steinssyni kennara fyrir sögu- legar upplýsingar, Alfreð Guðnasyni vélstjóra fyrir upp- týsingar um atvinnulíf og fram- kvæmdir yfirleitt og Guðjóni Jónssyni kennara fyrir að koma mér í færi við þessa menn. Nýja síldarvcrksmiðjan hans Alla ríka stcndur á nýja hafnarsvæðinu. Landað úr aflaskipinu Jóni Kjartanssyni í hcimahöfn. * ! ‘ * . > K\ 1 sumar hefur verið unnið að varanlegri gatnagerð í þorpinu. wv-m % "Vt Mikið er byggt bæði af cinstaklingum og opinberum aðilum. m$m . ‘

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.