Þjóðviljinn - 22.09.1966, Page 5
Fimmtudagur 22. september 1966 — ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA JJ
ÆSKAN
OG SOSiALISMINN
Ritnefnd: Jón Sigurðsson, Leifur Jóelsson, Rannveig Haraldsdóttir.
Jónína Guðnadóttir, sem stundar nám í keramik í Stokkhólmi:
Þar fær JistaskríH" ekki
inni á stúdentagörðum
■ Á döguuum náði Æsku-
lýðssíðan tali af efnilegri náms-
konu, Jónínu Guðnadóttur. Hef-
ur hún stundað nám í keramik
undanfarin ár í Stokkhólmi og
segir hér á eftir frá náminu
og sömuleiðis frá heim æru-
verðuga félagsskap er SÚM
nefnist og flokkast ýmist undir
virðuleg listamannafélög eða
Moitka-klíkur.
Ferillinn
Enda þótt Jónína sé enn
nemandi í keramik teljum við
rétt að spyrja hana fyrst um
ferilinn.
— Ég var í Handíða- og
myndlistarskólanum í 1% ór og
vann eftir það í Gliti í jafn-
langan tima og stundaði jafn-
framt nám í Myndlistarskólan-
um. Undanfarin 3 ár hef ég
lært keramik í Konstfack í
Stokkhólmi og verð þar í vetur.
f skólanum eru 8 deildir og
nemendur rúmlega þúsund,
megnið af þeim cru Svíar.
Kenndur er vefnaður, keramik.
22. sambandsþing
ÆF sett á morgun
□ Eins og áður hefur verið skýrt Irá á Æsku-
lýðssíðunni verður 22. þing Æskulýðsfylkingar-
innar sett í Lindarbæ á morgun. Dagskrá þings-
ins hefur verið breytt, þannig að hún hefur ver-
ið færð fram til klukkan 5 á föstudag, en byrjar
ekki klukkan tvö eins og áður hefur verið skýrt
frá. Stafar það af því, að fæstir fulltrúar utan
af landi geta mætt fyrir þann tíma og svo hit't
að flestir fulltrúar frá Reykjavík og nágrenni eru
bundnir í vinnu til klukkan fimm á föstudag.
Verður þess í stað kvölddagskrá sú er vera átti
á föstudag felld niður, en að öðru leyti helzt dag-
skrá óbreytt, eða eins og hún var tilkynnt hér í
blaðinu síðastliðinn fimmtudag.
□ Eins og þá var einnig skýrt frá verður dans-
leikur á laugardagskvöld á vegum ÆFR og verð-
ur hann haldinn í átthagasalnum á Hótel Sögu
og er öllum fylkingarfélögum heimill aðgangur
og gestum þeirra. — Félagsfundir í ÆFR og
ÆFH hafa lokið kosningu á þingið og voru eftir-
taldir félagar þaðan valdir sem fulltrúar á þing:
ÚR REYKJAVÍK:
Arnmundur Bachman
Guðbjörg Ólafsdóttir
Guðmunduf Jósefsson
Guðmundur Magnússon
Guðrún Svava Svavarsdóttir
Gylfi M. Guðjónsson
Haraldur Blöndal
Jón Hannesson
Jón Sigurðsson
Jón Stefánsson
Kristján Linnet
Leifur Jóelsson
Ólafur Einarsson
Ólafur Ormsson
Magnús Jónsson
Margrét Blöndal
Páll Halldórsson
Ragnar Ragnarsson
Ragnar Stefánsson
Sigurður Magnússon
Steinunn Stefánsdóttit
Úlfur Hjörvar
Valgerður Hallgrímsdóttir
Vernharður Linnet
Þorsteinn frá Hamri
Þorsteinn Marelsson
Örn Friðriksson
Örn Ólafsson
Svavar Gestsson.
Alls 29.
FRÁ HAFNARFIRÐI:
Gísli Haraldsson
Jóhann Kristjánsson
María Kristjánsdóttir
Logi Kristjánsson
Ólafur Halldórsson
Páll Árnason
Rafn Guðmundsson
Steini Þorvaldsson
Sveinn Frímannsson
Þórir Ingvarsson
Örlygur Benediktssoe.
<&-
silfursmíði, skúlptúr, grafík,
auglýsingateikning, leiktjalda-
málun og ljósmyndagerð.
Námið í keramik skiptist )
tvo hluta og er aðaláherzlan
lögð á verklega námið fyrstu
tvö árin. Fyrir utan keramik
lærum við málun, teikningu
og skúlptúr. Við fáum hagnýt
verkefni mánaðarlega, gerum
vinnuteikningar fyrir fyrirtæki
sem síðan velja úr beztu teikn-
ingarnar og veita peninga til
að útfæra þær.
Uppfinning
En það er fyrst í októberlok
sem líf fer að færast í tusk-
urnar, þá er jólamarkaðurinn
undirbúinn og keppist hver við
að setja sem bezt verk á
hann því að við fáum 79%
af ágóðanum.
— Hvað lézt þú á síðasta
jólamarkað í skólanum?
— Það er eiginlega saga að
segja frá því. Um jólaleytið
drekka Svíar gjarnan lctt vín
sem þeir kalla Glögg, en það
er kryddað og drukkið heitt
úr bollum. Þar scm vínið er
einungis drukkið um jólin
fannst mór þelta vera óhófleg
bruðlun að nota bollana ekki
til neins annars allan ársins
hring. Ég bjó því til hlut sem
er vínbolli með hanka öðrum
megin og kertastjaki hinum
megin.
— Og voru Svíarnir hrifnir?
— Ja, þeir keyptu 100 stykki
á kortéri.
— Og þú græddir á tá og
fingri?
— Það má segja það, ég
seldi einnig fleiri hluti og
kompt í ferðalag til Egypta-
lands í jólafríinu með nokkr-
um skólafélögum.
Svíarnir duglegir
að ná sér í styrki
— Búið þið á stúdentaheim-
ili í Stokkhólmi?
— Nei, svona listaskríll er
ekki tekinn á stúdentagarða,
við leigjum úti í bæ! Það er
dýrt að lifa í borginni en
sænsku ncmendurnir krækja
sér í alla hugsanlega styrki,
þeir fá styrki frá ríkinu, bæn-
um og sveitarfélaginu og lifa
góðu lífi fjárhagslega allan árs-
ins hring.
— Er mikið félagslíf í Konst-
fack?
— Já, það má segja að við
höldum hátíðir hvenær sem til-
efni gefast. í hverri viku eru
ölkvöld svokölluð og er þá
dansað eftir plötum og dreypt
á öli eins og nafnið gefur til
kynna. í febrúar er mikill
lokafagnaður og þá mæta all-
ir með flugdreka og eru veitt
verðlaun fyrir bezta flugdrek-
ann. í fyrra hlaut lítill strák-
ur verðlaunin, hann hljóp um
í rauðum samfestingi með agn-
arlítinn flugdreka — Jónína
gerir ferkant í lófann á sér —
sem hann hafði fest við tvinna-
kefli. Því miður komst minn
flugdreki ekki á loft. af ein-
hverjum dularfullum ástæðum.
En þetta er vist nóg um félags-
lífið!
Tekin inn í Súm
fyrir utan Steininn
— Þú ert meðlimur í Súm,
Jónina, segðu okkur nú í fullri
hreinskilni. er Súm Mokka-
klíka eða virðulegt félag?
— Ja. bæði og. Súm er félag
ungra listamanna, við erum að-
eins fimm meðlimir ennþá og
Myndina tók III af Jónínu í Stokkhólmi í fyrravetur.
nafn félagsins er ekki skamm-
stöfun! Við eigum það sameig-
inlegt að vera á móti aftur-
haldssemi i listum. Félagið var
stofnað við hátíðlega athöfn
eftir sýningu á pop-Iist sem
þeir Jón Gunnar Árnason, Sig-
urjón Jóhannsson, Hreinn Frið-
finnsson og Haukur Sturluson
héldu í Ásmundarsal í fyrra.
Þeir gengu þá fjórir í fé-
lagið og í sumar var ég tekin
inn í það með ferföldu húrra-
hrópi fyrir utan Skólavörðu-
stíg 9.
— Hafið þið haldið marga
fundi?
— Tvo hingaðtil! En við fá-
um senda kataloga frá sýning-
um erlendis og getum þannig
fylgzt betur með en ella. Og
auðvitað borgar það sig alltaf
að hafa sambönd, þetta stór-
merkilega félag fær daglega
póst frá útlandinu ...
RH
FJOLSKIPAÐ ÞING
Æskulýðsfylkingin er í þann
mund að halda eitt glæsileg-
asta þing í sögu hrcyfingarinn-
ar. Þingið mun haldið í Lind-
arbæ og sótt af fjölda íull-
trúa auk erlendra og innlendra
gesta. Gestir þingsins verða
frá miðstjórn Sósíalistaílokks-
ins og Sósíalistafélagi Reykja-
víkur, en auk þeirra verða gest-
ir írá ungkommúnistasamtök-
um í Danmörku, Noregi, Sví-
þjóð og Finnlandi, æskulýðs-
samtökum SF ílokkanna í Dan-
mörku og Noregi, Unga Þjóð-
veldinu í Færeyjum, Viet-Nam
og Heimssambandi lýðræðis-
sinnaðrar æsku. Æskulýðsfylk-
ingin mun enn sem fyrr halda
lifandi tengslum við samherja
á Norðurlöndum og hvarvetna
annars staðar í heiminum.
Heimur okkar er alltaf að
smækka, og barátta Æskulýðs-
fylkingarinnar er ekki ein-
skorðuð við vandamál íslenzks
þjóðfélags og þjóðræknismál,
heldur er barátta hennar einn-
ig snar þáttur í alþjóðlegri
baráttu fyrir sósialisma, lýð-
ræði og þjóðfrelsi. Ber henni
því að fylgjast vakandi með
þeirri baráttu, sem samherjar
okkar heyja erlendis og veita
þann stuðning sem hún má.
Margar blikur eru á lofti í
málefnum sósíalískrar hreyf-
ingar á Norðurlöndum, og er
skemmst að minnast úrslita
bæjar- og fylkisstjórnarkosn-
inganna í Svíþjóð. Þau bönd.
sem tengja Norðurlandaþjóð-
irnar hverja annarri eru mörg
og náin, og ber Æskulýðsfylk-
ingunni að íylgjast vel með
þeirri þróun. sem á sér stað
á hinum Norðurlöndunum og
aíla sér sem beztrar vitneskju
um aðstæður og viðhorf þar
Barátta norrænna sósialistn
þarf að vera eins samstillt og
unnt er, og fer bezt á því, að
Norðurlandaþjóðirnar hafi nána
samvinnu um að byggja og
móta sósíalísk samfélög á
grundvelli sameiginlegs menn-
ingarnrfs og . sögulegra erfða.
Er það þvi Æskulýðsfylking-
unni sérstök ánægja að bjóða
hina norrænu gesti velkomna.
Vietnömsk þjóð heyr nú
hetjulega baráttu fyrir írelsi
sínu, og liggur öllum sósíalist-
um og lýðræðisöflum um víða
veröld sú skylda á herðum að
veita þeim þann styrk og stuðn-
ing sem þeir mega. Sósíalistar
á hinum Norðurlöndunum hafa
tekið djarflega upp hanzknnn
fyrir þessa fjarlægu smáþjóð,
og skulum við vona, að koma
þessa víetnamska fulltrúa á
þing okkar verði til þess að
gæða nýjum þrótti baráttu
okkar gegn hinum sameiginlega
óvini. Mætti og ætla, að málið
væri okkur skyldara en sam-
herjum okkar á Norðurlönd-
um, enda þótt hér sé vegið
með öðrum vopnum en i Viet-
Nam.
.★)
Ritstjórn æskulýðssíðunnar
sendir 22. þingi Æskulýðsfylk-
ingarinnar beztu kveðjur og
árnaðaróskir.
SAMBANDSÞING
ÆSKULYDS-
FYLKINGARINNAR
AÐSTOÐARFÓLK
Ilafið samband við skrifstofu ÆF, Tjarnargötu 20, sími 17511.
Okkur vantar sjálfboðaliða til ýmissa starfa vegna undirbúnings
22. þingsins.
DEILDIR ÆF
Hafið samband við skrifstofu sambandsins strax og tilkynnið um
þátttöku fulltrúa á 22. þing ÆF, sem haldið verður f Lindarbæ
dagana 23.—25. september nk. Skrifstofan ér opin frá kl. 11—7
daglega. sími 17511. Allar nánari upplýsingar um þinghald og
terðir til þings eru veittar þar.