Þjóðviljinn - 07.10.1966, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 07.10.1966, Blaðsíða 3
Fösfatdagar 7. oktiSber 1986 — ÞJÍ©VI3JJKrN — SÍÐA J 'WWXJ^ mrnmm llIIPf WWÍ:: I váöu Vél wmasH &> mmrsnv BLEND CH. A H CT rcs J/öff/ hver landgönguliði Bandaríkjanna er óvígfær Bandarískir landgönguliðar á vígstöðvunum í Suður-Vietnam. SAIGrON 6/10 — Enn berast fréttir af hörðum bardögum í héruðunum fyrir sunnan 17. breiddarbaug og enn sem fyrr gera Bandaríkjamenn mikið úr mannfalli í liði Þjóðfrelsis- hersins, en lítið úr sínu eigin. „New York Times“ véfengis Þing brezka Verkarhannaflokksins Nýjar tillögur um Vietnam santnínga Þingið lýsti samþykki sínu við utanríkisstefnu stjórnarinnar LONDON 6/10 — Eftir að Brown utanríkisráðherra hafði lofað á þingi brezka Verkamannaflokksins að hann myndi eiga frumkvæði að því að reynd yrði samningslausn í Viet- nam lýsti þingið með miklum meirihluta samþykki við utanríkisstefnu stjórnar Wilsons. „Inez "stefnir enn á Kúbu, tugþúsundir f/ýja heimili þó þær frásagnir. Fréttaritari blaðsins, Peter Braestrup, segir í skeyti frá Saigon að manntjón bandarísku landgönguliðanna sem einkum eiga í höggi við þjóðfrelsisher- inn í norðurhéruðum Suður- Vietnams hafi verið miklu meira Boumedienne ti! Jíjcóslavín í gær BELGRAD 6/10 — Boumedienne, forseti Alsír, kom í dag til Bel- grad, í fimm daga opinbera heimsókn og tók Tító forseti á móti honum og förunautum, Bouteflika utanríkisráðherra og e Abdessalem iðnaðarmálaráð- herra, Það hefur verið mikill gestagangur hjá Títo að undan- förnu, Ulbricht, forseti Austur- Þýzkalands, er nýfarinn heim frá Júgóslavíu, en áður höfðu Bresn- éf flokksritari og Couve de Mur- ville utanríkisráðherra verið þar á ferð. Minna flutt frá V-Evrépu til USA GENF 6/10 — Útflutningur frá Vestur-Evrópu til Bandaríkj- anna minnkaði á fyrri helmingi þessa árs um 22 prósent miðað við sama tíma í fyrra, segir í skýrslu_ Efnahagsnefndar SÞ í Evrópu. Útflutningurinn til Sov- étríkjanna stóð í stað, en jókst til annarra heimshluta um 10 prósent, en um 12 prósent á sama tíma í fyrra. Útflutningur til Kína hefur stóraukizt, en er enn tiltölulega lítill. en látið er í veðri vaka. Sam- kvæmt frásögn hans hefur um sjötti hluti landgönguliðanna orðið óvígur í bardögunum, eða um 9.000 særðir af 57.000 manna liði. Þá eru ekki meðtaldif þeir landgönguliðar sem hafa fallið eða hinir sem sýkzt hafa af mýrarköldu eða öðrum sjúk- dómum. Af þessu hefur leitt segir fréttaritari „New York Times“ að „varla nokkur, ef þá nokkur einasta landgönguliðssveit hefur •þann mannafla sem ætlazt er til að hún hafi á Stríðstímum. Sumir herflokkarnir (compa- nies) hafa aðeins helming þeirra '210 manna serh þeir eigá að hafa.“ • - ■ / ■ Samstarfsmaður Eichmanns var | sýknaður í Vín I VÍN 6/10 — Það vakti í dag ! furðu og hneykslun í Vínar- ■ borg að dómstóll þar sýkn- ■ aði múgmorðingjann Franz j Novak af ákærunni að hann ! hefði átt sök á dauða þús- ■ unda ungverskra gyðinga. : Novak var einn af nánustu ! samstarfsmönnum Eichmanns ■ og stjórnaði flutningum gyð- ■ inga frá Ungverjalandi í út- j rýmingarbúðir nazista. Nov- • ak hafði árið 1964 verið ■ dæmdur í átta ára fangelsi, : en áfrýjaði þeim dómi til j hæstaréttar sem ógilti dóm- j inn og fyrirskipaði ný rétt- j arhöld, sem nú hefur sem : sagt lyktað með sýknudómi. j Brown las upp tillögur sem hann kvaðst myndu leggja fyr- ir þing SÞ í næstu viku og miða eiga að því að koma á viðræðum um samningslausn í Vietnam. í tillögunum er gert ráð fyrir að stríðsaðilar og rík- Brezka íhaldið vinnur aftur á LONDON 6/10 — Samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem birtar voru í brezka íhalds- blaðinu „Daily Telegraph“ i dag er Verkamannaflokkurinn nú kominn í minnihluta meðal kjós- enda. 43,5 prósent aðspurðra kváðust myndu kjósa íhalds- flokkinn nú, 41 prósent Verka- mannaflokkinn og 14 prósent Frjálslynda. Fyrir mánuði var hlutfallstala Verkamannaflokks- ins 45 prósent. isstjórnir sem hlut eiga að máli komi paman á ráðstefnu og sagði Brown að engin ástæða væri til þess að Þjóðfrelsisfylkingin ætti þar ekki fulltrúa. Eftir að ákveðið hefði verið að halda ráðstefnuna ætti að hætta loftárásum á Norður-Viet- nam og öllum liðsflutningum til Suður-Vietnams. Vopnaviðskipt- um yrði hætt meðan samið væri um vopnahlé og einnig um póli- tíska lausn, sem m.a. fæli í sér almennar kosningár í báðum hlutum Vietnams, t.d. innan 2ja ára, hlutleysi beggja landshluta og bann við öllum erlendum herstöðvum í þeim, sameiningu þeirra ef íbúar beggja vildu það, brottflutning allra erlendra her- sveita frá Suður-Vietnam innan ákveðins tíma, t.d. tveggja ára. Fyrir austan Súez Þótt þingið lýsti trausti sínu á stefnu Wilsons í alþjóðamál- Framhald á 7. síðu. HAVANA 6/10 — Fellibylurinn „Inez“, einn sá skæðasti sem geisað hefur á Karíbahafi í fnörg ár, stefndi í dag enn á Kúbu, | en hann hefur tvívegis farið yf- ir eyna og valdið gífurlegu tjóni á mannvirkjum og ökrum. Tugþúsundir manna í héruð- unum við norðvesturströnd eyj- arinnar lögðu á flótta undan fárviðrinu í dag þegar sýnt þótti að fellibylurinn myndi ganga yfir þau. „Inez“ hefur farið tví- vegis yfir Kúbu, á föstudag og laugardag í síðustu viku, og olli þá miklu tjóni á kaffi- og syk- urekrum á mið- og austurhluta eyjarinnar. Mörg hús hrundu í Havana og létu þrír menn lífið, en manntjón varð þó ekki ná- Súkarno ber sig enn karlmannlega DJAKARTA 6/10 — Sagan mun kveða upp sinn dóm um það hvort Súkarno hefur verið þjóð sinni og hinni indónesísku bylt- ingu góður eða slæmur leiðtogi, sagði Súkarno forseti í ræðu í dag og þykir ræðan benda til þess að hann sé, enn ekki af baki dottinn og telji sig hafa í fullu tré við herforingjana. Hann lagði áherzlu á að Indónesar yrðu að treysta landvarnir sín- ar: — Við lifum í heimi mikilla átaka, alþjóðlegra átaka sem ein- kennast m.a. af sókn heimsvalda- sinna gegn byltingu okkar, sagði Súkarno. lægt því eins mikið á Kúbu og á Guadeloupe og Haiti-hluta Hispanjólu. ' í kvöld sagði veðurstofan á Kúbu að fellibylurinn stefndi beint á fylkið Pinar del Rio, eitt frjósamasta landbúnaðarhérað landsins. Metuppskera I ár í Sovétríkjunum MOSKVU 6/10 — Kornuppsker- an í Sovétríkjunum verður í ár meiri en nokkru sinni áður, eða 160—Í65 miljónir lesta, og er tal- ið að hún ,muni ekki aðeins full- nægja öllulp þörfum Sovétríkj- anna sjálfra, heldur verði einn- ig korn aflögu ‘til útflutnings. Uppskeran er í ár um 10 milj- ón lestum meiri en hún varð áð- ur mest, árið 1964, og 50—60 miljón lestum meiri en árið 1963 þegar uppskerubrestur varð og Sovétríkin neyddust til að gera samninga um stórfelld hveiti- kaup, einkum frá Kanada. Verkfall stölvar umferð í París PARÍS 6/lo — Þúsundir París- arbúa urðu að fara fótgangandi til vinnu sinnar og heim aftur í dag þegar starfsmenn neðan- jarðarbrauta og strætisvagna gerðu sólarhrings verkfall til stuðnings kröfum um kjarabæt- 73% Frakka vilja að Bandaríkjamenn fari frá Vietnam v PARÍS 6/10 — Skoðanakönnun sem franska stofnunin SOFRES hefur gert leiddi í Ijós að yfirgnæfandi meirihluti Frakka ptyður stefnu de Gaulle forseta í Vietnam-málinu og flestir eru þeirrar skoðunar að Bandaríkin eigi alla siik á því livernig komið er í Vietnam. 73 prósent aðspurðra sögðust ‘vera samþykkir de Gaulle um það að Bandaríkjamenn ættu þegar í stað að flytja burt her s'nn frá Vietnam. Aðeins 13 prósent voru andvígir því, en 14 prósent á báðum áttum. Aðeins 22 prósent aðspurðra töldu Banda- ríkin fær um að hafa forystu fyrir vesturlöndum. 0 ' • Hver stund með Camel léttir Iund!“ Kveikið í einni Camel og njótið ánsegjunna af mildu og hreinræktuðu tóbaksbragði. BEZTA TÓBAKIÐ GEFUR BEZTA REYKINP Ein mest selda sígarettan í heiminum. MAD£ m U.SA.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.