Þjóðviljinn - 19.11.1966, Side 1

Þjóðviljinn - 19.11.1966, Side 1
TA Laugardagur 19. nóvember 1966 — 31. árgangur — 265. tölublað. 90 stig gegn 63 KR-ingar stóðu sig betur í keppninni við Evrópu- meistarana í körfuknattleik í Laugardalshöilinni í gær- kvöld en búizt hafði verið við. — Segir Frímann nán- ar frá leiknum á 10. síðu. Um 370 fulltrúar 34.400 alþýðu- manna sitia Alþýðusambandsþing Fundurinn í Háskólabíói hefst ■ Þing Alþýðusambands íslands verður sett í dag kl. 2 með hátíðafundi í Háskólabíói. Þar koma saman um 370 fulltrúar %4.400 íslenzkra alþýðu-; sinfóníuhijómsveit ísiands íeika manna sem nú skipa sér í raðir Alþýðusambandsins. undir stjórn grímssonar. Þorvaldar Stein- Maður stórslasasí við vinnu í Laxá Vinnuslys varð við flutninga- skipið Laxá á fimmta tímanum í gær er unnið var við uppskip- un. Var verið að hífa upp eitt heisið en það snerist og lenti á einum verkamanninum og klemmdist hann milli þéss og veggjar. Maðurinn sem heitir Einar Guðbjartsson til heimilis í Efstasundi 6, var fluttur á sjúkrahús, talinn mjaðmargrind- arbrotinn. Kona fyrir bíl Rétt fyrir hádegið í gær varð sextug kona fyrir bifreið á móts við hús nr. 27 á Barónstíg, féll i götuna og skarst illa á andliti. Hafði ökumaður bifreiðarinnar stanzað fyrir bíl sem var að koma af Grettisgötu og ekki séð konuna þegar hann fór af stað aftur. Önnur kona varð fyrir bif- reið á Suðurlandsbraut á móts við Hálogaland i^m tíuleytið í gærmorgun. Meiddist hún á fót- um og var flutt á Slysavarðstof- una. Þá flytur forseti AlþýSusam- bands fslands, Hannibal Valdi- marsson ávarp og minningarorð um látna félaga. Hátíðafáni Alþýðusambandsins, gjöf frá stofnfélögum sambands- ins, verður vígður og gjöfin þökkuð. Félagsmáiaráðherra, Eggert G. Þorsteinsson, flytur ávarp og einnig flytja þá ávörp crlendir gestir, en þeir eru fjórir: Thom- as Nielsen frá verkalýðshreyf- ingunni í Danmörku, Thorleif Andrcasen frá Noregi, Bengt Noriing frá Svíþjóð og Johan Hcnrik Joensen frá Færeyjum. Að ávörpum þessum loknum flytur forseti sambandsins Hanni- bal Valdimarsson þingsetningar- ræðu. Hátíðafundinum lýkur tneð því að þjóðsöngurinn verð- ur leikinn. Þingstörf munu svo hefjast á morgun, sunnudag, kl. 2 og verður þingið haldið í Lídó. Umræðufundur Stúdentafé- lagsins í dag ★ Stúdentafélag Háskóla íslands efnir til almenns umræðufundar í dag og hefst hann kl. 14 í Tjarn- arbúð. ★ Stefán Jónsson dagskrár- stjóri hjá Ríkisútvarpinu segir þar frá ferð sinni til Kina og svarar fyrir- spurnum varðandi fund- arefnið. ★ Öllum er heimill ókeyp- is aðgangur að fundinum. Hamrafellið kom- ið til Hvalfj. Þjóðviljinn fékk þær upplýs- ingar4hjá Skipadeíld SÍS í gær, að Hamrafell væri væntanlegt til Hvalfjarðar þá um kvöldið. Þar átti það að bíða eftir nauð- synlegum varahlutum frá Þýzka- landi, en koma síðan til Reykja- víkur, þar sem farmur þess verður losaður. Að svo búriú verður skipinu siglt til Þýzkalands þar sem það verður afhent nýjum eigendum. Þrír af erlendu gestunum, sem sitja þing ASI, Thorleif Andreasen frá Noregi, Thomas Nie'- scn frá Danmörku og Johan Hcndrik Joensen frá ^æreyjum. — (Ljósm. Þjóðv. Ari Kárason). ÍHALDIÐ SLÆR SKJALDBORG UM HÚSALEIGUOKRIÐ í B0RGINNI! Vísar frá tillögu í borgarstjórn um hámarkshúsaleigu íbúðarhúsnæðis ■ Á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur sl. fimmtu- dagskvöld vísuðu íhaldsfulltrúarnir frá tiltögu borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins um áskorun á Alþingi að setja ný lög um hámark húsaleigu íbúðarhúsnæðis. Sló íhaldið því enn skjaldborg sinni um húsaleiguokrið í borginni. Tillöguna flutti Jón Baldvin Hannibalsson og var hún svo- hljóðandi: „Borgarstjómin telur óhjá- kvæmilegt að sett verði að nýju lög um hámark húsaleigu íbúð- arhúsnæðis og Ieggur jafnframt áherzlu á nauðsyn þess, að þau Útför Steingríms Stéinþórssonar Útför Steingríms Steinþórsson- ar, fyrrverandi forsætisráðherra. fer fram á vegum ríkisins næst- komandi þriðjudag, 22. nóvem- ber kl. 10,30 frá Dómkirkjunni í Reykjavík Útvarpað verður frá athöfninni. (Frá forsætisráðuneytinu). innifeli ákvæði, er tryggi fram- kvæmd þeirra. Borgarstjórnin beinir því þeirri eindregnu áskorun tii þingmanna Reykjavíkur, að þeir beiti sér fyrir slíkri iagasetningu á yfir- standandi Alþingi.“ Þá flutti Jón viðbótartillögu þess efnis, að borgarstjóra væri falið að láta fara fram ítarlega könnun á leiguhúsnæði í borg- inni. Ekki borgaryfirvöldum óvið- komandi. í Iangri og skilmerkilegri framsöguræðu lagði flutnings- maður áherzlu á að borgaryf- irvöldin gætu ekki látið þessi mál afskiptalaus; nauðsynin á einhverjum úrræðum væri brýn og óhjákvæmileg og ein leið- in í þeim efnum væri setning laga um hámark húsaleigu. Jón Baldvin spurði: Hvaða fólk en það fyrst og fremst sem þarf' á leiguhúsnæði að halda? Og hann svaraði: Það er ungt fólk, ‘sem er að hefja búskap, það er fólk með mörg börn á framfæri sínu, það er lágtekju- fólk í, Iaunþegasamtökunum, það cru sjúklingar og öryrkjar, það eru einstæðar mæður með börn á framfæri o.s.frv. . - Það er vitað. að leiguhúsnæði er að öllum jafnaði lakara en eigið húsnæði, og húsnæðið sem er dýrast er lélegt leiguhúsnæði,'> sagði . Jón. Lélegt húsnæði og gamalt Vitað er, sagði Jón, að mikill hluti leiguhúsnæðisins er lélegt og gamalt húsnæði og verulegur hluti leiguhúsnæðis borgarinnar beinlínis heilsuspillandi. Hann gat þess að gerð hefði verið Itönnun í þessu efni á veg- um eins vcrkalýðsfélagafina ' i borginni. Samkvæmt henni væri 40—50% aí Ieiguhúsnæð- inu yfir 20 ára gainalt, 70—80 prósent ýfir 10 ára gamalt, og rúmur helmingur kjallaraíbúðir og allverulegur hluti hanabjálka- íbúðir. Hinsvegar virtist ekkert benda til þess að húsaleigan væri nokkuð lægri I gömul húsnæði en nýju. 1 þessu sambandi benti ræðu- maður á að húsaleigan hefði fylgt nokkumveginn eftir vísi- tölu byggingarkostnaðar á und- anförnum árum, enda þótt meg- Framhald á 7. síðu. Olympíuskákmótið: Ná íslendingar 10. sæti í A-flokkí? ■ í 12. umferð á Olympíuskákmótinu í Havana á Kúbu sigruðu fslendingar Norðmenn með 2% vinningi gegn 1%. Friðrik vann Jóhannessen, Guðmundur Pálmason gerði jafn- tefli við Ragnar Hoen, Freysteinn vann Lang en Gunnar tapaði sinni skák. Nú er aðeins eftir ein umferð sem tefld verður í kvöld og fer það eftir úrslitum hennar hvort íslendingum tekst að ná 10. sæti í A-flokki en baráttan um það sæti stendur við frændur vora Dani. Væri það að sjálfsögðu mikil kurteisi af okkar hálfu að eftirláta þeim það að launum fyrir handritin! Önnur úrslit í 12. umferð urðu sem hér segir: Sovétríkin 3 — Argentína 1. Bandaríkin 2 — Rúmenía 2 Búlgaría 2% — Danmörk 1% Ungverjal. 2% — A-Þýzkal. 1% Júgóslavía 3Ú2 — Spánn % Tékkóslóvakía 3 — Kúba 1 1 13. og síðustu umferð sem tefld verður í kvöld eigast þessi lönd við í A-flokki: Bandaríkin — Kúba. Tékkó- slóvakía — Danmörk. Búlgaría — Sovétríkin. Argentína — Spámi. Júgóslavía — Island. Noregur — A-Þýzkaland. Ungverjaland — Rúmenía, AJEDREZ LA HÁBANACUBA Ocl-Kovl966 Nýjar kenningar um íslenzk örnefni Þórhallur Vilmundarson prófessor flytur annan fyrir- lestur sinn í hátíðasal Há- skólans sunnudaginn 20. nóv. kl. 2.30 e.h. Fyrirlesturinn nefnist „Eru á ferii úlfur og refur.“ Öllum er heimiil aðgangur. Fyrsta fyrirlestur sinn í þessum flokki, „Kennd er við Hálfdan hurðin rauð“, flutti Þórhallur á sunnudaginn var fyrir fullum hátíðasal. Efni fyrirlestra hans er íslenzk ör- néfni, og gerir hann þar grein fyrir nýrri leiðsögu- kenningu úm það efni. Telur hann að mörg þau persónuör- nefni sem tékin hafa verið góð og gild til þessa séu ekki upprunaleg, heldur hafi land- námsmenn notað náttúruör- nefni er þeir vöMu bæjum og stöðum heiti, en þau hafi síðan breytzt í persónuör- nefni. Þessar nýstárlegu og skemmtilegu kenningar Þór- halls draga að sjálfsögðu dilk á eftir sér og kippa stoðum undan sannfræðigildi margra |i sagna sem naumast hafa ver- ^ ið vefengdar til þessa. k ! J

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.