Þjóðviljinn - 11.12.1966, Page 1
Iðnemar fái viðbótar-
lán til íbúðarbygginga
Geir Gunnarsson og Hannibal Valdimarsson
flytja á Álþingi frumvarp um að iðnnemum skuli
gefinn kostur á viðbótarlánum við hin venjulegu
lán úr Byggingarsjóði ríkisins, á sama hátt og öðr-
um tekjulitlum meðlimum verkalýðsfélaga, en um
slík viðbótarlán samdi verkalýðshreyfingin 1964.
Fundur í Sósíalistafélagi
Rvíkur á morgun kl. 20.30
Félagsfundur verður haldinn í Sósíalistafélagi Reykja-
víkur á morgun, mánudag, og hefst hann kl. 20,30 í .
Tjamargötu 20.
Fundarefni:
Skipulagsmál verkalýðshreyfingarinnar og síðasta þing
A. S. í. Framsögumaður: Eðvarð Sigurðsson. — Þá verftur
og sagt frá Happdrætti Þjóðviljans. — STJÓRNIN.
Giæsileg kjörbúð
KRON í Hiíðunum
í gær opnaði KRON nýja,
stórglaesilega kjörbúð við
Stakkahlíð 17 og var blaða-
mönnum og fleiri gestum
boðið að skoða hana í fyrra-
kvöld. Þetta er fyrsta kjör-
búðin sem Kron reisir frá
grunni, en áður hefur það
látið breyta mörgum verzlun-
um sínum í kjörbúðir, auk
þess sem fyrsta kjörbúðin
hér á landi og sennilega í
allri Evrópu var einmitt
Kronbúð, hún var opnuð á
Vesturgötu fyrir 24 árum.
Byrjað var á byggingu hússins
við Stakkahlíð í september 1965
eða fyrir rúmu ári, jafnhliða var
byggð 12 hæða blokk á Bogahlíð
8 og 10, en þetta var allt upphaf-
lega sama lóðin.
Stærð verzlunarinnar er 300
fermetrar, þar af 170 fermetr-
ar sölugólfrými, þ.e. búðin sjálf.
Bak við er lagerpláss, vinnuher-
bergi, frysti- og kæliklefar,
snyrtiherbergi og kaffistofa. Búð-
in við hliðina er hug^uð sem
fiskbúð, en ætlunin er að selja
mjólk inni í aðalbúðinni.
Húsið er teiknað af Þorvaldi
Kristmundssyni arkitekt. Verk-
fræðistörf annaðist Verkfræði-
skrifstofa Sigurðar Thoroddsen.
Framhald á 4. síðu.
1 greinargerð skýra flutnings-
menn tildrög málsins á þennan
veg:
„Við kjarasamninga sumarið
1964 tryggðu verkalýðssamtökin
sér m.a. loforð ríkisvaldsins um,
að sú breyting yrði gerð á lög-
um um húsnæðismálastjóm, að
tekjulitlum meðlimum verka-
lýðsfélaga yrði gefinn kosturá
viðbótarlánum við hin venjulegu
lán úr byggingarsjóði ríkisins.
Lagabreyting í þessa átt var
samþykkt á Alþingi hinn 10. maí
1965 þar sem heimilað er „að
veita hærra lán til efnalítilla
meðlima verkalýðsfélaga, ogskal
í þessu skyni verja 15—20«milj.
kr. árlega af tekjum byggingar-
sjóðs rfkisins“, eins og í núgild-
andi lögum segir.
Með reglugerð eru sett nánaii
ákvaéði um viðbótarlán þessi, og
í framkvæmd hafa réttindi tii
lánanna verið einskoi’ðuð við
félágsmenn verkalýðsfélaga inr.-
ah Alþýðusambands íslands. Á-
kvæði laganna um viðbótarlán
hafa því ekki náð til iðnnema,
og er*með frumvarpi þessu gerð
tillaga um, að sú breyting verði
gerð á lögunum, að heimild til
viðbótarlána taki einnig til þeirra,
en iðnnemar eru lægra launaðir
en félagsmenn- annarra verka-
lýðsfélaga og sangjarnt er, að
þeir njóti eigi minni réttar um
viðbótarlán til húsbygginga.
Samkvæmt núgildandi ákvæð-
um eiga iðnnemar ekki kost á
að njóta þess réttar, sem lögin
heimila meðlimum verkalýðs-
félaga, fyrr en þeir hafa lokið
iðnnámi og' eru orðnir félags-
menn í einhverju stéttarfélagi
iðnsveina. Reynslan er hinsveg-
ar sú, að þegar að því kemur
hafa fjölmargir hinna nýju iðn-
sveina þegar misst af þessum
rétti vegna þess, að á námsár-
unum hafa þeir orðið að basla 1
því að eignast íbúð en viðbót-
arlánin eru ekki veitt, eftir að
íbúðin hefur verið tekin í not-
kun.
Iðnnemar, sem hafa fyrirfjö!-
skyldu að sjá þurfa að leggja
mjög hart að sér til að leysa
húsnæðisvandamál sín, njóta því
Framha’d af 4. síðu.
Verdur hægt aB afqreiða fólapóstinn}
Vegna eftirvlnnustöðvunar póstmanna hleðst nú jólapósturinn upp og er engan veginn hægt að
*
anna afgreiðslu hans í dagvinnutímanum. Allir böggiar og varningur sem komu með Krónprins
Fredcrik liggja cnn óhreyfðir, og sama er að segja um það sem kom með Britt Ann og King
Star, svo hætt er við að ýmsir fái jólabögglan a heldur seint þetta árið, ef samningar í kjara-
dcilunni takast ekki fljótlega. — Myndina hér að ofan tók Ijósm. Þjóðviljans, A.K. í Tollpóst-
stofunni í gær af jólapósti sem ekki er Hægt að afgreiða og hefur blaðið heyrt að I ráði muni að
koma þessu til geymslu í lögreglustöðinni nýju.
Loftieiðir kaupa
hús í miðbænum
f gær, laugardaginn 10. des.
voru undirritaðir samningar
milli Verzlunarbanka lslands hf.
og Loftleiða hf. um kaup Lofl-
leiða. á eigninni nr. 2 við Vest-
urgötu. Er \ætlun Loftleiða að
Umferðarslys
Um tvöleytið í fyrrinótt varð
smáslys á Skúlagötunni. Drukk-
inn maður slangraði fyrir bilog
meiddist eitthvað en þó ekki
alvarlega. Hann var fluttur á
Slysavarðstofuna.
hafa þar söluskrifstofur í fram-
tíðinni.
Stærð lóðarinnar er 1299 fer-
metrar. Þar stendur nú svonefnt
Bryggjuhús ásamt vörugeymslum
er snúa að Tryggvagötu. Stærð
hússins er um 450 fermetrar og
er þar nú til húsa Heildverzlun
Einars Farestveit, Heildverzlun
Nathans Olsen, Verzlunin Chic
og Raforka hf.
Upp úr næstu áramótum munu
Loftleiðir flytja farmiðasöludeild
sína frá Lækjargötu 2 í húsnæði
það sem verzlunin Ohic hefurnú
að Vesturgötu 2.
Sigurhans
Hannesson
látinn
Sigurhans Hannesson járnshiið-
smiður, Laugavegi 93, lézt í gær á
Heilsuverndarstöðinni 81 árs að
aldri.
Sigurhans var einn af stofn-
endum Félags íslenzkra járniðn-
aðarmanna og hefur verið heið-
ursfélagi þess í mörg ár.
Kópavogur
Fulltrúaráð óháðra kjósenda
heldur fund í Þinghól mánudag-
inn 12. desember kl. 8,30 e.h.
Til umræðu verður fjárhags-
áætlun bæjarins. Félögum er boð-
ið á fundinn.
MetveiBi hjá togaranum
Mai á Nýfundnalandsmiðum
■ Togarinn Maí frá Hafnarfirði, eign Bæjarútgerðar Hafn-
arfjarðar, er nú á heimleið af Nýfundnalandamiðum með
fullfermi, um 480 tonn, sem hann fékk á vikuthna. Er þetta
bezti afli íslenzks togara í lengri tíma. Skipstjóri á Maí
er Halldór Halldórsson.
■ Maí er búinn að vera um hálfan mánuð í túrnum. Fór
hann fyrst á miðin við Austur-Grænland en þar var lítill
fiskur en mikið um ís og hélt togarinn því á Nýfundna-
landsmið, Ritubanka, og þar fékk hann áðurnefndan afla.
Var togarinn einn á þessum slóðum. Maí er væntanlegur
til Hafnarfjarðar upp úr helginni.