Þjóðviljinn - 22.12.1966, Qupperneq 1
%
Fimmtudagur 22. desember 1966 — 31. árgangur — 293. tölublað.
Óvenju hirœfiS ávlsanafals:
Sveik út húsgögn og notaði
annan til að falsa i banka
Óvenju bíraefið og reyfara-
kennt ávísanafals var framið hér
í borginpi í fyrradag og nemur
upphæð peninga og verðmæta
sem svikin voru út alls kr.
112.620,00. Virðist sá er falsaði
hafa fundið ávísanahefti og gaf
hann út svo vitað sé tvær á-
vísanir, aðra fyrir húsgögnum
sem hann keypti og hina í banka
fyrir peningum, að því er Magn-
ús Eggertsson rannsóknarlög-
reglumaður sagði Maðinu í gær.
f húsgagnaverzlunina kom
maðurinn um kl. 6 í fyrradag,
en hafði þá komið daginn áð-
ur og valið sér húsgögnin af
mikilli kostgæfni, allt af vönd-
uðustu gerð, og tókst meira að
segj a að prútta verðinu niður
;-fyrir venjulegan afslátt sem gef-
inn er þegar greitt er út í hönd.
Nú kom hann til að sækja og
greiða fyrir það sem hann hafði
fest kaup á, sem var sófasett,
hjónarúm með dýnum, snyrti-
borð, borðstofuskápur og gæru-
kollur, allt úr tekkviði og mjög
vandað, og borgaði maðurinn
fyrir þetta samtals 67.620 krónur
með ávísun.
Tók hann síðan sendiferðabíl,
sem hafði verið að koma með
vörur til verzlunarinnar, og lét
aka sér niður i bse og í banka
sem hefur kvöldafgreiðslu. Þar
fer hann út, en kemur síðan til
baka og biður bílstjórann fyrir
alla muni að hjálpa sér, hann
hafi séð stúlku í bankanum,
sem hann megi ekki með nokkru
móti láta sjá sig, hvort bílstjór-
inn geti nú ekki gert sér þann '
greiða að fara. í bankann og fá
ávísuninni skipt. Bílstjórinn
Framhald á 12. síðu.
Stefnuskrá vinstriflokka i
Frakklandi var birt í gær
8Ó\«-> Htv
VU. S
44«
Auglýsinga-
myndir eftir
skólabörn
Tvær af þeim 60 auglýs-
ingum, sem skólabörn í
Reykjavík hafa gert og
settar hafa verið upp í
strætisvögnum borgarinnar.
Frá úrslitum samkeppni
þeirrar meðal barnanna,
sem Bariiaverndarnefnd
Reykjavíkur efndi, til er
sagt nánar á 4. síðu blaðs-
ins í dag, en á baksíðunni
eru myndir af stúlkunum
þrem sem dómnefnd taldi
að sent hefðu heztu teikn-
ingarnar.
Myndirnar hér að ofan
eru eftir Pétur Orra Jóns-
son, 11 ára, Landakotsskóla
(til vinstri) og Ásdísi Sig-
urþórsdóttur, Handíða- og
myndlistarskólanum.
PARÍS 21/12 — I dag var birt
i Frakklandi stefnuskrá sú sem
frönsku vinstriflokkamir hafa
komið sér saman um, en sam-
komulag tókst milli þeirra í gær
um samstarf í þingkosningunum
sem fram fara í Frakklandi 5. og
12. marz n.k. Meginatriði sam-
HEILDARAFU N0RÐAN LANDS 0G
AUSTAN 0RÐINN 690.320 LESTIR
JHvinnuleysi vex
NURNBERG 21/12 — Atvinnu-
leysingjum í Vestur-Þýzkalandi
fjölgaði úm 110.000 síðasta hálf-
an mánuð og eru þeir nú orðnir
327-300. HlUtfallstala atvinnu-
lausra manna hækkaði úr 1 í 1,5
prósent- Þess hefur verið getið
til að atvinnuleysingjar í Vest-
•tír-Þýzkalandi verði í vor um
700.000.
□ í lok síðustu viku var heildarsíldaraflinn
norðanlands og austan kominn upp í 690.230. Afla-
hæsta skipið var þá Gísli Ámi frá Reykjavík með
12.775 lestir, en í öðru sæti Jón Kjartansson Eski-
firði með 10.070 lestir.
Aflinn skiptist
verkunaraðferðum:
í salt
í frystingu
í bræðslu
Flutt út ísað
Auk þess hafa
þannig eftir
lestir.
60.774
21.653
607.363
* 440
erlend skip
jandað 4.829 lestum hérlendis til
vinnslu. Á sama tíma í fyrra
nam heildaraflinn 572.726 lestum
og skiptist þannig eftir verkun-
araðferðum: lestir
í salt 58.745
í frystingu 5.816
í bræðslu " ^ 507.175
Helztu löndunarstaðir eru þess-
ir: lestir
Reykjavík ............... 41.868
Hafnarfjörður ............ 2.076
Akranes .................. 2.782
Bolungarvík .............. 7.204
Siglufjörður ........... 25.647
Ólafsfjörður ............ 6.740
Hj alteyri ..............‘10.006
Krossanes .............. 16.351
Húsavík ................. 4.260
Rauíarhöfn ............. 54.186
Þórshöfn ................ 2.313
Bakkafjörður ............ 1.359
Vopnafjörður ........... 36.454
Borgarfjörður eystri .... 8.556
Seyðisfjörður ......... 168.877
Mjóifjörður ............. 1.107
Neskaupstaður ......... 106.770
Eskifjörður ............ 74.429
Reyðarfjörður .......... 38.889
Fáskrúðsfjörður ........ 36.755
Stöðvarfjörður ......... 11.722
Breiðdalsvík ............ 8.449
Djúpivogur '............ 12.055
Vestmannaeyjar ........ 7.729
Grindavík ............... 3.014
Keflavík ................ 1.984
Sildveiðarnar sunnanlands I sunhanlands var í vikulokin orð-
í vikunni fengu 2 bátar 94 inn 45.490 lestir, var á sama
lestir við Eldey. Heildaraflinn I tíma í fyrra 134.479 lestir.
komulagsins er að brjóta þurfi
á bak aftur stjóm gaullista og
munu flokkamir leggja allt kapp
á að fella frambjóðendur þeirra
í kosningunum. Hver flokkur fyr-
ir sig mun bjóða fram í fyrri
lotu kosninganna, en sameinast
í síðari lotunni um þann fram-
bjóðanda sem líklegastur er tal-
inn til að fella frambjóðanda
gaullista.
Flckkarnir viðurkenna að
i margt 'beri á milli þeirra, en þeir
' eru þó allir sammála um að
' Frakkar eigi að afsala sér
■kjamavopnum, vinna að afvopn-
um og stuðla að friðsamlegri
sambúð ríkja. Þess er krafizt að
Bandaríkjamenn hætti loftárás-
um sínum á Norður-Vietnam og
lýst andstöðu við að Vestur-
Þýzkaland fái aðild að kjama-
vopnum. v
Tveir látnir með skotsár
- Þriðji maðurinn datt niður af húsþaki og lézt
í gærkvöld fundust þrír menn
látnir í Reykjavík. Einn þeirra
hafði dottið niður af húsþaki en
hinir tveir voru með skotsár þeg-
ar komið var að þeim.
Blaðið hafði samband við Ing-
ólf Þorsteinssan, lögregluvarð-
stjóra í gærkvöld. Gat hann ekki
gefið teljandi upplýsingar að svo
komnu máli.
Maðurinn sem datt niður af
þakinu hafði verið að vinna við
að setja upp loftnet þegar slysið
vildi til.
Hinir tveir sem voru miðaldra
menn fundust látnir í íbúð hér
í bænum, báðir með skotsár, en
þetta er ekki hálfranpsakað mál,
sagði Ingólfur.
I
I
I
I
Happdrœtti Þgóðvilians - 3 dagar eftir
I ★
Minnum á að nú eru aðeins'
tveir söludagar eftir — dregið
verður annað kvöld, á Þorláks-
messu.
Allir sem fengið hafa miða í
happdrættinu eru hvattir til
að gera skil sem allra fytst.
f Reykjavík er tekið við skil-
um í afgreiðslu Þjóðviljans á
Skólavörðustíg 19. Opið verð-
ur þar frá 10 að morgni til kl.
10 í kvöld (líka opið í matar-
tímunum). —Síminn er 17502
í kvöld.
Vinningarnir eru tvær Mosk-
witchbifreiðir af nýjustu ár-
gerð, auk nokkurra smærri
aukavinninga.
OPIÐ til klukkan tíu í kvöld - Til miðncettis annað kvöld J