Þjóðviljinn - 22.12.1966, Qupperneq 12
!
I
í
I
\
\
\
\
*
I
!
Halldóra Magnúsdóttir við húsið sem þær Bryndís bjuggu
til saman. — (Ljósm. Þjóðv- A. Kj).
Þrjár tólf ára stúlkur áttu
beztu myndir í keppninni
■ Úrslit hafa nú verið tilkynnt 1 samkeppui þeirri sem
Bamaverndarnefnd Reykjavíkur efndi til meðal skólabarna
í borginni um teikningar til stuðnings herferðinni gegn
óleyfilegri útivist barna á kvöldin. Voru valdar úr sex-
tíu beztu teikningarnar sem bárust og hafa þær nú verið
hengdar upp á áberandi staði í strætisvögnum borgarinn-
ar,- en börnunum sem teiknuðu þær verður veitt viðurkenn-
ing 3. janúar n.k. og birtast nöfn þeirra og nánari frétt af
tilhögun keppninnar á 4. síðu blaðsins í dag.
■ Þrjár myndir sem beztar»þóttu af hinum 60 útvöldu
fá sérstaka viðurkenningu |0g verðlaun, en börnin sem
/teiknuðu þær eru Björk Þorleifsdóttir úr Austurbæjarskóla,
Bryndís Sveinsdóttir og Halldóra Magnúsdóttir úr Landa-
kotsskóla, allar tólf ára gamlar, og heimsótti Þjóðviljinn
þessa ungu teiknara í gær og fékk að smella af þeim mynd.
Björk Þorleifsdóttir.
Bryndís Sveinsdóttir.
Við hittum Bryndísi Sveins-
dóttur á heimili móður sinnar
og fósturföður, Guðlaugar
Kristmundsdóttrur og Þorsteins
Arasonar, Austurbrún «2, og
var hún að gæta litlu systur
þegar Við komum og hafði
ekkert heyrt um úrslit keppn-
innar.
— Nei, ég blustaði ekki á
útvarpið.' Þetta kemur alveg
flatt upp á mig. segir hún
bros^andi. Mynd hennar í
keppninni var af tveim stelp-
um sem voru að bíða fyrir ut-
an heima hjá sér eftir þvi að
einhver opnaði fyrir þeim, því
að klukkan v»r að verða átta
og þær ætluðu inn. Teikning
hennar var máluð með vax-
litum.
Teiknikennari Bryndísar í
Landakotsskóla er Þuríður
Guðmundsdóttir, en annar
nemandi hennar úr sama bekk
var einnig á meðal þrigg.ia
beztu, Halldóra lyiagnúsdóttir,
Kaplaskjólsvegi 41, dóttir
Magnúsar Hjálmarssonar og
Ragnheiðar Þórðardóttur.
Svo skemmtilega vill til að
Bryndís og Halldóra eru vin-
konur og hafa báðar mjög
gaman af að teikna og mála
og heima hjá Halldóru sjáum
við veglegt jólahús sem þær
hafa gert saman.
— Min mynd var af stelpu
sem var að ganga úti og ann-
arri að líta á klukkuna og
þegar hún sá að klukkan var
orðin 8 þá fór hún að hugsa
um lögregluna og það sést á
myndinni hvað hún hugsar,
segir Halldóra okkur. Og syst-
kini hennar þyrpast að og
horfa stórey á ljósmyndarann
beina vélipni að stóru systur.
Þriðju stúlkuna, Björk Þor-
leifsdóttur, hittum við ekki
heima, hún var að vinna í
jólafríinu, sendast hjá Ludvig
Storr ásamt tvíburasystur
sinni, en Björk er ein af átta
börnum Þorleifs Jónssonar
lögregluþjóns og konu hans
Hlífar Lárusdóttur.
— Uss, ég er ekkert dugleg
að teikna, segir Björk, ég er
alveg hissa á þessu. Myndin
mín var máluð með japönsk-
um litum, hún er af kluikku
og svo sást aftan á stelpu.
Teiknikennarinn okkar í Aust-
urbæjarskólammi heitir Björn
Birnir.
Neskaupstað bannað ai hef ja smíði
skólahúsnæhis fyrir sitt eigið fé!
■ Allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðu-
flokksins felldu við 3. umræðu fjárlaga breytingartillögu
Lúðvíks Jósepssonar uni 900 þús. kr. framlag til bygging-
ar heimavistarhúsnæðis við gagnfræðaskólann í Neskaup-
stað. Með tillögunni voru þingmenn Alþýðubandalagsins og
allir þingmenn Framsóknar nema þrír, sem ekki virtust
hafa áhuga á málinu og sátu hjá. Felld var líka varatil-
laga Lúðvíks úm 250 þús.kr. framlag til undirbúningsfram-
kvæmda í þessu máli. Meðal þeirra sem felldu tillögurnar
vap Austurlandsþingmaðurinn Jónas Pétursson. Fxam kom
í umræðunum að Neskaupstað- hefði verið meinað að hef ja
smíði þessa húsnæðis fyrir sitt eigið fé!
Þegar Lúðvík mælti fyrir til-
lögunni lýsti hann yfir undrun
sinni á því að meðferð þessa
máls hefði verið með sérstæð-
um hætti. í gagnfræðaskólanum
í Neskaupstað væri tvisett í allar
kennslustofur og mikil kennsla
færi fram í skólanum þar að
auki. Þangað sækti allmikið af
unglingum úr öðrum byggðar-
lögum á Austurlandi, og sterkar
óskir væru uppi, um að byggð
verði heimavist íyrir aðkomu-
nemendur, og einnig til að leysa
önnur húsnæðisvandamál skól-
ans. Samkvæmt ráðleggingum
fræðslumálastjóra og með fullu
samráði við menntamálaráðherra
var gerð teikning af slíku heima-
vistarhúsnæði og allar áætlanir
gerðar. Þær áætlanir hafa legið
fyrir fjárveitinganefnd og fram-
kvæmdavaldinu á þriðja ár, en
við afgreiðslu fjárlaga hefur
ekki fengizt tekin upp smáfjár-
veiting sem viðurkenning á und-
irbúningsframkvæmdunum.
★ Neskaupstað neitað að
byggja
Lúðvík kvaðst hafa snúið sér
til menntamálaráðherra fyrir ári
samkvæmt beiðni bæjarstjórnar-
innar í Neskaupstað og spurzt
fyrir um það hvort Neskaup-
staður mætti ráðast í þessa
byggingu fyrir sitt eigið fé, án
þess að Ieitað yrði að sinni eftir
nokkurri fjárveitingu frá rík-
inu. Svarið var algert nei, slíkt
væri ekki hægt þar sem fram-
kvæmdin hefði ekki fengið neina
viðurkenningu á fjárlögum.
Nú hefði enn verið neitað að
viðurkenna þessar framkvæmdj
ir. Hinir háu fyrirmenn fræðslu-
Fimmtiudagur 22. desember 1966 — 31. árgangur — 293. tölublað.
Lífshættulegt eitur
er í umferð / Eyjum
Fyrir allnokkru, ekki er vitað
hvenær, var stolið tveimur 50
kílóa pokum af rotvarnarefninu
Nitrit úr geymslu fiskimjöls-
verksmiðjunnar í Vestmannaeyj-
Bkki vitnaðist um þjófnaðinn
fyrr en í fyrradag, að efnafræð-
ingur var staddur í húsi nokkru
þar í bæ og vék sér þá að hon-
urrt drengur á unglingsaldri og
spurði hvernig farið væri að því
að búa til sprengipúður. Hann
svaraði því til að til þess þyrfti
saltpétur. Stráksi sagðist eiga
nóg af saltpétri og kom með
sýnishom. Efnafræðingurinn sá
þegar hvers kyns var og til-
kynnti það til lögreglunnar.
Hér var nefnilega um rotvam-
arefnið Nitrit að ræða, en það
er baneitrhð ef þess ef neytt,.
en nauðalíkt saltpétri í útliti.
Hvítt fínkomað duft.
Lögreglan hóf þegar rann-
sókn og hefur náð ‘í sínar vörzl-
ur um 12 kílóum af efninu og
hefur haft spumir af nokkru
magni sem hefur verið eyðilagt.
Ekki er henni kunnugt ,um að
meira af því sé í umferð, en
ítre^ar að hér er um lífshættu-
legt efni að ræða og skorar á
hvern þann sem hefur slíkt efni
undir höndum eða veit af þvi
í höndum unglinga, að fram-
selja það strax.
Sjópósturinn bíður
I gærmorgun var byrjað að
bera út jólapóst í Reykjavík
þann sem afhentur var fyrir 15.
desember og verður hann borinn
út næstu daga ásamt öðrum pósti
sem börizt hefur eftir 15. des-
ember. Um 400 manns starfa nú
við sundurgreiningu og drcifingu
póstsins; þar a.f margt aukafólk.
I samtali við Þjóðviljann sagði
Mattiýas Guðmundsson, póst-
meistari að hér væri um innlend-
an póst og flugpóst frá útlönd-
um að ræða, bæði bréf og pakka.
Ekki hefði verið hægt að sinna
pósti sem komið hefði með skip-
'um frá útlöndum þessa dagana
vegna þess hve pósturinn hefði
hrúgazt upp. T.d. hefðu komið 6-
700 póstpokar með Gullfossi sem
ekki væri hægt að afgreiða strax.
Síðan póstmenn fengu leiðrétt-
ingu sinna mála og yfirvinnu-
bannið var lagt niður hafa þeir
unnið myrkranna á milli og síð-
ustu daga frá kl. 8-12 og þar
fram yfir.
Um 80 aukamenn vinna nú í
mála yrðu að vísu svolítið
skrítnir í framan þegar rætt
væri við þá hverníg á neituninni
standi. Mér dylst það að vísu
ekki, sagði Lúðvík, að hér er
um freklega misbeitingu valds
að ræða. Hér er verið að mis-
muna aðilum á hinn herfileg-
asta hátt, vegna þess að til-
teknir aðilar vilja koma’ í veg
fyrir að reist sé tiltekið skóla-
mannvirki á þessum stað. Væri
rétt að það kæmi alveg skýrt
fram hverjir vildu neita Nes-
kaupstað að ráðast í þessa
framkvæmd, og það jafnvel þó
hann bjóðist til að leggja fram
fjármunina sjálfur.
Því flytti hann nú tilögu sem
hann teldi réttláta, um 900 þús.
króna framlag til heimavistar-
byggingar; en til vara að veitt-
ar yrðu 250 þús. kr. til undir-
búningsframkvæmda, svo ljóst
væri að framkvæmdin væri við-
urkennd og hægt að athafna sig
við hana.
Stjórnðritiyiidun
reynd í Aþenu
AÞENU 21/12 — Konstantm
konungur fól í dag Paraskevo-
poulos þjóðbankastjóra að reyna
að mynda nýja stjórn. Stjórn
Stephanopoulosar féll í gær,
þegar íhaldsflokkurinn ERI aft-
urkallaði stuðning sinn við hána,
en hann á 99 fulltrúa á þingi.
Stjómin hafði aðeins tveggja
atkvæða meirihluta. Stjórnin féll
vegna þess að Stephanopoulos
hafði neitað að verða við kröfu
um að siglingamálaráðherrarm
segði af sér, en hann er talinn
bera ábyrgð á hinu mikla sjó-
slysi fyrir skömmu, þegar ferju-
skipið „Iraklion" fórst og með
því 232 menn.
Pósthúsinu og aUs bera 180 út
póst. Með föstum starfsmönnum
sagði póstmeistari að um 400
manns ynni nú við að koma
jólapóstinum til skila.
Avísanafaís
Framthald af 1. síðu.
verður við þessari bón og tekur
þarna út fyrir viðskiptavin sinn
45 þús. krónur og skrifar að
sjálfsögðu sitt eigið nafn á á-
vísunina við móttöku.
Að þessu loknu lætur maður-
inn aka sér á bilastæði við
Rauðarárstig milli Njálsgötu og
Grettisgötu, þar tekur hann hús-
gögnin út, breiðir yfir þau og
borgar bílinn. En þegar bíl-
stjórinn ekur burt fer hann að
hugsa um að hálf sé þetta nú
skrýtið að skilja húsgögnin eft-
ir svona úti á berangri, bæði
var veðrið vont og'5 húsgögnin
ný og sérlega vönduð. Fer svo
að lokum að bilstjórinn snýr við
og ekur aftur að stæðinu, en
þá var allt horfið, maður og
húsgögn, og munu hafa liðið
um 20 mín. frá því að þeir
skildú.
f gær kom svo í ljós að báðar
ávísanirnar voru falsaðar og
voru úr tékkhefti sem nýlega
hafði tapazt og hafði eigandi
heftisins tilkynnt bankanum tap-
ið á mánudag.
Nú biður rannsóknarlögreglan
þá er kynnu að hafa orðið var-
ir við flutning á húsgögnum á
stæðinu við Rauðarárstíg, annað
hvort vegfarendur, vöru- eða
sendiferðabilstjóra að láta sig
vita. Klukkan var rúmlega sjö
um kvöldið þegar bílstjórinn
skildi við manninn á stæðinu,
svo flutningurinn hefur farið
fram á tímanum sjö til hálfátta.
Sovéikt geimfpr á
leið til tunglsins
MOSKVU 21/12 — I inorgun var
skotið á loft frá Sovétrikjunum
nýju geimfari, Lúnu 13. og er
því æfflað að fara til tunglsins.
Ekki hefur verið skýrt frá því
hvort ætlunir. er að geimfarið
lendi á tunglinu, heldur aðeins
sagt að það eigi að halda áfram
rannsóknum á tunglinu og næsta
nágrenni þess.
Talið hefur verið sennilegt að
sovézkir vísindamenn myndu
reyna aö senda geimfar á braut
umhverfis tunglið, en taka það
síðan aftur til jarðar og er vel
hugsandi að sú tilraun verði
gerð með Lúnu 13.
í dag var einnig skotið á braut
frá Sovétríkjunum nýju gervi-
tungli af gerðinni Kosmos, þvi
137. í röðinni. Braut þess liggur
alllangt frá jörðu, jarðfirð er
1720 km, og er talið hugsanlegt
að það eigi að fylgjast m<'!' ferð-
um Lúnu 13.
I