Þjóðviljinn - 30.12.1966, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 30.12.1966, Blaðsíða 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 30. desember 1966. Otgetaudl: Sainemmgarflolctou aiþýðu — SóslaUstaflokk- urinn. Ritstjórar: tvar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson, Siguróur Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V Friðþjófsson. Auglýsingastj.: Þorvaldur lóhannesson. Simi 17-500 (5 Iínur). Áskriftarverð kr. 105.00 á mánuðl. Lausa- söluverð kr. 7.00. Hækkun fískverðs gjö ára „viðreisn“ hefur leikið sjávarútveginn grátt; meira að segja þingmenn stjórnarflokk- anna viðurkenna hvernig komið sé fyrir stórum hluta bátaflotans og togaraútgerðinni, þó þeir reyni í lengstu lög að kenna einhverju öðru um en stjómarstefnunni. Verði haldið áfram á þeirri braut er ekld annað fyrirsjáanlegt en að stórfelld- ur samdráttur verði í veiðum þorsks og ýsu og annarra þeirra fisktegunda sem verið hafa megin- hráefni fiskvinnslustöðvanna um land allt. Þau mál geta lent í harðan hnút nú í byrjun árs og vertíðar ef ekki vercíur reynt að afstýra verstu afleiðingunum af óstjóm íhaldsins og Alþýðu- flokksins á þessu sviði atvinnulífsins. j^jeðal þeirra ráðstafana sem verða óhjákvæmi- legar ef bátar eiga að stunda vetrarvertíð, er veruleg hækkun fiskverðs til bátanna. Þar eru að koma fram gamlar vanrækslusyndir; þingmanna- nefndin sem rannsakaði hag minni bátanna mun hafa komizt að þeirri niðurstöðu að fiskverðið hafi enganveginn hækkað til jafns við annað á undangengnum árum, en það hefur þýtt rýrn- andi kjör sjómanna, ekki sízt þar sem aflamagnið hefur jafnframt minnkað. Þetta er þeim mun víta- verðara sem einmitt hefði verið hægt á undan- förnum árum að hækka fiskverðið mun meir en gert var, til þess voru öll ytri skilyrði vegna hækk- andi verðlags á afurðunum erlendis. Þegar talað er um sjómannakjör þessara ára dugar ekki að einblína á tekjur manna á aflamestu sí-ldarbát- unum. Sverrir Júlíusson alþingismaður hældist um nýlega á fundi útgerðarmanna hve aðgerða- laust hefði verið undanfarin tvö ár í kjarabaráttu sjómanna, þeir hefðu nær eingöngu fengið kjara- bætur með hækkuðu fiskverði. Þeim mun harka- legra er að fiskverðinu skuli hafa verið haldið óeðlilega lágu, þannig að sjómenn hafi ekki held- ur með því móti fengið hlutfallslegar kjarabætur við ^ðra. Og þó hér hafi verið talað um bátana mun sama gilda með togarana, þeir munu heldur ekki una hinu óeðlilega lága fiskverði. gn hvað þá um getu fiskvinnslustöðvanna til að kaupa fisk hærra verði? Allt fram á þetta ár a.m.k. hefðu þær átf að geta það, útflutningsvör- ur þeirra hafa stigið í verði. Nú eru hins vegar hin heimatilbúnu vandamál, afleiðing rangrar stjómarstefnu, að leggjast með vaxandi þunga á fiskvinnslustöðvamar. Bn vandli þeirra verður ekki leystur með því að búa þannig að þeirri út- gerð og sjómönnum sem stunda bolfiskveiðar, afla hráefnis fiskvinnslustöðvanna, að sú útgerð stöðv- ist og sjómennimir sem þær veiðar hafa stund- að leiti til annarra veiða eða starfa í landi. Þess vegna hlýtur fiskverðshækkun til báta og togara að verð^, uú um áramótin og hún veruleg; þing- nefndin mun hafa lagt til 10% hækkun til bátanna strax og meirj hækkun síðar á árinu; það er þó sennilega illt of lítið,. eigi tilætlaður árangur að nást. — s: Hjartaslög eldfjallsins Á Kamtsjatkaskaga í Austur-Síbcríu eru eldfjöll allmörg og sum þerrra athafnasöm. Eitt þekktasta þessarra fjalla er Avatsjínskcldfjallið — streyma einhverskonar gosefni úr gig þess linnulaust, en oftast er það ekki nema gas og gufa. — Ekki alls fyrir löngu gerðu sovézkir eldfjallafræðingar sér erindi upp á Avatsjínsk. Komu þeir fyrir niðri í gíg fjallsins margvíslegum senditækjum sem taka við og skrá niður margvíslegar upplýsingar um athafnir eldfjallsins og útvarpa þehn á tveggja stunda fresti. Ctvarpsstöð þessi fær rafmagn frá Iítilli vindmyllurafstöð á fjallinu. — Efri myndin sýnir nokkra vísindamenn horfa niður i gíginn, sú neðri sýnir m. a loftnetið sem kemur skila- boðum um hjartaslög eldfjallsins áleiðis til Sibirsku vísindaakademíunnar. nfsvestía“ bjart- sýn á pélitíska þróun V-Evrópu MOSK'VU 28/12 — Utanríkis- málaritstjóri „Isvestia“, mál- gagns sovétstjórnarinnar, Nikol- aj Poljanof, gefur til kynna í áramótagrein sem birtist í blað- inu i dag að telja megi að póli- tísk þróun í Vestur-Evrópu á árinu sem er að líða hafi verið hagstæð og ne/nir hann sérstak- lega gang mála á Norðurlöndum sem dæmi um það. Poljanof segir að á síðasts misseri hafi veriá stöðugt sam- band á miHi ríkisstjórna í báð- um hlutum Evrópu. Hugmynd- irnar úm öryggissáttmála Evr- ópuþjóða móti æ meir afstöðu Finna og Svía til utanríkismála og þeirra gæti einnig i Norégi og Danmörku, þar sem stjórn- arvöldin hafi hafnað öllum til- mælum Bandaríkjamanna um staðsetningu kjarnávopna. Sættir um bókina „Dauði forseta"? NEW YORK 28/12 — Nokkrar horfur eru nú á því að fullar sættir geti tekizt í deilu þéirri sem risin t vegna' bókarinnar um morðið á Kennedy forseta, „Dauði forseta" eftir William Manchester. Jacqueline Kennedy hefur fallið frá þeirri kröfu sinni að útgáfa bókarinnar verði stöðvuð með dómsúrskurði, en forlagið, Harper and Row, hef- ur fyrir sitt leyti lofað að gefa bókina ekki út fyrir 1. apríl. Talið er sennilegt að forlagið samþykki að íella úr bókinni þá kafla sem Jacqueline Kennedy hefur amazt við, en tímaritið ,,Look“ sem hefur forbirtingár- réttinn hefur þegar fallizt á að sleppa köflum sem samtals eru 1600 orð. Félag hljómlist- armanna opnar ráðningarstofu Félag íslenzkra hljómlistar- manna hefur opnað ráðningar- stofu. Geta þeir aðilar, sém þurfa á hljómsveitum að halda eða einstökum hljóðfæraleikur- um framvegis snúið sér til skrif- stofunnar en hún er að Óðins- götu 7 og er hún opin frá kl. 14—19 alla virka daga. Síminn 20255. Félagið rak ráðningarstofu fyr- ir nokkrum árum og gaf það mjög góða raun, en sú starfserrii hefur legið niðri þar sem hús- nseðisskortur stóð starfseminni fyrir þrifum. En með tilkomu eigin húsnæðis að Óðinsgötu 7 hefur þessi starfsemi verið tek- in upp að nýju. B/að- dreifíng Blaðburðarböm óskast í eftirtalin hverfi. Langholt Vesturgötu Hverfisgötu Tjarnargötu Leifsgötu Laufásveg Laugaveg Múlahverfi Seltjarnames II Símj 17-500 V

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.