Þjóðviljinn - 10.02.1967, Side 6
g SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 10. febrúar 1967.
o Brúðkaup
• Laugardaginn 28. janúar
voru gefin saman í hjónaband
í Langholtskirkju af séra Áre-
líusi Níelssyni ungfrú Rannveig
Karlsdóttir og Eyjólfur Bryn-
jólfsson. Heimili þeirra er að
Grundargerði 6. (Ljósmynda-
stofa Þóris, Laugavegi 20B).
• Laugardaginn 28. janúar
vonu gefin saman í Hv&lsnes-
kirkju af séra Guðmundi Gud-
mundssyni ungfrú Rósa Sam-
úelsdóttir hágreiðsludama og
Ari Stefánsson múrari. Heimili
þeirra er að SkeiðarvDgi 11.
(Ljósmyndastofa Þóris, Lauga-
vegi 20B).
• Sunnudaginn 15. janúar voru
gefin saman í hjónaband í Nes-
kirkju af séra Jóni ThDraren-
sen ungírú Sigurbjörg Ágústs-
dóttir, Miðkrika Hvols'hreppi,
og Do'níel Guðmundsson Hraun-
teig 30, (Ljósmyndastofa Þóris,
Laugavegi 20B).
• Laugardaginn 7. janúar voru
gefin saiman í hjónaband í
Langholtskirkju af séra Árelíusi
Níelssyni ungfrú Gerður Bald-
ursdóttir og öm Ingólfsson
verzlunarstj. Heimili þeirra er
í Bogahlíð 8. (Ljósmyndastofa
Þóris, Laugavegi 20B).
• ÚTIIOKAR SL/EMAN ÞiF
• KiNDRAR AÐ MATUR ÞORNI
• VINNU- OC SKÓLANESTI^AILTAF SEM NÝTT
Tilkynning
um breytt símanúme.
ura breytt símanúmer. — Eftirleiðis verða
símanúmer í veitingasal og eldhúsi 19480.
Skrifstofu 19521.
SÆLA Café
Brautarholti 22.
13.15 Við vinnuna.
14.40 Edda Kvaran les fram-
haldssöguna Fortíðin gengur
aftur (15).
15 00 Miðdegisútvarp. Tony
Mattola og hljómsveit hans,
G. Ms'cRae, G. Grahame, G.
Nelson, og Bert Kámpfert og
hljómsveit hans lei'ka og
syngja.
16 00 Karlakórinn Geysir,
Karlakórinn Heimir og
Karlakór Mývatnssveitar
syngja. Residentie-hljómsveit-
in í Haag leikur Kveðjusin-
fóníuna eftir Haydn; W. va<n
Otterl'oo stjórnar. S. Walt og
Zimbler-hljómsveitin leika
tvo fagottkonserta eftir Vi-
valdi.
17.05 Miðaftanstónleikar. —
Atriði úr Aidu eftir Verdi- J.
Björling, Z. Milanov, L.
Warren, kór og hljómsveit
Rómaróperunnar flytja; J.
Perlea stjómar.
17.40 Útvarpssagia barnanna: —
Hvíti steinoinn eftir Gunnel
Linde. Kat.rín Fjelsted les
sögulokin (13).
19.30 Kvöldvaka. a) Lestur
fornrita: Hrólfs saga Gaut-
rekssona>r. Andrés Bjömsson
les (3). b) Þór Magnússon
safnvörður talar um ljós og
ljösmeti. c) Jón Ásgeirsson
kynnir íslenzk þjóðlög með
aðstoð söngfólks. d) Brúð-
hjónin frá Núpum t>g land-
námið í Auraseli. Séra Jón
Skagan flytur frásöguþátt. e)
Margrét Hjálmarsdóttir og
Kjartan Hjálmarsson kveða
stemmur saman og sitt í
hvoru lagi.
21.30 Lestur PassíUsálma (17).
21.40 Víðsjá.
22.00 Kvöldsagan: Litbrigði
jarðarinnar eftir Ólaf Jóh.
Sigurðsson. Höf. flytur (2).
22.20 Kvöldhljómleikar: Frá
tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar lsla<nds í Háskólabíói
kvöldið áður- Stjómandi: P.
Berglund. Einleikari á fiðlu:
Ruggiero Ricci frá B<anda-
ríkjunum. a) Juventas Varia-
tions eftir Aulis Sallinén. b)
Fiðlukonsert nr. 1 op- 16 eft-
ir Paganini.
22.55 Fréttir í stuttu máli.
Dagskrárlok.
Siónvarpið
20 00 Fréttir.
20.25 Blaðamanna'fundur. —
Emil Jónsson, formaður Al-
þýðuflokksins, svarar spurn-
ingum blaðamanna. Umræð-
um stjórnar Eiður Guðnason.
20.55 1 léttum dúr. Söngtrióið
The Harbour Lites syngur
þjóðlög og önnur vinsael lög
frá ýmsum löndum. Til að-
stoðo'i' er Pá'1'1 Einarsson.
21.20 Dýrlingurinn. Roger
Moore í hlutverki Simon
Templar. Islenzkan texta
gerði Bergur Guðnason.
22-10 Dagskrárlok.
• Upprifjunar-
námskeið haldið
fyrir ökumenn
Fyrsla almenna upprifjunar-,
námskeið fyrir ökumenn hér á
landi var haldið að tilhlutan
Reykjavikurdeildar Bindindisfé-
lags ökumanna um mánaðamótin
nóvember og desember s.l. Var
það námskeið fullskipað og tókst
það með ágætum, enda voru
hinir færustu fyrirlesarar fengn-
ít til að fjalla um umferðarmál-
in.
Nú hefur verið ákveðið að
halda áfram þessari starfsemi
og verður efnt til annars nám-
skeiðs nú í febrúar í húsi Slysa-
varnafélagsins á Grandagarði.
Gert er ráð fyrir, að leiðbeinend-
ur verði þeir sömu og á hinu
fyrra námskeiði, en þeir voru:
Hákon H. Kristjónsson, hdl., Pét-
ur Sveinbjörnsson, umferðarfull-
trúi Reykjavikurborgar, Magnús
Einarsson, iögregi uvarðstjóri og
Sigurður E. Ágústsson, fram-
kvæmdastjóri VÁV og fulltrúi
SVFÍ.
Þeir sem áhuga hafa á að taka
þátt í námskeiði þessu, tilkynni
þátttöku hið fyrsta til skrifstofu
Ábyrgðar h.f., Skúlagötu 63,
símar 17947 og 17455, því þegar
hafa borizt allmargar beiðnir.
(Frá B.F.Ö.)
• Nýr bæklingur
Har. Jóh. í Kuala
Lumpur
• Nýr bæklingur eftir Harald
Jóhannsson hagfræðing hefur
borizt blaðinu: Mercantilist
and Classical Theories jf
Foreign Trade, útgefinn í Ku-
ala Lumpur í Malasíu, þar
sem höfundurinn hefur verið
háskólakennari undanfarin
misseri. Bæklingurinn, 71 les-
málssíða, hefur að geyma
fimm fyrirlestra, sem Harald-
ur hélt í háskólanum í Ku-
ala Lumpur sumarið 1965.
• Áttunda bindið
af Danmerkursögu
Palle Laurings
• Det Schönbergske Forlag í
Kaupmannahöfn hefur gefið
út áttunda bindið í Dan-
merkursögu Palle Laurings;
þetta bindi fjallar um ríki og
lönd Kristjáns fjórða, ein-
valdskonungs á fyrri hluta
sautjándu aldar. Þetta erbók
hátt á þriðja hundrað blaðsíð-
ur að stærð og fylgja lesmál-
inu margar ljósmyndir. Ó-
bundin kostar bókin kr. 54,75
í Danmörku, í bandi kr. 64,75.
•Kirkjubyggingar
í Rínarlöndum
• Á morgun, laugardag er
naesta kvikmyndasýning Ger-
maníu, og verða þar sýndar
að venju frétta- og fræðslu-
myndir.
Fréttamyndirnar eru nýjar
af nálinni, aðeins mánaðar-
gamlar, frá fyrra mánuði, og
er þar m. a. sýnd eiðstaka hinn-
ar nýju sambandsstjómar í
Bonn.
Fræðslumyndirnar eru þrjár'®’
talsins, ein um hrossamarkað
í Verden, Neðra-Saxlandi, en
önnur um skrúðgarða í Bar-
och-stíl, og sýnir hún einkar
vel hvað var fellt að öðru:
skipulag garðsins, byggingar,
höggmyndir og gosbrunnar.
Eftir eyðileggingu stríðsins
hefur mikið verið að því gert
að byggja kirkjur í Þýzka-
landi, og hefur þar að ýmsu
leyti verið farið inn á nýjar
brautir, ekiki einungis hvað
byggingatækni og stíl snertir,
heldur er einnig ýmislegt nýtt
reynt um samband við aðrar
stofnanir þjóðfélagsins. Sýnir
ein fí-æðslumyndin á kvik-
myndasýningunni slíkar kirkju-
byggingar í Rínarlöndum fyrir
mótmæilcndasöfnuði þar, og
mun margan fýsa að sjá þá
mynd, svo mjög sem þessi mál
eru nú á dagskrá hér um þcss-
ar mundir.
Kvikmyndasýningin verður í
Nýja bíó og hefst kl. 2 e.h.
Öllum er heimill aðgangur,
börnum þó eínungis í fylfid
með fullorðnum.
Guðjón Styrkársson
hæstaréttarlögmaður
AUSTURSTRÆTI 6
Sími 18354.
• Síðustu óperusýningarnar
• Öperan Marta verður sýntl í 15. sinn annað kvöld, laugardaginn
11. febrúar, og eru þá aðeins eftir tvær sýningar á óperuimi.
Næst síðasta sýningin verður svo annan Iaugardag, 18. þessa
mánaðar. — Myndin er af Svölu Nielsen í hlutverki sínu í Mörtu,
en hún hefur hiotið mjög góða dóma fyrir túlkun á þessu hlutverki.
• Eiginmaður að láni
• Stjörnubíó licfur að undanl'örnu sýnt við miklar vinsældir
bandaríska gamanmynd, sem á islenzku er nefnd Eiginmaður að
Iáni, en byggð er á skáldsögu eftir Jack Finney (Good neighboar
Sam). Hinn frægi gamanleikari Jack Lemmon leikur aðalhlut-
verkið, en leikkonurnar eru þær Romy Schneider og Dorothy
Provine.
LÖCTAK
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undangegpum
úrskurði verða lögtökin látin fram fara án frekari fyrir-
vara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að átta
dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar. fyrir
eftirtöldum gjöldum:
Áföllnum og ógreiddum skemmianaskatti og miðagjaldi.
gjöldum aí innlendum tollvörutegundum, matvæla eftir-
litsgjaldi og gjaldi til styrktarsjóðs fatlaðra. lesta-, vita-
og skoðunar-gjaldi, af skipum fyrir árið 1967, almennum
og sérstökum útflutningsgjöldum, aflatryggingasjóðsgjöld-
um, tryggingaiðgjöldum af skipshöfnum ásamt skráning-
argjöldum, svo og söluskatti 4. ársfjórðungs 1966 og
hækkunum vegna vanframtalsins söluskatts eldri tíma-
bila.
Yfirborgarfógetinn í Kcykjavik, 9. febrúar 1967.
KR. KRISTJÁNSSON.
Utsala i nokkra daga
ÍYIIKILL 4FSLATTUR.
Verzlunin Ó.L.
Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu).
>
i
í