Þjóðviljinn - 16.02.1967, Page 12
— Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna með sýningardeild
Vorkaupstefnan f Leipzig fer
fram dagana 5.—14- marz n.k. og
er þessa dagana verið að ganga
frá undxrbúningi kaupstefnunn-
ar í Þýzka alþýðulýðveidinu oe
í fjölmörgum öðrum löndum
heims. Yfir 10 þúsund sýningar-
aðilar frá rúmlega 70 löndum
taka þátt í kaupstefnunni að
þessu sinni.
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
mun hafa sýningardeild á kaup-
stefnunni en í hitteðfyrra var
síðast þátttakandi frá Islandi og
var það einnig SH.
Sölumiðstöð hraöfryst.ihúsanna
sýnir úrval af framleiðstu sinni
í myndarlegri sýningardeild ' í
Messehof-sýningarhöllinni, sagði
aMstur-þýzki verzhmhrfulltrúinn
í viðtali við fréttamenn. Gerði
Þýzka alþýðulýðveldið strax í
byrjun þessa árs samninga um
nokkurt magn af frystri. síld og
síldarflökum. Af þessu magni
voru afskipuð 1500 tonn a£
Drengur meidd-
ist á höfði
Það slys varð á gatnamótum
Sólvallagötu og Blómvallagötu
um eittleytið í gærdag að 9 ára
gamall drengur á reiðhjóli lenti
fyrir bifreið, Drengurinn hlaut
ernhver meiðsl á höfði og var
fluttur á Slysa-'arðstofuna, en
ekki er talið að meiðslin hafi
verið alviarleg.
frystri síld þegar í janúar. Sagðd
verzlunarfulltrúinn ’ að verið
væri að athuga möguleika á að
flytja út gærur héðan til Austur-
Þýzkalands. Austur-Þjóðverjar
hefðu áhuga á að fá héðan síld-
arlýsi en íslenzk stjórnarvöld
hefðu ekki veitt útflutningsleyfi
til þess enn sem komið væri.
Árið 1962 voru sýningaraðilar
frá öðrum löndum en Austur-
Þýzkalandi 3021 en á komandi
vonsýningu verða þeir rúmlega
5500 og eru þá meðtaldir fram-
leiðendur í Vestur-Þýzkalandi og
Vestur-Berlín- Á sama tíma
stækkaði sýningarsvæði erlendu
þátttakendanna úr 98 000 ferm.
í 120.000 ferm.; þannig að þrátt
fyrir stórfellda aukningu sýning-
arsvæðisins 1962 um 55.000 ferm.
í 350.000 ferm., er nú svp komið
að eftirspumin er orðdn meiri en
hægt er að sinna.
Á vorkaupstefnunni í Leipzig|
munu framleiðendur frá Austur-
Þýzkalandi sýna á 230.000 fernu
svæði vörur í öllum 60 vöru-
flokkum kaupstefnunnar.
Verziunarfulltrúinn gat þess
að í smfði fiskiskipa væri Þýzka
alþýðuiýðveldið nú í 4. sæti í
heiminum og á kaupstefnunni
yrðu sýnd afköst skipasmíða-
stöðvarinnar aðallega fiski- og
flutningaskipa.
Búast má við því að sýning
VEB Carl Zeiss, Jena, veki mikla
athygli en fyrirtæki þetta sýnir
m.a. nýtt fótografiskt tæki sem
á algjörlega sjálfvirkan hátt
finnur stöðu geimskipa með jtr-
ustu nákvæmni.
Kaupstefnan í Leipzig veitir
sérstaklega gott tækifæri til þess
að bera saman verð og gæði á
vörum framleiðenda, enda eru
þarna hlið við hlið framleiðend-
ur bæði úr vestri og austri.
Kaupstefnur ' og vörusýningar
pg þá ekki sízt Kaupstefnan í
Leipzig efla mjög alþjóðleg við-
skiptatengsl og út frá þessu
sjónarmiði hafa nokkrar útflutn-
ingsmiðstöðvar Þýzka alþýðulýð-
veldisins ákveðið að taka. þátt í
vörusýningu þeirri sem verður
hér r Reykjavík 20- maí n-k-
Auglýsing um með-
ferð forsetavalds
Forseti Islands, herra Ásgeir
Ásgeirsson, fór í dag til útlamda.
I fjarveru hans fara forsætis-
ráðherra, forseti sameinaðs Al-
þingis og forseti Hæstaréttar með
vald forseta Islands samkvæmt
8. gr. stjómarskrárinnar.
(Frá forsætisráðuneýtinu).
•k Umræðuhópur Æ.F.R. um
verkalýðsmál heldur áfram á
föstudagskvöld kl. 9.
★ Viðfangsefni: Kjararann-
sóknarnefnd; Björn .Tónsson al-
þingismaður mætir og reifar
málið.
Þátttakendur í námskeiðinu
Námskeið fyrir verkstjóra sveitarfélaga
Á mánudag hófst í húsa-
kynnum Iðnaðarmálastofnunar
íslands verkstjórnarnámskeið, er
sérstaklega er ætlað verkstjór-
um sveitarfélaga. Námskeið
þetta er haldið fyrir frumkvæði
Sambands íslenzkra sveitarfé-
laga en framkvæmd þess er í
höndum stjórnar verkstjórnar-
námskeiðanna. Er þetta annað
sérnámskeiðið, sem efnt er til
og ætlað er verkstjórum í til-
tekinni starfsgrein. Verulegur
hluti námsefnis ér miðaður við
sérþarfir bæjarverkstjóra. Hef-
ur borgarverkfræðingurinn í
Reykjavík verið til ráðuneytis
um val námsgreina og munu
nokkrir starfsmenn hans annast
kennslu eða flytja þar erindi
Af slíku efni má nefna gatna-
gerð, steinsteypu, vinnuvélar,
vir.nutcikningar, hallamælíngar,
sprer il~ ur"iingavinnu og
umgengni á vinnustöðum og
samskipti við íbúa. Að auki fer
fram kennsla í verkstjórn og
vinnuhagræðingu og öðrum
venjulegum kennslugreinum
verkstjórnarnámskeiðanna.
Af 17 þátttakendum- á nám-
skeiðinu eru 15 verkstjórar
sveitarfélaga. Eru þeir frá
Keflavík, Njarðvíkurhreppi,
Kópavogi, • Akranesi, Patreks-
firði, Bíldudal, Suðureyri, ísa-
firði, Siglufirði, Ólafsfirði, Húsa-
vík, Eskifirði, Vestmannaeyjum
og Selfossi.
Verkstjórnarnámskeiðið er í
tvennu lagi. Fyrri hluti stendur
yfir frá 13.— 25. febrúar en síð-
ari hluti frá 10.—22. apríl n.k.
Þetta er fyrsta námskeiðið,
sem lialdið er fyrir verkstjóra
svei4arfélaga og nýr þáttur í
starfsemi Sambands íslenzkra
sveitarfélaga að beita sér fyrir
námskeiði sem þessu, en það
hefur á síðari árum í vaxandi
mæli staðið að ráðstefnym og
tekið fyrir verkefni, sem miðast
við starfsfólk sveitarfélaga.
Franskur gerfi-
hnöttur á lofti
HAMMAGUIR 15/2 — Frakkar
skutu i dag á loft gerfihnetti
„Diademe-2“ sem hefur það
verkefni aö kortleggja jörðina
með nákvæmari hætti en hing-
að til hefur verið gert. 1
Geimskotið gekk vel og komst
hnötturinn á rétta braut. öðrum
hnetti svipuðum var skotið áloft
í fyrri viku en hann komst ekki
nógu hátt á loft og mun því
ekki geta gegnt því hlutveivsi
sem til var ætlazt.
Mjólkin á sl. ári
betri en nokkru
sinni fyrr
A árinu 1966 reyndist mjólkur-
framleiðslan betri en nokkru
sinni áður.
Tvö mjöJkursamlög hættu að
starfa á árinu, þ.e. Mjólkúrstöð
Kaupfélags Suður-Borgfirðinga,
Akranesi, og Mjólkurbú K. F. B.,
Djúpavogi en eitt nýtt tók til
starfa, Mjólkurbú Kaupfélags
Laxngnesinga, Þórshöfn. Mjólkur-
samlögin enx því nú 17 talsins.
Gæðamat mjólkurinnar reynd-
ist þannig:
í I. og H- flokk fóru 99.497.673
kg. eða 97.88%.
1 III. flokk fóru 1.994.681 kg.
eða 1,96%.
1 IV. flokk fóru 156.130 kg eða
0,16%.
Eins og gæðamatið segir til
um er III. og IV." flokks mjólk að
mestu úr sögunni, enda má segja,
að meðferð mjólkur hér á landi
fari ört batnandi.
(Frá mjólkureftirliti ríkisins).
Barnatónleikar
Sinfóníunnar í
dag og á morgun
Einn vinsælasti þáttur í starfi
Sinfóníuhljómsveitar íslands eru
skólatónleikarnir fyrir 6 til 12
ára börnin. í hvert skipti, sem
tónleikar eru haldnir fyrir þau,
þrífylla bömin Háskólabíó og
engir áheyrendur eru þeim
þakklátari.
Nú eru skólatónleik'ar í dag
og á morgun. fimmtudag og
föstudag. — I dag verða tón-
leikarnir kl: 10.30 og kl. 14.30,
en á morgun kl. 14.30. Stjórn-
andi tónleikanna verður Bohdan
Wodiczko.
Verkefnavalið er töluvert sér-
kennilegt í þetta skipti, og verð-
Ur að þessu sinni haft algerlega
hljótt um það — það er algert
leyndarmál, sem ekki upplýsist
fyrr en á tónleikunum sjálfum.
Kynnir á tónleikunum verður
Þorkell Sigurbjörnsson.
Frá tæknisýningunni í Leipzig.
Nor&urlanda
nú fullgerður
^ ■ Sýningarskáli Norður-
landa á heimssýningunni í
Montreal í Kanada er nú
fullgerður og verður byrjað
að ganga frá sýningardeild-
um hinna einstö'ku landa upp
úr miðjum næsta mánuði,
en sýningin verður opnuð í
aprílmánuði -=-
Gunnar J. Friðriksson skýrði
frá þessu í gær, á fundi for-
stöðunefndar þeirrar sem umnið
hefur að undirbúningi / þátttöku
Islands í sýnirigunni fyrir hönd
ríkisstjómarinnar.
Gunnar sagði enn fremur að
utan sýningarskálans yrði komið
fyrir höggmyndum norrænrfa
listamanna og hefði myndin
„öldugjálfur“ eftir Ásmund
Sveinsson orðið fyrir valinu af
Islendinga hálfu- Er nýbúið að
steypa þessa mynd í eir í Osló,
en eigandi hennar er Reykjavík-
urboi'g.
Fjórir menn hafa einkum haft
með höndum framkvæmdir í
sambandi við undirbúning ís-
lenzku sýningax-deildarinnar: —
Skarphéðinn Jóhapnsson, Sigurð-
ur Þórarinsson, Rafn Hafnfjörð
og Diderot, en níu Islendingar
munu væntanlega starfa við ís-
lenzku deildina og veitingahús
Norðurlandaþjóðanna-
Gert er ráð fyrir að 10 manna
flokkur héðan"’ sýni íslenzka
glímu í Montreal og Karlakór
Reykjavíkur mun halda vestur
og efna til tónleika þar 23. og
24. júní n.k.
Áður hefur verið sagt frá
hinni opinberu heimsókn forseta
Islands til Kanada í júlímánuði
n.k., en sýninguna í Montreal
’ Framhald á 9. síðu.
Tilboð opnuð i iagn-
ingu ,KÍSiL VEGAR’
Liggur frá Mývatni að Laxamýri
Tilboð í Iagningu svokallaðs Kísilvegar frá Laxamýri um Reykja-
hverfi að Grímsstöðuin í Mývatnssveit vonx opnuð á skrifstofu
vegamálastjóra í gær kl. 2.
Tilboðin voru sem hér segir: \
1. Miðað við að leggja veginn á árinu 1967.
a) í kaflann frá Laxamýri að Geitafelli, sem er 21,9 kílómetr-
ar, bárust 2 tilboð:
frá Almenna byggingarfélaginu h.f., Rvík 20,3 milj. kr.
2.
frá Loftorku h.f. o.fl., Reykjavík
b) í kaflann frá Geitafelli að Grímsstöðum, sem er 20,6 km.,
bárust 3 tilboð:
frá Almenna byggingarfélaginu h.f.
frá Loftorku h.f. o.fl.
frá Steingrími Felixsyni o.fl., Skagafirði
c) f allt verkið bárust 2 tilboð:
frá Almenna byggingarfélaginu h.f.
frá Vegalögnum h.f., Suður-Þingeyjarsýslu
Miðað við að leggja veginn á 2 árum.
a) f kaflann Laxamýri - GeitafeH bárust 2 tilboð:
19,6 milj. kr.
17,8 milj. kr.
18.1 milj. kr.
17,0 milj kr.
40.2 milj. kr.
43.3 milj. kr.
frá Loftorku h.f. o.fl.
frá Steingrími Felixsyni o.fl.
18,7 milj. kr.
19,9 milj. kr.
b) í kaflann Geitafell - Grímsstaðir bárust 2 tilboð:
frá Loftorku h.f. o.fl. 17,5 milj. kr.
frá Steingrími Felixsyni o.fl. 15,9 milj. kr.
c) í verkið allt bárust 3 tilboð:
frá Almenna byggingarfélaginu h.f. 36,7 milj. kr.
frá Norðurverki h.f., Akureyri 33,9 milj. kr.
frá Vegalögnum h.f. 36,5 milj. kr.
Tilboðin eru í athugun á vegamálaskrifstofunni.
(Frá vegamálastjóra).
Heimssýningin:
Sýningarskáli
í Montreal er
DIODVIUINN
Fimmtudagur 16. febiúar 1967 — 32. árgangur — 39. tölublað.
Vorkaupstefnan í Leipzig
verður haldin 5.-14. marz
>