Þjóðviljinn - 17.02.1967, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 17.02.1967, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVTLJINN — Föstudagur 17. febrúar 19W. Útgefandi: Sa-meiningarflokkur aiþýdu — Sósíalistaflokk- urinn. Ritstjórar: Ivai H- Jónsson (áb). Magnús Kjartansson, Siguröur Guðmundsscm. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson- Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson. Framkvstj-: Eiður Bergmann. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðust 19. Sími 17500 (5 limur) — Áskriftarverð kr. 105,00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 7.00- Ræktun lýðs og lands JJvernig má það verða að ríkisstjórn íhaldsins og Alþýðuflokksins hafi komið atvinnuvegum ís- lendinga í þann vanda sem nú blasir við, enda þótt stjórnin hafi farið með völd á mesta góðær- istímabili sem íslendingar hafa notið? Hvert ligg- ur leiðin frá því öngþveiti sam nú er staðreynd? í forystugrein í nýju Réttarhefti er fjallað um þetta mál og segir þar m.a.: JJin þjóðfélagslega afleiðing sjö ára dansins um gullkálfinn er að ísland er siðferðilega að verða frumskógur gróðaþorsta og vinnuþrældóms. Gegn þessum þjóðfélagslegu hnignunarfyrirbær- um þarf verkalýðshreyfingin öll að rísa. Það verð- ur tafarlaust að útrýma öllum gróðamöguleikum af húsbyggingum fyrir almenning, gera slíkt og fleiri athafnasvið einvörðungu að þjóðfélagslegri þjónustu, sem óheimilt sé að græða á. Og um leið og arðráninu er þannig létt af almenningi minnkar þörfin á- þeiim vinnuþrældómi, sem er að gera stóran hluta íslendinga að vinnuþrælum, sem sviptir eru frístundum og menningaraðstöðu. Sá vinnuþrældómur, 10 —12 —14 stundir á dag, sem nú viðgengst, er ekki mönnum bjóðandi. Og mest af þessum vinnuþrældómi stafar af því að verka- menn eru að borga íbúðir á 15—20 árum með 8% vöxtum, en ættu að fá að greiða þær á 60—80 ár- um með 2—3% vöxtum, og þá þyrfti ekki þræl- dóimsins við.“ Of eún segir í Réttargreininni: „Verkalýðshreyf- ingin þarf að rísa upp gegn yfirvofandi atvinnu- leysi og ríkjandi vinnuþrældómi í senn með slíkri siðferðilegri fordæmingu,.að knúin sé fram tafar- laus umbreyting í þessum efnum, þótt svö braki í fúnum stoðum auðvaldsskipulagsins og stjórn- leysið í efnahagslífi íslendmga fari- veg allrar ver- áldar. Verkalýður íslands þarf að tilkynna vald- höfunum, að hinar heilögu kýr „viðreisnarinnar“ verði ekki lengur fóðraðar með vinnuþrældómi verkamanna. Annað hvort verði auðvaldsskipu- lagið á íslandi að sýna sig fært um að tryggja nú- verand'i heildartekjur verkamanna með 40—44 tíma vinnuviku og atvinnuöryggi — eða þoka burtu ella. Fruipskógur gróðaþorsta og atvinnu- þrældóms verður að víkja fyrir viturlegri rækt- un lýðs og lands: skipulögðum þjóðarbúskap manna sem eru frjálsir af þrældómi 60—70 tíma vinnuviku og öruggir gegn atvinnuleysi í þjóðfé- lagi, þar sem íslenzk þjóð ræður sjálf og ein at- vinnulífi sínu.“ JJér er sterklega minnt á skuggahlið lífskjaranna * sem nú er búið við, vinnuþrælkun 'undanfar- inna ára sem vart á sér neina hliðstæðu í ná- grannalöndum okkar, og ekki sízt stafar af skipu- lagsleysi og okri í húsnæðismálunum. Og hversu skammt er yfir í andstæðuna, atvinnuleysið, þeg- ar landinu er stjórnað með hagsmuni gróðalýðs- ins að leiðarljósi, sést í samþykktum verkalýðs- hreyfingarinnar í Hafnarfirði, og vamaðarorðuim hennar að selja ekki atvinnutækin burt og leggja íslenzka atvinnulífið í rústir. — s. Jarðakaup ríkisins Herra ritstjóri! 1 tilefni af þvi aö ríkisstjóm- in hefur í hyggju að kaupa jarðir af bændum, sem flosna upp af jöröum' sínum, svo þeir gangi ekki frá þeim slyppir og snauðir, datt mér í hug að geta þess, að þó að þetta sé það eina, sem þessi ríkisstjórn hefur til að leggja í landbún- aðarmálum, þá mun langt i land að henni takist að leysa þetta verkefni svo vel fari, ef hún leysir það ekki betur, en gerzt hefur við kaup á eignum tilheyrandi þeim ríkisjörðum, sem hún nú á og keypt hefur af ábúendum' þeirra fram að* þessu. Nú skal ég geta þess máli mínu til skýringar að 19. maí 1964 hætti ég hokri á ríkisjörö- inni Minni-Ölafsvöllum á Skeið- um. Þá átti ég samkvæmtmati lögfræðings jarðeignadeildar ríkisins, (hann metur síður en svo bændum í hag) að fá greiddar 197,000 krónur með jöfnum afborgunum á fjórum árum og 7% vöxtum. Með endalausu þrefi og jagi hef ég fengið greiddar 47,500 kr., takk, en enga vexti, en því miður er hér ekki um ein- stakt tilfelli að ræða og hafa ýmsir lent í miklum erfiðleik- um út af samskonar viðskipt- um við ríkið, því að fæstir þeirfa hafa fengið jafn góðaaf- greiðslu og Guðmundur í. fyrr- verandi ráðherra, þegar hann seldi því eigur sínar í Hafnar- firði eins og mörgum er í fersku minni. Guðmundur í. hefur vitað sem var að lögfræðingar eða bankar kaupa slík ríkis- skuldabréf ekki háu verði; gott ef hægt er að selja þau með 35% afföllum. Ef greiðslan af ríkisins hálfu í væntanlegum jarðakaupum af bændum verður ekki ábyggi- legri en viðskipti þess viðfyrr- verandi ábúendur ríkisjarða, þá held ég að alþingi verði lftill sómi af þessum lögum og margur eigi eftir að verða fyr- ir vonbrigðum. Reykjavílí 7/2 ’67. “ H. H. samkvæmt áætlun þeirra. Er að roínu áliti með öllu ófært að láta fólk standa þarna á bersvæði, hvemig sem veð- ur er, oft er hvassviðri og rigning eða hríð eftir árstim- um. Það er talið ómannúðlegt að menn hefðu í umsjá sinni fleiri útigangshross en þeir áttu hús yfir og var það sem betur fór af mannúðartilfinningu að Al- þingi staðfesti það með laga- setningu að enginn mætti hafa fleiri hross í umsjá sinni en hann hefði hús yfir. Var ævi útigangshrossa talin ill aevi, en nú er búið að sjá þeirri betur fyrir skjóli í næðingum vetrar- ins en þeir hafa enn gert sem hafa með áðurnefnda jlólks- flutninga að gera. Þess ber að geta að þessir aðilar hafa ekki yfir lóð að ráða undir biðskýli. þar sem þetta er í Reykjavíkurborg. Hvort eftir því hefur verið leit- að er mér ekki ljóst, en eftir þeim mannúðarræðum og rit- gerðum sem fram voru settar af borgarstjóra og fleiri ráða- mönnum Reykjavikurborgar fyrir síðustu borgarstjórnar- kosningar mætti ætla að beiðni um byggingu biðskýlis til að veita fólki betri aðbúnað mundi verða mætt með fullum skiln- ingi. Hvort um væri að ræða þann stað sem bílarnir stanza nú á eða annan sem hentugri þætti vegna skýlisbyggingarinnar og aðstöðu fólks til að hafa sam- band við bílana, teldi ég auka- atriði. Vænti ég þess að fram- kvæmdastjórar áðurnefndra strætisvagna taki þetta til vin- samlegrar athugunar og það sem allra fyrst, því að ég tel að með þessum aðbúnaði geti heilsu fólks verið teflt í nokkra tvísýnu og sérstaklega þess fólks sem vinnur innivinnu og kemur úr heitu húsnæði og þarf svo að bíða óákveðinn tíma þarna úti í kuldanum. K. Ai bersvæði Nú á þessum framfara-, við- reisnar- og velgengnistímum er á mörgum sviðum reynt eftir föngum að veita fólki aukin þægindi og bæta aðbúnaðinn. En þetta er þó ekki á öllum sviðum og vil ég taka hér eitt dæmi- sem mér finnst mjög tilfinnanlega ábótavant. Er það aðbúnaður þess fólks, sem þarf að ferðast með strætisvögnum. sem ganga úr Lækjargötu til Kópavogs og Hafnarfjarðar. . Eins og öllum er ljóst sem þessar ferðir þurfa að nota og ekki síður þeim sem rekstur þessara farartækja hafa með höndum, er ekkert afdrep fyrir fólk sem þessar ferðir þarf að nota úr Lækjargötu og er bið þarna aHlöng, sérstaklega á'. tímabilinu frá kl. 6—7 á .kvöldin þegar fólk er að koma úr vinnu,- en á 'þessum tíma koma bílarnir alloftast nokkuð | mikið seinna en búast má við ! Raunvísindastofnun Háskólans hyggst veita á árinu 1967 vinnuaðstöðu um takmarkað- an tíma fáeinum imönnum, sem hafa styrki til rannsókna á þeim sviðum, er undir stofn- unina falla, en þau eru: stærðfrgeði, eðlis- fræði, efnafræði og jarðeðlisfræði. Þeir, sem hafa eða eiga í vændum slíka styrki og óska eftir vinnuaðstöðu við stofn- unina, skulu senda skriflegar umsóknir til stjórnar stofnunarinnar, og fylgi rækileg greinargerð um verkefnið svo og um að- stöðu mannsins til að vinna að því, aðra en þá, er stofnunin veitir. Umsóknir skulu hafa borizt stjórn Raun- vísindastofnunar Háskólans, Dunhaga 3, Reykjavik, eigi síðar en 15. marz Í967. Raunvísindastofnun Háskólans. Auglýsingasími Þjóðviljahs 17 500 Bifreiðaeigendur Málið og bónið bílana ykkar sjálfir. — Við sköpum aðstöðuna. Meðalbraut 18 — Sími 41924 — Kópavogi. P O NTUNARLISTI jZjódabækut Bókaútgáfa Menningarsjóðs leyfir "sér 'Jié'r íaeS aS vekja at- hygli á þvi, aS enn eru fáanlegar hjá forlaginu eftirtaldar. IjóSa- bækur, en upplag sumra þeirra er senn á þrotum. 1 KlippiS auglýsinguna úr blaSinu, krossiS viS þær bækur, sem þér viljiS panta, og sendiS pöntunina ásamt heimilisfangi ySar tií Bókaútgáfu MenningarsjóSs, pósthólf 1398, Reykjavík. Þeir, sem panta fyrir 500 Jir. eða meira samltvamt þessum pöntunarlista, fá 20% afslátt frá ncðangreindu útsöluverði. Sendum bækur gegn póstkröfu um land allt. □ Andvikur I—IV, Stephan G. Stephansson, skinnlíki 517.00 □ Andvökur I—IV, skinnband ....................... 900.00 □ Passíusálmar, myndskreytt útgáfa, innb......... 400.00 □ Kalcvala /—//,. tölusctt viðhafnarútgáfa, ób. .. 500.00 □ ístcnzk ljótf 1944—1955, innb................... 170.00 □ Ljóðasafn I—II, Jakob Jóh. Smari, ínnb.......... 385.00 □ Landsvisur, Guðmundur Böðvarsson, innb.......... 200.00 □ Siðuslu Þýdd Ijóð, Magnús Ásgeirsson, innb...... 150.00 □ Segðu mér að sunnan, Hulda, IjóSaúrval, innb. .. 165.00 □ Maurildashógur, Jón úr Vör, innb;............... 258.00 □ Visur um drauminn, horgeir Sveinbjarnarson, innb. 258.00 □ Visur Bergþóru, I’orgeir Sveinbjarnarson, innb. .. 95.00 □ Raddir morgunsins, Gunnar Dal, innb............. 180.00 Q Ferhenda, Kristján Ólason, inrib. ................ 140.00 □ Frönsk Ijóð, Jón Óskar þýddi, innb. ............ 140.00 □ Trumban .og lútan, Halldþra B. Björnsson, innb. .. 75.00 Q Ævintýri dagsins, Erla, innb. .................... 75.00 Q Alþingisrimur, innb............................... 34.00 Ég undirrh.... óska þess, aS mþr verði sendar gegn póst- kröfur bækur þær, sem merkt er við á skrá’ hér að ofan. Nafn Heimili PóststöS ■•••*«»••••«*■••••«••••««*••••••«•«•««•»••«••••«•*»• I•••••••••••••••••••••»•••«••••••••« IHltllltlMIIMdMia Bókaútgáfa SVIenningarsjóðs Aðalfundur Aðalfundur Iðnaðarmannafélagsins í Hafnarfirði verður haldinn fimmtudaginn 23. febrúar 1967 kl. 20.30 í Félagsheimilinu. FUNDAREFNI: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á iðnþing. 3. Önnur mál. STJÓRNIN.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.