Þjóðviljinn - 22.02.1967, Page 2
2 SÍÐÁ — ÞJÓÐVTLJINN — Miðviteudagur 22. febrúar 1967.
Hátt á annaðftásundþátttak-
endur i einu víðavangshlaupi
44. sambandsþing Ung-
mennasambands Kjalarnesþings
var haldið fyrir nokkru að As-
garði í Kjós.
Sambandsstjóri, TjTlfar Ár-
mannsson, setti þingið og bauð
fulltrúa og gesti velkomna. 35
fulltrúar sóttu þingið, en gest-
ir voru þeir Ármann Pétursson
framkvsemdastjóri UMFl og
Eysteinn Þorvaldsson ritstjóri
Skinfaxa og fluttu þeir ávörp^
á þinginu.
tJlfar Ármannsson flutti
skýrslu stjórnar, Kom þar fram
að starfsemi innan sambandsins
hefur verið og er með allmik]-
um blóma. Sambandið efndi til
margra íþróttamóta á sl. ári og
sendi keppendur til flestra
móta sem haldin voru í Rvík.
Einnig stóð sambandið að víða-
vangshlaupi milli skóla á sam-
bandssvæðínu og voru þátttak-
endur hátt á annað þúsund
talsins, ef alTir eru taldir sem
þátt tóku i undanrásunum.
Á sambandsþinginu voru tek-
in fyrir og rædd mörg mál og
margar ályktanir gerðar, m. a.
til eflingar íþrótta og æsku-
lýðsmála á sambandssvæðinu,
stækkun sambandsins og ráðn-
ingu framkvæmdastjóra.
Innan Ungmennasambands
Kjalarnesþings eru nú 6 félög
með samtals 887 félaga.
Fráfarandi form. UMSK, Úlf-
ar Ármannsson, baðst undan
endurkosningu eftir tveggjaára
formennsku. í stjórn sambands-
ins voru kosnir: Gestur Guð-
mundsson Kópavogi, formaður,
Þórir Hermannsson Kjós vara-
formaður, Sigurður ■ Skarphéð-
insson, Birgir Guðmundsson,
Gísli Snorrason og Hallgrímur
Sigurðsson. •
Slaðskák TR:Tfl
SVART: TA:
Jón Björgvinsson
Þorgeir Steingrímsson.
abcdef gh
abcdef gh
HVÍTT: TR:
Arinbjörn Guðmundsson
Guðjón Jóhannesson
4. Rc3 d6
Valdir landsliðsmenn
í körfuknafileiknum
Eftlrtaldir Ieikmenn hafa verið valdir til æfinga vegna
Iandsleiks í körfuknattleik við Dani hinn 2. apríl n.k.:
FRÁ ÁRMANNI: Birgir örn Birgis, Hallgrímur Gunn-
arsson og Kristinn Pálsson.
M Frá ÍR: Agnar Friðriksson, Birgir Jakobsson, Hóim-
steinn Sigurðsson, Jón Jónasson, Pétur Böðvarsson, Skúli
Jóhannsson og Tómas Zoega.
FRÁ KFR: Einar Matthíasson, Marinó Sveinsson og Þór-
ir Magnússon.
FRÁ KR: Ágúst Svavarsson, Einar BoIIason, Gunnar
Gunnarsson, Guttormur Ölafsson, Hjörlur Hansson, Kol-
beinn Pálsson og Kristinn Stefánsson.
Eeikmenn þessir eru tuttugu talsins. Cr þessum hóp
verður síðan valinn 10 manna hópur til að mynda lands-
lið Islands í fyrrgreindum landsleik.
Það er landsliðsnefnd KKÍ sem flokk þennan velur, en
I nefndinni eiga sæti: Hclgi Jóhannsson, landsliðsþjálfari,
Guðmundur Þorsteinsson og Þráinn Scheving.
Að
maður græði á því
Ríkisstjómin hefur lagt til á
þingi að Viðtækjaverzhm rík-
isins skuli lögð niður, enda sé
hún nú starfrækt með halla.
Um langt skeið að undan-
förnu hafa stjómarvöldin
unnið markvisst að þvi að
grafa undan þessari stofnun.
Tekjuliðir hennar hafa verið
afhentir einstaklingum til
gróðasöfnunar, þar til fátt var
eftir skilið nema skriffinnsk-
an og sá kostnaður sem henni
fylgir. Þessi ráðsmennska staf-
aði sízt af öllu af þjóðholl-
ustu; stofnunin hafði um
langt skeið sannað tilverurétt
sinn, skilað mjög verulegum
ágóða, sem notaður var á sín-
um tíma til þess að koma fót-
um undir útvarp hérlendis, til
þess að koma Þjóðleikhúsi á
laggimar og til fleiri menn-
ingarþarfa. Stofnunin hefði á
nýjan leik getað haft sérstöku
hlutverki að gegna eftir að
innflutningur á sjónvarps-
tækjum hófst í miklum mæli.
Engum dylst að sala á þvílík-
um tækjum hefur verið stór-
felld gróðalind; hvert tæki
mun skila þúsundum króna i
hreinan gróða, auk þess sem
f súginn fer vegna stjóm-
lausrar sanfikeppni t>g þess til-
gangslausa kostnaðar sem
henni fylgir. Á þennan hátt
hafa semsé runnið til einstak-
linga tugir miljóna króna,
sem að öðrum kosti hefði ver-
ið hægt að hagnýta til þess
að efla hina ungu sjónvarps-
stöð og gera dagskrá hennar
fj ölbreytilegri.
A fundí sen\ stórkanpmenn
héldn með forsætisráðherra i
fyrradag lýsta hWr fyrr-
nefndu sérstöktrm fögnuði sín-
um út aí þrví að afnema ætti
Viðtækjaverztan rfkisins. Þeir
jafnfraínt á það að næsta
stóra ríkisfyrirtækið sem
leggja þyrfti niður væri Tó-
bakseinkasalan. Mun forsætis-
"áðherra vafalaust vinna
. ...U .*«!?*• ■**< „ j i. . -
fl..: - "
Akureyringar haía farið þá leið til að fá sæmilega stórt hús til íþróttaiðkana að byggja skemmu
sem hagnýta mætti til þeirra hluta þar til fullgrilt íþróttahús verður byggt — og breytist þá í vöru-
skemmu. Skemma þessi er nú fullbyggð og tekin í notkun, 40,5x25 að stærð með 32x18 m. leikvelli.
Búningsklefar eru fyrir 60 leikmenn og stæði fyrir' um 500 áhorfendur. Kostnaðarverð var um fimm
miljónir króna, sem er að sjálfsögðu ekki ýkja mikið fé. Hitt veit svo enginn hvenær „eiginlegt
íþróttahús“ muni rísa.
Ræða Eínars Olgeirssonar
Framhald af 10. síðu.
lega á þeim forsendum að hér
hafi allir verið svo eindregnir
lýðræðissinnar að ekki hafi verið
nein hætta á að nokkur maður
vldi eiga vingott við Hitlers-
Þýzkaland. Ástandið þá var allt
annað, Ástandið var þannig að
ýmsir af valdamestu mönnum
Sjálfstæðisflokksins litu svo á, að
nazisminn og nazistafflokkurinn
hér væri hluti af Sjálfstæðis-
fiokknum, eihs og einn af þing-
mönnum flokksins skrifaði í
Fulhrighi
Framhald af 10. síðu.
miklar birgðir af ýmis konar
varningi í ýmsum löndum. Kom
þá fram sú hugmynd að selja
þær vörubirgðir gegn greiðslu í
mynt hlutaðeigandi lands og
verja andvirðinu til þess að
greiða kostnað við ferðir
erlendra manna til Bandaríkj-
anna til náms og rannsókna-
starfa og til þess að greiða
ferða- og dvalarkostnað Banda-
ríkjamanna í öðrum löndum í
sömu erindum.
Samkvæmt Fulbright-samn-
ingnum milli íslands og Banda-
ríkjanna frá 1957 var Mennta-
stofnun Bandaríkjanna á íslandi
komið á fót og hefur stofnunin
starfað síðan. Starfsemi stofn-
unarinnar er tvíþætt; hún veitir
íslendingum styrki til náms-
dvalar í Bandaríkjunum og
Bandaríkjamönnum styrki til ís-
landsdvalar.
markvisst aö því verkefni, og :
það því frémur sem sígarettu- :
sala mun teljast hæpið fram- ■
tak siöferðilega séð að dómi ■
vísindamanna. Hins vegar :
mun siðferðið aldrei verða :
Félagi íslenzkra stórkaup- :
’manna fjötur um fót; sá fé- ■
lagsskapur lítur trúlega á af- ■
leiðingar sígarettureykinga á ■
svipaðan hátt og skáldið kvað j
um strtðið: það ..skiptir mestu j
máli að maður græði á því“
Til í
oryggis |
Sumir ráðherrar ríkisstjórn- j
arinnar hafa lýst yfir því í !
útvarpi og sjónvarpi að þeir ■
telji gengi krónunnar standa ;
föstum fótum, þótt búið sé ,að ■
skerða verðgildi hennar um :
meira en helming í tið við- jj
reisnarinnar. Ekki er þessi
kenning tekin trúanleg af ■
þeim manni hérlendum sem . i
nánust tengsl hefur við þá j
sem grandskoða hjörtun og •
nýrun. Biskupinn yfir ís-
landi, herra Sigurbjörn Ein- j
arsson, hefur mælt svo fyrir ■ j
að norrænt gjafafé til vænt- ■
anlegs lýðháskóla í Skálholti
skuli ávaxtað sem gjaldeyris-
sjóður erlendis. Æðri mátt-
arvöld virðast þannig teíja
stefmi ríkisstjórnarinnar enn-
þá háskalegri jarðneskum
f#«.-sjóðum en möl og ryð.
— Austri.
Morgunblaðið á sínum tíma í maí
1933. Morgunblaðið var eitthinna
fáu blaða í Vestur-Evrópu sem
taldi rétt það sem Hitlersáróður-
inn sagði, að kommúnistar hefðu
kveikt í Ríkisþinghúsinu og
Morgunblaðið birti leiðara þar
sem spurt var hvenSer færi 'að
loga við Austurvöll!
Og minna má á hvemig Morg-
unblaðið brást við þegar Þjóð-
viljinn og Alþýðublaðið deildu
á nazismann. Vegna ádeilna Al-
þýðublaðsins sagði Morgunblaðið
t.d. f leiðara 26. nóv. 1936:
„Ef utanríkisráðherra, Harald-
ur Guðmundsson, gerði skyldu
sína og stöðvaði hið gálauslega
fleypur blaðs síns um Þjóðverja,
er verzlunarsamningnum við bá
ekki lengur teflt í voða og mjög
sennilegt, að ná mætti samning-
um um innfflutning til Þýzka-
lands á meira magni af ísfiski“.
Því er þannig hótað í Morgun-
Sundmét Ægis
háð í sundhöll-
Sundmót Ægis verður háð f
kvöld, miðvikudag, í Sundhöll
Reykjavíkur og hefst keppnin
kl. 8.30.
Keppt verður i 400 m skrið-
sundi karla, 200 m skriðsundi
kvenna, 50 m flugsundi telpna,
100 m bringusundi kvenna, 100
m bringusundi karla, 100 m
skriðsundi sveina 13-14 ára, 200
m fjórsundi kvenna, 200 m fjór-
sundi karla, 100 m baksundi
drengja 15-16 ára., 50 m skrið-
sundi telpna 12 ára og yngri,
4x50 m fjórsundi kvenna og
4x50 m skriðsundi karla.
Meðal keppenda eru margir
beztu sundmenn í Reykjavík og
nágrenni, m.a. Guðmundur Þ.
Harðarson, Ægi, Hrafnhildur
Kristjánsdóttir Ármanni, Hrafn-
hildur Guðmundsdóttir ÍR, Matt-
hildur Guðmundsdóttir Ármanni,
Ami- Þ. Kristjánsson SH, Guð-
mundur Gíslason IR, og Davfð
Valgarðsson ÍBK.
Herbergi óskast
Sjómaður óskar eftir að
taka herbergi á leigu. —
Tilboð merkt „Sjómaður“
sendist blaðinu fyrir laug-
ardag.
Nýju
þvottuhásið
Sími: 22916.
20% afsláttur af öllu
taui — miðast við 30
stykki.
blaðinu fýrir hönd Hitlers-Þýzka-
lands að verzlunarsamningar ís-
lands við Þýzkalands séu í voða
ef Alþýðubláðið þegi ekki um
Hitler. Ef blaðið þegi muni hægt
að auka útflutning Islendinga
þangað!
■ír
(Einar tók fleiri dæmi umund-
irlægjuhátt fremstu mannaSjálf-
stæðisflokksins við þýzka nazism-
ann og verður drepið á það í
framhaldi útdráttarins úr ræðu
hans.).
Rapacki kom til
Lundúna í gær
LONDON 21/2 — Adam Rap-
acki, utanríkisráðherra Póllands,
kom í dag. til London til þess
að ræða við fulltrúa brezku
stjórnarinnar um stríðið í Viet-
nam, öryggismál Evrópu, af-
vopnun og (fcnðsKipti. Búizt er
við að viðræðurnar muni leiða
til aukinnar verzlunar milli
Breta og Pólverja.
Olíuverzlun ríkisins
Framhald af 1. síðu.
una á kostnaðarverði að við-
bættri álagningu, sem svarar
kostnaði við rekstur verzlunar-
innar.
6. gr-
Stjóm olíuverzlunarinnar skipa
5 menn, kosnir af sameinuðu Al-
þingi til fjögurra ára í
senn. Ráðherra skipar formann
úr hópi stjómarmanna. Einmg
skulu á sama hátt kosnir jafn-
margir varamenn. Stjómin ræð-
ur framkvæmdastjóra og hefur
umsjón með rekstri verzlunar-
innar.
Endurskoðuvardeild fjármála-
ráðuneytisins annast endurskoð-
un reikninga olíuverzlunarinnar.
7. gr.
Olíusamlög eða aðrir aðilar,
sem bundnir eru viðskiptasamn-
ingum við olíufélögin, þegar olíu-
verzlunin tekur tif starfa, skulu
lausir undan þeim samningum
án skaðabóta.
8. gr.
Birgðir þær af olíuvörum, sem
verða á birgðastöðvum þeim, f-T
olíuverzlunin fær til umráða,
samkvæmt ákvæðum 3. gr., skal
hún kaupa á kostnaöarverði. Ná-
ist ekki samkomulag við eigend-
ur, er heimilt að taka vömmar
eignamámi.
9- gr.
Önnur atriði, er snerta fram-
kvæmd þessara laga, þ.á.m.með-
ferð og sala þeirra birgða, sem
fyrir verða á birgðastöðvum,
sem olíuverzlunin tekur á leigu,
þegar hún tékur til starfa, skulu
ákveðin í regílugerð.
10. gr.
Brot á lögum þessum og reglu-
gerðum eða öðrum ákvæðum, er
sett kunna að verða samkvæmt
þeim varða sektum, allt að 200
þúsund fcrónum, og skal farið
með mál út af slíkum brotum að
hætti opinberra mála.
11. gr.
• Lög þessi öðlast gildi 1. janú-
ar 1968.
Frumvarpinu, fylgir rækileg
greinargerð. .....„„
BERNINA
GÓÐ SAUMAVÉL ER NAUÐ-
SÝNLEG Á HVERJU HEIMILI
Hin heimsfræga BERNINA saumavél er seld í eftirfar-
andi verzlunum úti um land:
AKRANES:
AKUREYRI:
BÍLDUDALUR:
BÚÐARDALUR:
ESKIFJÖRÐUR:
GRAFARNES:
HELLA:
ÍSAFJÖRÐUR:
KEFLAVÍK:
PATREKSEJÖRÐUR:
SAUÐÁRKRÓKUR:
SELFOSS:
STYKKISHÓLMUR:
SUÐUREYRI:
SVALBARÐSEYRI:
VESTMANNAEYJAR:
Verzl. Axels Sveinbjörnssonar.
Vélsm. Steindórs.
Verzl. Jóns Bjarnasonar.
Kaupfélag Hvammsfjarðar.
Verzl. Elís Guðnason.
Verzlunarfélagið Grund.
Verzl. Mosfell.
Finnsbúð.
Stapafell.
Kaupfélag Patreksfjarðar.
Verzl. Ingibjargar Jónsdóttur.
Kaupfélag Árwesinga.
Verzl. Sigurðar Ágústssonar.
Suðurver h.f.
Kaupfél. Svalbarðseyrar
Silfurbúðin.
Hafið samband við umboðsmenn okkar og fáið
upplýsingar um verð op græði.
ÁSBJÖRN ÓLAFSSON hf
Grettisgötu 2 — sími 24440