Þjóðviljinn - 01.04.1967, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 01.04.1967, Blaðsíða 8
e- TRYGGINGAFELAGIÐ HEIMIRf tlNOACCATA * CEYKiAVIK SlMI 21260 SlMNEFNI i SURETY \ Stór sending af hollenzkum ullarkápum terylenekápum og drögtum tekdð upp-í dag. Bernharð Laxdal Kjörgarði Laugavegi 59 — Sími 14422. Úr og klukkur Fjölbreytt úrval í gulllögðum stál- og gollkóssum. REWUE-úr af nýrri, endurbættri gerð, í vatns- heldum stálkössum. ÖLL ÚRIN ERU HÖGGVARIN — SUM ERU MEÐ DAGATALI OG SJÁLFVINDU. Sigurður Tómasson úrsmiður Skólavörðustíg 21. (§níinental SNJÓHJÓLBARÐAR MEÐ NÖGLUM sem settir eru í, með okkar íull- komnu sjálívirku neglingarvél. veita íyllsta öryggi í snjó ög hálku. Nú er allra veðra von. — Bíðið ekki eftir óhöppum, en setjið CONTINENTAL' hjólbarðá, með eða án nágla, undir bílinn nú þegar. Vinnustofa vor er opin alla daga frá kl. 7,30 til kl. 22. Kappkostum að veita góða þjón- ustu með fullkomnustu vélum sem völ er á. I GÚMMÍYINNUSTOFAN h.f. Skipholti 35 — Sími 3-10-55. • Sikemmtanir til styrktar Skálatúnsheimilinu • Á morgtin voröur eínt til tveggja s-kemmtana að Hótel Sögu til styrktar byggingu sundlaugar fyrir Skálatúns- heimilið í Mosfellssveit. Ennfremur verða tvö skyndi- happdrætti í sambandi við að- urgreindar skemmtanir. Meginuppistaðan í þessum skemmtumim eru tízkusýningar og verða sýndir þama þrjátíu klæðnaðir frá fimm fyrirtækj- um og má greina héma á myndinni sýningarfólkið. Nemendur úr Dansskóla Her- manns Ragnars sýna þarna nokkur dansatriði Og þrjár ungar stúlkur og tveir piltar úr Réttarholtsskóla syngja við gítarundirleik. Þá kemur fram á skemmtun- inni sjónvarpsstjaiman Elín Clausen, — tíu ára og flytur þuluna „En hvað það var skrýtið". Tilþrif í hárgredðslu er sýnd þarna og nnnast hárgreiðsluna frú Guðrún Magnúsdóttir frá Hafnarfirði og má búast við að ein stúlka í salnum verði kölluð upp og fái þama skínandi hár- greiðslu á staðnum. Eins og kunnugt er, þá er Skálatúnsheimilið rekið fyrir vangefin börn og þama er ver- ið að byggja sundlaug og sund- laugarbyggingu að fjárfestingu fyrir 800 til 900 þúsund krónur- Þessi sundlaugarþygging nýt- ur ekki opinbers styrks og er þetta einn liður tekjuöflunar fyrir þessa smíði. Teikningu af sundlauginni og húsinu við hana gerðu arki- tektarnir Helgi Dg Vilhjálmur Hjálmarssynir, en þcir teiknuðu líka nýja húsið í Skálatúni. Laugin sjálf er hringlaga, — áttatíu fermetrar að flatarmáli, húsið er fimmtíu og fimm fer- metrar. Byggingiarframkvæmd- ir hófust á árinu 1965 og sjóðs- stjóm var kjörin úr hópi for- eldra bamanna. Þarna em nú þrjátíu böm á heimilinu og verða síðar fjörutfu og fimm. þegar heimilið er fullgert. 13.00 Óskalög sjúklinga. Sigríð- ur Sigurðairdóttír kynnir. 14.30 Vikan framundan. Baldur Pálmason og Þorkcll Sigur- björnsson kynna útvarpsefni. 15.10 Veðrið í vikurmi- Páll Bergþórsson skýrir frá. 15.20 Einn á ferð. Gfeli J. Ástþórsson flytur þátt í tali og tónum. 16.05 Skúli Ólafur I’orbergsson fulltrúi volur sér plötur. 17.05 Tómstundaþáttur bama og unglinga. öm Arason fl. 17.30 tJr myndabök náttúrunn- ar. Ingimar Óskarsson talar um dýrið frá miðöld jarðar. 17.50 Dóra Ingvadóttir og Pétur Steingrímsson kynna nýjar hljómplötur. 19-30 Irsk svíta eftir Matyas Seiber. R. Wúrthner og hljómsveit hans leika. 19.40 Músagildran, smásaga eft- ir Arthur Omre. Friðjón Stef- ánsson rithöfundur les sög- unai í þýðingu sinni. 20.00 Ellefta Schumannskynn- ing útvarpsins- Jórann Viðar leikur Davidsbúndlertanze op. 6. 20.35 Leikrit Þjóðleikhússins: Paðirinn eftir August Strind- berg. Áður útvarpað 31. janú- ar 1959. Þýðandi Loftur Guð- mundsson. Leikstjóri: Láras Pálsson. Lcikendur: Valur Gfslason, Guöbjörg Þorbjarn- ardóttir, Jón Aðils, Haraldur Björnsson, Arndís Bjömsdótt- ir, Kristbjörg Kjeld, Erlingur Gfelason og Klemenz Jónss- 22.40 Danslög. 01.00 Dagskrárlok. (Klukkan 01.00 hefst íslenzkur sumartími, þ. e. klukkunni verður flýtt um eina stnnd). • Nýr skilningur á Tyrkjaráni • Má telja vafasamt hvort ís- land hefði nokkru sinni orðið rfki Jörundar eða Tyrkinn heimsótt Suðurnes, hefði Hans Kristjánsson verið uppi og bar- ið á súgfirzkum harðfiski. (Viðtal í Vísi). • Astarlíf með flugfreyjum • Hann hefur fundið upp kerfi, sem vafalaust fleiri vildu geta notað, að búa með þrem flug- freyjum til skiptis. Því miður fyrir íslenzka áhugamenn eru áætlanir flugfélaganna hér ekki heppilegar til þessa. (Kvikmyndagagnrýni í Mogga.) • Franskir bænd- ur hrósa sigri • Bændur FrakkLands ganga heldur en ekki bíspertir nú urn hríð. Enda hafa þeir unnið sigur frækilogan á gripasýninBU af þeirri tegund sem þeir koma yfirleitt ekki nálægt. Svo er mál með vexti aö Jeanne Beok, nítján ára göm- ul bóndadóttir í Normandie var kjörin fegurðardrottning Frakk- lands árið 1067. Blöð segja að hún sé sönn ímynd heilbrigði og mikið náttúrabarn i alla staði. Jeanne kveðst sjálf á- nægð með sigur bennan vegna þess að nú gefist henni kostur á að ferðast en hún hefur áður ekki komizt ýkjalangt frá búi föður síns og aldrei til Parísar fyrr en nú. Okkur dettur að sjálfsögðu ekki í hug að birta mynd sf stúlkunni í gervi fegurðar- Beck að mjólka eina af kúm Beck að mjórka eina af kúm föður síns. • Því ekki? • „Kostir frjálsrar samkeppni eru óvéfengjanlegir. En miðað við aðstæður okkar — væri ekki æskilegra fyrir heildina að við snéram bökum saman og létum skynsemina' ráða? Hún mætti jafnvel ráða á fleiri sviðum“. (Morgunbl. 29/3). • Námskeið fyrir kennara frá Norðurlöndum • Námskeið fyrir kennara frá Norðurlöndum verður haldið við Luther College, Deeorah lowa, i Bandaríkjunum, dag- ana 26. júní til 28. júlí i sum- ar. Er þetta fjórða sumarið í röð, að slíkt námskeið er hald- ið þar vestra Nokkrir styrkir til þátttöku í námskeiðinu verða veittir á vegum Amerie- an-Scandinavian Foundation (af framlagi Rockerfellerbræðra til sjóðs þess, sem kenndur er við Thor Thors. ambassador). Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Islenzk- ameríska félagsins. Austurstr. 17 (4. hæð). og verða a!>r nán- ari upplýsingar veittar þar á þriðjudÖKum og fimmtudögum kl. 5.30 til 7.90. Umsóknarfrest- ur er til 15. apríl. • Pennavinur • 16 ára þýzk stúlka hefur skrifað blaðinu og óskar eftir að komast í bréfasamband við pilt eða stúlku á líkum aldri. Hún segist geta skrifað á ensku, rússnesku eða þýzku, gengur í menntaskóla Dg safn- ar frímerkjum og litmyndaj- kortum. Stúlkan býr í Görlitz, sem er gömul og falleg borg á stærð við Reykjavík, hefur 90 þús. íbúa. Nafnið og heimilisfang er svohljóðandi: TJte Geyer, 89 Görlitz, Bol. — Bierut Str. 17, DDR. • Þankarúnir • Velgengni: Að vinna sér inn peninga til að borga þá skatta, sem maður hefði ekki þurft að borga ef maður hefði ekki unnið sér inn svo mikið af peningum. Diplómat: Maður sem hugsar sig um tvisvar áður en hann segir ekki neitt. • Hundur féll af himni ofan • Hundur sá sem hér cr að falla af himnum ofan var í franska flughcmum, þótt einkcnnilcgt megi virðast. Ilann hct Aspic og hafði gert franska flughernum margan greiða í Alsírstríðinu, vesællar minningar. Gera átti tilraun með Aspic — hvcrnig áhrif fallhlífarstökk hefði á hann. Hann stökk út úr flugvél í 400 metra hæð eins og hlýðinn hermaðtrr og sveif til jarðar. En er hann átti um 40 metra eftir hljóp í hann cinhver órói og hann losaði sig úr böndum — það var þá sem þessi sérstæða mynd var tekin. Auðvitað steinrotaðist hundurinn um leið og hann kom við jörð.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.