Þjóðviljinn - 01.04.1967, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 01.04.1967, Blaðsíða 9
Fermingar í Laugarnmékn (Séra Garðar Svavarsson) sunnudaginn 2. apríl kl. 10.30 f.h. Kinversk kvik- ntynd „Brennandi æska“ sýnd í dag ★ I dag, laugardaginn 1. apríl, Kínversk-islenzka menningarfé- lagið til sýningar í Stjörnubíói á kínversku kvikmyndinni „Brennandi æska“ sem byggð er á samnefndri skáldsögu er þýdd hefur verið á íslenzku og kom út á sl. hausti. Fjallar myndin um Iíf og baráttu kínverskra stúd- enta og annars æskufólks árin eftir 1930. ★ Sýningin hefst klukkan 2.30 og er ókcypis fyrir félagsmenn og gesti þeirra. ★ Á aðalfundi KlM á miðviku- dagskvöld flutti Ásmundur Sig- urjónsson ýtarlegt erindi um kín- versk stjómmál, cinkum við- skipti og dcilur Sovétríkjanna og Kina. ★ Stjóm félagsins var endur- kosin, en hana skipa dr. Jakob Benediktsson formaður og aðrir stjómarmenn lsleifur Högnason, Nanna Ólafsdóttir, Ólafur EIí- mundaTson og Sigurður Guð- mundsson. I varastjóm eru Skúli Þórðarson og Zóphónías Jónsson. Kjötiðnaðarstöð Framhald af 12. síðu. allra matvöruverzlana kaupfé- lagsins bæði á Ákureyri og út með firðinum, á sama hátt og Pylsugerðin áður. — Markaður Pylsugerðarinnar hefur til þessa að mestu verið á Norður- og Austurlandi en með þeirri stór- auknu framleiðslugetu, sem nú er fyrir hendi, verður lögð á- herzla á að koma framleiðslu- vörum Kjötiðnaðarstöðvarinnar sem víðast um land. Danskur pylsugerðar- og nið- ursuðumeistari, Kurt Strand, hefur verið ráðinn um nokkurra mánaða skeið sem ráðunautur um framleiðsluaðferðir, nýjar framleiðslugreinar og vörugæði. Hin nýja Kjötiðnaðarstöð verður undir yfirstjórn Hauks P. Ólafs- sonar, slátur- og frystihússtjóra, en kjötiðnaðarmeistari er Einar Sigurðsson. Starfsmenn stöðvar- innar eru um 30 talsins. Heimilishjálp i HafnarfirBi Að tilhlutan barnaverndar- nefndar Hafnarfjarðar hefur bæjarstjórn Hafnarfjarðar sam- þykkt að setja á stofn heimilis- hjálp i viðlögum. Ráðin hefur verið forstöðukona til að veita heimilishjálpinni forstöðu frú Kristin Jónsdóttir Fögrukinn 17. Viðtalstími hennar er milli kl. 7 og 8 síðdegis alla virka daga nema Iaugardaga, og geta þeir sem á aðstoð þurfa að halda snú- ið sér beint til hennar. — Sími hennar er 52282. Gjald fyrir veitta hjálp er kr. 125 á dag og er þá miðað við að hjálparþegi njóti aðstoð- ar 5 klst. á dag. Heimilt er þó þegar sérstakar ástæður eru fyr- ir hendi til ívilnunar að gefa eftir af hluta af greiðslu eða fella hana alveg niður. Barnaverndarnefnd Hafnar- fjarðar hefur opnað skrifstofu á efstu hæð í r&ðhúsinu. Er við- talstími nefndarinnar hvern virk- an dag nema mánudaga og laug- ardaga kl. 2 til 3 síðdegis (sími um bæjarskrifstofurnar). For- maður og framkvæmdastjóri barnaverndarnefndar er Snorri Jónsson kennari. Stúlkur: Björg Jakobsdóttir, Hraun- teig 28, Dóra Kristín Halldórs- dóttir, Rauðalæk 3, Elín Hanna Stefánsdóttir Laxdal, Sund- laugavegi 26, Ellen Þórarins- dóttir, Laugamesvegi 102, Hrönn Norðdahl, Kambsveg 19, Ingibjörg Vilhjálmsdóttir, Safa- mýri 50, Jórunn Andreasdóttir, Rauðalæk 63, Kristín Sigtryggs- dóttir, Rauðalæk 44, Kristín Ingibjörg Vilhjálmsdóttir, Höfðaborg 57, Magnea Bergþóra Aradóttir, Sogaveg 133, Ragn- hildur Kristín Ólafsdóttir, Rauðalæk 69, Rannveig Frið- riksdóttir, Kleppsveg 34, Sigur- laug Vilhjálmsdóttir, Rauðalæk 42, Unnur Inga Karlsdóttir, Höfðaborg 53. Drengir: Áskell Másson, Rauðalæk 33, Guðjón Steinar Marteinsson, Kleppsveg 16, Guðmundur Kari Ágústsson, Rauðalæk 57, Guð- mundur Þorkell Bjarnason, Sig- túni 25, Hlynur Höskuldsson, Sundlaugaveg 20, Leifur Sören- sen, Rauðalæk 41, Reynir Vignir, Miðtúni 76, Skúli Viðar Magnússon, Silfurteig 5, Stefán Loftur Stefánsson, Kleppsveg 16, Sturla Jónsson, Miðtúni 60, Sveinbjöm Guðjohnsen, Hátúni 6, Þráinn Ingimundars. Sporða- grunni 4, Ægir Hrólfur Þórðar- son, Langholtsveg 16. Bor^arfégeti Framhald af 1. síðu. sig sem starfsmann hjá fógeta- embættinu og tilkynnti, að fógeti með föruneyti væri læstur inni í húsinu og óskaði eftir aðstoð til þess að komast út. Lögreglan. brá þegar við og hafði samband við lögreglubil gegnum talstöð, — var hann ein- mitt að aka þama um f grennd- inni og ók hann þegar á vett- vang með tveim lögregluþjónum. Fyrir dvmm úti stóð kaup- maðurinn ábúðarmikill að vanda með lykilinn f annarri hendi, en í gluggum hússins sást til rás- andi manna innanhúss og nokk- urt handapat viðhaft á kðflum. Þarna afhenti kaupmaður lög- regluþjónum lykilinn undir votta viðurvist og opnuðu þeir húsið og urðu tilfallandi gestir fegnir frelsinu. Ekki ber mönnum saman um viðburðarásina á vettvangi og skal þessvegna greint frá heim- ildum blaðsins, — lögfræðingur staddur á staðnum, — starfs- maður hjá fógetaembættinu og reykvískur lögregluþjónn og hafa allir þessir aðilar óskað eftir því að nafna sinna yrði ekki getið i þessu sambandi. Lögf ræðin gurinn og lögreglu- þjónninn skýra frá því, að gjörðarþoli hafi óskað eftir fresti og hafi honum verið neitað um þennan frest. Starfsmaður hjá fógetaembætt- inu heldur því hinsvegar fram, að hér hafi aðeins verið innt af hendi formskylda og hafi ekki verið meiningin að bjóða eignina upp. Allavega var hætt við uppboð- ið í gærdag. Lögfræðingurinn skýrði svo frá, að gjörðarþoli hafi við neit- un fógeta snúizt á hæli og rokið á dyr með lykilinn að húsinu, sem hafði verið í vörzlu em- bættisins undanfamar vikur og heft þar með frelsi embættis- manna við skyldustörf. Lögregluþjónninn hefur hins- vegar eftir gjörðarþola, að yfir- borgarfógeti hafi sökum meintr- ar ölvunar ekki verið fær um að sinna embættisstörfum og óskað þessvegna eftir aðstoð lögregl- unnar að fjarlægja embættis- manninn. Okkur bar hinsvegar að fram- kvæma slíka ósk með varúð, þar sem lögregluembættið stendur jafnfætis fógetaembættinu að tign, sagði lögregluþjónninn að lokum. ic Minningarspjöld. — Minn- ingarspjöld Hrafnkelssjóðs fást £ bókabúð Braga Brynj- ólfssonar. Knattspyrna Framhald af 4. síðu. knattspyrnu. Hefur stjómin notið sérstakrar fyrirgreiðslu { sambandi við framkvæmd og skipulagningu landsmóta hjá stjórn KRR, sem annaðist framkvæmd landsmótanna allt til ársins 1963, en þá var skip- uð sérstök mótanefnd KSl, er hefur með þessi mál að gera. Miklar breytingar hafa orðið á síðustu 20 árum f sambandi við framkvæmd landsmóta, en þó má segja, að sú veigamesta hafi verið gerð árið 1959, þeg- ar ókveðið var að skipa fyrsta aldursflokki í I. og II. deild, og leika bæði heima og heim- an. Ennfremur var sú ákvörð- un að stofna til bikarkeppni á vegum KSÍ árið 1960 mjög þýðingarmikil, þar eð keppni þessi hefur haft í för með sár lengingu á keppnistímabilinu. Einnig má benda á þá breyt- ingu, er gerð var á sl. ári, að hefia keppni í III. deild. Knattsnymusamband Islands hefur eftir fremsta megni reynt að stuðla að útbreiðs’u íþróttarinnar. Hafa verið hald- in fjölmörg námskeið fyrir leið- beinendur, og einnig hafa verið haldin dómaranámskeið. Fengn - ir hafa verið til landsins kunn- áttumenn á þessu sviði, og gerður hefur verið samningur við fþróttakennaraskóla íslands varðandi þessa starfsemi. Enn- fremur hefur Knattspymusam- bandið stuðlað að því að leið- beinendur, dómarar og einstak- ir leikmenn hafa sótt námske1* og fundi erlendis. Knattspyrnu- sambandið hefur ennfremur komið sér upp all góðu safni kvikmvnda, sem lánaðar hafa verið út til sambandsaðila. Knattspyrnusambandið kom ó fót sérstökum knattþrautum fy.rir unglinga eftir 'erlendri fyrirmynd, og er óhætt, að fuli- yrða, að starf þetta bar mik- inn árangur. Af fjárhagsástæðum hefur ekki verið unnt að hafa fast- ráðinn þjálfara í þjónustu sam- bandsins, en £ stað þess hafa einstakir þjálfarar verið ráðnir um lengri eða skemmri tíma, bæði til að annast kennslu fyr- ir leiðbeinendur og leikmenn. Á vegum Knattspyrnusam- bandsins hafa starfað fjölmarg- ar nefndir á undanförnum 20 órum. Landsliðsnefnd, sem hef- ur haft það hlutverk með hönd- um að velja leikmenn f lands- lið og skipuleggja undirbúning fyrir landsleikina. Dómara- nefnd, sem hefur haft yfirum- sjón með öllum dómaramálum á landinu, raðað dómurum nið- ur á landsmót, útskrifað dóm- ara o.fl. Unglinganefnd, sem fyrst sá um framkvæmd knatt- þrautanna, en hin síðari ár hef- ur einkum séð um undirbúning að þátttöku unglingalandsliða í Norðurlandamótum. Tækni- nefnd KSÍ, sem hefur einkum séð um leiðbeinendanámskeið og verið ráðgefandi aðili i þeim málum. Mótanefnd KSÍ, sem hefur annazt og séð um framkvæmdir allra landsmóta og bikarkeppna á vegum sam- bandsins. Kvikmyndir Framhald af 7. síðu. í samtali við Antonioni um kvikmynd þessa hefur italski rithöfundurinn Alberto Mor- avia komizt að svofelldri nið- urstöðu: „Það er ekki fyrst og fremst glæpurinn sjálfur eem tengdur er Englandi i dag held- ur sú staðreynd að glæpúrinn verður ekki upplýstur og fyrir hann kemur ekki refsing. Með öðrum orðum: sambandið milli glæpsins og „hins ljúfa lifs“ birtist í afstöðu aðalpersónunn- ar, sem er að vísu ekki alveg laus við siðgæðisvitund, en vill hvorki skilja raunveruleikann né útskýra hann. . . . Ef við einföldum málið nokkuð mætti segja sem svo, að Antonioni sýni okkur hvernig ungt fólk kemur sér hjá því að taka virk- an þátt í því sem er að gerast — jafnvel þá þegar því er bein- línis hrundið út í óvenjulegar aðstæður. Og í baksýn sjáum við nýtt, ungt samfélag, sem er stöðugt í mikilli breytingu...“ Laugardagur 1. aprfl 1967 — ÞJÖÐVTL.TINN — SÍÐA 0 SVFf Framhald af 5. síðu. framtíð. Við bíðum og sjáum, hvað setur! Hér hefir verið lít- illega rætt aðeins eitt af þeim furðumálum — að ég ekkisegi undirfurðumálum — sem eru þess eðlis, að þeim er helzt alls ekki trúandi af sannfróm- um sálum, er ekki þekkja til annars en gloríunnar um höfuð SVFI — úr nægilega mikilli fjarlægð. Baldvin Þ. Krisí jánsson. SMURSTjÖÐIN Kópavogshálsi Sími 41991 Opin fra kl. 8—18. A föstudögum kl. 8—20. ☆ ☆ ☆ HEFUR ALLAR algengustu smurolíuteg- undir fyrir diesel- og benzinvélar. Jón Finnsson hæstaréttarlögmaðui Sölvhólsgötu 4. (Sambandshúsinu 111. hæð) símar 23338 og 12343 S Æ N G U R Kndurnýjum gömlu sæng- urnar, eigum dún- og fið- urheld ver og gæsadúns- sængur og kodda af ýms- um stærðum Dún- og fiðurhreinsun Vatnsstig 3. Simi 18740 (örfá skref frá Laugavegi) Nýja þvottahúsið Sími: 22916. Ránargötu 50. 20% afsláttur af öllu taui — miðast við 30 stykki. Smurt brauð Snittur við Óðinstorg. Sími 20-4-90. HÖGNI JÓNSSON Lögfræði- og fasteignastofa Skólavörðustig 16. Sími 13036, beima 17739. Sængurfatnaður — Hvítur og mislitur — * ÆÐARDUNSSÆNGUR GÆSADÚNSSÆNGUR DRALONSÆNGUR ★ SÆNGURVER LÖK KODDAVER Skólavörðustig 21 Laugavegi 38. Skólavörðustíg 13 Snorrabraut 38. BRl DGESTONE HJÓLBARÐAR Síaukin sala sannargæðin. B:RIDGESTONE veitir aukið öryggi í akstri. BRIDGESTONE ávallt fyrirliggjandi. GÓÐ ÞJÓNUSTÁ Verzlun og viðgerðir Gúmmbarðinn h.f. Brautarholti 8 Sími 17-9-84 ^íJafþór óuwumsoK Skólav'órSustíg 36 Szníi 23970. INNHEIMTA LÖGFRÆVl'STÖRF SERVÍETTU- PRENTUN SÍMI 32-101. VD [R'Vctuxi+Terir frezt KHDICt

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.