Þjóðviljinn - 01.04.1967, Side 12
Lélegar
aflasölur
togaranna
Sjö togarar hafa selt afla sinn
í Bretlandi nú í vikunni, flestir
fyrir mjög lágt verð og reynd-
ist stór hlufi af aflanum óselj-
anlegur.
Þetta er versta vika sem ég
man eftir sagði Ingimar Einars-
son failltrúi hjá LltJ er Þjóð-
viljinn leitaði frétta hjá honum
í gær um aflasölu togaranna.
Alla vikuna var von á miklum
óstöðugleika á sölu fisks í Bret-
landi. Karfi, steinbítur og jafn-
vel millistærð á þorski var ó-
seljanlegt, enda varð raunin sú
að allt frá 20% til 70% sfla
skipanna var óseljanlegur og fór
í gúanó eða seldist á mjög lágu
verði til söltunar eða vinnslu
sem dýrafóður.
Á þriðjudag seldi Röðull 163
tonn fyrir 8.537 pund og Sval-
bakur seldi 155 tonn fyrir 10.073
pund. Á fimmtudag seldi Sigurð-
ur 184 tonn fyrir aðeins 4.832
pund og Harðbakur 224 tonn fyr-
ir 10.485 pund. í gær seldi Slétt-
bakur 160 tonn fyrir 7.090 pund,
Víkingur 270 tonn fyrir 8.907
pund og Egill Skallagrímsson
193 tonn fyrir 8.245 pund. Allir
togaramir seldu í Grimsby nema
Egill Skallagrímsson, sem seldi í
Hull.
Athyglisvert er að stærstu tog-
aramir em með lakast meðal-
verði á aflanum, og sala Sigurðar
er í algeru lágmarki. Engir ís-
lenzkir togarar munu selja er-
lendis í næstu viku, en sex eða
sjö þeirra eru nú á veiðum.
Sumaráætlun FÍ gengur í gildi í dag:
Gerbreyting a millilanda-
flugi vii tilkomu (wtunnar
□ í dag gengur sumaráætlun Flugfélags íslands, innan-
lands og millilanda, í gildi. Eftir tilkomu sumaráætlunar-
innar, fjölgar ferðum í áföngum og krottfarar- og komu-
tímar ýmissa ferða breytast. Innanlands verða fleiri ferðir
en nokkru sinni fyrr. Ferðaáætlun í millilandafluginu er
einnig yfirgripsmeiri en nokkru sinni áður í sögu Flugfé-
lagsins. Hinn 1. júlí verða þáttaskil í millilandafluginu er
hin nýja Boeing 727 þota verður tekin í notkun á milli-
landaleiðum þess.
Þegar sumaráætlun innan-
landsflugs hefur að fullu gengið
í gildi, verður ferðunum hagað
sem hér segir:
Milli Reykjavíkur og Akur-
eyrar verður 21 ferð í viku;
þrjár ferðir alla daga. Milli R-
víkur og Vestmannaeyja verða
20 ferðir í viku; þrjár ferðir
alla virka daga og tvær ferðir
á sunnudögum. Milli Rvíkur og
Egilsstaða verða þrjár ferðir í
viku. Milli Isafjarðar og Egils-
staða er ein ferð. Milli Rvíkur
og Isafjarðar verða níu ferðir í
viku; ferðir alla daga og tvær
ferðir á fimmtudögum og laug-
ardögum. Milli Reykjavíkur og
Sauðárkróks verða fimm ferðir
í viku; á mánudögum, miðviku-
dögum, fimmtudögum, föstudög-
um og laugardögum. Til Homa-
fjarðar verða fjórar ferðir; á
mánudögum, miðvikudögum,
Jón Kristinsson er með 50%
vinninga á Halleskákmótinu
tJm þessar mundir stendur
yfir svæðamót í skák í Halle í
Austur-Þýzkaiandi og tekur Jón
Kristinsson þátt í því fyrir Is-
Iands hönd. Mótið hófst 18. marz
og þegar síðast fréttist höfðu
veriff tefldar 5 umferðir og hafði
Jón hlotið í þeim 214 vinning
eða 50% sem er góð frammi-
staða hjá honum.
Þátttakendur í mótinu eru 20
að tölu og verða því tefldar 19
umferðir og hljóta þrír efstu
menn rétt til þátttöku í milli-
svæðamótinu sem haldið verður
i Alsír síðar á þessu ári.
Úrslit i einstökum skákum
Jóns hafa verið sem hér segir.
1 umferð: Jafntefli gegn alþjóða-
meistaranum Ciocaltea frá Rúm-
eníu, 2. umferð: Tap fyrir stór-
meistaranum Uhlmann frá A-
Þýzkalandi, 3. umferð: Vinning-
ur gegn alþjóðameistaranum
Minic frá Júgóslavíu, 4. umferð:
Vinningur gegn Pólverjanum
íslandsglíma
Islandsglíman fer fram
sunnudaginn 30. apríl í Iþrótta-
húsinu að Hálogalandi. Þátt-
tökutilkynningar sendist Rögn-
valdi Gunnlaugssyni Félkagötu
2 fyrir 22. april. Glímudeild
KR sér um mótið.
Blaðskák TR:TA
SVARX: TA:
Jón Björgvinsson
Þorgeir Steingrímsson.
abcdef gh
abcdef gh
HVÍTT: TR:
Arinbjörn Guðmundsson
Guðjón Jóhannsson
ÍS. Kc2
Petrusiak, 5. umferð: Tap fyr-
ir Hollendingnum Kuijpers.
Eftir 5 umferðir var staðan
Jón Kristinsson
í mótinu þessi: 1. Portisch, Ung-
verjalandi 4% v., 2.-3. Hort,
Tékkóslóvakíu og Uhlmann A-
Þýzkalandi. 4, 4.15. Vesterinen,
Finnlandi og Besser, V-Þýzka-
land 3%, 6.-7. Matulovic, Júgó-
slavíu og Zwaig, Noregi 3, 8.-13.
Ciocaltea, Rúmeníu, Johnsson,
Svíþjóð, Jón Kristinsson, Kin-
mark, Svíþjóð, Miniev, Búlgaríu,
og Minic, Júgóslavíu 2Vz, 14.-15.
Kuijpers, Hollandi og Zinn, A-
Þýzkalandi 2, 16.-17. Gerusel, V-
Þýzkalandi og Petersen, Dan-
mörku 1%, 18.-19. Camilleri, ítal-
íu og Havansi, Finnlandi 1 og
Petrusiak, Póllandi %.
Aðalfundur Skák-
sambands Islands
Aðalfundur Skáksambands Is-
lands var haldinn 25. marz. For-
seti sambandsins, Guðmundur
Arason, var einróma endurkjör-
inn. Aðrir í stjórn voru kjörnir
Hjálmar Þorsteinsson varaifor-
seti, Guðmundur G. Þórarinsson
ritari, Guðbjartur Guðmundsson
gjaldkeri t>g Guðmundur Pálma-
son meðstjórnandi. I varastjóm
voru kosnir Arinbjörn Guð-
mundsson, Guðlaugur Guðjóns-
son og Stemgrfmur Aðalsteins-
föstudögum og laugardögum.
Milli Reykjavíkur og Húsavíkur
verða brjár ferðir í viku; á
þriðjudögum, fimmtudögum og
laugardögum. Til Patreksfjarðar
verða sömuleiðis þrjár ferðir í
viku; á þriðjudögum, fimmtu-
dögum og laugardögum. Til
Raufarhafna- verður flogið
þrisvar f viku, á mánudögum,
fimmtudögum og laugardögunt.
Til Kópaskers verður flogið á
mánudögum og til Þórshafnar á
mánudögum og laugardögum.
Þessi áætlun til Raufarhafnar,
Kópaskers og Þórshafnar gild;r
aðeins út aprílmánuð, en þá
verður ný áætlun til þessara
staða birt. Til Fagurhólsmýrar
verður flogið á miðvikudögum
og á miðvikudögum verður einn-
ig flogið milli Vestmannaeyja og
Hellu.
Millilandaflug
Sem fyrr segir verður gagn-
gjör breyting á millilandaflugi
Flugfélags íslands, er það tekur
þotu í notkun á millilandaleið-
um 1. júlí næstkomandi. Eftirfar-
andi áætlun gildir fram að þeim
tíma og verður ferðum hagað
sem hér segir eftir að hún hefur
að fullu gengið í gildi.
Milli Reykjavíkur og Kaup-
mannahafnar eru tólf ferðir í
viku; þannig að ferðir eru alla
daga en tvær ferðir á mánudög-
um, þriðjudögum, laugardögum
og þrjár ferðir á sunnudöguni.
Milli Reykjavíkur og Glasgow
eru fimm ferðir í viku; á mánu-
dögum, miðvikudögum, fimmtu-
dögum, laugardögum og sunnu-
dögum. Til Lcmdon er flogið
þrisvar í viku; á þriðjudögum,
föstudögum og laugardögum. Til
Vogar í Færeyjum verða tvær
ferðir í viku, á sunnudögum og
þrið.iudögum. Til Bergen verður
ein ferð í viku, á þriðjudögum.
Jón Maríasson
hættir við
Seðlabankann
| Á ársfundi Seðlabankans
sem haldinn var í gær var
tilkynnt að Jón G. Marí-
asson, bankastjóri, hefði
sagt starfi sínu lausu frá
1. ágúst n.k. — Formaður
bankaráðs, Birgir Kjaran,
og viðskiptamálaráðherra,
Gylfi Þ. Gíslason, þökk-
uðu Jóni vel unnin störf
að bankamálum.
I Jón G. Maríasson hóf
störf við Landsbankann á
ísafirði árið 1919. Ellefu
árum síðar tók hann við
störfum við aðalbankann
í Reykjavík. Árið 1934
varð hann aðalbókari
bankans og bankastjóri
árið 1945, og árið 1957
varð hann bankastjóri
Seðlabankans. Jón hefur
gegnt fjölda annarra trún-
aðarstarfa.
■ Þjóðviljinn hefur áreið-
anlegar heimildir fyrir
því að Davíð Ólafsson
fiskimálastjóri muni taka
við starfi Jóns sem banka-
stjóri við Seðlabankann.
I Á fundinum var ennfrem-
ur tilkynnt, að banka-
stjórn hefði kosið dr. Jó-
hannes Nordal formann
bankastjómar næstu 3 ár.
en frá Bergen til Reykjavíkur
tvær ferðir; á sunnudögum og
miðvikudögum.
Þann 1. júlí hefst sem fyrr
segir þotuflug á áætlunarleiðum
Flugfélagsins milli landa með
hinni nýju Boeing 727C-þotu fé-
lagsins. Þá verða daglegar þotu-
ferðir með Cloudmaster flugvél-
um á mánudögum, laugardögum
og sunnudögum.
Til London verða fjórar ferð-
ir með þotu í viku hverri, á
þriðjudögum föstudögum, laugar-
dögum og sunnudögum. Til Glas-
gow verða þrjár þotuferðir viku-
lega; á mánudögum, miðvikudög-
um og fimmtudögum og enn-
fremur Cloudmastersflug á laug-
ardögum og sunnudögum. Til Ós-
ló verður þotuflug á föstudögum
og Cloudmastersflug á mánudög-
um.
Flugferðir um Færeyjar til
Bergen og Kaupmannahafnar
verða eins og áður flognar á
þriðjudögum og sunnudögum
með F-27 Friendship. Þegar sum-
aráætlun millilandaflugs Flugfé-
lags íslands hefur að fullu geng-
ið í . gildi, býður félagið við-
skiptavinum sínum 16 áætlunar-
ferðir í viku til útlenda.
Laugardagur 1. apríl 1967 — 32. árgangur
73. tölublað.
(Jr aðalvinnslusal Kjötmiðstöðvar KEA. — (Ljósm. G. P. K.).
Ný og fullkomin kjötiðn-
aðarstöð KEA á Akureyri
□ Hin nýja Kjötiðnaðarstöð Kaupfélags Eyfirðinga á
Akureyri tók til starfa á sl. hausti en var formlega opnuð
22. marz sl. að viðstöddum landbúnaðarráðherra og mörg-
um fleiri gestum.
□ Stöðin stendur á Oddeyrartanga skammt frá Slátur-
og frystihúsi KEA. Starfsfólk er um 30 manns og véla-
kostur mjög góður og fullkominn. Eru þarna nær ótak-
markaðir möguleikar til framleiðsluaukningar, ef vel geng-
ur með sölu.
Bygging Kjötiðnaðarstöðvar
K.E.A. hófst haustið 1963 og
var í ársbyrjun 1967 að fullu
lokið. Byrjað var að vinna á
staðnum um miðjan október sl.
Kaupfélag Eyfirðinga hóf
rekstur pylsugerðar 1934 í sam-
bandi við kjötbúð félagsins. Fyr-
ir 17 árum flutti Pylsugerðin í
húsnæði það í Grófargili, er hún
hefur fram til þessa haft til um-
ráða, en mörg hin síðari ár hef-
ur allri starfsemi hennar þar
verið svo þröngur stakkur skor-
inn, vegna húsnæðisskorts og tak-
markaðs vélakosts.
Verksmiðjubyggingin, sem er
gerð úr strengjasteypu, er 1800
fermetrar að stærð eða 10 þús.
rúmmetrar. Byggingin er að
mestu á einni hæð, þar sem öll
vinnsla fer fram, en á efri hæð
er vélasalur fyrir loftræstingar-,
frysti- og rafmagnskerfi auk um-
búðageymslna. Öll gólf erú flísa-
lögð svo og veggir upp í 1,80
m. hæð. Allt húsnæðið er mjög
bjart og vistlegt, enda miðað
við ströngustu hreinlætiskröfur
til matvælaiðnaðar.
Allt skipulag og flestar teikn-
ingar af Kjötiðnaðarstöð K.E.A.
eru gerðar af danska verkfræði-
fyrirtækinu N. E. Wernberg,
sem hefur um langt árabil unn-
ið að skipulagningu og teikningu
kjötiðnaðar, og matvælamið-
stöðva víða um heim, en mikið
af teikningunum var síðan nán-
ar útfært á Akureyri.
Auk véla úr gömlu Pylsugerð-
inni er Kjötiðnaðarstöðin búin
nýjum vélum og tækjum af full-
komnustu gerð, aðallega frá
Danmörku og Þýzkalandi, og má
þar nefna hraðhakkara, pylsu-
sprautu, hakkavélar, áleggsskurð-
ar- og „vacuum“ pökkunarvél,
heitreykingar- og kaldreykingar-
ofna auk ýmissa niðursuðuvéla.
f stöðinni er mjög fullkomið
loftræstingar- og hitunarkerfi,
sem teiknað var og framleitt að
hluta af Nordisk Ventilator A'/S
í Danmörku, auk frysti- og kæli-
kerfis, en mjög rúmgott kæli-
rými er í stöðinni fyrir unnar og
óunnar vörur.
Pylsugerðin hefur, svo sem
kunnugt er, framleitt margskon-
ar varning úr kindakjöti, stór-
gripakjöti og svínakjöti, svo sem
ýmsar tegundir af pylsum og
bjúgum, margar tegundir af á-
leggi bæði úr nýju kjöti og
reyktu auk niðursuðuvarnings.
Kjötiðnaðarstöðin mun halda á-
fram allri þessari framleiðsiu
og auka fjölbreytni sina smátt
og smátt. En mest framleiðslu-
aukning er samt fyrirhuguð á
niðursuðuvörum, en þeirri fram-
leiðslu hefur ekki til þessa ver-
ið mögulegt að sinna sem skyldi
vegna slæmrar aðstöðu.
Kjötiðnaðarstöðin mun fram-
leiða eftirtaldar vörur niður-
soðnar: Bæjarabjúgu, smásteik,
nautakjöt, kindakjöt, kjötbúð-
ing, svið, steikta lifur, lifrar-
kæfu og kindakæfu, en einnig á
þessu sviði fara fram frekari at-
huganir, t.d. með niðursuðu á
slátri. Mjög hefur verið vandað
til allra umbúða t.d. niðursuðu-
varnings, þ.e. vörumiðanna, sem
munu vera með því glæsileg-
asta sinnar tegundar hér á landi.
Þá mun Kjötiðnaðarstöðin
annast dreifingu á öllum kjötvör-
um, eggjum og grænmeti til
Framhald á 9. síðu.
Kathleen Joyce heldur tón-
leika i Gamla bíói 3. apríl
Á lokatónleikum sínum á
mánudaginn í Gamla bíói mun
cnska altsöngkonan Kathleen
Joyce frumflytja tvö verk eftir
ungan, íslenzkan tónlistarmann,
Garðar Cortes, sem nú er við
nám í Englandi.
Kathleen Joyce söng ul.
miðvikudag á ísafirði á veg-
um Tónlistarfélagsi'ns þar. Var
húsfyllir á söngskemmtuninni og
ágætur rómur gerður að söng
listakonunnar. Auk þess hefur
hún, sem kunnugt er af frétt-
um blaða og útvarps, sungið tví-
vegis í Jóhannesarpassíunni með
Pólýfónkórnum, einnig við ágæt-
an orðstír.
Lokatónleikaimir verða, eins
og þegar er sagt, á mánudag og
leikur Guðrún Kristinsdóttir und
ir. Viðfangsefni söngkonúnna
verða aríur eftir Gluck og Perg
olesi, ljóð eftir Schubert, Brahm
ög Hugo Wolf, lög eftir enski
tónskáldin Elgar, Williams o
fleiri, og löks verða frumflut
tvö lög eftir Garðar Cortes, 2
ára gamlan Reykvíking, sem m
er við tónlistarnám í England
Verk þessi heita „Lullaby
(Vögguvísa) og Fjallið Skjald
breiður, og er þar um að ræð
enska þýðingu á ljóði Jónasa
Hallgrímssonair. Mun tónlistar
unnendum ekki sízt leika hugu
á að hn’'ra verk þessa ung
listamann.
Tónleikarnir hefjast klukka
7.15, og fara þeir fram á vegun
Péturs Péturssonar.
Alþýðubandalagið í Revkiavík
★ Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður haldinn
★ næstu viku. Greiðið félagsgjöldin fyrir fundinn í skrifstofu A
★ þýðubandalagsins í Lindarbæ en hún er opin klukkan 10—1
★ og 13.30-1- til 18.00.