Þjóðviljinn - 16.04.1967, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 16.04.1967, Blaðsíða 6
g SlÐA — ÞJÖÐVIUINN — Sunnudagur 16. aprfl 1967. Asmundur Sigurjónsson: Samskipti Sovétríkianna og Kína Það er víst óhætt að fu31- yrða að deilur kínverskra og sovézkra kommúnista, deilur Kína og Sovétríkjanna, hafi á undanförnum árum haft meiri áhrif á gang sögunnar en nokk- urt annað atriði þróunarinnar á vettvangi heimsmála. Að sjálf- sögðu hefur þessara deiina gæU mest innan hinnar róttæku verklýðshreyfingar í öllum heimsálfum, en þær setja í sí- vaxandi mæli mark sitt á alla söguþnSunina; án þeirra væri mjög ólíkt viðhorfs 1 heimin- um í dag. Þetta er næsta skilj- aniegt því að hér eigast við tvær fjölmennustuþjóðirheims; hver svo sem væru þjóðfélags- leg eða hugmyndafræðileg við- horf þessara rikja eðaölluheld- ur forustumanna þeirra hlyti á- greiningur þeirra sem nú virð- ist jaðra við fullan fjandskap að hafa áhrif á meginþætti al- þjóðamála. Þessar deilur hafa orðið enn afdrifaríkari vegna þeirrar sérstöðu sem kommún- istaflokkar Sovétríkjanna og Kína hafa i hinni alþjóðlegu verkiýðs- og þjóðfrelsishreyf- ing; þ.e. meðal þeirra afla sem mestu hafa ráðið og mestu ráða enn um framvindu sögunnar á tuttugustu öldinni. Þegar spumir bárust fyrst af þessum deilum fyrir einum sjö árum — þá oft eftir miklum krókaleiðum — voru það við- brögð margra, ekki sízt þeirra sem báru vinarhug og virðing- ar til beggja, Sovétríkjanna og Kína, að telja allar slíkar frá- sagnir staðlausa stafi eða þá mjög orðum ýktar; festu menn trúnað á þær, voru þeir marg- ir, kannski flestir, sem töldu að einungis væri um stundar- fyrirbæri að ræða, leiðinlegan misskilning sem brátt mundi verða greitt úr. En þetta hefur farið á aðra leið. Deilumar hafa ágerzt með hverju ári, hverju misseri, og eftir því sem lengra hefur liðið hafa horfumar á sáttum stöðugt versnað. Það sem í upphafi gat virzt vera aðeins ágreiningur bræðra- flokka um fræðikenningar eða starfsaðferðir, er nú ekki ein- vörðungu orðið að deilum um grundvallaratriði, heldur hefur það leitt af sér andstæður >g hagsmunaárekstra tveggja stór- velda. Það er því augljóst að hér er um að ræða mál sem varðar alia hugsandi menn, en alveg sérstaklega alla sósíalista og verklýðssinna, alla þá, sem kunna að meta framlag beggia til þeirrar stéttarlegu og þjóð- ernislegu frelsisbaráttu sem framar öllu öðru einkennir okk- ar tírna. Því finnst mér að fát.t geti verið brýnna að fjalla um en þessar deilur. Hér verður að sjálfsögðu að- eins stiklaC á stóru í löngum óg margflóknum samskiptum Kína og Sovétríkjanna og margt látið kyrrt liggja sem ástæða hefði verið til að nefna. Og strax i upphafi vil ég taka það fram að ég tel mig þess ekki umkcminn að kveða upp neinn endanlegan dóm, neinn algild- an úrskurð. Tvennt finnst mér nauðsyn- legt að minnast á áður en lengra er haldið, enda þótt þaðkunni hvorttveggja að virðast sjálf- sagður hlutur. 1 fyrsta lagi: Deilur innan hinnar kommún- istísku alþjóðahreyfingar eru síður en svo neitt einsdæmi. öllu fremur mætti segja að allt frá upphafi hafi öll saga henn- ar mótazt af hörðum og ill- skeyttum deilum; það hefur verið deilt um menn og mál- efni, markmið og leiðir, i meira en heila öld — og jafn- vel það orðbragð sem mörguir, blöskrar nú er svo sem engin nýlunda. Slíkar deilur hafa verið og em ™vndar enn upr>' í einstökum flokkum, þar sem andstasðingarnir eiga allir við sömu ytri aðstæður að búa, en greinir samt á um mat á þeim og skilgreiningu þeirra. Hversu miklu meiri ástæða er þá ekki til að búast við því að deilur geti komið upp á milli flokka sem búa við gerólík skilyrði og sögulegar aðstæður. Það verður ekki nógu oft ítrekað aðfræði- kenning sósíalismans, marxism- inn, er ekki í sjálfri sér nein allsherjarlausn á öllum þjóðfé- lagslegum vandamálum, heldur aðeins leiðarvísir um mat á þeim vandamálum. Það ermik- ilsvert að kunna að beita fræði- kenningunni, en hún veitir enga algera tryggingu fyrir því að pólitískar athafnir henni samkvæmt leiði til þess sem að var stefnt. 1 mannlegu þjóðfé- lagi eru of margar ókunnar stærðir til þess að hægt sé að semja algild lögmál. Pólitískar athafnir verða alltaf umdeilan- legar þar til reynslan hefur sannað réttmæti þeirra. Hitt atriðið sem mér finnst að ekki megi liggja í láginni þegar fjallað er um deilur kín- verskra og sovézkra kommún- ista er hið algera og einstæða brautryðjandastarf rússnekrar og sovézkrar alþýðu og flokks hennar í frelsisbaráttu tuttug- ustu aldar, og þá ekki hvaðsízt hin geysimikla þýðing, mætti ég segja úrslitaþýðing, sem það brautryðjandastarf hafði fyrir þjóðfrelsisbaráttuna í öllum hin- um fátæku löndum heims, og þá sérstaklega í Kína. Geoffrey Barraclough segir í hinum á- gæta Inngangi sínum að sam- tíðarsögunni að áhrif byltingar- innar í Rússlandi 1905 sem menn hafi varla veitt eftirtekt í Evrópu hafi farið eins ogeld- ur í sinu um alla Asíu. Hún hafi ásamt ósigri hins evrópska stórveldis Rússlands fyrir Jap- an sama ár vakið þjóðemisvit- und með Asíuþjóðum. Áhrifa hennar hafi gætt alla leið til Vietnams; byltingarnar í Persíu 1906, Tyrklandi 1908 og Kína 1911 hafi allar verið eft- irköst hennar. Áhrif hennar á gang mála í Asíu á þessari öld megi telja ’sambærileg við á- hrif frönsku stjómarbyltingar- innar 1789 á evrópsk stjómmál nítjándu aldar. Og ekki átti þetta síður við um októberbyltinguna 1917. Verklýðshreyfing í þeim skiln- ingi sem vlð leggjum í það orð var engin til í Kína fyrir októberbyltinguna og nokkur tími leið áður en fyrsti vísir hennar varð tii. Byitingin 1911 mótaöist ekki af sósíalistískurn og þaðanafsíður marxistfskum viðhorfum, enda þótt sumir for- vígismenn hennar, eins og Sún Jatsen, hefðu kynnzt marxist- ískum fræðum. Mao Tsetung hefur sagt: „Fyrir októberbylt- inguna vissu Kínverjar ekki einungis ekkert um Lenín eða Stalín, þeir þekktu jafnvel ekki Marx og Engels“. En þetta breyttist fljótt. Leiðtogar rússn- eskra kommúnista sáu öðrum fyrr að Asíuþjóðir myndu rísa upp gegn heimsvaldastefnunni og þótt mátt hefði ætla að þeir hefðu haft öðrum hnöppum að hneppa fyrstu árin eftir bylt- inguna beindu þeir, og þá ekki hvað sízt Lenín sjálfur, þáþeg- ar athygli sinni að Asíu. Lenín hafði verið einna fyrstur evr- ópskra byltingarmanna til að skilja fyllilega þýðingu þjóð- frelsisbaráttunnar gegn nýlendu- kúguninni. Hann hafði allt frá 1905 velt fyrir sér á hvern hátt mætti bezt hagnýta þjóðfrelsis- hreyfinguna í Asfu í þágu hinn- ar sósíalistísku heimsbyltingar, en það var þó ekki fyrr en á öðru þingi Alþjóðasambands kommúnista (Komintems) 1920, að samþykktar voru fullmótað- ar kenningar hans um það efni. Hin borgaralega þjóðfrelsis- og lýðræðishreyfing Asíulandanna átti að vera hliðstæða hinnar sósíalistísku byltingarhreyfing- ar verklýðsins í Evrópu. Þetta sama ár gerði Komin- tern út erindreka sinn til Kína og hann var viðstaddur þegar Kommúnistaflokkur Kína var stofnaður í júlí 1921. En Kom- intern og Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna töldu þegar frá upphafi að kínverskir kommún- istar ættu að starfa innan vá- banda þjóðfrelsishreyfingarinn- ar og samtaka hennar, Kúom- intangs. Margt er enn óljóst um starf kínverskra kommún- ista fyrstu árin og samskipfi þeirra við fulltrúa Komintems, en þó virðist allt benda tilþess að þeir hafi fyllilega sætt sig við það hlutverk að starfa inn- an Kuomintangs og þetta á ekki hvað sízt við um Mao Tsetung sjálfan. Hann hóf eins og flestir ef ekki allir leiðtogar kínverskra kommúnista stjómmálaferil sinn sem þjóðemissinni og ætt- jarðarvinur. Mörgum árum síð- ar, í Jenan árið 1937, sagði hann í viðtali við Agnesi Smed- ley: — Því fer mjög fjarri að kommúnistar einskorði sjónar- mið sín við hagsmuni einnar stéttar á ákveðnum tíma; örlög kínversku þjóðarinnar, ekki að- eins í tíma, heldur og um alla eilífð, eru þeim mjög hugleik- in ... Kínverskir kommúnistar eru aíþjóðasinnar, þeir eru hlynntir alþjóðahreyfingu kommúnista. En samtímis eru þeir föðurlandsvinir sem standa vörð um ættland sitt... Þessi föðurlandsást og alþjóðahyggja stangast síður en svo á, því að aðeins fuilveldi Kína og fnelsun munu gera því kleift að taka þátt í alþjóðahreyfingu komm- únista. ★ En hvemig svo sem sam- starfi kínverskra kommúnista við Komintern og þá um leið við Kommúnistaflokk Sovétríkj- anna var háttað á þessum ár- um, sannaði reynslan að ekki gáfust alltaf jafn vel þau ráð sem þeir þágu. Fyrstu ellefu árin eftir stofnun kínverska kommúnistaflokkgins voru tengsl hans við sovézka kommúnista nánust. Og það var á þessu tímabil sem flokkurinn varð fyrir mestum áföllum. Honum hafði vaxið ört fiskur um hrygg, ekki sízt fyrir ötult starf Mao Tsetungs meðal bænda oghans og Líú Sjaosjis meðal verka- lýðs, en hann sætti sig viðþað hlutverk sem alþjóðahreyfingin hafði ætlað honum: að starfa innan vébanda Kúomintangs í samvinnu við þann marglita hóp sem þar réði. Hér gefst þess enginn kostur að rekja hina furðulegu sögu um sam- skipti Komintems og Kúomin- tangs á þessum árum. Það voru sovézkir kommúnistar eða ráðgjafar þeirra, — eins og hinn frægi „sendimann sovét- stjórnar", Borodin,— sem byggðu upp Kúomintang og hlóðu und- ir Sjang Kajsék svo að hon- um varð fært að ráðast gegn kommúnistum og ganga að heita mátti milli bols og höfuðs á þeim árið 1927. Jafnvel eftir þá voðaatburði, hélt Komintern tryggð við Kúommtang. 1 háift ár eftir blóðbaðið í apríl 1927 hvatti Komintem kfnverska kommúnista til að halda áfram samstarfirwx vfð Kúomintang f þeirri tðvon að með aðstoð vinstriarms hans gætu þeir unnið sigwr á Sjang Kajsék. Það leiddi aðeins til uppreisn- arinnar í Kanton í desember 1927 og annarra slíkra von- lausra aðgerða. Að þeim lokn- um hafði Sjang Kajsék tekizt að útrýma kommúnistum með öllu úr borgum Kína. Það væri áreiðanlega rangt að kenna Komintern og sovézk- um kommúnistum um allt það sem miður fór í starfi kín- verskra kommúnista á þessum fyrstu árum. Þeir voru margir í forystu hinna síðarnefndu sem voru alveg sammála þeirri stefnu að öreigabylting væri ekki tímabær f Kína ogflokkn- um bæri því að starfa með þjóðhollum öflum að borgara- legri lýðræðisbyltingu. Sams konar sjónarmið höfðu leið- togar sovézkra bolsévika reynd- ar haft alveg fram á haust 1917. Og sovézkum kommúnistum verður heldur ekki einum um kennt að megináherzla var lengst framanaf lögð á aðvekja og skipuleggja verklýð borg- anna sem átti samkvæmt kenn- ingunni að hafa forystuhlut- verkið í væntanlegri alþýðu- byltingu. Sovézkir kommúnist- ar voru einmitt fyrstir til að virkja fátæka bændur í þágu öreigabyltingarinnar og Komin- tem benti mjög snemma á nauðsyn starfsins á meðal bænda. Kínverskir kommúnist- ar munu því heldur ekki hafa framkomu Komintems á þess- um árum með í þeim synda- registrum sovézkra kommún- ista, sem þeir hafa sett saman. Það er þó rétt og lærdóms- ríkt að minnast þessara fyrstu samskipta kínverskra og sov- ézkra kommúnista og víst er að eftir þá hörmulegu reynsiu sem kínverskir kommúnistar höfðu af því aS fylgja ráðum s Komintems hafa þeir jafnan , farið sfnar eigin götur ogekki látið neinn segja sér fyrirverk- um. Þeir hafa fulla ástæðu til að ætla að þaðhafi orðiðþeim til happs og því ósköp skiljan- legt að þeir vilji ekki víkja af þeirri braut. ★ Næstu tvo áratugi voru næsta lítil samskipti með kínversk- um og sovézkum kommúnist- um. Kínverjar reistu flokk sinn við upp á eigin spýtur, fóru í öllu sínar eigin götur. Alit það samband sem Sovétríkin höfðu við Kína var við Kína Sjang Kajséks. Það var eðli- Jegt eins og málum var þá kom- ið í Evrópu að Sovétríkin vildu tryggja sér vinveitt rfki í austr- inu, vinsemd við Kína hvaða stjóm sem færi þar með völd. Þess verður heldur ekki vart að kínverskir kommúnistar á- saki Sovétríkin fyrir þennan þátt í samskiptum þeirra við Kína, nema síður sé. Það var líka meginstefna Mao Tsetungs að hafa vinsamlega samvinnu við Kúomintang og Sjang Kaj- sék meðan stríðið gegn Japön- um stóð. Þá veittu Sovétríkin Sjang Kajsék aðstoð sem nam 300 miljónum dollara. Kín- verskir kommúnistar fengu enga aðstoð þaðan og ekki er vitað til þess að þeir hafi um hana beðið né að þeir hati nokkum tíma erft við Sovét- ríkin aðstoðina við Sjang. Allt fram til loka heimsstyri- aldarinnar vom sem sagt lítil sem engin samskipti milli sov- ézkra og kínverskra kommún- ista; það var oft á tíðum svo að varla varð komið boðum á milli. En þetta breyttist upp úr stríðslokunum. Enn einu sinni fengu kínverskir kommúnistar góð ráð frá Moskvu, en þeir höfðu þau að engu. Þessu til staðfestingar em ummæli sem höfð eru eftir Stalín af Júgó- slövum ibeím Vladimir Dedijer og MJo, Ljliasþ og ekVi er ástæða tii að vefengja. Þeir Myndin var tekin þegar Sjú Enlæ undirritaði vináttusamning Kína og Sovétríkjanna í Moskvu í febrúar 1950 Til hægri á myndinni sjást þeir Stalín og Malenkof. Þessi mynd var tckin á 22. þingi Kommúnistaflokks Sovétríkjanna 1961. Margir forystumenn kommúnista í öðrum löndum lýstu stuðningi við stefnu Sovétríkjanna, eins og t.d. Maurice Thorez sem er í ræðustólnum á myndinni. Til hægri aftantil má greina Sjú Enlæ.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.