Þjóðviljinn - 07.05.1967, Page 12
Fjölþætt starfsemi Krabbameinsfé-
lagsins á síðastliðnu starfsári
□ Aðalfundur Krabbameinsfélagrs íslands
var haldinn 25. apríl sl. Á fundinum flutti for-
maður félagsins, Bjarni Bjamason læknir,
skýrslu um starfsemj félagsins á liðnu starfs-
ári en hún var f jölþætt og í undirbúningi eru
nokkur ný viðfangsefni. Fara hér á eftir nokk-
ur atriði úr skýrslunni.
LEITARSTÓÐ-A (Almenn skoðun)
Samkvaemt ósk stjórnarinnar hefur Jón G. HaUgrímsson
læknir unnið úr gögnum stöðvarinnar þau 10 ár, sem hún
hefur starfað. Jón flutti í lok fundarins fróðlega skýrslu um
starf stöðvarinnar, hvemig unnið væri, hvaða rannsóknir væru
gerðar og hvaða sjúkdómseinkenni hefðu komið í ljós við
þessar rannsóknir, og kom þar margt forvitnilegt fram. Fyr-
irhugað er að bæta starfsskilyrði Leitarstöðvar-A, og flytur
hún væntanlega um miðjan maí í nýstandsett húsnæði á 1.
hæð hússins í Suðurgötu 22, en hún hefur haft aðsetur i
kjallaranum, ásamt Leitarstöð-B, en sú stöð fær einnig bætta
aðstöðu með þessu fyrirkomulagi. f athugun er að bæta við
rannsóknum og jafnvel breyta starfstilhögun, en frá því verð-
ur greint nánar síðar.
LEITARSTÖÐ-B (Skoðun fyrir konur)
Hennar viðfangsefni er eingöngu legháls- og legkrabbamein.
Hafin er önnur umferð, og konur, sem mættu fyrst til skoðun-
ar, eru nú kallaðar til rannsóknar aftur. Talið er, ef öryggi
kvennanna á að vera sæmilega tryggt. þurfi þær að koma í
skoðun á tveggja ára fresti. í fyrri umferð voru skoðaðar 15
þús. konur, eða 73% þeirra sem boðaðar voru. Frá 15/7 ’65 til
15/7 ’66 voru skoðaðar 6885 konur. Af þeim voru 77 með
frumubreytingar. Af þessum 77 konum voru 15 með ífarandi
krabbamein í leghálsi, 3 konur með krabbamein i legbol, 1
með krabbamein í eggjastokk og ein með krabbamein í vulva.
eða alls 20 konur með krabamein. 51 kona fannst með stað-
bundið krabbamein í leghálsi og ein með staðbundið krabba-
mein í vulva, eða alls 72 konur (1.004 pro mill.).
KRABBAMEINSSKRÁNING
International Union Against Cancer, hefur gefið út á ensku
rit: „Cancer Incidence in Five Continents“ undir umsjón dr. R.
Doll. Þetta er rit um niðurstöður krabbameinsskráninga í 24
löndum og er fsland í hópi þeirra fáu landa, sem hafa heild-
arskráningu yfir alla þjóðina, en mörg þessara landa hafa að-
eins staðbundna skráningu og þar á meðal Bandaríki N-Am-
eríku. Unnið er að því að koma krabbameinsskráningunni á
íslandi inn á IBM kort og verður því væntanlega lokið á
þessu ári. Formaður krabbameinsskráningarinnar er prófessor
Ólafur Bjarnason.
MAGAKRABBAMEINSRANNSÓKNIR
Þær halda áfram undir stjóm próf. Júlíusar Sigurjónsson-
ar og lýkur þeim væntanlega á þessu ári. Tvaér greinar eftir
prófessorinn hafa birzt um þetta efni í „Joumal of the Natio-
nal Cancer Institute".
Þorsteinn Þorsteinsson lífefnafræðingur vinnur einnig að
þessum rannsóknum og eru niðurstöður af þeim væntanlegar
á þessu ári.
Hjörtur Hjartarson forstj., gjaldkeri félagsins, las upp end-
urskoðaða reikninga og voru þeir samþykktir athugasemda-
laust. Enda þótt rekstur félagsins sé orðinn all-umfangsmik-
ill og lagt hafi verið í fjárfrekar framkvæmdir. er afkoma
félagsins góð.
Stjóm félagsins er þannig skipuð: Bjarni Bjamason lækn-
ir formaður, Hjörtur Hjartarson forstj. gjaldkeri. Jónas Hall-
grímsson læknir ritari, frú Sigríður J. Magnússon, Bjarni Snæ-
björnsson læknir, Helgi Elíasson fræðslumálastjóri. dr. med.
Friðrik Einarsson, Erlendur Einarsson forstj. og Jónas Bjama-
son læknir.
Eitt nýtt krabbameinsfélag var stofnað á sl. ári, Krabba-
meinsfélag Skagafjarðar, formaður þess er Valgarð Björns-
Samkoma MFÍK á friðardaginn, 9. maí:
Werk Jukobínu Sig-
urSurdóttur kynnt
□ Menningar- og friðarsamtök íslenzkra kvenna minn-
ast friðardagsins n.k. þriðjudag 9. maj með bókmennta-
kynningu í Lindarbæ. Verða þá kynnt verk Jakobínu Sig-
urðardóttur skáldkonu.
Samkoman hefst kl. 8,30 um
kvöldið með því að formaður
Vísað á bug
AÞENU 5/5 — Grísk stjómar-
völd vísuðu í gærkvöld á bug
orðsendingum þeim sem stjóm-
ir Danmerkur og Noregs sendu
herforingja- og fasistastjóminni
í Grikklandi á dögunum.
samtakanna, María Þorsteinsdótt-
ir, flvtur ávarp um friðardaginn.
Þá talar Amheiður Sigurðar-
dóttir magister um Jakobínu Sig-
urðardóttur og verk hennar, en
síðan les skéldkonan upp. Aðrir
upplesarar verða Vilborg Dag-
bjartsdóttir kennari, leikkonum-
ar Bryndís Sohram, Helga Hjörv-
ar og Bríet Héðinsdóttir, svo og
Þorsteinn Ö. Stephensen leikari.
Jakobína Sigurðardóttir.
Kaffiveitingar verða á staðn-
um.
Á bókmenntakynninguna í
Lindarbæ á þriðjudagskvöldið
eru allir velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
Málfundur
t
Máldundur sósíalista í Tjarn-
argötu 20 (niðri).
FUND AREFNI:
Vi'ðreisnin og sameiginlegar
þarfir hinna vinnandi stctta.
Framsöguerindi flytur Loftur
Guttormsson.
Fundurinn verður haldinn
þriðjudaginn 9. maí klukkan
21.00 í Tjarnargötu 20 niðri.
Mætið stundvíslega.
ÖLLUM OPIÐ. — Æ. F.
Rein, Akranesi
■ Spilakvöld í Rein i kvöld
kl. 21. Allir velkomnir.
Sunnudagur 7. maí 1967 — 32. árgangur — 101. tölúblað.
Ráðstefna verkfræðinga á morgun:
FjuUuS um fkstur
greinur fískiSnuSur
Á morgun kl. 9.15 hefst í
Súlnasal Hótel Sögu ráðstefna
sú um vinnslu sjávarafurða sem
Verkfræðingafélag íslands hefur
gengizt fyrir og verður þar fjall-
að um flestar greinar islenzks
fiskiðnaðar. Hefur Verkfræðinga-
félagið fengið fjölda sérfræðinga
til að flytja fyrirlestra á ráð-
stefnunni og boðið til hennar auk
meðlima félagsins um 150 manns
sem afskipti hafa af þessum mál-
um, m.a. framámönnum i sölu-
Stjórn LR
Framhald af 1. síðu.
íslands þann 5. maí 1967 hvetur
samninganefnd til að standa fast
á sanngjömum kröfum félagsins
í vinnudeilu þeirri, sem nú er
háð.
Lýsir fundurinn furðu sinni og
hneykslun á ummælum og hegð-
un apótekarafélagsins, sem skýrt
hefur verið frá í blöðum og út-
varpi, og telur þar birtast lítinn
vilja til að leysa sameiginlegan
vanda á sanngjarnan og skyn-
samlegan hátt. Skorar fundurinn
á samninganefnd að mæta óbil-
girni svo, sem verðugt er, og
sýna .þeim mun meiri festu sem
apótekarafélagið gerir sig lík-
legra til að draga deiluna á
langinn.
Fundurinn telur, að með á-
standi því, sem nú hefur skap-
azt i lyfjabúðum Dg látið er gott
heita, sé almenningi sýnd slík
lítilsvirðing og ábyrgðarleysi, að
furðu gegni, enda vofi sífellt yfir
sú hætta, sem læknastéttin hef-
ur talið sér skylt að vara við og
kunnugir vita bezt, hve geigvæn-
leg verður að teljast.
Fundurinn fordæmir þá van-
virðu, að yfirvöld heilbrigðis-
mála skuli leyfa sér að skakka
leikinn í vinnudeilu þessari með
þvi að nema úr gildi mikilvæg
lagaákvæði og halda vikum
saman vemdarhendi yfir því ó-
fremdarástandi í lyfjabúðum,
sem menningarþjóðfélagi er alls-
endis ósamboðið og jafnt apótek-
urum sem yfirvöldum er til
minnkunar".
samtökunum, opinberum aðilum
og fleirum.
Þetta er í þriðja sinn sem
Verkfræðingafélag íslands j -ngst
fyrir ráðstefnu um viss svið ís-
lenzks atvinnulífs, sú fyrsta var
1960 um tækniframleiðni og
efnahagsþróun, þá 1962 um orku-
lindir og iðnað. en ráðstefnan nú
er sú viðamesta sem félagið hef-
ur haldið. Að ráðstefnunni lok-
inni munu erindin sem á hennl
verða flutt, verða gefin út í bók-
arformi, en í þeim er fróðleik-
ur sem hvergi er að finna ann-
arsstaðar, enda mun aldrei áð-
ur hafa verið skrifað jafn tæm-
andi verk um íslenzkan fisk-
iðnað.
Verkfræðingafélagið hefur
undirbúið þessa ráðstefnu í 2%
ár og fengið til fyrirlestrahalds
fróðustu menn á sínu sviði, 19
íslenzka og 3 frá útlöndum, en
alls verða flutt á ráðstefnunni
25 erindi.
í undirbúningsnefnd fyrir ráð-
stefnuna hafa starfað Þórður
Þorbjarnarson formaður, Sveinn
Einarsson, Páll Ólafsson, dr. Jak-
ob Sigurðsson, Hjalti Einarsson
og Hinrik Guðmundsson fram-
kvæmdastj. Verkfræðingafélags-
ins hefur verið ritari hennar.
Blaðið hefur áður rakið dag-
skrá ráðstefnunnar; en hún
stendur í þrjá daga, 8.—10. maí.
212 óbreyttir
íbúar létu lífið
MOSKVU 5/5 — Sovézka frétta-
stofan TASS skýrði frá því f
dag, að í loftárásum Bandarikja-
manna á Hanoi og úthverfi borg-
arinnar í síðustu viku hafi 212
íbúar látið Iífið, þar af 79 börn
og 91 kona.
MAÍ
Fundur í dag kl. 14.30 í Tjarn-
argötu 20, salnum niðri.
Erindi: Bjöm Bjarnason talar
um verkalýðshreyfingu Albamu.
Upplestur: Jón frá Pálmholti.
Kaffi fæst á staðnum.
Brezkur togari í landhelgi
★ í fyrrinótt tók varðskipið
Þór brezkan togara að meintum
ólöglegum veiðum um tvær sjó-
milur innan fiskveiðitakmark-
anna á Dígranesflaki.
★ Togarinn heitir Boston I þangað um kl. 10 í gærmorgun.
Kastrel, FD 256, og er frá Fleet- Var búizt við að réttarhöld f
wood. Er hann 431 tonn að stærð. máli skipstjórans á togaranum
★ Þór fór með togarann til hæfust síðdegis í gær. Heitir
Neskaupstaðar og komu skipin I skipstjórinn Alan Borschini.
Franskir strigaskór
fyrir kvenfólk og börn — Stór-
glæsiiegt úrval
SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR
Laugavegi 100.
Vinnuskór karlmanna
Ný sending í fyrramálið
SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR
Laugavegi 100.