Þjóðviljinn - 13.05.1967, Blaðsíða 5
Laugardagur 13. maí 1967 — I~>JÖÐVTL.TINN — SlÐA 5
Reykjavíkurmöttð:
Yalur hafði auðveld-
an sigur gegn Þrótti
Þróttar-liðið virðist eins og
vængbrotirm fugl án Halldórs
Bragasonar sém er meiddur og
Axels Axelssonar, sem ekki
hefur leikið með ennþá, hvað
sem veldur. Liðið nær ekki
saman þrátt fyrir ágæta ein-
staklinga, k.iölfestuna vantar,
sérstaklega í framvarðalínuna.
Lang bezti maður Þróttar var
og Gísli áttu líka ágætan dag.
Haukur Þorvaldsson, en Ómar
Dómari var Karl Jóhannsson
og virðist þar á ferðinni einn
okkar bezti dómari í knatt-
íslandSmeistarar Vals léku sl.
fimmtudag gegn Reykjavíkur-
meisturum Þróttar og sigruðu
með 5 mörkum gegn 1. Sigur
Vals var fyllilega verðskuldað-
ur og hefði getað orðið stærri.
Þróttur hóf sókn strax á
fyrstu mínútu sem endaði með
ágætu skoti, en knötturinn fór
framhjá marki. Fyrsta mark-
tækifæri Vals, af fjölmörgum í
þessum leik, kom svo á 8. mín.
þegar Hermann Gunnarsson
komst í dauðafæri en skaut
yfir. Tveim mínútum seinna
bjargaði Jens Karlsson síðan
á línu hörkuskoti sem kom úr
þvögu fyrir framan .Þróttar-
markið.
Á 12. mín. skorar Ingvar
Elísson loks fyrsta mark Vals,
eftir mjög góða sendingu frá
Samúel Erlingssyni, nýliða í
Valsliðinu sem átt frábæran
leik og er með btztu efnum
sem komið hafa fram um ára-
bil hér í Reykjavík. Á 17. mín.
átti Bergsveinn Alfonsson
hörkuskot og lenti knötturinn
í stöng, og á 20. min. komst
Ingvar einn innfyrir en skaut
framhjá. Á 30. mín átti Hauk-
ur Þorvaldsson gott skot á
Valsmarkið en Gunnlaugur
Hjálmarsson varði örugglega.
Svo er það á 32. mín að
Ingvar skorar annað mark
Vals. Það er með grófustu
rangstöðumörkum sem maður
hefur séð. Ingvar var a.m.k. 5
metra fyrir innan Þróttarvörn-
ina, þegar hann fékk boltann,
brunaði upp og. skaut frm hjá
Gísla Valtýssyni sem kom út
á móti en fékk ekki varið.
Á síðustu mín. fyrri hálf-
leiks bjargaði Jón Björgvins-
son á línu hörkuskoti frá
Reyni Jónssyni. Þannig endaði
fyrri hálfleikur, 2—0 fyrir Val.
Seinni hálfleikur var mun
betur leikinn af Vals hálfu en
-------------------------------$>
Sjón varpsmyndir
Framhald af 2. síðu.
manna, — þá var þama jafn-
framt Hlynur Sigtryggsson veð-
urstofustjóri og Borgþór Jóns-
son, deildarstjóri ísilenzku veð-
urstofunnar á Keflavíkurflug-
velli.
Njósnahnötturinn
Áður er greint frá notum ís-
lenzku veðurstofunnar af þess-
um sjónvarpsrtiyndum, — veð-
urstofa flotans útbýr jafnframt
daglegar spár fyrir flugleiðir og
sendir jafnframt úrvinnslu sína
til bandarisiku vcðurstofunnar í
Suitland í Marylandfylki, — ná-
laagt Washington D. C.
Veðurstofan í SuiÆland vinnur
úr athugunum yfir norður-
hveli jarðar, — en hún er svo
aftur hiuti af alþjóðlegu veður-
stofunni í Washington, — ein
af þrem slfkum í heiminum.
1 ljós kom, að móttökutækin
é Keflavfkurflugvelli eru fær
um að taika myndir frá þrem
geryihnöttum, — Essa2. og Essa
4., — myndgerð eftir svoköllluðu
A. P. T. kerfi, — sjónvarps-
' myndir teknar að deginum til
og sendar jafnharðan til jarðar,
— einnig er tekið á móti mynd-
um frá Nimbus, *— er hefur
innfrarauða geisla og getur
tekið myndir jafnt á nóttu sem
degi, — þessi hnöttur er líka
njósnahnöttur.
Nimbus gengur á 108 mínút-
um og 9 sekúndum umhverfis
jörðú í 1180 kílómetra hæð, —
en Essa 2. og Essa 4. eru frá
tólf hundruð til fjórtán hundr-
uð kílómetra hæð frá jörðu.
Komst afur á rétta
braut
Síkömmu eftir að Essa 2 var
skotið á loft oÆhitnuðu tækin af
sóflu og hallaðist gervihnöttur-
inn í rásinni, — en 25. apríl
síðastliðinn tólkst að rétta
hnöttinn við með þvi að setja
eldflaugarútbúnaðinn af stað
um stund og hafa síðan komið
milklu betri myndir frá Essa 2
heldur en Essa 4.
Þá fengutn við líka að sjá
myndir úr Essa 4 tii saman-
burðar, en sá hnöttur gengur
113 mínúbur og 28. sekúndur
umhverfis jörðu, — munar
þannig þrem sekúndum á þess-
um systurhnöttum-
Að lokum höfðu íslenzku
bladamcn n i rn ir tækifæri til
þess að fylgjast með hálofta-
belg, — hvemig honum var
sleppt frá Vellinum till að mæla
raka, vindhraða og hita í 20 til
30 kílómetra hæð og hvarf hanil
brátt sjónum.
Sérstakur radar fylgist með
belgnum og er tímaskeið hveis
belgs um 45 mínútur í gagninu
og eyðist hann þá og falla flest-
ir slfkir bel-gir til jarðar í ó-
byggðum eða í hafinu kringum
landið.
Hver belgur kostar um 50
dali og eru þeir fylltir með
eðalgasi. g.m.
Prúð og samvizkusöm
unglingsstúlka óskast til aðstoðar á heimili um eins -mán-
aðar tíma.
Tvö herbergi, afnot af eldhúsi
í innri forstofu á annarri hæð í steinhúsi (Mið-Austur-
bær) til leigu sé hægt að greiða eins árs leigu fyrir-
fram og yrði þá veittur afsláttur af leigunni.
Upplýsingar i síma 24579.
sá fyrri, ef til vill af því að
mótstaða Þróttar virtist dvína
er á leikinn leið, mun úthalds-
leysi hafa sagt til sín.
Á 10. mín. s.h. kemur þriðja
mark Vals. Hermann Gunnars-
son fékk knöttinn rétt fyrir
utan vítateig Þrótt, lék mjög
fallega á þrjá varnarmenn
Þróttar og skaut þrumuskoti,
gjörsamlega óverjandi fyrir
Gísla í Þróttarmarkinu. Stór-
glæsilegt mark. Þrem mín. síð-
ar á Reynir skot að Þróttar-
mapkinu en boltinn snerti varn-
armann, breytti stefnu og lenti
í blá horninu, 4—0 fyrir Val.
Þegar 22 mínútur voru liðn-
ar af s.h. hóf Þróttur saklausa
sókn um miðbik vallárins.
Halldór Einarsson, miðvörður
Vals, nær knettinum og ætlar
að senda eigin markvercji
knöttinn, en sendingin var of
há og fór yfir Gunnlaug, sem
var kominn út úr markinu, og
knötturinn lenti í Valsmark-
inu, .4—1.
Síðan, á næst síðustu mín.,
skaut Hermann föstu skoti af
vítateigslínu sem hafnaði í blá
horninu, 5—1 fyrir Val.
Fleiri urðu mörkin ekki.
Tækifæri Þróttar voru fá og
hættulaúst.
Liffin:
Valsliðið var nú • allt annað
og betra en á móti Fram í
fyrsta leik mótsins. Er það
mest að þakka tveim nýliðum,
1 Samúel Erlingssyni og Alex-
ander Jóhannessyni, sem voru
lang beztu menn Vals ásamt
Þorsteini Friðþjófssyni og
Ingvari. Hermann og Árni áttu
líka góðan leik.
Útiœfingar
frjáEsíþrótta-
manna hafnar
\
Með hækkandi sól og hlýn-
andi veðri fer hugur margraað
leita til útiveru, ekki hvað sízt
þeirra, sem setið hafa á skóla-
bekkjum í vetur.
Því miður hafa ungmenni R-
vífcurborgar ekki notfært sér
útivistarsvæði borgarinnar sem
skyldi, svo sem íþróttavellina.
Frjálsíþróttadeild • KR vill
því benda þessum ungmennum
á, að frjálsíþróttaæfingar á
vegum deildarinnar fara fram
á Melavellinum alla virka daga
frá kl. 5 — 8 e.h., nema laug-
ardaga frá kl. 1, Mun þá þjálf-
ari .deildarinnar Jóhannes Sæ-
mundsson taka á móti byrjend-
um til innritunar- í félagið og
kennslu, jafnt stúlkum sempilt-
um.
Jafnframt vill stjóm deildar-
innar hvetja þá, er æft hafa hjá
deildinni í vetur til að koma
á völlinn til æfinga, því að
frjálsíþróttamót fara að hefja-
ost. Fyrsta mótið fer fram 1.
júní, sem er Sveinameistara-
mót Reykjavfkur.
spymu. Karl er löngu kunnur
sem bezti dómari landsins í
handknattleik og virðist ætla
að ná jafn langt í knattspyrnu.
Linuverðirnir stungu óþægi-
lega í stúf við dómarann í sín-
um störfum.
S. dór.
Tilkynning til viðskiptamanna
W ár
Utvegsbanka Islands
Ákveðið hefur verið að bankinn verði lokaður á laugardögum frá 15.
maí tiL30. sept. n.k.
Jafnframt hefur verið ákveðið, að afgreiðslur bankans verði fyrst
um-sinn opnar aðra virka daga frá kl. 9,30 til 12 og 13 til 16.
Sparisjóðsdeild bankans er einnig' opin sömu daga frá kl. 17 til 18,30.
Inngangur frá Austurstraeti og Lækjartorgi.
Útibúið á Laugavegi 105 verður einnig lokað á sama tímabili alla
laugardaga. Aðra virka c^aga verður það opið frá kl. 9,30 til 12 og 15
til 18,30.
útvegsbanki íslands.
TILKYNNING
breyttan afgreiðslutima
Frá og með 16. maí 1967 verður afgreiðslutími aðalbank-
ans sem hér segir:
i ^
Alla virka daga nema laugardaga kl. 9.30-12.30 og kl. 1-3.30
eftir hádegi.
Þá verður tekin upp síðdegisafgreiðsla fyrir sparisjóðs- og
hlaupareikningsviðskipti kl. 5-6.30 alla virka daga nema
laugardaga.
Frá 15. maí til 30. sept 1967 verður aðalbankinn ásamt öll-
um útibúum bankans í Reykjavík lokaður á laugardögum.
Athygli er hér með vakin á, að víxlar, sem falla f gjalddaga
á fimmtudögum á ofangreindu tímabili, verða að greiðast
fyrir lokun aðalbankans (kl 3.30) daginn eftir, svo komizt
verði hjá afsögn.
Austurbæjarútibú, Laugavegi 114 verður frá sama tíma opið
kl. 9.30-12, kl. l-ó og 5-6 alla virka daga nema laugardaga.
Búnaiarbanki íslands
HALLÓ!
í dag opnar EGGERT GUÐMUNDSSON málverkasýningu
í vinnustofu sinni í HÁTÚNI 11
Sýningin er opin alla daga frá kl. 2-10 e.h.