Þjóðviljinn - 13.05.1967, Síða 6

Þjóðviljinn - 13.05.1967, Síða 6
▼ £ SÍDA — MÓÐViLJINTJ — Lawgardagur 13. mðí 1967. BaristrendingafélagiB rekur Hétei Flákalund í Vatnsfirði Nýlega hélt Barðstrendinga- félagið 1 Reykjavík aðalfund sinn í skýrslu stjórnarinnar kom fram að starfsemi félags- ins hafði verið mikil og fjöl- breytt á síðastliðnu ári. Félagið á og rekur sumarhót- elið Bjarkarlund í Reykhóla- sveit; eru þar gistirúm fyrir 40 gesti og tekur hótelið á móti gestum til lengri og skemmri- dvalar. Vegna vorferðalaga skólabarna úr Reykjavík og víðar, sem mikið hafa pant- að mat og gistingu í vor, mun hótelið í Bjarkarlundi opna nú um 20. tnaí, sem er nokkuð fyrr en venjuiega. Hóteistjóri í Bjarkárlundi í sumar verður Svavar Ármannsson. í Vatnsfirði á Barðaströnd hefur félagið rekið greiðasölu nokkur undanfarin ár. Á síð- astliðnu ári réðst félagið í að reisa þar hótel; boðin var út smiði á 240 fermetra húsi, sem Benedikt Davíðsson bygginga- meistari og Magnús Ingvarsson arkitekt höfðu teiknað. Hagstæðasta tilboðið kom frá Noregi og var því' tilboði tekið. Milligöngu um samninga við hina norsku framleiðend- ur hafði fyrirtækið Bjöm Westad & Co. í Reykjavík. Framleiðendur sendu tvo fag- menn með húsið til að setja það upp og tók það mánuð fyr- ir fjóra menn að gera húsið fokhelt, þó tafði það nokkuð að húsið hafði skemmzt í flutn- ingi til landsins. í húsinu verð- ur fullkomið eldhús, veitinga- salur, sem rúmar 80 manns í sæti og gistirúm fyrir 10. Þá hefur félagið fest kaup á nýrri 35 kw. rafstöð, sem sett verð- ur upp í Vatnsfirði í vor. Allar eru þessar íramkvæmd- ir kostnaðarsamar. Til að afla fjár til þeirra efndi félagið til happdrættis á síðastliðnu ári. Happdrætti þétta, sem var heimilistækjahappdrætti gekk mjög vel. Einnig fékk félagið lán hjá Ferðamálasjóði íslands til framkvæmdanna í Vatns- firði. Ennþá er mikið eftir til --------:-------------------—$ Sveinn Bergsveinsson: EIGNIR í SPÍTALAGARÐINUM Ég geng út í loftið og ljósið lungu mín svaladrykk teyga. Þó að mér auðæfin þyrru þ^tta er dýrmætt að eiga. Gulleit er jörðin og greinamar enn geyma brumin sín inni. En himinninn er heiður og blár og hann er í eigu minni. Ég á útsýnið yfir garðinn og eiga mun ég það lengi. — Ég forðast að segja hve fagurt það er svo fjársjóð þeim ræni mig engi. Ég veit líka að eitthvað finnst annað það ástir og nautnir menn kalla. — En það eru annarra eignir. Ætlaðar mér held ég varla. Að stofni til ort í Höfn 25.2. 1945. — Breytt upp ur miðjum apríl 1967. að ljúka við húsið og sér fé- iagið litla möguleika til þess í sumar, vegna fjárskorts. Þó verður reynt að ljúka við og taka í notkun gistiherbergin, en notast áfram við eldri að- stöðu til veitingasölu. Þá var á‘ aðalfundinum samþykkt að gefa hótelinu í Vatnsfirði nafn- ið Flókalundur. Hótelstjóri í Flókalundi í sumar verður Kristinn Óskarssoni- Starfsemi félagsins í Reykja- vik hefur verið með líku sniði og undanfarin ár. Skemmti- fundir haldnir einu sinni í mán- uði og hafa þeir verið mjög vel sóttir. Þá hefur starfað á veg- um félagsins málfundadeild, sem heldur fundi einu sinni í mánuði. Kvennanefnd félagsins hefur séð um jólafag'nað fyrir börn, grímudansleik og skír- dagssamkomu, en til hennar er boðið öllum Barðstrendingum búsettum í Reykjavík og ná- grenni, sem náð hafa 60 ára aldri. Þá starfar á vegum fé- lagsins bridgedeild, sem spil- ar einu sinni í viku allan vet- urinn. • * Á síðastliðnu ári réð félag- ið sér framkvæmdastjóra, Er það Guðbjartur Egilsson og hefur hann opnað skrifstofu fyrir félagið í Bugðulæk 18. Félagar í Barðstrendingafé- laginu eru nú 530 talsins. Stjórn félagsins skipa nú Guðbjartur Egilsson formaður, Guðmundur Jóhannesson vara- formaður, Sigmundur Jónsson gjaldkeri, ' Ólafur A. Jónsson ritari. Meðstjórnendur eru Kristinn Óskarsson, Gísli Kr. Skúlason, Alexanðer Guðjóns- son og Marinó Guðjónsson. Ósvaldur Knudsen og kvikmyndavélin. ,Með sviga lævi' - hin nýja mynd Ósvaldar frumsýnd Fjórða kvöldvaka Ferðafélags íslands var haldin miðvikudag- inn 10. þ.m. í Sigtúni. Kvöldvökur þessar haf'a tek- ið á sig nokkuð fast form og skiptast í þrjá hluta, kvik- mynda- eða skuggamjmdasýn- ingar, myndagetraun og dans. Myndasýningin var að þessu sinni tvískipt, í fyrsta lagi • var sýnd kvikmynd af Surts- ey, og svo skuggamyndir af Heklu. Það var með mikilli eftir- væntingu sem áhorfendur biðu Surtseyjarmyndarinnar „Með sviga lævi“ hvort hún myndi standast samEinburð við fyrri Surtseyjarmynd Ósvaldar „Surt- ur fer sunnan“. Vist má telja að enginn þeirra fjölmörgu áhorfenda, sem fylltu Sigtún þetta kvöld, hefur orðið fyrir vonbrigðum. Myndin var í fáum orðum sagt afburða góð og var hún fyrri myndinni sízt lakari, einkum fannst mér litirnir í þessari mynd njóta sín betur. í mynd- inni var einnig sýnt frá gos- inu í Syrtlingi og Jólni, auk Surtseyjargossins sjálfs. Einn- ig var sýnt frá rannsóknarferð- um vísindamanna til eyjarinn- ar til söfnunar gróðurs og skor- dýrasýnishorna. Elektrónísk tónlist Magnúsar Blöndals Jó- hannssonar féll mjög vel að myndinni, og skýringar Sigurð- ar Þórarinssonar voru líflegar og skemmtilegar að vanda. Við lok myndarinnar var Ósvaldi Knúdsen þakkað með dynjandi lófataki. • Því næst hófst skuggamynda- sýning af Heklugosinu 1949 og flutti Sigurður Þórarinsson skýringar með hverri mynd, fræðandi og gamansamar. Að því loknu var myndagetraun. Síðan var stiginn dans til miðnættis. — Að endingu vil ég svo þakka Ferðafélaginu fyrir ánægjulega kvöldstund.- ÆSI vill vandaðra þjóðhátíðarhald og breyttan þjáðháning íslenzkra kvemu D Á þingi sínu um fyrri helgi ræddi Æskulýðssam- band íslands meðal annars þörfina á breyttu skipulagi þjóðhátíðarhalds og sam- þykkti ávarp til íslenzku þjóðarinnar um það efni, þar sem lagt er til að þjóð- hátíðin verði fjölbreyttari og betur til hennar vandað. I sama ávarpi er borin fram tillaga um breyttan þjóð- búning kvanna og fer á- varpið í hefld hér á eftir: Fulltrúar landssamtaka æsk- unnar á sameiginlegum vett- vangi þeirra, þingi Æskulýðs- sambands íslands, vekja athygli þjóðarinnar á því að í heimi síminnkandi fjarlægða, aukinn- ar samvinnu og heillavænlegr- ar samhjálpar eiga sérkenni þjóða stöðugt erfiðara uppdrátt- ar, sé ekki að gætt og á móti spyrnt. ísland hefúr nú í rúman ald- arfjórðung verið i alfaraleið og einangrun þjóðarinnar er liðin tíð. Bendir þróun undan- farinna ára ákveðið til þess, að samstarf þjóðanna muni stór- ----------------------------------<g, Úthlutun listamannalauna 67 Hér er birt tiilkynning út- hlutunamefndar um úthlutun listamannailauna: Úthlutunamefnd listamanna- launa fyrir ýið 1967 hefur lok- ið störfum. Hlutu 102 listamenn laun að þessu sinni. Nefndina skipuðu Helgi Sæmundsson rit- stjóri (formaður), Halldór Kristjánsscn bóndi (ritarí), Andrés Björnsson lektor, Andr- és Kristjánsson ritstjóri, Einar Laxness cand mag„ Hjörtur Kristmundsson skólastjóri og Magnús Þórðarson blaðamaður. Listamannalaunin 1967 skipt- ast þannig: K Veitt af AJlþingi: 100 þúsund krónur: Gunnar Gunnarsson, Halldór Laxness, Jóhannes S Kjarval, PólJ ísólfsson, Tómas Guð- miundsson. Veitt af úthlutunamefndinm; 60 þúsund krónur: Ásmundur Sveinsson, Finnur Jónsson, Guðmundur Böðvars- son, Guðmundur Daníelsson, Guðmundur G. Hagalin, Gunn- laugur Scheving, Haraldur Bjömsson, Jakob Jóh. Smári, Jakob Thorarensen, Jóhann Briem, Jóhannes úr Kötlum, Jón Engilberts, Jón Leifs, Krist- mann Guðmundsson, Ólafur Jóh. Sigurðsson, Ríkharður Jónsson, Sigurður Þórðarson, Sigurjón Ólafsson, Snorri Hjart- arson, Svavar Guðnason, Þor- steinn Jónsson (Þórir Bergsson) Þorvaldur Skúlason, Þórbergur Þórðarson. 30 þúsund krónur: Agnar Þórðarson, Amdís Bjömsdóttir, Ágúst Kvaran, Ármann Kr. Einarsson, Arni Bjömsson, Ásgeir Bjarnþórsson, Benedikt Gunnarsson, Björn Ólafsson, Bnagi Ásgeirsson, Bragi Sigurjónsson, Brynjólfur Jóhannesson, Eiríkur Smith, El- ínborg Lárusdóttir, Eyborg Guð- mundsdóttir, Eyþór Stefánsson, Guðbergur Bergsson, Guð- munda Andrésdóttir, Guðmund- ur Elíasson, Guðmundur L. Friðfinnsson, Guðmundur Frí- mann, Guðmundur Ingi Kristj- jánsson, Guðrún frá Lunöi, Gunnar Dal, Gunnar M. Magn- úss. Gunníríður Jónsdóttir, Hafsteinn Austmann, Hallgrím- ur Helgason, Hannes Péíursson, Hannes Sigfússon, Heiðrekur Guðmundsson, Indriði G. Þor- steinsson, Jóhann Hjálmarsson, Jóhannes Helgi, Jóhannes Jó- hannesson, • Jón Björnsson, Jón Helgason próf., Jón Nor- • dal, Jón Óskar, Jón Sigur- bjömsson, Jón úr Vör, Jón Þór- arinsson, Jökull Jakobsson, Karl Kvaran, Karíl O. Runólfs- son, Kristinn Pétursson listmál- ari, Kristján Daviðsson, Kristj- án frá Djúpalæk. Leifur Þórar- insson, Magnús Á. Árnason, Maria Markan, Matthías Jó- hannessen, Nína * Tryggvadóttir, Ólöf Pálsdóttir, Óskar Aðal- steinn, Pétur Friðrik Sigurðs- son, Rósberg G. Snædal, Sig- urður Sigurðsson, Sigurjón Jónsson, Stefán Islandi, Stefán Júlíusson, Steinar Sigurjónsson, Steinþór Sigurðsson, Sveinn Þórarinsson, Sverrir Haralds- son listmálari, Thor Vilhjálms- son, Valtýr Pétursson, Vetur- liði Gunnársson Þorgeir Svein- bjamarson, Þorsteinn frá Hamri, Þorsteinn Valdimarsson, Þórarinn Guðmundsson, Þórar- inn . Jónsson, Þóríeifur Bjama- son, Þóroddur Guðmundsson. aukast á komandi árum. Þess- ari þróun fagna fulltrúar lands- samtaka æskunnar og hvetja ákveðið til aukinnar þátttöku íslands í alþjóðlegri samvinnu og samhjálp þjóðanna. Sam- hliða því er hvatt til eflingar þjóðarvitundar og varðveizlu þjóðlegra sérkenna, eða aðlög- unar þar sem svo á við. Á þessari stundu skal minnzt á tvö atriði: í fyrsta lagi að íslenzkt þjóð- hátíðahald hefur ekki þá reisn né þann þokka, sem vera skyldi. í öðru lagi að íslenzki þjóð- búningurinn er að hverfa af sjónarsviðinu og mun innan fárra ára, ef ekki verður að gáð, verða lítið annað en safn- og kistugripur. Fulltj-úar íslenzku æskulýðs- samtakanna hvetja þjóðhátíðarnefndir til að vanda undirbúning þjóðhá-® tíðarhaldsdns og þær stefni jafnframt að því að þjóðhá- tíðin verði fjölbreytt, þann- ig að hún beri ekki sama svip árum saman. hvetja almenning til að leggja sitt af mörkum á komandi árum, þannig að íslenzk þjóð- hátíð megi verða þáttur í nð efla heilbrigða þjóðernis- kennd og verða landsmönnum til sannrar ánægju. hvetja konur, yngri sem eldri, sem þess eiga kost, að bera íslenzka þjóðbúninginn, þeg- ar við á, þannig að hann megi fremur verða einkenni þjóðhátíðardagsins, en margt það annað,' sem undanfarið hefur sett svip sinn á hátíða- höldin. Fulltrúar íslenzku æskulýðs- samtakanna á sameiginlegum vettvangi þeirra, þingi ÆSÍ ' samþykkja að ÆSÍ stofni þjóðhátíðar- nefnd ungs fólks, sem setji fram hugmyndir um nýja þjóðhátíð fyrir aldarfjórð- ungsafmæli lýðveldisins 1969, og verði nefndinni ætlað áð móta blæ þjóðhátíðarhalds í framtíðinni. að í sumar leiti ÆSÍ til nokk- urra ákveðinna samtaka og stofnana um að skipa full- trúa í dómnefnd fyrir lands- samkeppni á vegum Æsku- lýðssambandsins, þar sem leitað verði eftir hugmyndum um nýjan íslenzkan þjóðbún- ing við hæfi nútímakonunn- ar. Verðt með því hindrað að íslenzkur þjóðbúningur kvenna hverfi af sjónarsvið- inu og verði eingöngu safn- gripur. KR vaiHt Vík- ing 3:1 Fjórði leikur Reykjavíkur- mótsins í knattspyrnu var háð- ur. á Melavellinum í gærkvöld. KR sigraði þá Víking með 3 mörkum gegn einu. Sigur KR varð þó ekki eins auðsóttur og flestir munu hafa búizt við fyr- ir leikinn. Víkingar skoruðu fyrsta markið er stundarfjprð- ungur var af leik, og KR-ing- um tókst ekki að jaí’na fyrr en um miðjan síðari hálfleik. Ann- að mark KR var skorað er 10 mín. voru til leiksloka og loka- markið nokkrum mínútum sí& ar. i

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.