Þjóðviljinn - 19.05.1967, Síða 5
Föstudagur 19. maí 1967 — ÞJÓÐVTLJINN — SlÐA 5
Þróttur vann Víking 3:1 í
6. leik Reykjavíkurmótsins
■ Annarrardeildar-liðin Þróttur og Víkingur háðu
mikla baráttu en sýndu litla knattspymu í 6. leik Reykja-
víkurm’ótsins sl. miðvikudagskvöld. Töluverð spenna var
í leiknum þrátt fyrir 3:1 sigur Þróttar, sem er of stór
miðað við gang leiksins og tækifæri beggja.
Víkingur hóf sókn strax í
byrjun fyrri hálfleiks og hélt
henni nær látlaust fyrstu tutt-
ugu mínúturnar en tókst þó
ekki að skora þrátt íyrdr nokk-
ur góð tækifæri. Þegar liðnar
voru þrjátíu mín. af fyrri hálf-
leik kom fyrsta mark leiksins.
Þróttarar só'ttu upp vinstri
kant og sendu háan bolta inn
á vítateig, þar sem miðherji
Þróttar, Guðmundur Vigfús-
son, var fyrir og skallaði laust
í átt að marki, en markvörðuy
Víkings var kominn langt út
úr markinu og fór boltinn yfir
hann og í netið. Ljótt klaufa-
mark.
Við þetta mark lifnaði Þrótt-
arliðið við og sótti nú stíft
út hálfleikinn. Á 37. mín. skor-
ar svo Kjartan Kjartansson
annað mark Þróttar með skalla
eftir góða fyrirgjöf frá vinstri
kanti.
í seinni hálflcik hélt Þrótt-
ur áfram þar sem frá var horf-
ið, og sótti nú mun meir út
allan hálfleikinn. Áttu Þrótt-
arar meðal annars ein fjögur
stangarskot og nokkur dauða-
tækifæri sem kallað er.' Þó
tókst þeim ekki að skora fyrr
en á 35. mín síðari hálfleiks,
er Haukur Þorvaldsson skor-
aði þriðja mark Þróttar með
skalla. Þannig voru öll mörk
Þróttar skoruð með skalla.
Tvéim mínútum síðar kom-
ast Víkingar svo á blað, þeg-
ar hægri bakvörður Víkings
skorar laglegt mark; fékk hann
boltann uppúr þvögu (ekki
þeirri fyrstu í þessum leik) við
Þróttar-markið og skaut við-
stöðulaust og boltinn hafnaði í
blá-horninu; vel gert hjá Haf-
steini. Fleiri urðu mörkin svo
ekki.
Þrátt fyrir það, að Þróttur
ætti meira í seinni hálfleik
áttu Víkingar sín tækifæri sem
þeir fóru illa með, m.a. tvö
st'angarskot og nokkur opin
færi. Knattspyrnan í þessum
leik var ekki upp á marga
fiska. Samleikur, sem talinn er
tilheyra flokkaiþróttinni, er
ekki í metum hjá þessum lið-
um. Aftúr á móti virðast föst
Bpörk og mikil hlaup öllu hærra
skrifuð, þó sérstaklega hjá Vík-
ingsliðinu. Beztu menn þeirra
og þeir einu sem reyndu að
upphefjá samleik voru Þórar-
inn og Gunnar.
Hjá Þrótti tforu beztir þeir
Haukur, Ómar og Halldór
Bragason ‘og sá síðastnefndi er
góður leikmaður sem hefur
auga fyrir spili, en því miður
þá virðist sem félagar hans
hafi meiri trú á einstaklings-
framtakinu.
Dómari var Róbert Jónsson
og mun þetta vera fyrsti „stór-
leikurinn" sem hann dæmir,
og gerði það mjög vel.
Frá borgardómara-
embættinu
Frá og með 1. júní 1967 verða hin reglulegu
bæjarþing Reykjavíkur, á þriðjudögum og
fimmtudögum, haldin í dómsal borgardóm-
araembættisins að Túngötu 14, Reykjavík.
Frá sairna tíma verða hin reglulegu dóm-
þing sjó- og verzlunardóms Reykjavíkur
haldin 'á sama stað, annan hvorn föstudag,
í fyrsta sinn föstudaginn 9. júní n.k.
Yfirborgardómarinn í Reykjavík.
HÁKON GUÐMUNDSSON.
TILKYNNING
til viðskiptamanna um afgreiðslutíma
og víxilafsagnir.
Eins og áður hefur verið auglýst verða afgreiðslur vorar lokaðar á
laugardögum á tímabilinu frá miðjum maí til septemberloka n.k.
Er jafnframt vakin sérstök athygli á því, að afgreiðslur vorar eru nú
opnaðar hálfri stundu fyrr en verið hefur, eða kl. 9.30. — Eru viðskipta-
menn hvattir til að nota sér þennan aukna afgreiðslutíma á morgnana.
Ef afsagnardagar víxla falla ,á laugardaga á tímabilinu frá miðjum maí
til septemberloka n.k., verða þeir afsagðir næsta virkan dag á undan.
17. maí 1967. ,
\ '
SEÐLABANKI ÍSLANDS LANDSBANKI ÍSLANDS
ÚTVÉGSBANKI ÍSLANDS BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
IÐNAÐARBANKI ÍSLANDS h.f. VERZLUNARBANKI ÍSLANDS h.f.
/ SAMVINNUBAN KI ÍSLANDS h.f.
SPARISJÓÐUR REYKJAVÍKUR SPARISJÓÐUR
OG NÁGRENNIS HAFNARFJARÐAR
4
Viðgerðir
£ skinn- og
rúskinnsfatnaði.
Góð bjónusta
Leðurverkstæði
Úlfars Atlasonar.
Bröttugötu 3 B.
Sími 24-6-78.
Jón Finnsson
hæstaréttarlögmaður
Sölvhólsgötu 4.
(Sambandshúsinu III. hæð)
símar 23338 og 12343
m
Ms.
Kronprins Frederik
og vöruflutningaskip
Áætlun um næstu ferðir
frá Kaupmannahöfn verða.
23. maí, 27. maí, 7. júní, 13.
júní, 17. júní og 28. júní.
Frá Reykjavík 20. maí, 1.
júní, 3. júní, 12. júní, 22.
júní og 24. júní.
Komið verður við í Fær-
eyjum í báðum leiðum.
SKIPAAFGREIÐSLA
JES ZIIWSEN
Símar 13025 og 23985.
SOVIETSK
KVIKMYNDA
* KYNNING
HEFST
MAI
VENJULEGUR FASiSMI
ÁNAUÐUGA LEIKKONAN
GRANSTEINA ARMBANDIÐ
SfÐASTA BLÓÐHEFNDIN
MAYA PLISETSKAYA
REIKAÐ UM MOSKVU
BYLURINN
mm.
HAFNARFJARÐAR B Ö I
“ HÁSKÓLA BIO daglegum
BÆJARBÍÓ auglýsingum
AUSTURBÆJAR BÍÓ kvikmyndahúsanna
LAUGARÁSBÍÓ --------
GAMLA BÍÓ