Þjóðviljinn - 27.05.1967, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 27.05.1967, Blaðsíða 10
Vilja flytja sfyttu Leifs heppna Nokkuð lengi hefur staðið orrahrið á bak við tjöldin um að fá flutta styttuna af Leifi heppna af Skólavörðuholtinu inn að Hrifnistu. Er ætlunin að styttan yrði þannig stað- sett þar, að hinn aldni vik- ingur væri Iátinn horfa yfir Sundahöfn. Nokkuð vasklega hefur ver- ið gengið fram í þessu flutn- ingsmáli og hefur stjórn Sjómannadagsrá'ðs gengið á fund margra aðila og fengið víða jákvæðar undirtektir, meðal annars er fengið sam- þykki gefandans, — er þar við að eiga sjálft bandaríska utanríkisráðtineytið — en hvorki gengur þó né rekur með þetta mál. Pétur Sigurðsson, formaður stjómar Sjómannadagsráðs, lét svo um mælt við fréttamenn, að ráðið ætti þar einn mikinn mótherja er brygði fæti fyrir þá félaga i þessu máli. Og hver er þessi illvígi and- stæðingur? Jónas frá Hriflu. Það er ennþá töggur í gamla mann- inum. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■: ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■! Illgresi komið út í viðhafnarútgáfu Sala hefst á Sjómannadaginn □ Núna á sjómannadaginn hefst sala á sérstakrí há- tíðarútgáfu á „Illgresi“. Ijóðabók Arnar Amarsonar eða Magnúsar Stefánssonar. □ Er hún með sérstökum formála eftir Ásgeir Ás- \ geirsson, forseta, er þekkti skáldið vel á sínum tíma. Er upplagið fimm hundrpð tölusett eintök og faer forsetinn númer eitt. □ Dr. Bjami Aðalbjamarson sá um útgáfuna á sínum tíma. Á sínum tima arfleiddi öm Amarson Sjómannadaginn að al- eigu sinni, — þar með höfundar- Gideon Stihlberg lézt í Leníngrad STOKKHÖLMI 26/5 — Sænski stórmeistarinn í skák, Gideon Stáhlberg lézt í dag í Leníngrad, 59 ára gamall. Hann kom til Sovétríkjanna fyrir nokkrum dögum til ad taka þátt í miklu skákmóti en veiktist áður en það hófst. Kosningahandbók F/ölvísút- gáfunnar kominn íbókabúðir Bókaútgáfan Fjölvis hefur gef- ið út kosningahandbók fyrir al- þingiskosningarnar 11. júní n.k. Fremst í bókinni er að finna upplýsingar um forseta og rík- isstjóm íslenzka lýðveldisins frá stofnun þess til þessa dags. Þá kemur kaflinn Aiþingi og al- þmgiskosningar og eru þar m.a. birt nokkur atriði úr stjórnar- skránni og kosningalögunum, ennfremur reglur um úthlutun uppbótarþingsæta. Þá eru birt heildarúrslit al- þingiskosninga 1933 til 1963 og úrslit í einstökum kjördæmum við kosningamar 1959 og 1963. Þá koma kaflar um einstök kjör- dæmi og er þar margvíslegan fróðleik að finna, bæði um úr- slit fyrri þingkosninga og bæj- arstjórnarkosninga, um þing- menn kjördæmanna allt frá 1931 og sitt hvað fleira. Einnig eru birtir allir framboðslistamir í hverju kjördæmi og myndir og upplýsingar um 6 efstu menn hvers lista í Reykjavík en 3 efstu menn hvers lista í öðrum kjördæmum. Þá er í bókinni þægilegt rúm til þess að færa inn í atkvæðatölur jafnóðum og þær berast. Loks er í bókinni kynnt verð- launagetraun sem Fjölvísútgáf- an efnir til í sambandi við kosn- ingaúrslitin og er heitið þrenn- um verðlaunum fyrir réttustu spámar. Hirschsprung kynnir danska vindiinga fyrir íslendingum Hér á landi er staddur Asger M. Hirschsprung, aðalforstjóri danska tóbaksfirmans A. M. Hirschsprung & Sönner, — á leið frá Bandaríkjunum til heima- lands síns. ‘Islenzkir blaðamenn áttu þess kost að hafa tal af honum og frú hans á Loftleiðahótelinu í gær- dag. Fyrirtækið var stofnað érið 1826 af þýztoum land'hlaupa, — er ekki vildi taka þátt í Napóle- onsstyrj öldunum, — síðan hefur sonur teíkið við af föður og er fyrirtsefcið nú stærsti vindlafram- leiðandi í Danmörtou með út- flutning til 42 landa, — er danski hjörturinn víða tounnur, í mörg- um Evrópulödum, Bandarikjun- um, Suður-Ameríku, Asíu og þannig rnætti teija. Áttatíu prósent af framleiðsl- unni ffer til útflutnings. Hr. Hirschsprung telur Dani vera mesini vindlareyfcdngameinin í heimi og er 'vindiilinn virðuDeg- ur endapúnktur á danskri máltíð, — að minnsta kosti hjá kari- mönnum, — dömuvindlar eru og mikið i tízku þar í landi og reykir hver* Dani 255 vindda á ári, Englendingar aðeins 15 vindla, Svíar 50, Bandarikja- menn 50, íslendingar 52, Vestur- Þjóðverjar 80, Svissarar 90, Hiol- lendingar 11«. Kvað hann Dani reykja 5.6 miljarða af vindling- um og er það mikið fyrir jafn litla þjóð. A. M. Hirsehsprung hefur skipt við Islenddnga um sextíu ár, — vissd þó eltoki um einstaka kaupmenn hér áður fyrr, — „men Mendingene er meget tmfaste tounder", sagði aðalforstjórinn að lokum. Þá var sýnd tovikmynd um danska vindlagerð, — var hún fróðleg að Mkum. Bolf Johansen er umboðsmaður fyrirtækisi'ns hér á landL rétti að ljóðum sinum og verð- mætt bókasafn, er verður nú stöð- uil að bókasafni á Hrafnistu. Vildi skáldið láta hina öldruðu sjó- menn handdeika bækur sínar. Eru bar ýmsar sjaldgæfar bækur. Á síðastliðnu ári gaf bókafor- lagið Helgafell út Illgresi og samdist þá svo um, að fyrir /út- gáfuréttinn fengi Hrafnista fimm hundruð tölusett eintök í hátíðar- útgáfu og verður ágóðanum varið til þess að etfla áðurgreint bðka- | safn á Hrafnistu. öm Arnarson gaf Sjómanna- deginum einnig hátíðarijóðið „Island Hrafnistumenn“ en Ámi Bjömsson tónsitoáld hefur útsett lagið sem mars fyrir lúðrasveit og verður það lei'kið í fyrsta skipti nú á sjómannadaginn. Lag- ið var varð á sínum tíma númer tvö í verðllaunasamkeppni um lag að Ijóðinu. ★ Þá hefur' Sigfús Halldórsson útsett iagafloíkkinn um Stjána bláa fyrir kariakór og verður hann fluttur núna á sjómanna- daginn, — einnig verður kynnt nýtt lag eftir Sigfús við Þymi- rósu etftir öm Amarson og má segja áð þessu góðkunna skáldi sé verðsfculdaður sómi sýndur á þrítugasta sjómannadeginum. islandsmétíð í 1. ðg 2. dsild hefst um helgina íslandsmótið í 1. deild hefst í dag með leik milli Keflvíkinga og Akumesinga á Njarðvíkur- velli kl. 4.30. Dómari verður Grétar Norðfjörð. Nasstu leikir í 1. deild verða um aðra helgi. Valur leikur þá gegn ÍA og ÍBA gegn Fram. Keppni i II. deild hefst nk. sunnudag í Vestmannaeyjum með leik milli Vestmannaeyinga og Víkings. Dvalarheimili fyrlr sjómenn á Akranesi Hafinn er nú undirbúningur öð byggingu dvaiarheimilis fyrir aldraða sjómenn á Akranesi, — hafa þeir fengið útihlutað fállegri lóð í kaupstaðnum og er ætlun- in að reka heimilið í tengslum við sjúkráhúsið eða fyrirhuigaða læknamiðstöð á Akranesi. Er þegar hafin samvinna við stjóm Hrafnistu í Reykjavík og tediknar arkitefct þeirra Hörður Bjömsson til dæmds húsið og er það ætilað fyrir sjötíu tiil átta- fcíu vistmienm. K0SNINGA- SKRIFSTÖFA AiÞÝÐU- BANÐALAGSINS KOSNINGASKRIFSTOFUR Alþýðuba'ndalagsms eru í Tjamargötu 20, sími 17512 og 17511 opið kl. 10 til 10, og í XÁndarbæ, Lindargötu 9, símar 20805 og 18001, opið klukkan 9 til 6. — SJÁLFROÐAlrlÐAR gefi sig fram við kosrúnga- skriísíEd&*mær og láfa sferá síg iM sferfa 'fyrrr kjördag. — Sjá nánar á 2. síð«. Laugardagur 27. mai 1967 — 32. árgamgur — 116. töluiblað. HGH-söfnunin vari 9,307,67.82 kr. Fou Ts'ong. Fou Ts‘ong leikur fyrlr Ténlistar- félagið tvívegis Kínversiki píanósnillingurinn Fou Ts'ong held.ur tónleika fyrir styrktiaríélaga Tón'listarfélagsins n.k. mánudags- og þriðjudags- kvöld M. 7 í Austurbæjarbíói. Á efnisskránni em verk eftir Hánd- el, Schubert, Ohopin og Liszt. Þetta verða sjöundu tónlei'kar Tónlistarfélagsims frá áramótum og þeir síðustiu nú í vor. ★ Næstu tónleikar verða síðari hiluta ágústmánaðar, þá syngur óperusöngkonan Hertha Töpper og eiginmaður hennar dr. Franz Mixa verður undirleikarinn. Endanlega hefur nú verid gengið frá uppgjöri söfnunarinn- ar sem Herferð gegn hungri efndi til haustið 1965, og verk- efni valin. Framkvæmdastjóri HGH, Skúli Möller skýrði blaða- mönnum frá niðurstöðunum í gær og fara meginatriði þcirra hér á eftir. Áður hafði fé úr söfnuninni verið veitt til að kenna mönnum við Alotravatn á Madagastoar nýjar aðferðir við fistoveiðar, tooma þar upp sfcólagörðum, til mæðrafræðslu í Marokko og ein- hverju fé var varið til aðstioð- ar Nígeríubúum. Niðurstöðutölur söfhunarinnar- iinnar urðu kr. 9.307.667.84 en af iþeirri upphæð hefur áður verið varið til verkefna kr. 2.197.510.10 þannig að netfndim þurfti að finna verkefi fyrir samtafe kr. 7.110. 166.74. Fratntovæmdanefnd HGH er mjög ánægð með þenmam árang- ur, segja hann vera með bezta árangri sem náðst hefúr í heim- inum í slikum söfnunum og er þá eins og vanalega miðað við höfðaitölu. Þjóðinni í heild ber að þakka hinar góðu undirtektir sem sýna að Islendingar Skilja þann ægi- lega vanda sem við er að etja og er ánægjulegt til þess að vita að umgt fólk skuli hafá forgöngu um þessi mál. Maiikmiðið verður því að vera að hið opimbera stofni sérstaikan „þróunarsjóð“ sem fær vissar fjárhæðir áriega af fjárlögum. Má I þessu sambandi nefna sam- þykkt sem gerð var á allsherjar- þingi Sameinuðu þjóðanna en hún var sú að skora á allar þró- aðar þjóðir að leggja fram 1% af þjóarðtekjum til uppbygging- af þjóðartekjum til uppbygging- Iand scnnilega eina ríkið á Vest- urlöndum sem viðurkennir ekki einu sinni réttmæti þessarar samþykktar. Mifcill tími framfcvæmdanefnd- ar HGH hefur farið í að finna hentiug veirkefhi til viðbótár þeim sem safnað var til þvi að alls safnaðist rúmlega 4 sinnum sú uppihæð sem framfcvæmdanefndiij gerði sér vonir um. Verkefni sem fyrir vailinu urðu eru þessi: 1. Framleiðslu- og þjálfunarstöð í fískirækt í saltmenguðu vatni í Nígeríu. Áætlaður kostnaður 4.334.400 kr. 2. ÁætJun til eflingair á vaitnaiveiðum og fisk- eflingar á vatnaveitum og fiski- sölu innanlands í Burundi. Áætl- aður kostnaður er 82.70» bandar. do'Hara eða 3.556.100 krónur. 3. Lestrarkennsla í Tanzaníu. Hluti fslands 112.000 krónur. Um vesaidóm íslenzkra róð- herru í nýju Fyrsta hefiti Tímarits Máls og menningar þessa árs er fcomið út. Sigfús Daðason sikirifar rit- stjórnargrein um heimsókn Williams Fullbri'gtihs og vesialdóm íslenzkra ráðherra. Kristinn E. Andrésson skrifar „Þjóð í elds- logum“ — það er um styrjöldina í Víetnam. Þorgeir Þorgeirsson skrifár um kynni sín af írsku kvikmyndafólki, um vitjunar- tíma fjölmiðlunar í því góða landi, ástand og horfur í dag. Og Eyþór Einarsson skrifar gagnrýr.i um náttúmvemdarmál á ísilandi og birtur er annar hluti greinar- tímuriti MM gerðar Bergsteins Jónssonar um fyxistu íslenziku tímaritin. Birtir em þrír þættir úr „Ótta og eymd þriðja ríkisins“ efitir Brecht í þýðingu Þorsteins Þor- steinssonar; vom þessir þættir sýndir1 á listavöku hemámsand- stæðinga í vor. Þá þýðir Baldur Ragnarsson fjögur ljóð efitir eitt eftirteiktarverðasta samtímastoáld Þýzkalands, Hans Magnus Enz- ensberger. Ljóð em í heftinu eftir Þómnni Efilu og Jóhannes Straumland og saga eftir Unni Eiriksdóttur, umsagnir um bæk- ur o.fl. Að lokum er rétt að geta þess að ömnur söfnun HGH mun vera í bígerð og standa vónir tíl að hún getí hafizt á næsta vori. KR vann Val þrjú tvö 1 gærkvöld fór fram kappleik- ur í Reykjavíkurmótinu í knatt- spymu, ICR sigraði þá Val með þrem mörkum gegn tveim. I hálf- leik var staðan 1:1. Þetta var fjörlegur og skemmtilegur lei'kur, bezti leikur mótsins til þessa. — Nánar síðar. 3 nýliðar í landsliðinu gegn Spáni næsta miðvikudag □ Næstkomandi miðvikudag leika íslendingar sinn 44. landsleik og að þessu sinni gegn Spán- verjum en leikurinn er liður 1 Olympíukeppriinni, sem íslendingar taka nú þátt í í þriðja siimið 1 röð. Landsliðsnefnd KSÍ hefur val- ið landslið íslands gegn Spán- verjum, og er það óbreytt frá liðinu sem gerði jafntefli gegn skozku atvinnumönnunum sl. miðvikudag að öðru leyti en því að Jón Jóhannsson ÍBK kemur í stað Bjöms Lárussonar frá Akranesi. Þrír nýliðar eru í íslenzka landsliðinu: Guðmundur Péturs- son KR, Jóhannes Atlason Fram, og Elmar Geirsson Fram. Landsliðið verður þannig skip- að; og er fjölda landslefkja get- ið í svigum: Guðmundur Pétursson, KR ( 0) Árni Njálss., Yal (fyrirlíði) (Ið) Jóhannes AtLason, Fram ( 0) Magnús Torfason, ÍBK ( 2) Sigurður Áffljertsson, ÍBK ( 2i) Högni Gimnlaugsson, ÍBK ( 3) Jón Jóhannsson, ÍBK ( 1) Hermann Gunnarsson,, Val ( 2) Ingvar Elísson, Val > (3) Eyleifur Hafsteinsson, KR ( 5) Elmar Geirsson, Fram ( 0) Varamenn: Kjartan Sigtryggsson ÍJBK ( (» Ársæll Kjartansson, C";C ( 1) Guðni Kjartansson ÍBK ( 6) Ellert Schram, KR (14) Bjöm Lárusson, ÍA ( 0) Kári Ámason, ÍBA ( 4) Fyrirliði íslenzka landsliðsins er Ámi Njálsson og leikur hann nú sinn 20. landsleik, er hann mjög áberandi elzti maður í lið- inu, því að nassti maður (Ey- leifur Hafsteinsson) hefur leik- ið aðeins fimm lands! iki. Dómari verður Gunnar Micha- elsen Banmörku og l***^.*ðir Einar Hjartarson og Hreiðar .Ársælsson. Forsala aðgöngumiða hefst' við Útvegsbankann á þriðjudag kl. 1—7 og allan mið- vikudaginn. Jafnframt verða miðar seldir við Laugardalsvöll. Stúkusæti kosta 150 kr„ stæði 100 kr. og bamasæti 25 kr. Að loknum landsleiknum held- ur menntamálaráðherra boð í Þjóðleikhúskjallaranum fyrir Spánverjana, íslenzku landsliðs- mennina og aðra gesti. Flokkurinn Orðsending: frá Sósíal- istafélagi Reykjavíkur Félagar, sem ekki hafa enn fengið ný félagsskírteini geta vitjað þeirra í skrifstofu félags- ins Tjarnargötu 20. Skrifstofan er opin daglega kl. 10—12 fyrir hádegi og 5—7 síðdegis, á laug- ardögum kl. 10—12 árdegis. — Sími 17510. Sósiaíistahftlaír Reykjavíkur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.