Þjóðviljinn - 02.06.1967, Síða 3

Þjóðviljinn - 02.06.1967, Síða 3
Fótoiudaáur 2. júní 1967 — ÞJÓÐVILJINN — SiÐA 3 Nasser vill ónýta sigur ísraels 1956 Palestínuarabar reiðubúnir að hleypa af fyrsta skotinu ■ Arabaríkin vígbúast af kappi og uni leið gætir með- al þeirra vaxandi andúðar á Bandaríkjunum fyrir sakir stuðnings þeirra við ísrael. Hersveitir Palestínubúa búast til að verða fyrstar til að hleypa af skoti í styrjöld við fsrael. Vesturveldin hafa ekki enn komið sér saman um það með hvaða hætti þau vilji fylgja eftir þeirri afstöðu sinni að Akabaflói sé alþjóðleg siglingaleið. Arabar. Egyptar hafa lagt fyrir örygg- isráðið tillögu um að Israel ger- ist aftur aðili að egypzk-ísraelskri vopnahlésnefnd, sem Israels- menn hafa hunzað síðan styrj- öldinni 1965 lauk — en nefnd þessi var sett á stofn eftir Pal- estínustriðið 1949. Ljóst er af þessari tiilögu og umm.æHum Ar- abaleiðtoga að Egyptar stefna nú að þvi að gera að engu þaðsem Israelsmönnum vannst með her- ferðinni 1956, en þá fengu þeir opnað siglingaleið um Akaíba- flóa. Arabar ví'gbúast af kappi: Líb- ía hefur t.d. sent hersveitir' til landamæra sinna til að veita Eg- yptum lið. Frelsisihreyfing Pai- estínu-araiba hefur aftur opnað skrifstofur í Jerúsalem, en hún var bönnuð í Jórdaníu í fyrra vetur vegna andstöðu við Hús- sein konung. Forin-gi hreyfingar- innar, Ahmed Al-Sjúkairí, kom með Hússein konungi frá Kaíró eftir að þeir Nasser höfðu gert með sér bandalag! Hann sagði við blaðamenn í dag, að lfklegt væri að Jórdaníulher eða fredisis- sveitir Pa'lestínu-araba myndu hleypa af fyrsta skotinu og væri markmiðið að leggja undir sig allt ísrael. Að þvi loknu myndu Arabar veita þeim Gyðingum, sem eftir lifðu, hjálp til að flytia aftur til þeirra landa þar sem þeir væru fæddir. Jórdanskir hermemi skutu í dag að ísraelskri þyrlu sem var á flugi yfir landamærunum. I Arabalöndum vex nú óðum andúð á Bandaríkjunum. í Irak fóru þúsundir manna í kröfu- göngu í dag og kröfðust þess að landið sliti stjómmálasambandi við Bandarílkin. Frá Alsír barst fréttin um að stjórnarvöld þar hafi sflitið samninigaviðræðum við Bandarí'kin um 200 þús. smá- lestir af hveiti — bæði vegna stuðnings þeirra við Israel og vegna Vietnamstríðsins. Egypzk blöð saka Bandaríkjamenn um að bera ábyrgð á þvi að Alþjóðlegi s.ióðurinn IMF hafur neitað að veita Egyptum 60 miljón doilara lán vegna ástandsins þar eystra. Erlendir ferðamenn eru nú sem óðast að yfirgefa Kaíró. Vesturveldin. Bandariska herskipið Intrepid hefur nú farið um Súezskurðinn á suðurleið, en því hefur veríð lýst yfir að það sé á leið til Vi- etnam og muni ekki nema staðar við Akabaflóa. Wilson forsætisráðherra er floginn vestur um haf til við- ræðna við Pearson forsætisráð- herra Kanada og Johnson Banda- rfkjaforseta um þessi máll. Hann vildi ekikert láta u-ppi ura það áður en hann færi hvort Bretar og Bandaríkjamenn vilji reyna að koma á fót alþjóðlegri flota- deild til að tryggja frjálsar sigl- ingar um Akabaflóann. — Dean Rusk, utanríkisráðh. Bandaríkj- anna hafi lagzt gegn orðrómi í þessa átt. Haft er eltir opinberum heim- ildum . í París að franska stjórnin muni leggjast gegn þvi að reynt verði að opna Ak- abaflóa með vaildi. Sagt er að Frakkar vilji hafa þá stefnu að forðast aðrld að vopnaviðskiptum millili ísraels og Egypta; kcmi það Israel betur að eiga að stór- veldi sem vilji tryggja sjálfstæða ti'lveru Israels — og hafi um leið ekiki spillt mannorði sínu með beinum afskiptum af deilunni. I gær fóru um 30 þúsundir manna í göngur í fjórum borgum Frakk- Iands til stuSnings við málstað ísraels. Stjórnin í. írak hefur boðað til ráðstefnu Arabaríkja í Bag- dad til að ákveða með hverjum hætti Arabaríkin geti bezt not- fært sér sitt sterkasta vopn í deilunni við ísrael: olíuna. Uppbót fyrir glötuð heimsyfirráð? un á sægarpinum Chichester H Bretar eru nú gripnir nýju æði, Chichesteræði svo- nefndu, sem er nú að ná hámarki fyrstu. dagana eftir að Francis Chichester kom heim eftir að hafa siglt einn síns liðs umhverfis hnöttinn. Efnahagsbandalagið, staða punds- ins, launafrysting — allt hverfur í skuggann fyrir áhuga og dýrkun á þessum hálfsjötuga sægarpi. Því er haHdið fram með all- miklum rétti að þessi hamslausi áhugi á Chichester sæfara sé beinlinis vitnisburður um hve Bretland hafi nú litlu hlutverki að gegna í heimspólitík. Francis Chiohester er orðið tákn sem á að koma í staðinn fyrir „hið brezka ljón“, sem vakti ótta um allar byggðir fyrr á öldum. Bret- ar eru, segja menn, að leita séjj að uppbót fyrir glötuð áhrif og heimsyfirráð með því að hylla hinn roskna sækappa.. En fleira kemur hér til greina en „félagslleg sálfræði“. Chichest- er er ekki aöeins dugmikill mað- Mannvíg urðu í Aden í gær ADEN 1/6 — Brezk fallhlífaher- sveit tók í dag þátt í vopnavið- skiptum sem kostuðu fimm manns lífið. Meðal þeirra sem féllu var brezkur hermaður og arabísk kona, en 13 manns særðust* Brezku hermennirnir börðust við arabíska þjóðernissinna sem höfðu komið sér fyrir á húsþök- um í útborginni Sjeik Otman. Kom til þessara átaka meðan á stóð allsherjarverkfalli sem þjóðemissinnar efndu til. Francis Chichester á skútu sinni. ur sem hefiur unnið gott afrek. hann er og. upphafsmaður nýs iðnaðar. Því það eru sannarlega margir sem ætla sér að græða á nafni hans — allt frá bruggurum til útgefenda og leikfangasmiða. Sjálf ferðin var auðvitað kostn- aðarsöm, og þeir sem veittu Chiohester stuðning til hennar ætla sannarlega að hafa nokkuð fyrir snúð sinn. Stórt brezKt bjórgerðarfirma sá um' það að sægarpurinn hefði jafnan öl frú því um borð — og aiuðvitað verð- ur ekki sparað að geta þess í auglýsdngum; ullarvörusamsteypa sá til þess að merkja#sér aldt sem Ohichester þurfti af sjíkri vöru, alit frá nærbrókum til Francis Drake sleginn til ridd- ara — með sama sverði ... teppa. Og það er þegar farið að framleiða Chichester-nærföt, Chi- chesterteppi og stígvél fóðruð — áður en langt um líður koma Chichesterskyrtur, og gott er ef ekki verða við hann kenndar bæði háístötfilur og matreiðslu- bækur. Stórblaðið Tlie Times tryggði sér einkarétt á ferðaskýrslum þejm sem Chichester sendi heim um talstöð. Og daginn áður én hann kom heim úr ferðinni var byrjað að selja bók um ferðina — um leið var boðuð sérútgáfa viðbótarkafla um heimkomuna. Þá er einnig tillkynnt að Chioh- ester muni sjálfur taka saman bok um ferðina og allt verða þetta sjáifsagt metsölubæikur. Og innan skamms astlar drottn- ing að duibba Francis Ohichester til riddara — með sama sverði og önnur Eilísaibet, sú hin fyrsita, hélt á þegar hún sló annan Fran- cis og annan sæigarp — Franc- is Drake til riddara. Illkvittnir menn minna á það að sú Elísa- bet hafi eikiki vitað um hríðhvorn kostinn hún ætti að taka — hengja Drake, eða heiðra hann. Burmeister oa Wain verður lokað Að því er danska blaðið Information hermir lítur svo út sem örlög hinnar þekktu skipasmíða- stöðvar Burmeister og Wain séu ráðin. Verður þeim lokað áður en langt um líður samkvæmt tillögum sérfróðra manna og verða þá 3000 verkamenn atvinnulausir. Tillögur um að draga úr starfsemi fyrirtækisins um lielming til að þurfa ekki að segja svo mörgum verkamönnum upp starfi hafa ekki verið samþykktar, og ekkert bendir til þess að danska stjórnin ætli að koma fyr- irtækinu til hjálpar. Samkvæmt þessu munu B&W byggja framtið sina á vélasmiði einni. — Myndin sýnir hina fullkomnu skipasmiðastöð fyrirtækisins, sem íslendingar hafa átt skipti við. Manntjén USA aídres meira f SAIGON ,1/6 — í síðustu viku urðu Bandaríkjamenn fyrir meira manntjóni í Vietnam en nokkru sinni áður — misstu þeir* 313 fallna og 2616 særðust en 12 er saknað. í næstsíðustu viku féllu 337 manns en færri særð- ust en nú. Bandaríkjamenn viðurkenna að 36 flugvélar þeirra hafi ver- ið skotnar niður yfir Norður- Vietnam í fyrra mánuði og hef- ur flugvélatjónið aldrei verið jafnmikið. Bandaríkjamenn segj- ast sjálfir hafa fellt 2216 skæru- liða og porðurvietnamhermenn í fyrri viku. Norðmenn unnu Finna með 2:0 HELSINKI 1/6 — Noregur vann Finnland. í landsleik í knatt- spyrnu sem háður var á Olymp- íuleikvanginum í Helsinki í dag með tveim mörkum gegn engu. Mörkin voru skoruð sitt í hvor- um hálfleik. RÝMiNGARSALA Þar sem ég hef ákveðið að hætta verzluninni, verða nú allar vörubirgðir (einnig s.má -7örurnar) seldar út með mikl- um afslætti og byrjar salan stra.x í dag og heldur áfram meðan birgðir endast. Verzlun H. Toft Skólavörðustíg 8. Bifreið til söla 19 manna Chevrolet-bifreið, árgerð 1955 er fil sölu að Tilraunastoðinni að Keldum. Upplýsingar í síma 17300 frá kl. 9—12 næstu daga. Homo legens * Hinn lesandi maður v Sýning um samskipti manns og bókar í húsakynnum Myndlistar- og handíðaskól- ans að Skipholti 1, opin daglega frá kl. 15 - 22, til 10. júní. Á sýningunni eru myndir, þýzkar og ís- letnzkar bækur.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.