Þjóðviljinn - 02.06.1967, Síða 4
(
4 SlÐA — Þ'JÓÐVTEiJTNN — Föstudagur 2. júní 1967.
OtgefanJi: Sameiningarflokkur aiþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn.
Ritstjórar: Ivai H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson-
Auglýsingastj.:Sigurður T. Sigurðsson.
Framkvstj-: Eiður Bergmann.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja Skólavörðust 19.
Sími 17500 (5 línur) — Askriftarverð kr. 105,00 á mánuði. —
Lausasöluverð kr. 7.00-
30% kauplækkun
jyjorgunblaðið fagnar ákaft ákvörðuninni um 30%
kauplækkuín síldveiðisjómanna og túlkar þar
að sjálfsögðu ánægju ríkisstjómarinnar og stjórn-
a-rflokkanna með þau málalok. Hitt er víst að
sjómenn telja .sig enga ástæðu hafa til þess að
fagna ákvörðuninni, en ríkisstjómin er búin að
vefja kjaramál sjómanna í svo fáránlegar laga-
flækjur, að þeir eiga óhægt um vik að rétta hlut
sinn, og þeim er vísvitandi gert óhægt um öll
viðbrögð með því að draga verðákvörðunina fram
á síðasta dag maímánaðar, eftir mánaðar veiði-
bainn ríkisstjómarinnar. Sjómönnum skilst hins
vegar betur hvað gerzt hefur þegar þeir finna
hversu hlakkar í Morgunblaðinu, sama blaðinu
og varði allt hvað af tók gerðardómslög Emils
Jónssonar sem beitt var til þess að skerða hlut
síldveiðisjómanna. Vaéri ekki ólíklegt að óvenju
mörgum sjómönnum og vandamönnum þeirra
þætti ástæða til að þakka stjórnarflokkutnum 11.
júní fyrir velgjörðimar í garð sjómannastéttarinn-
ar. Og þeir krefjast gerbreytingar á hinum óhæfu
ákvæðum verðlagsráðslaganna, og vinnubrögðum
verðlagsráðs.
^íldveiðisjómenn verða mjög varir við þantn á-
róður að þeir eru taldir svo tekjuháir, að þeim
sé engin vorkunn að taka á sig stórfellda kaup-
lækkun, og er þá jafnan vitnað til bátanna sem
hafa langmestan afla. í reyndinni er meðalkaup
síldveiðisjómanna engar ofboðstekjur. Reiknað
hefur verið út að meðalhásetahlutur á síldveiðun-
um í fyrra, 1966, hafi verið 20 þúsund krónur á
mánuði. Af því borga sjómenn að minnsta kosti
3000 krónur í fæði. Síldveiðisjómaðurinn ætti eft-
ir því að hafa að meðaltali 17 þúsund krónur á
mánuði fyrir svo til stanzlausa erfiðisvinnu langt
frá heimili sínu, og það á anetaflaári eins og í
fyrra. Þetta „rosakaup“ á nú að skerða um 30%,
auk þess sem litlar líkur eru til þess að í ár veið-
ist eins mikil síld og 1966, m.a. vegna þess að maí-
mánuður hverfur 1 veiðibamn rikisstjómarinnar.
En þó svo ólíklega takist til að jafnmikið veiðist,
að meðalhásetahluturinn hefði orðið 17.000 krónur
á verðinu 1 fyrra, þá næði hann nú eftir kaup-
lækkunina ekki kauptryggingumni, sem er 12.225
kr. á mánuði. Þegar svo er komið fer ekki að verða
mikið eftir af „síldarævintýrinu“ og hætt við að
menn kjósi sér fremur önnur og átakaminni og
þægilegri störf en sjómanmsstarfið.
J^íkisstjóminni og flokkum hennar mun duga það
skammt að fagna 30% kauplækkun síldveiði-
sjómanna. Hér þarf önnur úrræði em ósvífna kaup-
lækkun. Sjómannasamtökin geta ekki heldur lát-
ið sér lynda að kjaramál sjómanna séu ár eftir ár
afgreidd eftir hinum algerlega óhæfu lagabók-
stöfum um ákvörðun fiskverðs. Sjómaninafélögin
hljóta að draga af sér slenið og krefjast stærri
hlutar sjómanna af afla, ekki sízt að fenginni
margra ára reynslu af því hvernig verðlagsráðs-
lögin eru notuð til að hafa réttmætt og sanngjarnt
kaup af sjómöomum og dengja á þá kauplækkun
þegar aðrar starfsstéttir hyggja á kjarabætur. — s.
SIGURÐUR RÓBERTSSON:
Til þ ess göngum við
Til þess göngum við.
Glatt brenna eldarnir
á altari stríðsguðsins
í Víetnam.
Kyndarar þessa blóðuga harðstjóra
verða að hafa sig alla við
svo vel logi.
• Einsog illvættir fomra ævintýra
kröfðust óspjallaðra meyja
'til saðningar
svo fer surtarlogi
nútímans að.
Hold og blóð sakleysingjans
er það eldsneýti eitt
er hann þrífst bezt af.
Neistaflugið frá Víetnam
berst um veröld alla.
Af einum neista
getur kviknað
óslökkvandi bál.
Eldtungumar rísa hærra og hærra.
Himinrjáfrið sviðnar
við snertingu þeirra.
í dag loga eldamir í Víetnam.
Á morgun getur röðin
komin að okkur
að vera varpað á bálið.
Við verðum að slökkva eldana,
áðuren þeir eyða heimsbyggðinni,
mylja altari stríðsguðsins
mélinu smærra.
Þú og ég
hvar í veröld
sem við emm stödd,
verðum við að finna
hvort annað
taka höndum saman
’tala kjark
hvort í annajð
hefja slökkviliðsstarfið
öll sem eitt.
Til þess göngum víð
að þeir sem tærast
í amrískum eldslogum
í Víetnam
megi greina dyninn
af fótafaki miljónanna
sem leggja lönd undir fætur
í öllum löndum heimsbyggðarinnar
til að slökkva eldana.
Svo lífið megi bera
sigur úr býtum,
svo uppúr akri þjáninganna
vaxi aftur blóm
til yndis barnsaugum
framtíðarínnar.
Já, til þess göngum við.
Mörg mótmœli gegn
hægríhandar akstri
Frá nýstof-nuð'U Fólagi <s-
lenzikra ve-gfarenda hefur Þjóð-
vilianum borizt fréttatilkynning,
■þar sem segir m.a. að 220 al-
þingiskj£sendur í Strandasýs-lu.
h-afi lýst óánægju sinni með
lögin um hægrihandarakstur og
krafizt þjóðaratkvæðagreiðs'lu.
Samskonar saimþykkt gerðu 97
kjósendur á fsafirði, Þá segir í
fréttinni að úr Árnessýslu hafi
borizt undirskriftamótmæli 670
kjósenda 'og á aðallfundi Mjólk-
urbús Flóamanna voru mótmæ'.i
samíþykkt með 600 atkvaeðum
gegn 3. Hér í Reykj-aivík munu
undirsk-riftailistar ganga manna
á miiii.
f lok fréttatilkynnin-garinnar
segir: „Félag íslenzkra vegfar-
enda vill geta þess, að það hef-
ur skrifað framfojóð-endum allra
flokka, þ.e.a.s. efstu mönnum
listanna, bréf þess efnis að þeir
beiti sér fyrir frestun á fram-
kvæmdum laganna á naesta
þingi, og sdðan þjóðaratkvæða-
greiðslu um lögin.
Felagið tellur að bezta ráðið til
að ná eyrum frambjóðenda sé,
að samþy-kkja mótmaali gegn
lögunum á fram-boðsfunduin
þeirra, og fara þess á leit við
þá að þeir þeiti sér fyrir frest-
un laganna á næsta þingi, og
k.refjist þjóðaratkvæðagreiðslu
um lö-gin.“
225 námsmey/ar i Kvenna-
skólanum síðast liðinn vetur
Kvennaskóllanum i Reykjavík
var sagt jjpp laugardaginn 20.
maí sl. að viðstöddu fjölmenni.
Skólaslitaræðu fflutti frú
Hrefna Þorsteinsdóttir settur
skólastjóri í orlofi frú Guðrún-
ar P. Helga-dóttur.
Forstöðuikona geröi grein fyr-
ir starfsemi skólans þetta skóllia-
árið og skýrði frá úrsiitum
vorprófa. 225 námsmeyjar sett-
ust í skólann í haust og 35
brautskráðust úr skólanum i
vor. Hæstu einkunn á lokaprófi
h-laut Sotfifía Eggertsd'óttir náms-
mær í 4. bekk Z. 9.37. Miðskóla-
prófi lutou 32 stúlkur, en lands-
próf þreyttu 27. Á miðskóla-
prófi h'laut hæstu einkunn Ásta
Ásdís Sæmundsdóttir 9,14.
Unglingaprófi luku 63 stúlkur.
Hæstu einkunn hlaut Guðný
Ása Sveinsdóttir 9,43. Prófi upp
í 2. bdkk lujiu 63 stúlkur.
Hsestu einkunn þar hlaut Sig-
ríður Jóbannsdóttir, 9,52.
JVTiiJcillŒ mannfjöidi var við
skóllauppsögn, og voru Kvenná-
sikólanum færðar góðar gjafir.
Fyrir hönd Kvennaskólastúlkna,
sem útsikrifuðust fyrir 25 árum
tailaði frú Guðrún Gísladóttir og
færði sá árgangur sfcólanum
forkunnarfagran fundarfiamar,
gerðan af Ríkarði Jónssyni.
Fyrir hönd Kvennaskólastúlkna,
sem brautslcráðust fyrir 20 ár-
um talaði frú Borghildur Feng-
er og færðu þær Systrasjóði
peningagjöf til minningar um
látna bekkjarsystur sdna, Guð-
rúnu Steinsen. Frú Amdís Ni>
elsdóttir taiaði fyrir hönd 15
ára árgangs og færðu þær skól-
anum peningaigjöf í Lista-
verkasjóð skólans. Fyrir hönd
10 ára árgangs talaði Guðný
Friðsteinsdóttir, færðu þser
Systrasjóði einnig peningagjöf.
Að lokum tallaði Guðný Hin-
riksdóttir fyrir hönd 5 ára ár-
gangs og gáfu þær sikólanum
peningaupphæð til frjólsra
ráðstafana. Þá barst Systrasjóði
peningagjöf frá frú Agnesi
Kragih. Sö'muleiðis frá frú
Kristensu og Vilhelm St.einsen,
bankaritara, og Bmil Ágústs-
syni til minningar lim frú Guð-
rúnu Steinsen, látna dóttur og,
ei'ginkonu.
Forstöðukona þalkkaði eldri
nemendum skólans alla trj’ggð,
sem þeir hefðu sýnt skóla 'sm-
um, og kvað skólanum og hin-
um un-gu námsmeyjum mikinn
stynk að vmáttu þeirra. Hún
væri þeim öllum hvatning.
Þá fór fram verðlaunaaf-
hending. Verðdaun úr Minning-
arsjóði frú Thoru Melsted, veitt
fyrir beztan árangur í bókleg-
um greinum á lokaptófi, hlaiut
Sofiflía Eggertsdóttir 4. bekk Z.
Þó voru veitt verðlaun úr
' Thomsenssjóði fyrir beztan
árangur í útsaumi. Þau hlaut
Framhald á 9. síðu.
Fjölhreytt hátíðahöld Sjó-
mannadagsins í Neskaupstað
Neskaupstað, 30/5 — Hátíða-
höld sjómannadagsins fóru hér
fram með svipuðu sniði og
áður. Á laugardagskvöldið fór
fram kappróður. Skipverjar á
Barða NK 120 unnu í kapp-
róðri s'kipshafna og hlutu bíkar
er Björg h.f. hafði gefið- Þá
sigruðu stýrimenn í kappróðri
starfshópa og hlutu skjöld er
hafði verið gefinn til minningar
um Ingvar Þorleifsson stýri-
mann.
Klukkan 9 á sunnudagsmorg-
un hófst hópsigling báta um
fjörðinn, síðan sýndi björgun-
arsveitin björgun úr sjávar-
háska og meðferð gúmbjörg-
unarbáta- Hannes Hafstein er-
indreki Slysavarnafélags Islands
var viðstaddur er þessi þáttur
hátíðahaldanna fór fram en
hann hafði á laugardaginn
haldið fyrirlestur í Egilsbúð um
lífgun úr dauðadái með blást-
ursaðferð og sýnt þar jafnframt
kvikmynd.
Kl. 14.00 var sjómannamessa
og prédikaði sóknarpresturinn
séra Ámi Sigurðssón. Minntist
hann drukknaðra sjómanna og
lagður var blómsveigur á léiði
óþekkta sjómannsins í kirkju-
garðinum.
Kl. 16.00 hófst samkoma við
sundlaugina. Samkomuna setti
Ragnar Sigurðsson hafnarstjóri.
Ræðu dagsins flutti Magni
Kristjánsson stýrimaður. Síðan
fór fram sundkeppni og ýmis
skemmtiatriði. Lúðrasveit Nes-
"•kaupstnðar lék undir stjóm
Haraldar Guðmundssonar.
Mjeðal þeirra sem þátt tóku
í keppni dagsins voru skipverj- ’
ar af færeyska bátnum Hafern-
inum- Einnig kepptu varðskips-
menn af Þór við heimasjómenn
í knattspymu.
Veður var mjög óhagstætt er
hátíðahöldin fóru fram en þátt-
taka var þó mikil. Um kvöldið
var haldinn sjómannadánsleik-
ur í Egilsbúð.
Við guðsþjónustuna á sjó-
mannadaginn bar.st Norðfjarð-
arkirkju forkunnarfagur hökull
sem er gjöf frá Gísla , Berg-
sveinssyni útgerðanmanni og
konu hans Eileifu Jónsdóttur til
minningar um foreldra Gísla
þau Bergsvein Ásmundsson og
konu hans, Sigriði Gísladóttur,
en á þessu ári eru 100 ár frá
fæðingu Gísla og á næsta ári
eru 100 ár frá fæðingu Sigríð-
ar- Sóknarpresturinn þakkaði
, gjöfina " vir hönd safnaðarins.
ú RS
\