Þjóðviljinn - 11.06.1967, Page 1
Sunnudagur 11. júní 1967 — 32. árgangur — 129. tölublað.
Tvö blöð í dag - 8 og 10 síður -
Auglýsing um kosningaskrifstof
ur G-listans á 7. síðu aukablaðs
HVAÐ GERIST EFTIR KOSNINGAR?
Kosið um lífskjör launa-
manna og atvinnuðryggi
Alþingiskosningarnar hefjast kl. 9 í dag og
þeim lýkur kl. 11. Alþýðubandalagið skorar á
alla stuðningsmenn sína að kjósa snemma og taka
þátt í kosningastarfinu. Verkefnin eru mörg, og
úrslifin geta oltið á örfáum atkvæðum — á því
starfi sem stuðningsmenn G-listans leggja fram
í dag.
Kosningabaráttan hefur einkennzt af vaxandi
sókn Alþýðubandalagsins, fólkið sjálft hefur þeg-
ar sannað að það lætur ekki sundra samtökum
sínum á örlagastund, bjartsýni stuðningsmanna
G-lisfans hefur farið sívaxandi og þarf að birtast
í ötulu starfi í dag, sameiginlegu áhlaupi sem
leiðir til sigurs.
Kosið um lífskjör og atvinnuöryggi
Allir vita að eftir nokkra mánuði verður grip-
ið til stórfelldra efnahagsráðstafana, annaðhvort
nýrrar skattheimtu eða gengislækkunar — og á-
hrifin á kjör launafólks fara eftir styrk G-listans
í kosningunum í dag.
Þeim fyrirætlunum þurfa samtök launamanna
að svara með gagnsókn til þess að knýja fram þá
félagslegu nauðsyn að óskert heildarkaup fáist
fyrir dagvinnu eina saman.
f . ' V
Kosið um framtíð þjóðlegra
atvinnuvega
Allir útflutningsatvinnuvegir landsmanna eru
nú á opinberu framfæri, og heilar atvinnugreinar
hafa hrunið. Á sama tíma verða umsvif erlendra
atvinnurekenda stöðugt stórfelldari, líkt og gerist
í nýlendum og hálfnýlendum.
Stefna Alþýðubandalagsins er sú að efla þjóð-
lega atvinnuvegi með félagslegri stjórn og áætl-
unarbúskap í samræmi við íslenzkar aðstæður.
Aðeins með einbeitingu allra krafta getur hið ör-
smáa íslenzka þjóðfélag haldið sínum hlut i sam-
keppni við stærri þjóðir. \
Kosið um framtíð fslendinga í
landi sínu
I aldarfjórðung hefur ísland verið hersetið af
því stórveldi sem nú heyr hina grimmilegu of-
beldisstyrjöld í Víetnam. Áhrif stórveldisins hafa
orðið æ víðtækari á öllum sviðum, og nú sýna
rannsóknir að yngsta kynslóðin á svæði dátasjón-
varpsins er .tekin að læra ensku eins og móður-
mál sitt.
Alþýðubandalagið eitt beitir sér fyrir því að
fslendingar taki upp óháða utanríkisstefnu þegar
NATO-samningurinn fellur úr gildi 1969 og af-
létti niðurlægingu hernámsins. Gengi þess bar-
áttumáls veltur á fylgi G-listans.
Kosið um nútímastefnu í
þjóðfélagsmálum
Kenning stjórnarflokkanna hefur verið sú að
engin vandamál séu í þjóðfélaginu, allt sé al-
fullkomið. Þá staðhæfingu getur hver maður met-
ið samkvæmt sinni reynslu — og það með hvort
þeir flokkar sen\ ekki sjá nein vandamál séu lík-
legir til að leysa nokkurn vanda.
Alþýðubandalagið eitt boðar nútímastefnu í
þjóðmálum, þar sent beitt sé vísindum og tækni
nútímans til þess að styrkja efnahagsundirstöð-
ur þjóðfélagsins, efla menntakerfi þjóðarinnar,
félagslegt öryggi og viðunandi heilsugæzlu.
Málefnin ein eiga að skera úr
Hornsteinar Alþýðubandalagsins eru nú eins
og í öndverðu kjaramál launafólks og sjálfstæðis-
mál þjóðarinnar; á báðum þeim sviðum eru fram-
undan hinar örlagaríkustu ákvarðanir. Málefnin
ein eiga að skera úr, en gengi þeirra er háð sigri
G-listans. •
Til reykvískrar alþýðu — til allra
vina og samher ja!
Það er komið að lokahríðinni í kosningabaráttunni sem um
Ieið er úrslitastund í stéttabaráttu verkalýðs og allra launa-
manna og í þjóðfrelsisbaráttu íslendinga.
Gerið kosningarnar að fyrsta sigrii>um í þeirri hörðu kaup-
gjaldsbaráttu sem framundan er. fhaldið undirbýr gengislaekk-
un, nýja óðaverðbóigu og hyggur á skerðingu á félagsrétt-
indum launamanna, ef það þorir fyrir fólkinu, fyrir ykkur.
Leggizt öll á eitt með G-listanum og sýnið að þið látið ekki
sundra ykkur frekar en í verkfalli væri. Engin verkfalisbrot
í kosningabaráttunni!
Sameinizt öll um að hrekja á brott atvinnu-
leysisvofuna, sem gægist nú í gættina og get-
ur heltekið þjóðfélagið, ef stefna íhaldsins og
þjóna þess sigrar.
Munið að örlög íslands á næstu áratugum, brottför hers-
ins, úrsögn úr Nato, stöðvun á innrás erlends auðvalds, eru
undir því komin að hver og einn geri nú skyldu sína.
Sýnið afturhaldinu og þjónum þess — í hvaða
gervi sem þeir birtast — að sú fylking reyk-
vískrar alþýðu og þjóðfrelsissinna, sem mest
hefur mætt á í þrjátíu ára sameiginlegri bar-
áttu okkar fyrir rétti og gæfu alþýðunnar,
fyrir frelsi og friðhelgi íslands, verði ekki brot-
in á bak aftur nú frekar en fyrr, heldur sæki
einbeitt fram til úrslitasigurs.
Sendið Mágnús, Eðvarð og Jón Snorra sem
hina sterku fulltrúa reykvískrar verklýðs- og
þjóðfrelsishreyfingar alla inn á Alþingi íslend-
inga, kjördæma- og landskjörna.
Undir ötulli vinnu hvers eins í dag eru
úrslitin komin.
^ Fram til sigurs fyrir G-listann, fyrir al-
þýðuna og ísland
Einar Olgeirsson.
/