Þjóðviljinn - 15.06.1967, Page 1
I
Eimmtudagur 15. júní 1967 — 32. árgangur — 132. tölublað.
Menntaskólunum slitið:
Tæplega 4 hundruð
nýstúdentar ísumar
■ Um þessar mundir er veriö að segja upp menntaskól-
uram og útskrifast samtals 392 stúdentar að þessu sinni.
Menntaskólanum að Laugarvatni var sagf upp í gær, MR
og Verzlunarskólanum verður saet ur>o í dae oe MA á
laugardaginn, 17. júní.
800 ára Kaupmannahöfn
Gjöf Reykjavík- j
ur til Khafnar |
Eins og sagt er frá á ■
öðrum stað í blaðinu fara j
áðalhátíðahöldin til tilefni j
af 800 ára afmæli Kaup- ■
mannahafnar fram 14.—18. :
þ.m. og eru Geir Hall- j
grímsson borgarstj., Auður J
Auðuns forseti bogarstjóm- ■
ar, Einar Ágústsson og •
Guðmundur Vigfússon full- j
trúar Reykjavíkurborgar :
við hátíðahöldin. Þar mun J
borgarstjóri afhenda gjöf i
frá Reykj avíkurborg í til- j
efni af afmælinu og er það J
silfurvasi sá er sést hér á J
myndinni, en hann er 45 :
cm hár og smíðaður af Jó- j
hannesi Jóhannessyni.
Menntaskólanum í Rcykjavík
verður slitið í dag, fimmtudag-
inn 15. júní M. 2 eiftir hádegi.
Fer athöfnin fram i Háskóla-
bíói cg verður með liku sniði og
í fyrra; rektor flytur skólaslita-
ræðu, gamlir nemendur og dúx-
ar flytja ávörp og próifslkírteini
verða afhent.
Þessi árgangur er sá lang-
stærsti sem útslkrifazt hefur frá
MR, nýstúdentarnir verða 239
talsins. Næst þessu komst tala
útskrifaðra nemenda MR 1983, há
voru þ>eir 212.
Úr stærðfræðideild útskrifast
154, þar af 5 utansikóla og úr
máHadeild 85, þar af 2 utanskóla.
Verzlunarskóla Islands verður
einnig slitið f dag og hefst át-
höfnin í hátiðasal skólans kl. 2
e.h. Það er sama sagan þar; aldr-
ei hafa fleiri ndmendur útskrif-
azt úr lærdómsdeild VI. 35 stúd-
entar útskrifast í dag, þar af einn
utanskóla. Var í fyrsta skipti í
sögu Verzlunarskólans kennt í
tveimur deildum i 6. bekk í vet-
ur.
Er búizt við margmenni við
athöfnina í dag; aufc skóflastjóra
kennara, nemenda og aðstand-
enda verða viðstaddir fulltrúar
eldri árganga stúdenta og fuE-
trúar Verzlunarráðs sem munu
ávarpa samkomuna. .
Menntaskólanum á Akureyri
verður hinsvegar ekki slitið fyrr
en á laugardaginn 17. júní. Fer
athöfnin fram í kirkjunni á
staðnum og byrjar kl. 10,30 f.h.
Samkvæmt frásögn Steindórs
StÉindórssonar, sem er settur
skólameistari, gengu 106 undir
stúdentsprófi, en einn nemenda
gat ekk-i lokið prófum vegna
veikinda. Úr stærðfrasðideild út-
skrifast 55 og úr máHadeild 60.
Mun fleiri piltar eru í skólanum
en stúlkur, í ársbyrjun voru 6
stúlkur í stærðfræðideild' af 55,
en í máladeild 29 stúllkur cg 26
piltar.
Árgangurinn sem útskrifast á
laugardaginn frá MA er heldur
fémennari en sá í fyrra, þá voru
nýstúdentamir 108. fleiri ea
nokkru sinni fyrr.
Menntaskólanum á Laugavatni
var slitið í gærdag. Þaðan út-
skrifuðust 23 stúdentar, 9 'ir
máladeild og 14 úr stærðfræði-
deild. 5 stúlkur voru í hópi ný-
stúdentanna.
SamkVaemt upplýsingum sem
Framhald á 9. síðu.
L ppdráttur af hátíðasvæðinu.
Þjóðhátíðarnefnd kvíðin yfir umskiptunum
Aöalhátíöahöldin í Laugardal
■ Skipulagning þjóöhátíðar
í Reykjavík hefur heldur
betur tekið stakkaskiptum í
meðförum þjóðhátíðamefnd-
ar í ár og verður meginþungi
hátíðahaldanna í borginni
fluttur inn í Laugardal. Ætla
má að varla sjáist manns-
hræða á ferli í miðborginni
á þjóðhátfðardaginn, — eru
það mikil umskipti frá hefð-
bundnu sjónarmiði er ríkt
hefur frá lýðveldisstofnun.
Nær þrjátíu þúsund manns
hafa sótt hátíðahöldin í mið-
bænum síðustu árin og er
borgin raunar fyrir löngu
búin að sprengja öll mörk
til þess að nokkur hæfa sé
í því að stefna öllum hpss-
um mann-fjölda í riií
ina, þó að aðems væri skoð-
að í umferðarlegu tflliti. Þá
kosta hátíðahöldin um eina
miljón kr. af opinberu fé> ■—
formið var líka búið að
ganga sér tii húðar og orðið
drepleiðinlegt og er nú ætl-
unin að minnka þennan
kostnað sum árin og leggja
þess meira í hátíðahöldin á
tugafmælum.
. Framhald á 9. síðu.
TURNAR OG TURNSPIRUR hafa
löngum sett mlkinn svip á
borgina við Sundið, Kaup-
mannahöfn, en sérstæðust
allra þykir mörgum spíran á
turni Kauphallarinnar gegnt
Hólmsins kirkju, þar sem þau
Margrét ríkisarfi í Danmörku
og Hinrik prins af Frakk-
landi voru gefin saman í
hjónaband á dögunum sem
frægt er orðið. Fjórir eirdrek-
ar mynda turnspíruna, hálar
þeirra vindast saman upp i
mjóa totu. Annars er Kaup-
hallarbyggingin eitt fegursta
og sérkennilegasta hús í allri
Kaupmannahöfn; hún varreist
á stjórnarárum Kristjáns kon-
ungs f jórða (1588—1648) og er
enn miðstöð kauiphallarvið-
skiptanna í kðngsins Kaup-
mannahöfn.
VH) BIRTUM MVNDINA af
Kauphöltlnni hér í Þjóðvilj-
anum í dag til að minna með
fáum orðum á 800 ára afmæli
Kaupmannahafnar. Eins og
áður heíur verið rækilega rak-
ið hér í blaðinu er þessastór-
afmælis minnzt með margrvis-
legu móti á þcssu ári, en há-
tíðahöldin eru hvað stærst í
sniðum þessa vikuna og ná há-
marki í dag, 15. júní. Fjöl-
margir erlendir gestir eru við
afmælishátíðahöldin £ Khöfn,
m.a. fjórir fulitrúar Reykja-
víkurborgar, þau Geir Hall-
grímsson, borgarstjóri, Auður
Auðuns forseti borgarstjórnar,
Guðmundur Vigfússon borgar-
ráðsmaður og Einar Ágústs-
son borgarfulltrúi.
Alþýðubandalagið
í Hafnarfirði
heldur rabbfund í Góðtemplara-
húsinu uppi í kvöld, fimmtudag,
kl. 9. Félaear fjölrrrennið.
Itjórnin.
Lítil síldveiði var
eystra í fyrrinótt
■ Síðan klukkan átta í gærmorgun höfðu sex síldarbátar
tilkynnt afla til Síldarleitarirmar á Dalatanga og voru skip-
in á leið til lands, — flest þeinra landa á Raufarböfn enda
er stytzt þangað af miðunum, — ríflega þrjú hundruð míl-
ur norðaustur frá Langanesi.
■ Eru það þessir bátar: Ásgeir RE 290 tonn, G-uMJberg NS
170 tönn, Jörundur III. 200 tonn, Ámi Magnússon 175 tonn,
ætlaði að fara til Neskaupstaðar, Amar RE 200 tonn og
Vigri 140 tonn.
Síldarleitin á Dala* *an©a hó£ að ^
wiHimmiiHiimimiininiMiimiiiin
hlusta kiL atta 1 gærmorgun og •
Hitamóða frá
iðnaðarhéröðum
V-Evrópu
eru tveír menn búnrr að búaþar
um sig tíl sumaTsetn — Frið-
þjöffiur Gunnllaugsson frá Akur-
eyri og Friðþjöffiur Torfason frá
Reyfcjavík, — ganga þeir á vakt-
ir yfir sumarið, sagði Barði Barða-
son í viðtali við Þjóðivifljarm i
gærdaig, en hann var einmitt
staddur á Dalatanga í gær.
Sfldarleitm á Raufarlhöffin heffiur
starfsemi sína í nótt, saigði Barði.
Starfsmennimir þar eru komnir
norður, en þeir haffia verið að
setja upp loffitnetið fyrrr stöðira.
Mér finnst heldur illa horfa
sem stendur, sagði Barði, — sa'ld-
in er svo langt út f haffii á 69 td
70 gráðum n.br. og 4 till 5 gr.
og 30 mínútum v.l., — er stytzt
til Langaness um 300 mffilur frá
veiðisvæðinu.
Maður gerir sér vonir um, að
síidin færist nær upp úr 20. júní.
Þeir haffia aðeins veitt sfidma á
nsetuma og virðist hún þá hækka
sig í sjónum, — er hún óstöðug
þar og búmma margir, sagði
Barði.
Sumir eru bó komnir með um
100 faðma nætur á dýpt og ná
síldinni allt á 50 faðma dýpi, ert
að deginum virðist síldin halda
sig á 80 til 100 faðma dýpi og
virðist enginn ná henni þar að
vanum, sagði Barði að ldkum.
J 1 gænmorgun lá óvenju-
j lega miikil hltamóða yfir R-
j vík og nágrenni og sneri
■ Þjóóviljinn sér til veður-
j stofunnar til þess að fá
i skýringu á þessu fyrirbæri.
Jónas Jakobsson veður-
j fræðingur skýrði blaðinu
| svo frá að þessi móða væri
J ættuð frá iðnaðarhéruðum
Vestur-Evrópu, sérstaklega
Englandi og Fraikklandi og
■ hefði hún borizt hingað með
hlýjum vindum á tveimur
j dögum. Var í gær 13 stiga
: hiti hér í Reykjavík, en
allt upp í 18 stig sumsstað-
• ar á landinu, t.d. á Akur-
[ eyri og í Aðaldal.
Jónas bvað það stundum
koma fyrir að slík móða
J bærist hingað til lands frá
• meginlandi Evrópu og Bret-
] landi, en venjulega gætti
J • hennar meira fyrir austan,
t.d. í Skaftafellssýslum.
a