Þjóðviljinn - 15.06.1967, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 15.06.1967, Blaðsíða 8
▼ g SlÐA — ÞJÓÐVH«IINV — Fúaamtudagur lö. júm 1067. tt— Tilkynning um útboB Útboðslýsing á spennistöðvum, ásamt bún- aði, fyrir dreifikerfi Búrfellsvirkjunar í Þjórsá verður afhent væntaíilegum bjóð- endum að kostnaðarlausu á skrifstofu Landsvirkjunar eftir 20. júní n.k. Tilboða mun óskað í hönnun, framleiðslu og afhendingu á búnaði fyrir 220kV spenni- stöð vlð Búrfell; hönnun og framleiðslu á búnaði ásamt byggingu á 132kV og 220kV spennistöðvum við Geitháls ásamt viðbót við 132kV spennistöð við írafoss. Innifalið í útboðinu er ennfremur bygging spenni- stöðvarhúss við Geitháls ásaimt allri jarð- vmnu vegna stöðvanna. Tilboð í hluta af verkinu koma ekki til greina. Gert mun venða að skilyrði, að hver bjóð- andi sendí með tilboði sínu fullnægjandi upplýsingar um fjárhagslega og 'tæknilega hæfni sína til að standa til fullnustu við samninga. Tekið verður við innsigluðum tilboðum í skrifstofu Landsvirkjunar, Suðurlandsbraut 14, Reykjavík fram til kl. 14:00 þann 15. ágúst 1967. Reykjavík, 15. júní 1967. Bifreiðaeigentlur Þvoið, bónið og sprautið bílana ykkar sjálfir. Við sköpum aðstöðuna. Þvoum og bónum ef óskað er. Meðalbraut 18, Kópavogi. Simi 4-19-24. f é FLOGIÐ STRAX yy FARGJALD % GREITT SÍÐAR% MANMORK OG fA-ÞÝZKALANlT*!*, r 5.-26. júli. 1967. Verð kr. 13.500,(X). Fararstjóri: Magnús Magnússon, kennari. Ferðaáætlun: 5. júlí. Flogið til Kaupmannahafnar og dvalið þar til 8. júli. Farið með lest til Wame- munde og dvalið á Eystrasaltsviku til 17. júlí. L.agt aí stað í 9 daga ferð til Berlínar. Magdeburg, Erfurt. Leipzig. Dresden og Wittenberg og farið 25. júli með næturlest til Kaupmannahafnar og flogið 26. júlí til Reykjavíkur. Innifalið fullt fæði nema morgur.matur 1 Kaup- mannahöfn. flugfar. járnbrautir og langferðabílar. ieiðsögumaður. hótel. aðgangur að söfnum, dar.s- leikjum o.fl. Baðströrjd á Eystrasaltsvikunni. Ein ódýrasta ferð sumarsins. Þátttaka takmörkuð og þegar búið að panta í ferðina. Hafið samband við skrifstofuna sem fyrst. Aðeins örfáir miðar eftir. LAN DSy N 1 FERÐASKRIFSTOFA Laugavegi 54. SÍMl'22890 BOX 465 REYKJAVÍK Jmwzímííícmíímmííí'. 1 13.00 Eydís Eyþórsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.40 Valdimar Lárusson leik- ari les framhaldssöguna Kapítólu. 15.00 Miðdegisútvarp. Rita Hayworth, Frank Sinatra, Kim Novak, E. Ros og hljóm- sveit hans, Alexander, The Finnish Letkiss All-Stars, Brúðkaup • Þann 20. maí voru gefin saman í hjónaband í Neskirkju af séra Frank M. Halldórssyni ungfrú Anna Eyjólfsdóttir og Símon Hallsson. Heimili þeirra er að Rauðagerði 25. (Studio Guðmundar, Garðastræti 8, sími 20900). • • Þann 29. apríl voru gcfin saman í hjónaband í Kópavogs- kirkju af séra Gunnari Árna- syni ungfrú Hildigunnur Þórð- ardóttir og Finnbogi Höskulds- son. (Studio Guðmundar, Garðastræti 8, sími 20900). % • Þann 29. apríl voru gefin saman í hjónaband af séra Óskari J. Þorlákssyni ungfrú Jóhanna Sölfadóttir og Davíð Valgeirsson. Heimili þeirra er að Sólbergi, Eskifirði. (Studio Guðmundar, Garðastræti 8, sími 20900). Little Riehard, R. Orbison, Ferrante og Teicher Dg Pat Boone syngja og leika- 16.30 Síðdegisútvarp. Stefán Is- landi syngur. Danska út- varpshljómsveitin leikur Hin- ar 4 lyndiseinkunnir, sin- fóníu nr- 2 op. 16 eftir Oarl Nielsen; Th. Jensen stjórnar. Elsa Sigfúss, A. Schiötz og H. Nörgaard syngja Aperito mihi justitiae, óratoríuþátt eftir Buxtehude. Paul Tofte Hansen og N. V. Bentzon leika Sónötu fyrir enskt horn og píanó op. 71 eftir Bentzon. Frans Andersson, K. Schultz o. fl- syngja lög eftir Weyse. 17.45 Trtdráttur úr óperunni I Pagliacci eftir Leöncavallo. C. Bergonzi, J- Carlyle o. fl. syngja; H. von Karajan stj. 19.30 Daglegt mál. Á. Böðvars- son flytur þáttinn. 19.35 Efst á baugi. 20.05 Söngvar og dansar fjalla- bua í Þýzkalandi og Sviss- Flytjendur: Fahrnberger-syst- kinin, R. Bauer, M. Berger o. fl. söngvarar ásamt Rudi Knabi sítarleikara og hljóð- færaflokkum ýmiskonar. 20-30 Útvarpssagan: Reimleik- arnir : Heiðarbæ eftir Selmu Lagerlöf. 21.30 Heyrt og séð. Stefán Jónsson á ferð með hljóð- nemann á Hvanneyri. 22.35 Djassþáttur. Ólafur Step- hensen kynnir. 23.05 Fréttir í stuttu máli. Dagskrárlok. • Nýtt hefti af „Veðrinu"* • 1 nýjasta hefti af „Veðri iu“, tímariti Fóla-gs íslenzkra veður- íræðinga, er m.a. greinin „Not- kun vetnissamsætna við grunn- vatnsrannsóknir á lslandi“ eft- ir Brag-a Ámason efnafræðing hjá Raunvísindastofnun Há- skólans. Þá skrifar Knútur Kn-udsen veðurfræðingur, um haustið og vdurinn 1966—1967 og Mnrkús A. Einarsson. Uin<j> gaeði tveggja daga veðurspáa. Lofthiti yfir Reykjanesskaga nefnist grein eftir Jónas Jak- obsson, svo er þátturinn Ur ýmsum áttum og sitthvað fleira. Ritstjóm „Veðursins" skipa Jónas Jakobsson, Flosi H. Sig- urðsson, Páll Bergþórsson og Hlynur Sigtryggsson. • Minningabók • í tengslum við minnismerki sjómanna á Akranesi, sem af- hjúpað var á sjómannadaginn, 28. maí s.l., verður gerð bóic er geymi nöfn allra þeirrasjó- manna af Akrancsi og nágrenni, sem drukiknað hafa fyrr ogsíð- ar og vitað er um. Sikráð verða í bókina æviatriði þeirra með mynd af þeim, sem til eru og unnt verður að fá. Verður bók- in varðveitt á opinbenrm stað, henni samboðnum, þar sem al- menningi gofst kostur á aðskoða hana. — Nefnd minnismerkis sjómnnna á Akranesi, sem starf- að hefur undanfarin ár, ákvað á fundi fyrir nokkru, að halda hópinn um sinn, meðan unnið verður að þossari minningabók. Ilefur nefndin leitað til Ara Gíslasonar, fræðimanns á Akra- nesi, um aðstoð við samantekt bckarinnar, og mun hann vinna verkið að miklum hluta.. Það eru vinsamleg tilmæli ncfndarinnar tifl fólks, að það Ijái þessu máilí stuðning, m.a. mcð því að lána myndir til eft- irtöku af þeim, som bókin er helguð. Skráð verði nafn þess, sem myndin er af, á bakhlið hennar og upplýsingar, sem . hægt er að komn þar fyrir. Vinsaimlegast komið myndunum tií Ara Gíslasonar, Vesturgötu 138 (sími: 1627), eða sóknar- prestsins á Akranesi, séra Jóns M. Guðjónssonar. — Þeir, sém hafa í huga að gefa minningar- gjafir um látna sjómenn, geta snúið sér til sóknarprestsihs með þær. — Minnismerkisnefntl. • Gjafir • Á sjómannadaginn, 28,- mai, bárust gjafir í t.ilefni afhjúp- unar minnismerkis sjómanna á Akranesi, kr. 10 þúsund og kr. 7 þúsund frá tvennum hjónum á Akranesi til minningar u-m sjómenn, er gistu vota gröf, kr. 1 þúsund frá Magnúsi Kristófers- syni frá Götuhúsum á Akranesi. Þá afhenti Helgi S. Eyjólfsson, sem lengi hefur verið formað- ur Átthagaféiags Akránesinga í Reykjavík, mér sparisjóðsbórft með um 20 þús. kr. frá félögum áttihagafélagsins. — Átthagafé- lag Akurnesinga í Reykjavík hefur frá upphafi sýnt minn- jsmerkismáliiTu mikinn skiln- ing og stuðning og hefur átt tvo fuilltrúa í minnismerkis- nefndinni. Ræktarsemi félag- anna í þessu máli, og öðrum, er varða æskustöðvar þeirra hér efra, ber að bakka af al- hug. Vissulega hafa þeir verið mörgum ti'l fyrimiyndar. Þessu fé rmm verða varið til að kosta samantekt og umbún- að minningabókar um di-ukkn- aða sjómenn af Akranesi og ná- grenni. — Jón M. Guðjónsson. • 20 ára afmæli 5. júní s.l. varð MarshaVI-að stoðin svonefnda 20 ára en höf- undur hennar var sem kunnugt er George Marshall þáverandi utanríkisráðherra Bandaríkj- anna. Hefur ísilenzka ríkisstjórnin á- kveðið að minnast þessa afmæl- is með því að beita sór fýrir að 50.000 dollarar verði gefnir f sjóð þann sem kenndur er við Thor heitinn Thors sendiherra. Gjafaféð verði lagt fram af rík- issjóði og stoCnunum som sér- staklega nutu góðs af Marshall- aðstoðinni. Sjóðurinn var sitofn- aður 1965 að frumkvæði Ameri- can-Scandinavian Foundation í New York og hafa safnazt í hann nálega 50.000 dollarar. Með framangreindri gjöf verð- ur náð því marki sefn sett hef- ur verið til þess að sjóðurinn geti hafið styrkveitingar. (Úr frétt frá forsætisráðu- neytinu). • Prjónastofan Sólin sýnd úti á landi á næstunni • N.k. sunnudag, þann 18. þ.m. verður lagt upp í leikför áveg- um Þjóðleikhússins með leikrit Halldórs Laxness, Prjónastof- una Sóllina. Sýnt verður á 10 stöðum á Norður- og Austur- landi og verður fyrsta sýningin í. Ásbyrgi í Miðfirði. Þá verður sýnt á Blönduósi, Akureyri, Öl- afsfirði og Skjólbrekiku í Mý- vatnssveit. Þaðan verður haldið til Austfjarða og sýnt í hinum glæsilegu nýjai félagsheimihxm þar. Þetta verður alilfjöOmenn leik- för, og þar sem leiksviðsútbún- aður er allfyrirferðarmikill i þessu leikriti verður farið í tveimur bifreiðum og taka 21 leikari og tæknimenn á leik- sviði þátt í þessari leikför Þjóð- leikhússins. Þetta er í fyrsta sinn, sein Þjóðlei'khúsið sendir leikrit eft- ir Halldór Laxness í lei'kferð út á land og er nú orðið all- langt síðan Þjóðleikhúsið hefur' sent jafn fjöilmennan leikfjokjc í leikför. Hlutverkaskipan er óbreytt frá því, sem var þegar Heikríl- ið var sýnt í Þjóðleikhúsinu, að öðru leyti en því að Guðbjörg Þorbjamardóttir leikur nú hlut- verk Sólborgar prjónakonu, í stað Helgu Valtýsdóttur, sem lék það, er leikurinn var sýnd- ur í Þjóðleikhúsinu. Leikstjóri er Baldvin Halldörsson, en far- arstjóri verður Klemenz Jóns- son. — Myndin er af höfundi. ÚTBÖÐ Tilboð óskast í að selja stálþil og tilheyr- andi tengihluti til bryggjugérðar við Ár- túnshöfða hér í borg. — Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR VONARSTRÆTI 8 - SÍMI 18800 Rakarastofur borgarinnar verða lokaðar frá kl. 1—4 vegna jarðarfarar FRIÐÞJÓFS ÓSKARSSONAR hárskerameistara. Meistarafélag hárskera. Terylene buxur og gallabuxur 1 öllum stærðum. — Póstsendum Athugiö okkar lága verð. Ó.L. Traðarkotssundi 3 (móti Þjóðleikhúsinu) — Simi 23169. i i i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.