Þjóðviljinn - 23.06.1967, Blaðsíða 1
Willy Brandt kem-
ur til íslands í dag
................... ...................*/'\
Willy Brandt utanríkisráðhcrra
1 dag kemur hingað í heim-
sókn til íslands utanríkisráðherra
og varakanzlari Vestur-Þýzka-
Iands WiIIy Brandt. Er flugvél
ráðherrans væntanleg til Kefla-
víkurflugvallar kl. 17.10, en hing-
að kemur hann frá Stokkhólmi.
Wil'ly Brandt er faeddur í Lii-
beck 18. desember 1918. Hann er
kvæntur norskri konu, Rut, f.
Hartsen, og eiga þau þrjá syni og
eina dóttur. Árið 1933 fluttist
Brandt til Norðurlanda og lagði
Stund á sögu og heimspeki við
Oslóarháskóla, en á stríðsárunum
tók hann þátt í andspyrnuhreyf-
ingunni gegn nazistum og vann
wMarz“ tekinn
í landhelgi
Togarinn Marz RE var tekinn
í gærmorgun að meintum ólög-
legum togveiðum í landhelgi
austur af Hvalsnesi. Var togar-
inn um 1,8 mílu innan við leyfða
fiskveiðitakmörkun á þessum
sióðum, sem eru 6 míiur.
Varðskipið Óðinn tók togar-
ann í landhelgi. Skipherra Þór-
arinn Björnsson. Fariö var með
togarann til Neskaupstaðar, þar
sem mál skipstjórans verður tek-
ið fyrir. Skipin komu til Nes-
kawpstaðar síðdegis í gær.
sem blaðamaður, fyrst i Noregi
og síðan í Svíþjóð fram til 1945.
Eftir strið fluttist Willy Brandt
aftur til Þýzkalands, hélt áfram
blaðamennsku og var um tíma
ritstjóri Berliner Stadtblatt. Ár-
in 1949—1957 var hann þingmað-
ur og gegndi ýmsum ábyrgðar-
störfum fyrir sósíaldemókrata, en
frá 1957 var Willily Brandt borg-
arstjóri Vestur-Berlínar og þvi
starfi gegndi hann þar' tii í des.
1966 að hann varð utanríkisráð-
herra og varakanzlari.
Hér verður Willy Brandt fram
á sunnudaigsmorgun og eru í för
með honum eiginkona hans, ráðu-
neytisstjóri vestur-þýzka utanrík-
isróðuneytisins, vestur-þýzkir
fréttamenn og fleiri.
1 kvöld mun Willy Brandt sitja
Framhald á 7. síðu.
Karlakór Reykjavíkur farinn til Montreal
Síðdegis í gaer Iagði Karlakór Reykjavíkur af stað til Montreal í Kanada með þotu Pan American
flugfélagsins og mun kórinn syngja tvivegis á heimssýningunpi og e.t.v. einu sinni að auki en ferðin
mun standa í viku. I hópnum eru alls 40 manns. Söngstjóri er Páll Pampichler Pálsson en <finsöngv-
arar verða Svala Nielsen, Sigurður Björnsson og Friðbjörn Jónsson. Undirlcikari er Guðrún Kristins-
dóttir. Formaður Karlakórs Reykjavíkur er Jón Hallsson sparisjóðsstjóri. Myndin er tekin við Hótel
Loftleiðir í gær er kórinn var að leggja upp I ferð irta. — (Ljósm.Þjóðv- A. K.).
Samdráttur i atvinnulifinu
Þúsundir vinnuiausra unglinga
□ Nær átta þúsund skólanemendur úr skólum
í Reykjavík og Kópavogi eru nú komnir á vinnu-
markaðinn og er fróðlegt að huga að vinnumögu-
leikum fyrir þetta unga fólk þessa dagana og
hvemig því hefur reitt af síðan það kom úr skól-
unum.
□ Hér er um að ræða skólafólk á aldrinum frá
sextán til tvítugs, en fjórtán og fimmtán ára ald-
urinn kemur yfirleitt ekki til greina.
Við höfðum 'samband í gær-
dag við Þorlák Jónsson Vinnu-
miðiun Rvíkurborgar og kvað hann
langan biðlista hjá þeim með
skóBafólki og ekki væri viðlit að
koma öllu þessu fólki í vinnu.
Byggingarvinna hefur verið í
lægðinni að undanfömu og tek-
ur aðetns við takmörkuðum
fjölda af vinnufúsum höndum.
Þá er fyrir löngu orðið yfirfullt
hjá bæjarfllokkunum og þannig
Skemmtun G-listans
er í Sigtúni í kvöld
Magnús Kjartausson
■ í kvöld kl. 9 efnir kosn-
ingastjóm Alþýðubandalags-
ins í ReykSjavík til kvöld-
skemmtunar í Sigtúni fyrir
starfsfólk G-listans við al-
bingiskosninigamar 11. júní
sl.
Dagskrá:
Magnús Kjartansson
flytur stutta ræðu.
Karl Einarsson
flytur skemmtiþátt.
Dansað til kl. 2 e.m.
mætti greiTía frá um
vinnu hér í boriginni.
alla úti-
Langir Mðlistar.
Þá náðum við líka sambandl
Við frú Jórunni ísleifsdóttur, en
hún svaraði fyrir svonefnda
kvennadeild hjé stofnunirmi og
varð Ihenni einikum tíðræitt um
skólastúlkur á aldrinum 14 til
15 ára og kvað langan biðlista
vera hjá stofnuninni yfir þær.
Þá hefur verið meira framlboð á
húsmæðrum en hingað tii. er
b jóðast til þess að vinna að heim-
ilisaðstoð á öðrum heimilum.
Þá hefur Þjóðviljinn kannað á-
standið hjá ýmsum fyrirtækjum
hér í borginni og allstaðar er
sama sagan, — langir biðttistar af
skóiaunglingum, — er bíða eftir
því að líomast í vinnu hjá við-
komandi fýrirtækjum. Þannig er
hjá fyrirtækjum eins og Loft-
orku og Oki og hjá Sveini Skapta-
syni í Kópavogi.
Þannig er einnig hjá Lands-
símanum, Rafmagnsveitu rikis-
ins og Rafmagnsveitu borgar-
innar og mörgum verktökum. Hjá
Mjólkurstöðihni voru áttatíu og
fimm skólastúlfcur á biðlista til
þess að komast í brauð- og mjólk-
urbúðirnar hér í bænum.
Lengstu biðlistarnir eru þólík-
lega hjá Búrfellsvirkjun og Ailú-
mínverksmiðjunni við Straums
vik, gætti þess nokkuð á dögun-
um, að útlendir piltar væru
komnir banpað í vinnu, — svo-
nefndir vagabonds eða vegabónd-
ar, — hefur Verkamannafélagið
Hlíf í Hafnarfirði láitið þetta til
sín taka og farið fram á stöðvun
á þessari útlendingavinnu.
Þá segir Pétur Kristjánsson hjá
Bæjarútgerð Hafnarf jarðar, að
svona mikið framboð af skóla-
stúlkum og skólapiltum hafi ekki
verið í mörg ár og vitnar þartil
biölistanna, — sömu sögu er- að
segja úr frystihúsunum hér í R-
vfk.
Margt af þessu skólafóllki hef-
ur mænt vonaraugum austur og
norður til sfldarstaðanna, — efcki
tekur þar betra við, — langir
biðlistar hjé síldarverksmiðjunum
og sennilega verður ekki söltuð
síild fyrr en i ágúst ef að Iífcum
lætur og veld-ur það mörgum bú-
sifjum.
Margir nemendur í Tæfcniskól-
anum og Véllskólanum ganga nú
um atvinnulausir, — eru það yf-
irleitt útlærðir sveinar í jám-
sma'ði eða nemar enda er flest-
um kunnur verkefnaskorturinn
hjá smiðjunum hér.
Ekki er fjarri lagi. að .annar
hver skólaunglingur gangi œnat-
vinnuiaus hér í borginni þessa
dagana, og er það mikið efna-
hagslegt áfall fyrir mörg reyfcvisk
heimili, — enginn vafi er á því,
að slíkt ástand til langframa tak-
markar menntunarmöguleika
unga fólksins.
í sumar verður hafizt
handa um einhverjar mestu
vegaframkvæmdir sem ráð-
izt hef-ur verið í hér á landi,
en það er lagning nýs Hafn-
arfjarðarvegar í gegnum
Kópavog. Hefur Verkfræði-
skrifstofa Stefáns Ólafssonar
unnið að undirbúningi verks-
ins nú í um það bil ár og
hefur hún lofað að skila í
bessum mánuði útboðslýs-
ingu af fyrsta hluta verksins
sem byrjað verður á að
vínna í sumar.
Þessar upplýsingar fékk Þjóð-
viljinn í gær hjá Hjá'lmari Óttafs-
syni bæjarstjóra Kópavogs, en
Kópavogskaupstaður sér um
framkvæmd verksins samkvæmt
samningi við rikið og hefur bæj-
arstjómin nýverið kosið sérstaka
framfcvæmdanefnd til að annast
það og er hún skipuð eftirtöld-
um bæjarfulltrúum: Sigurði
Grétari Guðmundssyni, sem er
formaður, Bimi Einarssyni, Sig-
urði Helgasyni og Ásgeiri Jó-
hannessyni.
Samningar rikisins og Kópa-
vogskaupstaðar um framkvæmd
verksins var gerður í fyrravor og
var þá Verkfræðiskrifstofu Stef-
áns Ölafssonar falið að annast
undirbúning að útboði verksins.
Hefur sá undirbúningur staðið
lengur yfir en í upphafi var ætl-
að enda íslenzikir verfcfræðingar
óvanir að glíma við sivo umfangs-
mikið verkefni.
Er áætlun var gerð um kostn-
að við þessa framkvæmd fyrir
um það bii tveim árum var tal-
ið að verkið ailt myndi kosta úm
70 miljónir króna. Af hállfu
Kópavogskaupstaðar verður varið
til verksins öllum hluta kaup-
staðarins af bénzínskatti fram til
ársins 1970 og nökkrum hluta árin
1970-1973. Ríkið leggur hins veg-
ar til verksins 3/4 hluta af svo-
nefndum 10*Vo sjóði (þ.e. þeim
Muta benzínskattsins sem sam-
göngumálaráðherra hefur til ráð-
stöfunar) fram til ársins 1970 en
eftir það ^engur allur 10% sjóð-
urinn til greiðslu á lánum til
verksins sem rikið hefur lofað að
útvega, þvtf ætlunin er að ljúka
Framhald á 7. síðu.
Þrír Suður-Vietnambúar í heimsókn hér:
Kynna sjónarmiB Þjóðfrelsishreyfíngar-
innar á opinberum fundi á þriðjudaginn
Laugardaginn 24. þ.m. munu
koma hingað til lands frá
Kaupmannahöfn þrír Suður-
Vietnamar, tveir karlmenn og
ein kona. Fólk þetta er frá
Þ jóðf relsishreyf i ngu nn i (FLN)
Vietnam og er á ferð um
Norðuriönd til fyrirlestrar-
halds.
Alþjóðasamband lýðræðis-
sinnaðrar æsku (World Federa-
tion of Democratic Youth)
hefur skipulagt þessa Norður-
landaferð í samráði við að-
ildarfélög sín og Vietnam-
nefndirnar á Norðurlöndum.
Aðildarfélag ailþjóðasambands-
ins hér á landi, Æskulýðs-
fylkingin, fékk boð um að
þessir þrír fulltrúar frá Þjóð-
frelsishreyfingunni gætu haft
viðdvöil á íslandi ef óskað
væri. Æskulýðsfylkingin fram-
vtfsaði boði þessu tiil stjómar
„Hinnar íslenzku Vietnam-
nefndar" er samþykkti að
veita sendinefndinni viðtöku
og stkipuleggja dvöl hennar
hér á landi.
Nefndin hefur m.a. áformað
að bjóða fréttamönnum blaða
og útvarps að ræða við Suð-
ur-Vietnamana fljótlega eftir
hingaðkomu þeirra og fyrir-
hugað er að efna til opinbers
fundar í einhverju samkomu-
húsanna í Reyfcjavík n. k.
þriðjudagskvöld, þar sem al-
menningi mun gefast kostur á
því að • kynna sér sjón-
armið Þjóðfrelsishreyfingar-
innar varðandi styrjöldina í
Vietnam.
Allur kostnaður, sem dvöl
Suður-Vietnamanna á íslandi
hefur í för með sér, verður
greiddur af „Hinni íslenzku
V ietnamnefnd“.
Nefndin villl leggja áherzlu
á, að heimsókn þessara þriggja
fulltrúa Þjóðfrelsishreyfingar-
innar hingað til lands á veg-
um nefndarinnar er einn þétt-
ur þess upplýsinga- og kynn-
ingarstarfs um Vietnammálið
er ,,Hin fslenzka Vietnam-
nefnd“ hyggst beiita sér fyrir.
Sjónarmið þau og skoðanir
sem fram I oma á fundum og í
fréttaviðtölum við sendinefnd
þessa kynna afstöðu Þjóð-
frelsisfyikingarinnar til átak-
anna í Vietnam en lýsa ekki
sameiginlegu áliti og mati
þeirra félaga og einstakiinga
sem að „Hinni fslenzku Viet-
namnefnd" standa.
Nefndin mun í framtíðmni
kappkosta að kynna Vietnam-
máilið frá sem flestum hlfðum
og miðast starfsemi nefndar-
innar við það að vekja al-
mennar umræður á Islandi um
mál þetta sem kyrmu að leiða
til þe&j að íslenzka þjóðin
óskaði og gæti lagt sitt af
mörkum á alþjóðlegum vett-
vangl til þess að tryggja í-
búum þessa styrjaldarhrjáða
lands frið og frelsi.
(Frá Hlnni ísl. Vietnamnefnd).
Föstudagur 23. júní 1967 — 32. árgangur1— 137. tölublað.
Lagning HafnarfjarSarvegar um Kópavog:
Einhver mesta vegafram-
kvæmd sem um getur hér