Þjóðviljinn - 07.07.1967, Side 5
Pöstudagur 7. júli 1967 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA g
Fáein kveSjuorS
Albert Guðmundsson
kaupfélagsst'ióri
1 dag verður gerð útför Al-
berts Guðmundssonar, kaupfé-
lagsstjóra á Sveinseyri, en hann
lézt í Tromsö í Noregi 24. júní
s. 1. Hafði Albert dvalið um
vikutíma í Harstad til að
fylgjast með smíði tveggja
fiskiskipa og var hann á heim-
leið, er hann varð bráðkvaddur
í Tinmsö-
Það var á margan hátt tákn-
rænt fyrir líf og starf Alberts
Guðmundssonar að fráfall hans
skyldi bera að með bessum
haetti. Hann var mikill fram-
taksmaður og dugnaðarforkur,
og helgaði krafta sína ævina
alla heimabyggð sinni og hafði
bar forustu um mikla gjör-
byltingu síðustu tvo áratugina.
Síðasta ferðin var farin í beim
sama tilgangi.
Albert fæddist að Sveinseyri
í Tálknafirði 5. nóv. 1909- For-
eldrar hans voru sæmdarhjón-
in Guðmundur S. Jónsson,
bóndi og kaupfélagsstjóri og
Guðríður Guðmundsdóttir frá
Skeiði f Selárdal. Bjuggu bau
hjón lengi á Sveinseyri og jafn-
framt stjómaði Guðmundur
kaupfélagi sveitunga sinna af
dugnaði og reglusemi. Albert
lauk prófi frá Samvinnuskól-
anum 1931 og hóf bá störf við
Kaupfélag Tálknafjarðar en
varð kaupfélagsstjóri 193B.
Þegar frá eru skilin veikindi
síðasta áratuginn og mjög tæp
heilsa síðustu árin verður ekki
annað sagt en Albert Guð-
mundsson hafi verið mikill
hamingjumaður í lífi sínu og
starfi. Hann átti ágæta for-
eldra og ólst upp á myndar-
heimili sem hafði á sér mikinn
menningarbrag. Fo^eldrar hans
voru mannkosta- og dugnaðar-
manneskjur. Faðir hans, Guð-
mundur á Sveinseyri, var ó-
óumdeildur héraðshöfðingi
Tálknfirðinga, félagshyggju-
maður og ágætur samvinnu-
frömuður. Móðir hans var
merk og dugmikil húsmóðir og
voru bau hjón samhent í rausn
og starfi. Sveinseyri var sjálf-
kjörin miðstöð héraðsins, enda
bannig í sveit sett. Þar var
kaupfélagið, skóli og sundlaug.
Mikið var bví um gestakomur
og dvalir á Sveinseyri og býl-
unum í næsta nágrenni við
bessa miðstöð héraðsins.
Aðstæður allar og áhrif upp-
eldisins hlutu að gera Albert
Guðmundsspn að framsæknum
félagshyggjumanni, enda varð
bað svo. Hann hneigðist ungur
að sósíalisma og verkalýðs-
hreyfingu- Meðfædd réttlætis-
kennd og sterk brá til b.ióð-
félagsumbóta hlaut að beina
huga hans og athöfnum á
bessar brautir. Ungi kaupfé-
lagsstjórinn á Sveinseyri varð
boðberi og brautryðjandi sósíal-
iskra skoðana i heimabyggö
sinni og jafnframt stoð og stytta
ungs og lítt reynds verkalýðs-
félags, sem var að stíga fyrstu
skrefin á braut samningsréttar
og kjarabaráttu,
Albert var oft í kjöri til
Albingis fyrir Sósíalistaflokk-
inn í Barðastrandarsýslu mcð-
an sýslan var sérstakt kjör-
dæmi. Varð honum vel ágengt
um fylgi miðað við aðstæður
og jók bað við hverjar kosn-
ingar. Munu svcitungar hans
ekki sízt hafa veitt honum
öflugt brautargengi enda bekktu
beir bezt hæfileika hans og
mannkosti. Heima fyrir gegndi
hann margvíslegum trúnaðar-
störfum, sat t. d. lengi í hrepps-
nefnd og sýslunefnd og odd-
viti Tálknafjarðarhrepps var
hann frá 1953. öllum trúnaðar-
störfum gegndi Albert af lip-
urð og trúmennsku og ávann
sér í beim almenna viðurkenn-
ingu, jafnt samherja sem beirra
er á öðru máli voru.
Á uppvaxtarárum Albérts
Guðmundssonar var Tálkna-
fjörður tiltölulega rólegt byggð-
arlag og ekki með miklum um-
svifum í atvinnulegu tilliti-
Bændurnir bjuggu á jörðum
sínum báðum megin fjarðar,
sumir með þokkaleg bú og
aðrir minni. Útgerðarstöðin á
Suðureyri var bá löngu úr sög-
unni og arður búanna var nær
eina lífsframfæri hreppsbúa. Þ<5
hafði betta vestfirzka byggðar-
lag jafnan á sér brag eftirtekt-
arverðrar snyrtimennsku og
menningarviðleitni. Þar var
snemma byggt skólahús og
myndarleg sundlaug. Ekki að-
eins böm Tálknfirðinga sjálfra
heldur pg börn úr nálægum
sveitarfélögum nutu góðs af
framtaki og menningarvið-
leitni Táiknfirðinga í bessu efni.
Sjálfur stýrði Albert sundnám-
skeiðunum um árabil.
Þegar alda brottflutninganna
úr sveitum landsins til sjávar-
síðunnar reis sem hæst urðu
margar sveitir fyrir bungum
búsifjum. Albert Guðmundsson
kom fljótt auga á hvað bessi
jyungi straumur ' vddi fyrir bað
byggðarlag sem hafði fóstrað
hann og h^nn hafði ákveðið
að helga lífsstarf sitt og krafta.
Hann sá fyrir sér eydda byggð
og ískyggilegt fámenni, yrði
ekki að gert. Þessa bróun gat
Albert ekki hugsað sér án bess
að snúast til varnar til bjargar
hyggðinni og framtíð hennar.
Hann vildi ekki sjá Tálknafjörð
eyddan og mannlausan eða svo
mannfáan að sveitarfélagíð
væri vanmegnugt og lámað.
Albert brást hér við af dugnaði
og karlmennsku og skildi vel
að sóknin var bezta vörnin.
Munu athafnir hans og forusta
í atvinnumálum Tálknfirðinga
síðustu tuttugu árin lengi halda
nafni hans á lofti og byggðin
bar lengi að beirri forgöngu
búa.
Viðbrögð Alberts á bessum
viðsjárverðu tímum urðu bau
að hafa forgöngu um að byggja
upp atvinnulíf í Tálknafirði
og tryggja bannig fólkinu vinnu
og öryggi árið um kring. Hann
gerðist aðalforgöngumaður að
stofnun Hraðfrystihúss Tálkna-
fjarðar 1945. Byggði bað mynd-
arlegt frystihús og í kjölfarið
fylgdu kaup á nýtízku fiski-
skipum til hráefnisöflunar.
Einnig var ráðizt í bryggju-
gerð í sambandi við hraðfrysti-
húsið og útgerðina. Var Albert
framkvæmdastjóri hraðfrysti-
hússins og útgerðarinnar frá
upphafi og til dauðadags.
Þessar aðgerðir Alberts Guð-
mundssonar gjörbreyttu öllum
viðhorfum í Tálknafirði. I
kringum hraðfrystihúsið og út-
gerðina tók fljótt að rísa bétt-
býli, svokallað Tunguþorp-
Tunguborp hefur risið með
jafnri bróun á bessum tuttugu
árum og bar hefur ekki ein-
ungis ungt fóllc úr Tálkna-
firði staðnæmzt og tekið sér
bólfestu heldur Dg úr öðrum
byggðarlögum. Það hefur ekki
farið fram hjá neinum að
Tálknafjörður hefur verið einn
mesti uppgangsstaður á Vest-
fjörðum og bótt víðar væri
til jafnað á bessu tímabili.
Afkoma fólks hefur bar verið
með bví bezta sem gerist. Kjark-
ur og dugnaður Alberts Guð-
mundssonar hefur ekki aðein*
bjargað byggðinni. Honum
tókst að snúa erfiðri vöm í
sókn, sem hefur fært fólkinu
bætt lífskjör og öryggi og trú
á sína heimabyggð og mögu-
leika hennar. Atvinnutækin á
Sveinséyri og hið myndarlega
þorp í Tungu er öruggasti vitn-
isburðurinn um hve forusta og
framsýni Alberts Guðmunds-
sonar gafst Tálknfirðingum
vel.
Engum sem til bekkir, og
bá sízt Tálknfirðingum, barf
að segja hvílíku áfalli bað
byggðarlag verður fyrir við frá-
fall Alberts Guðmundssonar á
ágætum starfsaldri. Sú von
hlýtur þó að vaka að maður
komi manns í stað og að merki
hans verði haldið uppi. Albert
Albert Guðmundsson
hefur með lífi sínu og starfi
lagt grundvöll sem auðveldara
er fyrir sveitunga hans og aðra
samstarfsmenn að byggja á í
framtíðinni. Honum tókst að
vinna verk sem mörgum heíðu
sýnzt óvinnandi. Og þó var
enginn asi á honum eða fýrir-
gangur. Eitt helzta einkenni
hans var hógværð og prúð-
mennska, sem aldrei brást þótt
við örðug verkefni væri að fást
og ekki alltaf og allstaðar skiln-
ingi að mæta. En hann átti
sterka og óbifanlegatrúámögu-
leika heimabyggðar sinnar til
þess að færa fólkinu þar öryggi
og hamingju í lífi og starfi
og hann var sjálfur bjarg sem
aldrei bifaðist þótt á móti
blési.
Albert Guðmundsson var
kvæntur Steinunni Finnboga-
dóttur Dg eiga þau einn son og
fósturdóttur. Heimili þeirra var
að Eyrarhúsum, rétt innan við
Sveinseyri, og í landi þeirrar
jarðar- Ég læt þessum fátæk-
legu kveðjuorðum lokið með því
að votta þeim og öðrum vanda-
mönnum Alberts Guðmunds-
sonar innilega samúð. Missir
þeirra er mikill en huggun er
það harmi gegn að minning
góðs drengs og mikilhæfs for-
ustumanns lifir í hugum ást-
vina og samferðamanna og í
þeim verkum sem honum auðn-
aðist að vinna meðan dagur
entist.
Guftmundur VÍKfússon.
★
í dag er til mdldar borinnað
Stóra-Laugardalskirkju, Albert
Guðmundsson frá Eyrarhúsum i
Tálknafirði. Hann var sonur
merkishjónanna Guðmundar
Jónssonar bónda og kaupfólags-
stjóra að Sveinseyri, sem lézt
1954 og Guðríðar Guðmunds-
dóttur frá Selárdal í Arnarfirði,
sem iézt háöldi*uð í sjúkradeild
Hrafnistu 4. þ.m. og fylgjast
þau að til hinztu hvíldar. Al-
bert var eitt af sjö börnum
þeirra hjóna, fæddur 5.11.1909
á Sveinseyri. Með honum er
Mlinn frá stórvirfcur og fram-
sýnn athafnamaður. Árið 1938
giftist hann eftirlifandi konu
sinni, Steinunni Finnbogadótt-
ur, Finnboga Guðmundssonar
frá Krossadal cg Helgu Guð-
mundsdóttur konu hans. Þau
eiga fósturdóttur, Ölöfu Ester
Karlsdóttur, sem er gift Braga
Friðrikssyni, rafvirkja í Rvík,
og Vilhjálm Auðun, sem er i
foreld rahúsu m. Árið 1929 fór
Albert í Samvinnusktóilann. Eft-
ir að námi iauk, starfaði hann
við Kaupfélag Tálknafjarðar
hjá föður sínum, ásamt öðrum
störfum, og árið 1938 tók hann
við stjóm þess og var kaupfé-
iagsstjóri til æviloika.
Er heimsstyrjöldin geisaði
'og lífsskilyrði fóru að
breytast hér á landi með
breyttum atvinnuháttum varð
Al.bert það fljótlega ljóst,
að atvinnuskilyrði í Tálkna-
íirði yrðu að breytast, ef fólkið
ætti ekki að þurfa að flytjast
burtu þaðan. Gckkst hann þá
fyrir því, ásamt fleirum, að
efnt var til stofnunar hlutafé-
lags, sem nefnt var Hraðfrysti-
hús Tálknafjarðar. 1 Tálkna-
firði var ekki annað fyrir en
vinnufúsar hendur, allt varð að
reisa frá grunni. Var fyrst haí-
izt handa um byggingu hrað-
frystihúss ásamt bryggju og
keyptur var einn bátur, 28
brúttólesta. Þegar komin voru
skilyrði til afsetningar á fisk-
inum, keyptu nokkrir fram-
takssamir menn annan bát af
svipaðri stærð. Var þetta iátið
duga fyrst í stað, en þegar
byrjað var á uppbyggingu báta-
flotans, stóð efcki á Albert að
fylgjast með. Árið 1956 kom nýr
66 brúttólesta bátur, 1957 75
lesta bátur, 1960 100 lesta bát-
ur og 1962 150 1. bátur. Árið 1957
varð það óhapp, að Hraðfrysti-
húsið brann. Var þá annað
byggt mikilu stærra og fullkomn-
ara. Á þessum árum var
bryggjan stækkuð svo, að öll
flutningaskip geta nú lagzt að
henni. Alls konar byggingar-
framkvæmdir voru gerðar sem
við kom svona rekstri, ásamt í-
búðarhúsabyggingum, svo að nú
er lagður að því grundvöllur að
þarna rísi upp myndarlegt þorp.
Aliar þessar framkvæmdir
hvílldu að segja má éirigöngu á
herðum Aiberts og má nærri geta,
að til hafi þurft þrauiseigju og
festu ásamt framsýni, þar sem
í hlut átti, í það minnsta íyrst
í stað fátækt sveitarfélag, en
Alibert tókst með sínum traust-
vekjandi eiginleikum, að afla
sér góðra stuðningsmanna. Árið
1960 veiktist hann af mjög
slæmum sjúkdómi. svo að sáð-
an gekk hann aldrei heill til
skógar og hefur nú dregið að
því sem verða vildi. öll hans
star&orka, allt fram á síðustu
stund hefur farið í að vinna að
framgangi Tálknafjarðar. Nú
síðast var staðið í ekiki hvað
minnstu átaki þar. Samið hefur
verið um smíði tveggja nýrra
fiskiskipa af fullkomnustu gerð
og nú er yfir lauk var Albert
staddur úti í Harstad í Noregi
að ganga frá síðustu atriðum
þeirra samninga.
Auk þess sem hér er drepið
á, hefur hann ávallt gegnt alls
konar störfum fyrir hreppsfélag
sitt og sýsluna. Tálknfirðingar
missa mikið, því svo annt lót
hann sér um hag Tálknafjarð-
ar, að vart mun ofsagt að með
Albert hafi þeir misst sinn Jón
Sigurðsson. En engum mun
missirinn sárari né þungbærari
en eiginkonunni, börnunum,
systkinunum og nánustu ætt-
ingjum. Þeim öllum til handa
bið ég Guð um styrk og bið þau
og aðra, sem mikið hafa misst
að muna að sliíkur maður sem
Albert mun lifa í verku sín-
um.
Þig, mágur, kveð ég með
söknuði og bið þér og móður
þinni góðrar ferðar til sólar-
landsins. Bllessuð sé minning
ykkar.
Andrcs Finnbogason.
Margan setti hljóðan við þá
harmafregn frá Noregi.
Albert dáinn.
Hann hafði að vísu átt við
vanheilsu að stríða síðasta ára-
tuginn, en kannski af því að
hann kunni ekki að hlífa sér
og var alltaf jafn lifandi og á-
hugasamur í starfi sínu, kom
þetta á óvart, — kom eins og
reiðarslag.
Kynni mín af Albert Guð-
mundssyni hófust þegar ég,
þá fimm ára gömul, var send
í sveit til hans á Sveinseyri
í fyrsta sinn. Ekkert þekkti ég
fólkið sem ég var að fara til,
en ég hændist mjög fljótt að
þeim Steinu og Alberti og vildi
helzt ekki fara aftur heim til
Reykjavíkur um haustið. Eftir
]>etta var ég hjá þeim hvert
sumar fram að íermingu og
gat aldrei komizt nógu snemma
vestur á vorin, að mér fannst,
né dvalizt nógu lengi frameft-
ir á haustin.
Albert var einstaklega barn-
góður maður, enda hændust öll
börn að honum, — og aldrei
man ég styggðaryrði af hans
munni. Það hefur áreiðanlega
verið þeim hjónum mikill
harmur að þeim skyldi ekki
auðnast að eignast börn, en
þau tóku kjörson nýfæddan,
Vilhjálm Auðun, og ólu upp
fósturdóttur Ólöfu Ester, sem
þau gengu i foreldrastað. Auk
þess höfðu þau löngum börn
í sumardvöl og mun þeim flest-
um hafa farið sem mér, að þau
vildu fara þangað aftur og aft-
ur.
En það varu fleiri en börnin
sem hændust að Albert. Ég
veitti því fljótt athygli hve
öllum í sveitinni, ungum rem
gömlum, virtist þykja vænt um
hann. Sennilega hefur fylgi það
sem hann vann íyrir Sósíalista-
flokkinn þegar hann var í
íramboði í Barðastrandarsýslu
meira verið að- þakka mann-
kostum hans, vinsældum og
ljúfmennsku, en pólitiskri
sannfæringu þeirra sem kusu.
Sjálfur var Albert mjög á-
kveðinn sósíalisti og á hans
heimili kynntist ég fyrst Þjóð-
viljanum og þar komst ég, sem
kom frá borgaralegu heimili í
Reykjavík, einnig fyrst í kynni
við hinar róttækari bókmennt-
ir þjóðarinnar, kynntist rit-
höfundum eins og Halldóri K.
Laxness og Þórbergi Þórðar-
syni, en bækur þessara manna
voru allt að því bannlýstar
í því umhverfi sem ég annars
átti að venjast.
Aldrei man ég eftir að Al-
bert reyndi að koma inn hjá
mér nokkurri pólitískri skoð-
un, en kynnin af slíkum manni
hlutu að verða til þess a.m.k.
að opna augu bams fyrir því,
að þeir væru áreiðanlega ekki
vondir menn, þessir svokölluðu
kommúnistar, eins og svo
margir vildu vera láta.
Meðan ég dvaldist hjá Al-
bert var hann kaupfélagsstjóri
og síðar framkvæmdastjóri
hraðfrystihúss og útgerðar.
Vegur og framfarir sveitar hans
var ævinlega hans mesta á-
hugamál og lagði hann sig all-
an fram til að skapa þar ör-
ugga afkomu og koma í veg
fyrir flóttann úr sveitinni með
þeim árangri að Tálknafjörður
hefur ' á undanfömum tveim
áratugum tekið gjörbreyting-
um, þar er nú atvinna næg og
frekar að fólki fjölgi en fækki
í þyí byggðarlagi. Ætla ég að
sveitungum hans verði það
þungt áfall að sjá nú á bak
þeim manni er mestan þátt
hefur átt í og mest hefur hvatt
til þeirra miklu framkvæmda
er þar hafa orðið og munu þeir
minnast hans með þakklæti.
Albert Guðmundsson lézt
fjarri elskuðum heimkynnum
sínum, í Tromsö í Noregi, en
þar var hann ásamt mági sín-
um að líta eftir smíði nýrra
báta fyrir útgerðina. í sama
mund og bátur sá er flutti
hann heim lagðist að bryggju
lézt háöldruð móðir hans, Guð-
ríður Guðmundsdóttir, eftir
langa legu að Hrafnistu og
verða þau mæðginin jörðuð
saman í dag að Stóra Laugar-
dal í Tálknafirði.
Vildi ég mega nota þetta
tækifæri til að votta aðstand-
endum þeirra Alberts og Guð-
ríðar öllum, og þó sérstaklega
ykkur, Lóló og Villi, og þér,
Steina mín, einlæga samúð
mína.
Sumarpabbi minn.
Það er svo margt frá liðnum
árum sem ég hefði viljað þakka
þér, en héðan af verður ekki
gert annað en kvatt hinztu
kveðju, En ég er þakklát fýrir'
að hafa fengið að kynnast þér
og fyrir að hafa fengið að eyða
með ykkur Steinu þeim tíma
ævinnar sem lengst verður
minnzt-
Vilborg Harftardóttir.
Byggingaverkfræðingut
Reykjavíkurhöfn óskar eftir að ráða bygg-
ingaverkfræðing.
Umsóknir sendist undirrituðum, sem gefur
nánari upplýsingar um starfið, fyrir 22.
júlí n.k..
Reykjavík, 5. júlí 1967
Hafnarstjórinn í Reykjavík.
Volkswagen tí/ sölu
Tilboð óskast í Volkswagen-1200 fólksbif-
reið, smíðaár 1962, sem verður til sýnis við
skrifstofu vora frá kl. 1 til 3 í dag.
Tilboð verða opnuð í skrifstofu vorri kl.
4 í dag.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
VONARSTRÆTI 8 - SÍMl 18800
Látið stilla bílinn
Önnumst hjóla-, ljósa og mótorstillingu. Skiptum
um kerti, platínur, l’jósasamlokur. Örugg þjónusta.
BÍLASKOÐUN OG STILLING
Skúlagötu 32, sími 13100.
1
t
i
I
1