Þjóðviljinn - 29.07.1967, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 29.07.1967, Blaðsíða 3
Laugardagur 29. júlí 1967 4- ÞJÓÐVTLJINN — SlÐA J Nú er óttast að kynþáttaóeirðir Óheiðarlega út í Washingtonborg PHILADELPHIA 28/7 — Mörg hundruð lögreglumenn voru kallaðir út til að koma á röð og reglu í blökkumannahverf- inu í suðurhluta Philadelphia I nótt, en þar fóru um hópar manna, brutu rúður og grýttu lögreglubíla. — í Chicago eru yfirvöldin að undirbúa ráðstaf- anir til að kæfa hugsanlegar kynþáttaóeirðir í fæðingu og borgarstjórinn hefur þegar lýst því yfir að ekki verði skirrzt við að skjóta til að halda uppi röð og reglu. — í Albany átti lög- reglan í höggi við blökkuung- linga og í nétt voru 20 íkveikj- ur framdar í Sacramento, höf- uðborg Kaliforníu. í borgunum Springfield í Ohio og Waterbury í Connecticut hafa óeirðir brot- izt út öðru hvoru síðastliðinn sólarhring. — Myndin: Frá kynþáttaóeirðunum í Bandaríkjunum. James Tate borgarstjóri í Philadelphia lýsti neyðarástandi í hlíata borgarinnar og gaf lög- FerlamáSaráð Framhald af 10. síðu. ferðamanns. firði og til stækkunar hótelsins í Reynihlíð við Mývatn, þá er E&tHmin >.að reisa fullkomin hótel1 baqði á Húsavík og Seyðisfirði og‘ hefði sjóðurinn lánað fé til þessara bygginga. I>á má einnig nefna Hótel Varðborg á Akur- eyri og' gisti- vg veitingastað í Vatnsfirði. Þegar er búið að lána út allt fé úr þessum sjóði og ekkert fé er því fyrir hendi í sjóðnum þessa stundina. í fyrra var þó samþykkt að hækka 20 miljón króna fjárveitinguna frá 1964 upp í 40 miljónir króna. en ekki eru- þeir ennþá búnir að fá við- bótarféð til umráða eða 20 milj. króna. Ferðamálaráð hefur gert skyndireisur til könnunar á á- standi hótela og veitingastaða i'iti á landi og hefur meðal ann- ars heimsótt slíka staði fyrir norðan og austan og í fyrra voru þeir á eftirlitsreisu á Suð- urlandi. Ludvig kvað nýja reisu í upp- siglingu í ágústmánuði og yrðu þá staðir á Vesturlandi heim- sóttir og er ekki ætlunin að boð komi á undan þeim á slíkum reisum. Þeir félagar munU renna í hiað óvænt og skvndilegá og í hlað óvænt' og skyndilega. reglunni heimild til að dreifa fólki ef fleiri en tólf söfnuð- ust saman. Hann sagðist vera fullviss þess að yfir borginni vofðu sams konar óeirðir og orðið hafa i öðrum bandarískum stór- borgum að undanfömu og bætti því við að neyðarástandið skuli standa til 11. ágúst. f fyrradag var 31 maður handteknir í Philadelphia. Neyðarástandi hefur einnig verið lýst yfir í höfuðborg Kali- forníu, Sacramento. Detroit í Detroit lenti borgardtjórinn Jerome Cavanagh í skothríð mitt á milli hermanna og leyniskyttna sem áttust við í dag. Fallhlífaliðarnir úr sambands- hernum sem voru sendir til borgarinnar voru látnir fara af götum borgarinnar víða, en verða áfram í borginni til taks. Um 5000 fallhlífahermenn hafa verið í Detroit undanfarna daga vegna kynþáttaóeirðanna, sem eru hinar hörðustu sem orðið hafa í Bandaríkjunum í mörg ár. 39 manns hafa nú látið lífið í Detroit en heita má að óeirð- irnar hafi hjaðnað alveg, þó stöku leyniskyttur láti enn til sín taka. f dag er skýrt frá nýjum ó- eirðum í fjölmörgum bandarísk- um borgum allar götur milli austur- og vesturstrandarinnar. WASHINGTON I Washington var skýrt frá því í dag að yfirvöldin þar í borg leggi Sig nú mjög fram til að LAUS STAÐA VIÐ ÁLVERIÐ í STRAUMSVÍK Ungur nagfræðingur eða lögfræðingur óskast til starfa við álverið i Straumsvík. Ýmiss konar skipulags- og stjórnomarstörf. Ensku- eða þýzkukunnátta nauðsynleg. Skriflegar umsóknir með upplýsingum um hæfni og fyrri störf sendist í pósthólfu 244, Hafnarfirði, fyrir 8. ágúst n.k. ÍSLENZKA ÁLFÉLAGIÐ H.F. kyn nöf koma eirðir blossi upp í Höfuðborg Bandarikjanna. Vaxandi óróa gætir með blökku- mönnum í borginni, en þeir eru 60% íbúanna og sagt er að ekki þurfi mikið til að upp úr sjóði. Þeldökkir íbúar Washington kvarta yfir kynþáttaaðgreiningu á vinnustöðum, vaxandi atvinnu- leysi, slæmu húsnæði, harðneskju Iögreglunnar og' fleiru. Kísilgúrveguriitjti við Mývatn Framhald af 1. síðu. Vfegagerðin sjálf annast lagn- ingu þessa kafla en hann er 3.5 km að lengd. Einnig sér Vegagerðin um að leggja stál- ræsi og byggja brýr á þann hluta vegarins sem Norðurverk h.f. tók að sér að leggja og er kostnaður við það því ekki inni- falinn í útboðinu. Loks er Vega- gerðin þegar búin að leggja veg frá Kísilgúrverksmiðjunni í Bjarnarflagi að Reykjahlíð og er heildarkostnaður við lagn- ingu alls vegarins frá Bjarnar- flagi að Laxamýri áætlaður 47 miljónir- króna. Norðurverk h.f. tók að sér að ljúka sínum hluta verksins á tveimur árum og byrjaði fyr- irtækið á verkinu í maímán- uði sl. Er svo umsamið að það skili vegarkaflanum frá Gríms- stöðum að Reykjahverfisvegi ökufærum i haust. Einnig ætlar Vegagerðin að ljúka lagningu vegarkaflans milli Reykjahlíðar og Grímsstaða í haust þannig að vegarsamband verði komið á þegar á þessu ári milli Kísil- gúrverksmiðjunnar og Húsavík- ur um nýja veginn og Reykja- hverfisveg Deilt um vegarstæði Eins og kqnnugt er hafa orð- ið allmiklar deilur og umræður um lagningu vegarkaflans milli Reykjahlíðar og Grímsstaða, Ýmsir unnendur íslenzkrar nátt- úru hafa lagzt fast gegn því að vegurinn yrði svo nærri vafn- inu sem nú hefur verið ákveð- ið. M.a. hefur náttúruverndar- ráð mælt gegn því. og í grein- argerð sem Þjóðviljanum barst frá ráðinu í gær um málið seg- ir að ráðið telji hina fyrir- huguðu vegarlagningu ,,hin mestu náttúruspjöU“ og jafn- framt segir í greinargerðinni að náttúruverndarráð áskilji sér rétt til að beita sér gegn henni „á grundvelli laga um náttúru- vemd“. Lögum samkvæmt mun náttúruverndarráð hafa heim- ild til að stöðva framkvæmd- ir við vegarlagninguna, þar sem það telur að af henni stafi j náttúruspjöll. Þessari lagaheimild hefur náttúru- verndarráð hins vegar aldrei beitt' frá' þ'ví það' var stöfnað, og stjórnendur skipulags- og vegamála sem í þessu máli hafa hunzað allar tillögur ráðsins munu vafalaust reikna með þvi að úr þeirri átt þurfi þeir ekki að búast við ske3- eggari aðgerðum en mótmæl- um. Þá mun samgöngumála- ráðherra enn eiga- eftir að samþykkja formlega ákvörð- un skipulagsstjórnarinnar, en varla hefði Vegagerðin byrj- að á vegarlagningunni, pf hún hefði búizt við að ráð- herrann tæki fram fyrir hendur skipulagsstjórnarinn- ar. Svo virðist því sem sjón- armið náttúruverndarmanna hafi beðið fullnaðarósigur í þessu máli fyrir „hagsýnis"- sjónarmiði stjórnenda skipu- lagsmála, vegamála og Skútu- staðahrepps. vitnað í grein Það má teiljast sanngjörn krafa blaðamanns að rétt sé vitnað í grein hans, þannig að eðlilpgt samhengi brenglist eikiki eða vanti. Morgunblaðið vitnaði fyrir nokkrum dögum í forystugrein í Þjóðviljanum með óheiðarlegum hætti, birti fyrri hluta málsgreinar og setti þar púnkt á eftir, enda þótt hin filvitnuðu orð væru í beinu samhengi við síðari hlutann. Tilvitnun Morgunblaðsins er prentuð með feitu letri. • „Jafnframt því sem verkalýðshreyfingin hefur í vaxandi mæli haft heillavænleg áhrif á þjóðfélagið fslenzka til al- mennra framfara, og bættrar afkomu alþýðu; jafnframt því sem saga alþýðusamtakanna verður að einum gagnmerk- asta þætti þjóðarsögunnar, ekki sízt fyrir áhrif og starf mannanna sem Morgunblaðið kallar mennina frá 1930, hverjum þeim karli og konu til varanlegs Iofs og heiðurs sem þar hefur staðið l striðinu af heilum hug, (Hér setti Morgunblaðið púnkt og lesendur mega hafa haldið að höf- undur hafi gleymt að botna setninguna! En þannig var framihalldið í Þjóðviljanum:) — hefur Vinnuveitendasam- bandið svonefnda orðið ömurlegt tákn steinnunnins aftur- halds, samtöik andófs við hverri einustu kröfu íslenzkrar alþýðu um bætt kjör og aukinn rétt, samtök algerlega nei- kvæðrar afstöðu til framfara og framvindu í þjóðfélaginu, samtök gróðamanna, miljónaskuldara og eiginhagsmuna- stritara, manna sem allt miða við hagnað sinn og völd. auðsins". . Morgunblaðinu er að sjálfsögð-u heimilt að prenta>upp forystugreinar Þjóðviljans, en til þess ætlazt að það birti tilvitnanir heiðarlega. Það var ekiki gert í þetta skipti. “ — S.G. Reykjavíkunmtið Úrslitaleikurinn milli FRAM - KR fer fram á mánudag á Melavellinum og hefst kl. 8,00. Dómari: Baldur Þórðarson. Línuverðir: Halldór B- Hafliðason og B.iörn Karlsson. MOTANEFND. Miklar handtakur < Hongkong anförnu gert húsleit víða um borgina og hafa 1000 manns verið handteknir í sambandi við b~r. Miklar birgðir af vopnum og heimagerðum sprengjúm hafa fundizt. — Yfirvöldin segjast þo leija það líklegt að höfuðpaurar óeirðanna gangi enn lausir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.