Þjóðviljinn - 29.07.1967, Blaðsíða 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVIUINN — Laugardagur 29. júli 1967.
Otgefanil: Sameiningarflokkur alþýöt — Sóstalietaflokk -
urinn.
Ritstjórar: Ivai H- Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. FTiðþjófsson-
Auglýslngastj.: Siguröui I. Sigurðsson.
Framkvstj.: Eiður Bergmann
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja Skólavörðust 19.
Sími 17500 (5 Ifnur) — Askriftarverð kr. 105.00 ó tnánuði. —
Lausasöluverð kr. 7.00-
Sílt/in ekki einhlít
se
gjómenn spyrja nú hvort „síldaræ£intýrinu“
lokið. Víst er um það að síldarvertíðin fram
að þessu hefur verið fáu lík ef miðað er við upp-
gripaaflann sem fengizt hefur frá því tekið var
að beita hinni nýju veiðitækni. Allmörg skip eru
við veiðar óralangt norðaustur í íshafi, við Jan
Mayen og meira aó segja langtum lengra frá
heimalandánu, önnur hafa reynt að veiða við Hjalt-
land eða í Norðursjó. Síldinni er að miklu leyti
landað í flutningaskip vegna þess hve langt er
heim frá miðunum, og verður þá enn verðminni
sjómönnunum sem afla hennar. Skipin sem leit-
að hafa suður hafa landað í Færeyjum og Þýzka-
landi. Þó nokkur skip skurka á Suðurlandssíld en
hafa víða átt örðugt um vik og sum orðið fyrir til-
finnanlegu veiðarfæratjóni með nætumar ótryggð-
ar. Síldaraflinn er ekki nama helmingur þess sem
var um sama leyti í fyrra, en þá verður að hafa í
huga veiðibann ríkisstjórnarinnar í maí, sem seink-
aði síldveiðunum um mánuð. Sjómenn hafa borið
lítið úr býtum, þeir fengu framan í sig síldarverðs-
lækkun í vor sem jafngilti um 30% kauplækkun.
Þessa dagana eru þeir að fá í hendur álagningar-
seðla yfirvaldanna, og er að sjálfsögðu ætlað að
greiða skattana af góðum tekjum ársins 1966 með
hinum rýru tekjum 1967. Ekki er byrjað a'ð salta
síld, þó komið sé að mánaðamótum júlí-ágús't.
gjálfsagt verður flestum Ijóst eins og nú er ástatt
hversu fyrirhyggjulaust og einhliða hefur verið
treyst á „síldaræfintýrið“, hversu léleg stjóm það
er eða stjómleysi í þjóðarbúskapnum að togara-
floti íslendinga skuli hafa verið látinn ganga úr
sér svo að togurunum íslenzku skuli hafa fækkað
um þrjátíu skip og nú séu einungis ein sextán skip
í fullum rekstri. Þá hefur lítið verið sinnt þeim
hluta bátaflotans sem stundað hefur bolfiskveið-
ar, bátanna sem orðnir eru of litlir til að stunda
síldveiðarnar með nútímaaðferðum og sókn á út-
hafsmið. Afleiðingin hefur orðið sú að fiskvinnslu-
iðnaðinn hefur vantað tilfinnanlega hráefni að
vinna úr. Einblínt hefur verið að heita má á gaml-
ar og að miklu leyti úreltar vinnsluaðferðir, ekk-
ert stórátak gert til að gera hinn dýrmæta sjávar-
feng íslendinga að miklu verðmætari vöru; ár
eftir ár er eitt bezta matvælahráefni í heimi, Js-
landssíldin, gerð að síldarmjöli og lýsi eða hrúg-
að í tunnur handa grannþjóðum okkar til að vinna
úr margfalt verðmætari vöm en hráefnið sem ís-
lendingar selja. Lítið er hirt um að auka fjöl-
breytni í afla, svo sem að sækja á hin arðsömu
lúðumið að dæmi Norðmanna og fleiri þjóða. Fyr-
ir fiskveiðiþjóð eins og íslendinga er brýn þörf á
vökulli og hugkvæmri forystu í sjávarútvegsmál-
um, forystu sem væri samboðin íslenzku sjómönn-
unum, heimsmethöfum á sviði sjósóknar og afla-
bragða. í stað þess að einblína á einn þátt sjávar-
útvegsins hljóta stjórnarvöld landsins og útvegs-
menn að leita af kappi nýrra leiða og efla alla
þætti sjósóknar, veiðiaðferða og vinnslu sem fært
gætu þjóðinni ný verðmæti. — s.
Fréttabréf frá HM stúdenta f skák:
Vinningar og tðp í undankeppninni
Harrachov 19/7 ‘67
Hei ms meistaramót stúdenta í
skák 1967 er nú haldið í tékk-
neska smábænum Harrachov,
sem liggur í norðvesturhiuta
landsins, ekki fjam pólsku
landamærunum. Mun bær þessi
vera í hérðanu Galisíu, sem
kom í hlut Austurríkis við
fyrstu skiptingu Póllands árið
1772.
í Harrachov munu vera bú-
settar u.þ.b. 200 sálir, en ekki
er okkur þó kunnugt um hvaða
atvinnuvegi fólk þetta stundar,
því ef þjónustufólk hótels þess
en eftir að Garcia haföi lang-
hrókað hóf Trausti sókn á
drottningarvæng, fórnaði tveim-
ur peðum og náði heiftarfegri
kóngssókn, en lenti síðan í Ihat-
rammlegu tímaihráki og þegar
þvi lauk hafði Kúbumanninum
tekizt að skapa sér gagnfæri
og sættust keppendur á jafntefii
um það bil er skákin skyldi
fara í bið-
Guðmundur hafði hvítt og lék
kóngspeði gegn Bondy, sem
beitti Sikileyjarvöm. Keppend-
ur hrókuðu snemma sinn á
hvorum væng og hófst síðan
mikið kapphlaup um það, hvor
og þrátt fyrir góðar horfur tókst
Braga ekki að knýja fram 'vinn-
ing og var jafnteflli samið eftir
40 leiki.
3. umferð
ísland — U.S.A. l‘A-2%, Rú-
menía — Kúba 2%-lV?. Trausti
— Zuckenmann Vs-%, Guð-
mundur — Gilden 0-1, Bragi —
Kanfman 1-0, Jón H. — Solt-
is 0-1. .
I þriðju og síðustu umferð
undanrásanna áttum við f
höggi við Bandaríkjamenn. Var
þegar fyrir umferðina ljósrt að
við yrðum að vinna stórt, ef
■VV’\*VV'”.\Ví'fWV,"WW\W.WVVV”«’^'^^—VVV
er hann lék skyndilega af sér
og tapaði.
Bragi hafði swart gegn Kauf-
mann og beitö Sikileyjarvöm.
Hugðist Bandarikjamaðurirm
gieypa Braga með húð og hári
þegar f byrjnn og tefldi fuM
glannalega. Náði Bnagi hættu-
legri gagnsókn og er Bragi hafði
fóriiað drottningunni gafst Kauf-
mann upp, enda mát f einum
leik þá óverjandi.
Jón Hálfdanarson teflldi nú
sína fyrstu skák f mótinu gegn
Soltis, sem beitti kóngsind-
verskri vöm. Upphófst snemma
f jörugar sviptingar, en á örlaga-
riku augnabilki urðu Jóni á
slæm mistök og varð hann að
gefast upp skömmu síðar.
Bftirfarandi bjóðir komust f
A-flokk: .
(Þjóðimar eru ekki í tötluröð).
: Sovétríkin, Bandar. Tékkó-
sílóvalkía, Júgoslavía, Rúmenía,
Búlgaria, Danmörk, A-Þýzka-
land, England.
Elftirfarandi þjóðir lentu.f B-
flokki:
Ungverjaland, Austurríki,
Skotland, Belgía, Irland, Kúba,
Finnland, Island, Holland.
Hér eru svo að lokum brjár
af skákum Islendinga:
1. UMFERÐ:
Hvftt: Guðm. Sigurjónsson
Svart: Bondy (Kúba).
Islcnzka sveitin, sem keppir á stúdentamótinu i Harrachov. Frá vinstri: Jón Hálfdanarson, Guð-
mundur Sigirrjónsson, Trausti Björnsson, Jón Þ. Þór og Bragi Kristjánsson.
1. e4
2. Rf3
3. d4
4. Rxd4
5. Rc3
6. Be3
7. Bc4
8. Bb3
9. f3
10. h4
11. h5
12. g4
c5
Rc6
cxd4
g6
Bg7
Rf6
0—0
d6
Bd7
Da5
Rxh5
Rf6
sem við búum á er undanskilið
höfum við ekki séð nokkum
mann vinna æriegt handtak enn
sem korrtið ér. Okkúr er þó tjáð
að staður þessi sé miðstöð vetr-
aríþrótta, auk þess sem ferða-
mannastraumurinn hingað hef-
ur aukizt með ári hverju- Máli
sínu til sönnunar benda heima-
menn á snarbrattar hlíðarnar
sem umlykja þorpið, flestar eru
þær þó vaxnar skógi og myndu
undirritaðir hafa heldur tak-
markaðan áhuga á skíðaferðum
þar.
Islenzka sveitin lagði upp
frá Reykjavík að áliðnum degi
■ hinn 14. júlí. Urðum við vel
reiðfara og kbmum til Harra-
chov 28 klukkustundum síðar,
eftir að hafa þó haft viðdvöl f
þrem höfuðborgum.
Um kvöldið-þann 15 júlí var
dregið í riðla og kom þá í ljós
að við höfðum lent í riðli með
Rúmenum, Bandaríkjamönnum
og Kúbumönnum. Má segja að
veik von okkar um að komast
í A-úrslit hafi orðið að litlu
er við sáum hverja við höfðum
fengið sem mótstöðumenn.
1. umfcrð
- Island — Kúba 3-1, US.A, —
Rúmenía 2-2, Trausti-Garcia Ví •
Vi, Guðmundur — Bondy 1-0,
Jón Þór — Gomez 1-0, Bragi. —
Truúillo 4/s
Urs-lit þessarar umferðar gáfu
tilefni til ofurlítillar bjartsýni.
Trausti hafði svart og beitti
Pirc's vöm gegn kóngspeði and-
stæðingsins. Fékk Trausti
snemma þrönga og erfiða stöðu,
----------------------------:—a>
Leiðrétting
Sl. laugardag, 22. júlí, birti |
Þjóðviljinn ljóð til minningar 5
um Bergsvein Sveinsson frá :
Aratungu. Villa slæddist inn í ■
þriðja erindi minningarljóðs- j
ins. Rétt er erindið þannig: :
Oftast er hjaíað
um auð og heiður.
Ekki um hver var
hinn sterki meiður. ■
■
«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
yrði á undan með kóngssóknina.
Kúbumaðurinn fómaði skipta-
mun, en Guðmundur þvingaði
þá fram enn meiri uppskipti og
vann síðan endataflið örugg-
lega.
Jón Þór hafði svart og beitti
hinu svtmefnda opna afbrigði
af spánska leiknuín gegn Com-
ez. Valdi Kúbumaðurinn mjög
rólega leið og tókst Jóni þá
snemma að jafna tafllið. Stuttu
síðar missti Kúbumaðurinn svo
af beztu leiðirini, og vann Jón
síðan örugglega. ,
Bragi beitti spánska leiknum
gegn Trujillo og náði snemma
undirtökunum. En er kom fram
í miðtaflið missti hann af 4>
beztu leiðinni og jafnaði þá
taflið. Var jafntefli samið
stuttu siðar.
2. umferð
Island — Rúmenía !A-3%,
U.S.A. — Kúba 3V2-%, Trausti
— Gheorghiu 0-1, Guðmundur
— Segal 0-1, Jón Þ. — Pantazi
0-1, Bragi — Mozes Vs-%.
1 2. umferð tefldum við við
Rúmena og seig þá heldur á 6-
gæfuhliðina, því að uppskeran
varð aðeins vinningur.
Trausti hafði hvítt gegn stór-
meistaranum Gheorghiu og kom
upp kóngsindversk vöm. Var
taflið lengi vel jafnt, en svo
fór, að reynsla stórmeistarans
sagði til sín og mátti Trausti
gefast upp í endatafli með
jafn marga menn.
Guðmundur hafði svart gegn
Segal og beitti kóngsindverskri
vörn. Rúmeninn valdi fjögurra
peða árás og kom upp afbrigði
sem Guðmundur þekkti ekki
nógu vel, og þrátt fyrir ítrekað-
ar tilraunir tókst ekki að bjarga
taflinu eftir það.
Jón Þór hafði hvítt gegn
Pantazi, sem beitti Sikileyjar-
yörn og kom upp afbrigði, sem
mjög er í tízku. Eftir drottn-
ingakaup teygði Jón sig óf langt
og fékk hann ekki við neitt
ráðið eftir bað-
Bragi hafði svart gegn Mozes
Dg beitti Sikileyjar-vörn. Tefldi
Rúmeninn mjög sjaldgæft af-
brigði og náði Bragi betra tafli.
Urðu snemma drottningakaup
við ættum að hafa nokkra
möguleika á því að komast á-
fram í A-úrslit.
Trausti-hafði’ 'sVart ■ gegrr' hin-'
um þekkta meistara B. Zucker-
mann og beitti Pirc-vöm. Fékk
Triausti snemma mjög erfiða
stöðu, en stuttu fyrir bið tókst
honum að loka stöðunni og var
þá samið jafntefli.
Guðmundur hafði hvítt igegn
Gilden sem beitti Sikileyjar-
vörn. Teflldi Guðmundur byrj-
unina ekki sem nákvæmast og
fékk heldur óhagstasðari stöðu.
Smám saman tókst honum þó
að bæta stöðu sína og var
kominn með hartnær unnið tafl
13. Dd2 Hfc8 ,
14. O—O—O Re5
15. Rh6 Hxc3
16. Bxg7 Hxc2f \
17. Kxc2 " Hc8t"
18. Kbl Dxd2
19. Hxd2 Kxg7
20. Hcl Hc5
21. Bdl Rc4
22. Hd3 Re5
23. Hdc3 Hxc3
24. Hxc3 Rc6
25. Rxc6 Bxc6
26. Ha3 a6
27. Ba4 Bxa4
28. Hxa4 Rd7
29. Hb4 b6
30. Kc2 Kf6
Fraimli@M á 7. síðu.
LATJSAR STÖÐUR VIÐ
ÁLVERIÐ í
STRAUMSVÍK
íslenzka Álfélagið h.f. óskar að ráða til sín fólk
í eftirfarandi stöður:
1. Ungan mann til bókhalds- og skrifstofustarfa.
2. Skrifstofumann vanan innflutnings- og tollaf-
greiðslumálum.
3. Vélritunarstúlku til að annast enskar og íslenzk-
ar bréfaskriftir.
4. Stúlku til almennra skrifstofustarfa. Vélritunar-
kunnátta nauðsynleg.
5. Ungan mann til að annast útréttingar og sendi-
störf. Þarf að hafa minna ökumannspróf.
6. Ungan aðstoðarmann á skrifstofu til að annást
ljósiprentun á teikningum.
7. Lagermann til að annast móttöku. eftirlit og
afgreiðslu á vörum í pakkhúsi.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist í pósthólf 244, Hafnarfirði.
fyrir 8. ágúst n.k. Umsóknareyðublöð fást á skrif-
stofu vorri, Strandeötu 8—10. Hafnarfirði. sfmi
52365.
ÍSLENZKA ÁLFÉLAGIÐ H.F.