Þjóðviljinn - 06.08.1967, Blaðsíða 12
7
Íiiiillíillii;
- .
jiiimmm
\.y.-
Þessi íallega uppstilling er úr Árbæjarsafni og nálgast aó vera malerísk ijósmynd, enda tekin út«
ÞÝZKIR KARLMANNASKÓR
' /
í mjög fallegu úrvali. •— Ný sending.
Við bœjardyr Reykvíkinga:
myndir og
texti g. m.
Litazt um í
Árbæjarsafni
í smíði árið 1908, en þá voru
niðurstöðutölur á bæjarreikning-
um 115 þúsund krónur og myndi
samsvarandi átaik kosta í dag,
miðað við borgarreikninga 600
miljónir.
Hér sjást tvö hús nýlega flutt í safnið og heita Hábær og Smiðshús. Hábær vék fyrir bankabygg-
ingu Sparisjóðs Reykjavíkur við Skólavörðustíg. Húsið er reist á árunum 1810 til 1880 og hlaut nafn-
ið Beyldsbær. Þá gekk það líka undir nafninu Þórðarkot við Grettisgötuna og bjó þar þá Þórður
faðir lngileifar ríkisféhirðis. Smiðshús er til hægri á myndinni og er elzt húsa í safninu og stóð
rétt hjá Hótel Borg og þykir Lárusi vænzt um þetta hús í safninu. Smiðshús var smíðað uml820
og er stílhreint bindingsverk og gefur ákaflega góða hugmynd um, hvemig hús voru í Reykjavík
á síðustu öld. Þarna átti Jón Ámason þjóðsagnaritari heima meðan hann var biskupsritari og á
árinu 1863 bjó þarna iíka Sigurður Guðmundsson málari og bjuggu þeir þarna saman félagamir,
þegar þeir stofnuðu Þ.jóðminjasafn fslands og enginn vafi er á því, að fyrstu munimir í safninu
höfðu skjól í þessu húsi.
Gömul hús hafa sál og verð-
mæti þeirra frá fornminjasjón-
armiði er stundum mikið, og þar
fer oft dýrmæti forgörðum, þeg-
ar jarðýtan og kúlan leggur til
atlögu við þessi gömlu ,hús og
eyðileggur þau á staðnum.
A þessum forsendum er Ár-
bæjarsafn risið og borgaryfir-
völdin hafa gerzt húsasafnarar
og hafa viljað forða gömlum
húsum frá eyðileggingu.
En er hægt að slíta þessi
gömlu hús svona upp með rót-
um úr umhverfi sínu og fflytja
þau á nýjan stað án þess að hin
gamla hússál glatist — svo eftir
stendur hrófatildur á nýjum
stað svipt gildi sínu?
Áreiðanlega eru svona gömul
verðmæti viðkvæm í flutningi
og hníga niður sem hjóm, ef
naskað er við þeim á sínum
sögulega stað.
Fróðlegt væri fyrir rétt inn-
stifflta menn í þessum efnum að
rannsaka gömlu húsin í Árbæj-
arsafni frá þessu sjónarmiði og
kæmi þá kannski í ljós, aðgamli
Árbærinn er eina húsið, sem
hefur gamla hpssál að geyma og
minnir á nwrfærnar hendur
Margrétar Pétursdóttur, hús-
freyju og greiðasölukonu.
Undarlegt er að heimsaskja
þann bæ með þá vitneskju í
huga, að þarna hafi Ólöf ríka
gist árið 1464 og keypt jarðir á
slíku ferðalagi.
Þetta var ilíka síðasti áningar-
staður í þjóðbraut um Fossvogs-
dalinn til Bessastaða á Álfta-
nesi.
En þama koma fleiri hús í
safnið á næstunni eins og Sjó-
búðin að Vesturgötu 7 og hús
Thors Jensens í Hallargarði,
sem kostaði 87 þúsund krónur í
Thor var lika ávítaður af
dönskum bönkum fyrir að
byggja svona dýrt á íslandi í
þann tíð og móðgaðist gamli
maðurinn þá svo mikið, að hann
sneri viðskiptum sínum til Eng-
lendinga og Spánverja upp úr
| því í meiri mæli, sagði Lárus
safnvörður við blaðamenn á
dögunum.
Þá er Bernhöfsbakaríi ætlaður
staður þarna í byggðasafninu.
Safnráð er skipað eftirtöldum
mönnum: Hafliða Jónssyni, garð-
yrkjustjóra, formanni ráðsins,
Herði Agústssyni, listmálara, og
Sigurjóni Sveinssyni, byggingar-
fulltrúa og er Lérus Sigur-
björnsson, framkvæmdastjóri
ráðsins.
Ætlunin er að. endurbyggja
fornmannaskála á næstunni og
styðjast þar við fyrirmyndir frá
Stöng í Þjórsárdaí til minningar
um fyrstu bústaði norrænna
manna hér á landi.
Árbæjarsáfnið hefur nú 20
hektara af landi til ráðstöfunar
og með opna svæðinu í kringum
þetta land er það um 300 hekt-
arar.
Nú liggur til athugunar að
breyta þessu tíyggðasafni í lands-
safn og hafa þá allt landið í
huga í staðinn fyrir gömul hús
í Reykjavík, og raunar varð þeg-
ar fyrsti vísirinn að landssafni
með flutningi Silfrastaðakirkju
frá Skagafirði í Árbæjarsafnið á
sínum tirna.
Sunnudagur 6. ágúst 1967 — 32. árgangur — 174. tölublað.
Hindsgavls-ráð-
stefna um fjöl-
miðlunartækin
„Maðurinn og fjölmiðlunar-
tækin“ er heiti norrænnar ráð-
stefnu sem haldin verður í
Hindsgavl á Fjóni dagana 20. til
26. þ.m.
Dr. phil. Hakon Stangerup og
Frantz Wendt framkvæmdastjóri
veiita ráðstefnu þessari forstöðu,
en meðal fyrirlesara verður
Bodil Koch menntamálaráðherra
Danmerkur.
Tvær stúlkur undii’ gafli á Dillonshúsi í íslenzkum þjóðbúningum.
Þær vinna að framreiðslu í Dillonshúsi í sumar og heita Kristín
og Vala. — Hvað er hægt að lesa út úr svona mynd með reyk-
víska sögu í huga? Efri glugginn er á kamesi Jónasar Hallgríms-
sonar, skálds og vitað er, að skáldið Iagði hug á stúlku hér í
Reykjavík, sem hét Krístín og stúlkan er afkomandi hennar og ber
sama nafn, sagði Lárus hlæjandi. — Þannig er hægt að upp-
hef ja myndina frá sögulegu sjónarmiði.
á túni. Fyrst ber að nefna gamla rótarhnyðju tekna á reki úr Garðssjó og hefur sennilega borizt
þangað með golístraumnum frá Florida. Þá kemur brúðhjónabúsið frá Arnarbæli í ölfusi, klukkna-
portið og Silfrastaðakirkja frá Skagafirði. Þar hafa nú farið fram 145 hjónavígslur síðan kirkjan
var sett upp í Árbæjarsafm.
Skóbúð Austurbæjar
Lamgavegi 100
Enskir og fnýzkir KYENSKÓR
í sérlega fallegu úrvali. — Ný sencfíng,
SKÓVAL, Austurstræti
(Eymundssonarkjallara)
LÁGIR STRIGASKÓR
með rennílas, fyrir kvenfólk. Verð kr. 175.
Skóbúð Austurbæjar
Laugavegi 100
ÚTSALA Á
KARLMANNASKÓM
Skóbúð Austurbæjar Laugavegi 100
ÚTSALA Á KVENSKÓM
KJÖRGARÐUR, Skódeild
t