Þjóðviljinn - 12.09.1967, Qupperneq 3
Þriðjudagur 12. septemtoer 1967 — PJÖÐVILJINN — SlÐA J
ARETTINGd e Gaulle mistekst ai eyða
frá formanni landsprófsnefndar
Reykjavík, 8. sept. 1967.
Það mun talið hlýða að
þakka fyrir sig, þegar mörm-
um berast bréf. Þykir því rétt
að hefja áréttingu þessa með
þökk til þeirra félaga Odds A.
Sigurjónssonar og Óskars
Magnússonar frá Timgunesi
fyrir , pistil til undirritaðs í
nokkrum dagblöðum hö'fuðstað-
arins í gær. Ætla má, að með
bréfi þeirra félaga hafi loks
birzt þau ýtarlegu skil á at-
hugasemd og rökfærslu lands-
prófsnefndar 27. júní s.l., er
boðuð voru í dagblöðum 28. og
29. s.m., og undirritaður hef-
ur nú beðið eftir Iiðlega tvo
mánuði.
Undirritaður telur það eng-
an veginn samrýmaist sjálfsvirð-
ingu sinni að elta ólar við
stóryrðaflaum þeirra félaga
og persónuleg skeyti, hvað þá
að svara þeim í sönm mynt.
Það hefur verið og er enn
skoðun hans, að um mál sem
dönskuágreininginn á lands-
prófi miðskóla 1967 beri
að ræða og rita með málefna-
lega könnun staðreynda eina
að leiðarljósi, en spara sér yf-
irlýsingar skoðana sinna á and-
stæðingunum, spara sér „argu-
menta ad hominem“ yfirleitt.
Árétting þessi verður því ein-
göngu miðuð við þau atriði
málsins, sem málflutningur
þei-rra Odds og Óskars gæli
beinlínis brenglað skilningi á
fyrir fólki og valdið ranghug-
myndum, svo og atriði, sem
ekki hafa verið skýrð sérstak-
lega í fyrri athugasemd nefnd-
arinnar.
1. Þeir félagar O.A.S. og Ó.M.
virðast telja, að athugun prófs-
Samstaða um landamaari og Viotnam en
er las bækur Á.S. (Áths. í' sam-
anbirrðinum 27. júní sl. var
miðað við 5,94 og 6,85. Breyt-
ingin er sáralítil).
Mismunur á námsárangri
þessara tveggja hópa á lands-
íprófinu í heild er m.ö.o. stað-
' reynd, en ekki broslegur til-
búningur. Eflaust má finna
ýmsar skýringar á þessum mis-
muni, t.d. sjónarmið við val
nemenda í landsprófsdeildir
ýmissa skóla, en ákveðnir skól-
ar hleypa aðeins beztu nem-
endum sínum í landspróf, þar
sem aðrir skólar verða að taka
við misjafnlega undirbúnum
nemendum ijr ýmsum áttum.
Fleira mætti ugglaust enn
nefna. Hér verður þó ekki
reynt að skýra mismuninn
frekar, enda þyrfti til þess sér-
staka athugun og umfangs-
mikla. Auk þess mun skýring
fyrirbærisins væntanlega vera
andstæðingum nefndarinnar í
málinu kunnugri en undirrit-
uðum.
3. Sú ályktun undirritaðs, að
einkunnin 6,50 í ólesinni
dönsku sé nemendum bóka H.
M. og E.S. hagstæðari en eink-
unnin 7,16 hinum hópnum, gef-
ur þeim félögum O.A.S. og Ó.M.
tilefni til þungra áhyggna af
hæfileikum undirritaðs. Málið
er hins vegar ekki svo einfalt,
sem O.A.S. vill vera láta í
grein sinni í Alþýðublaðinu 4.
júlí s.l., en þar telur hann, að
verkefnið hafi reynzt fyrri
hópnum óhagstætt um 7,16 —
6,50 = 0,66. Það hefur þegar
verið rökstutt hér að framan,
að ekki er unnt að ætla mis-
jöfnum nemendahópum sömu
einkunnarvon. Ályktun undir-
andú5 Pólverja á V-Þýzkal.
VARSJÁ 11/9 — De Gaulle
Frakklandsforseti bauð Pólverj-
um í dag þátttöku í margþættri
áætlun um sameiningu Evrópu,
Iausn Þýzkalandsvandamálsins
og frið í Vietnam. Forsetinn
sagði í ræðu á pólska þinginu,
að Frakkland vildi eiga sér Pól-
land að bandamanni í miklum á-
formum, sem spönnuðu síðari
hluta aldarinnar og það væri
um það að ræða „hvort okkar
bíður friður og framfarir eða
styrjöld og tortíming“.
De Gaulle er fyrsti vestræni
stjórnjnálamaðurinn sem ávarp-
ar pólska þingið eftir strið.
Á sama fundi hélt foringi
pólska kommúnistaflokksins, Go-
mulka, ræðu, sem menn telja
bera þess vitni að dte Gaulle
hafi ekki tekizt að eyða tor-
tryggni pólskra ráðamanna í
garð Vestur-Þýzkalands eða
hagga afstöðu þeirra til Sovipt-
ríkjanna. De Gaulle hafði með
ýmsum hætti hvatt Pólverja til
að sættast við Vestur-Þýzkaland
og bent á fordæmi Frakka í því
efni. Gomulka sagði hinsvegar
að Pólverjar væru að visu reiðu-
búnir til að taka upp eðlileg
samskipti við Vestur-Þýzkaland
en með þvi skilyrði einu að
stjórnin þar tæki upp „nýja og
raunsærri stefnu“. Hann gat
þess að Þýzkalandsvandamálið
yrði ekki leyst nema með því
að viðurkenna tilveru A-Þýzka-
lands og auk þess er talið að
Ms. Árni Friðriksson
ins í vor hafi verið hlutdræg, Titaðs vefður skýr í Ijósi þessa.
enda undirritaður „haldið sjálf-
ur um mundangið". Svarið við
þessari ásökun er það, að þær
tölulegu niðurst. prófsins, sem
þeir félagar virðast fjandskap-
ast svo mjög við, eru ekki fundn-
ar og útreiknaðar af n<jfnd-
inni, heldur tveimur mönn-
um utan hennar, þeim Sveini
Bjömssyni stud. oecon. og
Herði Bergmann B.A. Þessir
tveir menn bera sjálfir ábyrgð
á vinnu sinni og niðurstöðum.
Nefndin gerði ekki annað en
að birta niðurstöður þeirra ó-
breyttar og undanbragðalaust,
og ræða þær í Ijósi þeirra á-
saktona, sem fram höfðu komið
s.l. vor.
2. Sú niðurslaða, að þeir
nemendur í Reykjavík og ná-
grenni, sem sl. vetur lásu bæk-
ur Haralds Magnússonar cg
Eriks Sönderholms (alls 268
nem.) hafi að meðaltali reynzt
slakari námsmenn en hinir, sem
lásu bækur Ágústs Sigurðs-
sonar (alls 300 nem. á sama
svæði), er að dómi þeirra O.A.
S. og Ó.M. „vægast sagt of
brosleg til að verða tekin al-
varlega“. Þessi niðurstaða —
svo mjög háðuleg að dómi
þeirra félaga — er sem hér
segir:
Sá nemendahópur, sem lesið
hafðf bækur H.M. og E.S. s.l.
vetur, reyndist hafa hlotið að
meðaltaii 5,94 í aðaleinkunn,
en 5,98, ef ekki er tekið tillit
til hiAnar umdeildu dönsku.
Meðaleinkunn hins hópsins var
6,85, en 6,86 ef ekki er reikn-
að með dönskunni. Þetta er
óneitanlega nokkur munijr á
námsárangri, sem gerir það
að verkum, að hóparnir verða
ekki fyllilega sambæril^gir.
Þegar gerður er samanburður
á dönskueinkununum, er því
með öllu óeðlilegt að telja eink-
unnarvon beggja hópanna í
dönsku hina sömu. Eðlilegra
er að miða slíka einkunnarvon
í ákveðinni námsgrein við með-
aleinkunn í öðrum greinum,
og verður það því gert hér:
5,98 fyrir nemendur bóka H.M.
og E.S„ en 6,86 fyrir þann hóp,
Fyrri hópurinn fær með 6.50
í ólesinni dönsku, 0,52 stigum
.hærra en sú einkunnarvon
nemur, sem eðlilegast er að
miða við. Síðari hópurinn fær
með einkunninni 7,16 í sama
verkefni (1,30 stigum hærra en
sambærileg einkunnarvon nem-
ur. Ljóst er af þessu, að mis-
munurinn er lítill, en sá mis-
munur, sem fram kemur, er
hagstæður nemendum bóka
H.M. og E.S.
4. Það kom íram í athuga-
semd landsprófsnefndar 27.
júní s.l., að talsverður mismun-
Framhald af 1. síðu.
manna á sjálfu hafinu þótt tek-
izt hefði að bæta aðstöðu þeirra
í landi og hefðu þeir orðið að
nota skip sem ætluð væru til
annarra starfa. Þakkaði hann í
því sambandi Landhelgisgæzl-
urmi fyrir gott samstarf við
Hafrannsóknastofnunina á liðn-
um áratugum.
Hann sagði fjárhagslega til-
komu M/s Árna Friðrikssonar
einsdæmi, en það voru sjómenn,
útvegsmenn og síldariðnrekend-
ur sem ákváðu að eigin frum-
kvæði að lækka annars mögu-
legar tekjur sínar um ákveðinn
hundraðshluta og láta það gjald
renna til skipskaupanna. Hlut-
verk ríkisstjórnarinnar vegna
smíði skipsins verður að á-
byrgjast greiðslu byggingar-
kostnaðar meðan tekjur gjalds-
ins eru að innheimtast og sjá urr
rekstur þess.
Þá minntist ráðh. Jakobs Jak-
öbssonar fiskifræðings nemanda
og samstarfsmanns dr. Árna
Friðrikssonar, sem átt hefði
mestan þátt í að auka skilning
hlutaðeigandi aðila á nauðsyn
vísindalegrar þjónustu við fisk-
veiðiflotann, en hann hefur frá
upphafi fylgzt með smíði skips-
ins og búnaði þess.
Þaþkaði sjávarúlvegsmálaráð-
herra síðan fvrir hönd ríkis-
stjórnarinnar öllum samtökum
og einstaklingum sem gert hefðú
v,ar á einkunpum í lesinni | sm!ð; skjpsins mögUiega og af-
dönsku. Höfðu nemendur bóka
H.M. og E.S. fengið 5,41 að
meðaltali, en nemendur bóka
Á.S. 8,05. Á þessar tölur var
bent. eins og aðrar niðurstöð-
ur útreikninga, í athugasemd
nefndarinnar. Hins vegar var
ekki hirt um að skýra þær
nánar þá. enda fjallaði athuga-
semdin aðeins um þær ásakan-
ir, sem þegar voru fram komn-
ar, en engin þeirra tók þetta
atriði beinlinis fyrir. Augljóst
mál er. að hérna er um að'
ræða talsverðan mismun jafn-
vel þótt það írávik, sem miða
ber við, sé auðvitað ekki 2,64,
eins og þeir félagar O.A.S. og
Ó.M. virðast telja. heldur
nokkru lægra vegna þes^ mis-
'munar á heildarnámsárangri
hópanna, sem fyrr getur. Leita
má ýmissa skýringa á þessu
fráviki einkunna. Ein hugsan-
leg skýring er vitaskuld sú, að
viðkomandi nefndarmanni hafi
að þessu sinni ekki 'tekizt að
velja nógu sambærilega þyngd
kafla úr báðum bókunum. Það
mun vart á mannlegu færi að
velja nákvæmlega jafnþunga
kafla úr ólíkum kennslubókum.
en auðvitað nauðsyrjegt og
sjálfsagt að keppa að sem
minnstum mun. Önnur hugsan-
leg skýring fráviksins er sú,
að kennarar bóka H.M. og E.S.
hafi að jafnaði ekki lagt eins
mikla áherzlu á þýðingu og
kennarar með bækur Á.S., og
enn mætti nefna ýmislegt, enda
Framhald á 7. síðu.
henti m/s Árna Friðriksson Haf-
rannsóknastofnuninni til eignar
og reksturs.
Davíð Ólafsson stjórnarfor-
maður Hafrannsóknastofnunar-
innar veitti skipinu viðtöku og
minntist við það tækifæri fyrri
vísindamanna eins og dr. Bjarna
Sæmundssonar sem hefði orðið
að stunda rannsóknir sínar á
dönskum skipum og dr. Áma
Friðrikssonar sem starfað hefði
á skipum Landhelgisgæzlunnar.
Nú væru teknir við ungir menn,
sagði hann. dr. Bjarni og dr.
Árni horfnir. Það væri ekki til-
viljun að fyrsta hafrannsókna-
skipið væri sildarleitarskip og
við hæfi að þáð bæri nafn dr.
Áma.
Skipið verður almenningi til
sýnis kl. 2—5 í dag, þar sem
það liggur við Ægisgarð. Það
fer í fyrsta leiðangurinn síðari
hluta vikunnar undir stjórn Jak-
obs Jakobssonar austur og norð-
ur fyrir land í áttina að Sval-
barða.
Árni Friðriksson RE 100 er
450 rúmlestir, hann' er um 41,4
m. langúr, 9,7 m breiður og um
4,6 m. djúpur. Aðalvélar skips-
ins eru tvær 498 ha M.A.N.-
dieselvélar, sem tengdar eru á
einn öxui. Ljósavélar verða einn-
ig tvær.
f vélarrúmi er hljóðeinangrað-
ur stjóm- og vinnuklefi, en auk
þess er unnt að stjórna vélbún-
aði frá lyftingu. Þar er einnig
viðvörunarkerfi. Vélarúmið er
allt hljóðeinangrað og allar vél
ar, gírkassi, dælur og rafalar
eru á gúmmímottum til að
hindra titring í skipinu. Að ut-
an hefur byrðingur skipsins
verið gerður eins sléttur og
kostur er. Hvorki verður ytri
kjölur né veltibretti á skipinu.
í þess stað er svokallaður velti-
tankur eða geymir, sem nær
þvert yfir skipið. Hann er hálf-
fylltur af sjó og er ætlazt til að
sjórinn streymi jafnan á móti
veltu skipsins og dragi allt að
50—60% úr veltunni. Framan-
greindar ráðstafanir hafa verið
gerðar til að leitarhæfni fiski-
leitartækjanna komi að sem
beztum notum og góð starfsskil-
yrði verði fyrir hvers konar ná-
kvæmnisvinnu um borð. Leitar-
tækin verða af Simradgerð.
Skipið verður útbúið til skut-
togs- og hringnótaveiða. Vindur
verða frá Brattvág í Noregi.
Tvær rannsóknastofur epu í
skipinu, þar sem aðstaða vérður
til úrvinnslu nauðs.vnlegra gagna
við síldarleitina o.fl.
Smíði skipsins hófst siðla
sumars 1966, og hinn 1. marz
sl. var það sjósett og gefið
nafnið Árni Friðriksson, en hann
var fyrsti forstöðumaður Fiski-
deildar Atvinnudeildar Háskól-
ans og síðar framkvæmdastjóri
Alþjóðahafrannsóknaráðsins í
mörg ár. Mesta afrek dr. Áma
á sviði síldarrannsókna má tví-
mælalaust telja kenningar hans
um hinar miklu sildargöngur
milli íslands og Noregs. Dr.
Ámi Friðriksson lézt á sl. sumri.
Skipið var afhent tinn 5. þ.m
og gekk 12,9 sjómílur í reynslu-
ferð. Smíðaverð þess er um 40
miljónir króna.
Pólverjar vilji ekki slá af kröfu
sinni um að Bonnstjómin hætti
að líta á sjálfa sig sem eina
lögmæta fulltrúa Þjóðverja og
viðurkenni vesturlandamæri Pól-
lands.
Sum ummæli de Gaulle hafa
verið túlkuð á þann veg að
hann hvetti Pólverja til sjálf
stæðari afstöðu til Sovétríkj-
anna. Gomulka tók af skarið
um þetta mál í ræðu sinni og
sagði að „í dag gæti Frakkland
í fyrsta sinn komið á vinsamleg-
um samskiptum við Austur-Evr-
ópu án þess að þurfa að velja
á miyi Póllands og voldugra ná-
granna þess fyrir austan — og
sagði einnig að bandalag Pól-
lands við Sovétríkin væri horn
steinn utanríkisstefnu landsins
og öryggis þess.
De Gaulle sagði að Pólverjar
og Frakkar hefðu samband sín
á milli um aðgerðir til að koma
á friði í Vietnam. Mikið var
klappað fyrir honum á þingi
þegar hann sagði að Frakkland
hefði allt frá 1944 stutt núver-
andi landamæri Póllands sem
væru réttlát — en skv. þeim
fengu Pólverjar um 100 þús. fer-
kílómetra lands sem áður heyrði
undir Þýzkaland.
Hálf milfón
á númer 9427
í gær var dregið í 9. flokki
Happdrættis Háskóla íslands.
Dregnir voru 2.390 vinningar að
fjárhæð 6.500.000 krónur.
Hæsti vinningurinn, 500.000
krónur, kom á hálfmiða númer
9427. Voru þessir miðar seldir
í eftirtöldum fjórum umboðum:
Jóni St. Arnórssyni, Bankastræti
11. Frim. Frímannssyni. Hafnar-
húsinu, Amdísi Þorvaldsdóttur,
Vesturgötu 10 og í umboðinu á
Reyðarfirði.
190.000 krónur komu á hálf-
miða númer 58.751. Voru þeir
allir seldir í umboði Jóns St.
Amórssonar, Bankastræti 11.
Þessi vinningur skiptist milli
tveggja starfsmannahópa, sem
áttu raðir af miðum.
10.000 krónur:
Slæm færð á
Snæfellsnesi
Mikil úrkoma var í gær víð-
ast hvar um landið og var færð
slæm á köflum, en hvergi lok-
uðust vegir.
Blaðið hafði í gær samband
við Vegagerð rikisins og fékk
þær upplýsingar að verst hefði
færðin verið á Fróðárheiði og
vegir allir mjög slæmir á Snæ-
fellsnesi. Sömuleiðis hefði rignt
mikið í Hvalfirði og Borgar-
firði og færðin þar verið nokk-
uð slæm.
2352 6833 7155 9121 9291
9426 9428 9530 9621 12097
12855 13335 13991 14570 14742
14776 16108 17024 17097 17186
20569 20643 21263 23377 23533
26866 28820 29254 32303 32780
33232 34626 39413 42500 43221
43489 43544 445 lí 44623 45422
46078 46155 47837 49332 50774
52155 58175.
(Birt án ábyrgðar.
Bardagar
Framhald af 1. síðu.
Indverja, sem hafa þama allmik-
ið heriið.
1 síðustu viku bárust fréttir
um minniháttar skærur á þess-
um slóðum. Kínverjar sökuðu
Indverja um að hafa sært landa-
mæraverði sem vildu hefta för
þeirra inn í Kína, en Indverj-
ar segja að Kínverskir hermenn
hafi flutt sig nær landamærun-
um smám saman til að hafa sem
bezt útsýni yfir bækistöðvar Ind-
verja-
Ef Kínverjar sækja fram um
54 km á þessum slóðum hafa
þeir náð landamærum Austur-
Pakistans, og einangrað austast'a
fylki Indlands, Assam. Þetta
hafði næstum gerzt í september
1965 þegar Indland og Pakistan
elduðu grátt silfur saman.
Konungur Sikkims, Palden
Thondup Namgyal, kom frá höll
sinni til Nathuskarðs í dag til
að kynna sér aðstæður. .
BLAÐ-
DREIFING
Blaðburðarfólk vant-
ar í eftirtalin hverfi:
Hjarðarhagl
Framnesvegur
Langahlíð
Tjarnargata
Hvassaleiti
Kaplaskjólsvegur
Hringbraut
Múlahverfj
Drápuhlíð.
Blönduhlíð.
Vesturg-ata
Vogar
ÞJÓÐVILJINN
áími 17 500.
AUGLÝSING
frá gjaldeyriseftirliti Seðlabankans.
Frá 1. september s.l. gilda breyttar reglur um
heimildir ferðamanna til þess að flytja peninga
inn og út úr landinu.
Fer hér á eftir aðalefni reglnanna. sbr. reglugerð
nr. 79/1960 með áorðnum breytingum í reglugerð
frá 31. ágúst s.l.
íslenzkir peningar.
Innlendir sem erlendir ferðamenn mega flytja með
sér út og inn í landið mest fimmtán hundruð krón-
ur. Óheimilt er að flytja úr landi staerri seðla en
eitt hundrað krónu seðla. Öðrum aðilum, að með-
töldum bönkum, er óheimilt að flytja íslenzka
peninga inn og út úr landinu, nema leyfi Seðla-
bankans komi til.
Erlendir penin^ar.
Ferðamenn búsettir hérlendis mega flyt’ja með sér
út og inn í landið þann erlenda gjaldeyri, sem
þeir hafa lögleg umráð yfir. Ferðamenn búsettir
erlendis mega flytja jafnmikla erlenda peninga
út úr landinu og þeir flutt-u inn við komu til lands-
ins. Bankar, sem heimild hafa til að verzla með
erlendan gjaldeyri, svo og aðrir, sem löglegar
heimildir hafa, mega flytja erlenda peninga inn
og út úr landinu.
Reykjavík, 5. séptember 1967.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Gjaldeyriseftlirlit.
*