Þjóðviljinn - 13.09.1967, Page 3

Þjóðviljinn - 13.09.1967, Page 3
Hlé á loftárásum eða auknar loftárásir? Miðvikudagur 13. septemlber 1967 — ÞJÓfJVXLJlNN — SlÐA 3 Sihanouk prins lætur velja á milli sín og Kínasinna PHNOM PBNH 11/9. Narodon Sihanouk prins, forsætisráðherra Kambodja, hefur boðað ailsherj- aratkvæðagreiðslu í lan'di sínu um nýárið og eiga menn þá að greiða atkvœði um stjórn hans og öfl sem talin eru vinsamleg Kínverjum. Um leið tilkynnti prinsinn að hann mundi biðja tvo ráðherra sína kínasinnaða að láta af em- bætti og hann hefur einnig aft- urkallað leyfi tiil einstaklinga um blaðaútgáfu. Sihanouk hefur verið mjög vinsamlegur Kína í utanríkis- stefnu sinni en hann hefur að undanfömu sakað Kínverja um afskipti af innanríkismálum Kambodja. Frá Washington berast um þessar mundir þverstæðax fregnir um áform stjómarinnar þar í Vietnamstyrjöldinni. Einn daginn er boðað hlé á loftárásum, en daginn eftir eru hertar loftárásir á Norður-Vietnam; þannig voru til að mynda gerðar fjórar loftárás- ir í gær á Haiphong, helztu hafnarborg landsins, og hafa Banda- rikjamenn aldrei áður kastað sprengjum svo nálægt miðbænum þar sem nú. Þessar loftárásir hafa í för með sér verulegt flug- vélatjón; í gær misstu Bandaríkjamenn 674. flugvél sína yfir land- inu, en Norður-Víetnamar sjálfir segjast hafa skotið niður meira en helmingi fleiri. — Myndin sýnir niðurskotna bandaríska flugvél á hrísakri svo og lík flugmannsins. — Mynd: APN. Sihanouk. Kennarar í New York í verkfalli NEW YORK 11/9 — Skólaárið hófst í New York með mjög sögulegum hætti. Þúsundir kennara hunzuðu dómsúrskurð um að þeim bæri að halda á- fram kennslu og ákváðu að mæta ekki til að fylgja eftir kröfum sínum um betri laun og starfsaðstöðu. í stéttarfélagi kennara í borg- Englendingar láta undan síga í Aden ADEN 12/9 — Brezki herinn yfir- gaf í dag svæði það sem kallað „litla Aden“ og afhenti herstöð sem er 14 miljón punda virði her Suður-Arabíusamfoandsins- — Litla Aden er miðstöð arabískrar þjóðemisstefnu og var herstöðin afhent nokkrum stundum eftir að þjóðernissinnar höfðu ráðist á brezka varðsveit og drepið brezkan liðsforingja. 1 Suður-Arabíusambandinu eru tvær hreyfingar þjóðernissinna og hafa þær barizt innbyrðis þar til að dag og um leið var lýst yfir allsherjarverkfalli í Aden, sem enn er brezk nýlenda. Hafa - Kaþélskir gegn gnðleysinu RÓM 12/9 — Kaþólska kirkjan tilkynnti í dag að hún byggi sig til baráttu við guðleysi sam- tímans. Veiður baráttan við þetta „mikla böl samtímáhs" eins og það er orðað, aðalefní fyrstu biskupastefnu Rómar- kirkju sem hefst 29. september. Pólski biskupinn Wladislaw Ru- bin sem skýrði frá þessum tíð- ihdum á blaðamannafundi var- aði sérstaklega við „öfgafullum mótmælaguðfræðingum" sem gerðu sig seka um áhrif frá guðleysingjum. hreyfinftar þeSsar gert með sér vopnahlé fyrýr tilstilli hers Suð- ur-Arabíusambandsins, sem læt- ur æ meir að sér kveða eftir því sem áhrif Breta dvína þar um sióðir. Svíar varkárir í hægri umferð STOKKHÓLMI 10/9 — Fyrstu viku hægri umferðar í Sviþjóð fórust níu manns í umferðinni og er það þriðjungi mfnna en í sömu viku fyrir ári. Er tala bæði dauðaslysa og annarra umferð- arslysa sýnu minni en undir- búningsnefnd hægri umferðar gat búizt við samkvæmt þeim upplýsingum sem undirbúnings- nefnd hægri umferðar hafði úr að spila. Tartarar frá Krím fá uppreisn æru Póllandsheimsókninni lokið VARSJÁ 12/9 — í dag lauk í Varsjá opinberri heimsókn de Gaulles Frakklandsforseta og var gefin út ^opinber tilkynning um viðræður hans og pólskra ráða- manna. Norðurlöndin á- ákæra Grikk- landsstjérn ÁRÓSUM 12/9 — Krag, forsæt- is- og utanríkisráðherra Dan- merkur, upplýsir í blaðaviðtali í dag, að Danmörk, Noregur og Svíþjóð- muni í sameiningu bera fram kæru á grísku herforingja- stjórnina fyrir mannréttinda- nefndinni í Strasbourg í næstu viku. Unnið er að því að setja ákæruskjalið saman. Líklegt er talið að Holland og Belgía taki einnig undir kröfuna. MOSKVU 11/9. Æðsta ráð Sov- étrfkjanna hefur • ákveðið að veita Tartörum á Krím upreisn æru og taka opinberlega aftur ákærur frá tímum Stalíns um að þeir hafi haft samstarf við Þjóðverja mcðan þeir hemámu Krímskaga. Eftir að Þjóðverjar hörfuðji frá Krím voríi langflestir Tart- •arar þar fluttir nauðugir á brott eða settir í fangabúðir, en þeir voru áður um fjorðungur íbúa skagans. Slíkir brottflutningar bitnuðu á sjö smáum þjóðemum, eink- um í Kákasus, og em Tartarar á Krím þeir síðustu sem fá upp- reisn æru. Sannað þótti að all- mikill hluti þeirra hafði sam- starf við Þjóðverja á stríðsámn- um, en í lögum um uppreisn æm er tekið fram, að þau afbrot hafi verið látin bitna á þjóðinni alllri án tillits til þess hvernig menn hefðu hegðað sér í raun og vem. Tartarar voru flestir fluttir til Mið-Asíu. ópu og í þágu friðar i Vietnam. Þegar hefur verið greint frá ágreiningi milli de Gaulles og Pólverj a um Þýzkalandsmál, sem hefur orðið ýmsum vestræn- um fréttaskýrendum tilefni til að lýsa ferð de Gaulles misheppn- aða, en Reutersfréttastofan legg- ur á það áherzlu nokkra í dag að ýmislegt af því sem mestu skiptir hafi ekki komið fram í opinberum ræðum og yfirlýsing- um forsetans og gistivina hans heldur í einkaviðræðum, sem í raun skipti meira máliý' Þar er lögð mikil áherzla á þýðingu samstarfs Póllands og Frakklands í öryggismálum Evr- Pélitísk útgáfa á Kéraninum MOSKVU 12/9 — Hin helga bók Múhameðstrúarmanna, Kór- aninn, verður gefin út á ar- abísku í Sovétríkjunum, og er þessi ráðstöfun m.a. rakin til vinsamlegrar • afstöðu Sovétríkj- anna til Arabaríkjanna. Múham- eðstrúarmenn sem eru næst- fjölmennasti trúflokkur Sovét- ríkjanna, verða þá nokkuð bet- ur settir um helgirit en aðrir — en það hefur t.a.m. verið mjög erfitt að ná í biblíur í landinu. Kóraninn hefur hinsvegar kom- ið út í vísindalegri útgáfu í Sovétríkjunum eins og ýmis önnur trúarrit. inni eru um 50 þús. manns og segir talsmaður þeirra að um 90% þeirra taki þátt í þessum aðgerðum. Skólayfirvöldin hafa hinsvegar reynt að láta skólana starfa með hjálp foreldra og ó- faglærðs starfsliðs. Kennurum hafa verið boðnar kjarabætur sem nema um 125 miljónum dala, en þeir höfnuðu tilboðinu i gær með yfirgnæfandi meiri- hluta atkvæða. Segja þeir að þótt þeir gæti sætt sig við boðn- ar launahækkanir haldi þeir á- fram fast við kröfur sínar um minni bekki, stórbætt mennt- unarskilyrði bama úr fátækra- hverfunum og sérstakar ráð- stafanir vegna erfiðra nemenda. New York-ríki_ bannar verk- föll opinberra starfsmanna og hafa kennarar reynt að snið- ganga það bann með fjöldaupp-' sögnum. Hafa þegar borizt 40 þús. upsagnir, en kennarasam- bandið vill ekki birta listann' fyrr en það hefur fengið trygg- ingu fyrir því að hann verði ekki notaður til að kalla' kenn- arana í herinn. Samkvæmt dómsúrskurði um bann við verkföllum í skólum 'er hægt að dæma kennarasam- bandið í allt að 400 þús. króna dagsektir. Marijuana veldur krabbaneini BLACKPOOL 12/9 — Eiturlyfið marijuana er krabbavaldur sem að líkindum er miklu hættulegri en tóbak sagði prófessor John Stenlake á ráðstefnu lyfjafræð- inga í Blackpool á mánudags- kvöld. Hann sagði og að þeir menn væru gjörsneyddir á- byrgðartilfinningu sem berðust fyrir því að lögleyfa neyzlu marijuana því sannað væri að það í mörgum tilvikum *osri upphaf neyzlu á heróíni og öðr- um hættulegum eiturlyfjum. BIKARKEPPNI EVROPULIÐA í KVÖLD (MIÐVIKUDAG) KLUKKAN 18.30 LEIKA Á LAUGARDALSVELLINUM. Sala aðgöngumiða í dag við Útvegsbankann við Laugardalsvöllinn frá klukkan 5.00. Forðizt biðraðir. Notið forsöluna. KNATTSPYRNUFÉLAG REYKJAVÍKUR. VERÐ' AÐGÖNGUMIÐA: v . Stúka .... 100. Stæði .... 75. Böm .... 25.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.