Þjóðviljinn - 13.09.1967, Side 6

Þjóðviljinn - 13.09.1967, Side 6
0 SlÐA — ÞJÖÐVTUINN — Miðviiku<iagur 13. saptemiber 1967. Nýr ballett- meistari við Þjóðleikhúsið Um þessar mundir er stadd- ur hér á landi þekktur enskur danskennari og .,kóreógraf“, sem auk þess hefur kennt sviðshreyfingar við hið heims- þekkta leikhús í Stratford og við leiklistarskólann The Royal Academy of Dramatic Art í Jjondon.'en þar hafa sem kunn- ugt er stundað nám margir ís- lenzkir leikarar, Sem nú starfa hjá' Þjóðleikhúsinu og hjá'Leik- félagi ' Reykjavíkur. Molly Kenny hefur í síðastliðin 17 ár starfað að list sinni og hefur, auk þess að kenna og semja dansa fyrir leiksvið, margsinn- is komið fram í sjónvarpi sem dansari og samið dansa fyrir það. Molly Kenny mun á næstunni þjálfa ,leikara Þjóðleikhússins f syiðshreyfingum og leiksviðs- taekni. ■ ■"—— Molly Kenny. VIETNAM í EVRÓPl Síðari hluti greinar sem norski þingmaðurinn Finn Gustavsen skrifaði eftir heimsókn sína til Grikklands á dögunum Kommúnistar útlægir Það var ógnarlegt að heyra og það er furðulegt að það skuli ekki hafa verið lögð meiri áherzla á það í blöðum hvern- ig Patakos lýsti þeirri meðferð sem kommúnistar yrðu að sæta, ef þeir vilja ekki undir- skrifa hollustuyfirílýsingar og lofa að „berjast ekki gegn stjóminni.“ Þeir verða sendir í útlegð á afskefcktar eyjar með fjölsíkyld- um sínum. Þeir fá ekki að taka þátt í stjórnmálum og þeir fá ekki að berjast gegri stjórninni. Það var tómt mál að tala um lög og rétt í sambandi við þessa fanga. — Hvað eigið þér við með því „að berjast gegn stjóm- inni“? spurði ég. Eigið þér við skrif eða munnlega tjáningu á óánægju með stjórnina? — Hvaða form baráttu sem vera skal er gegn ríkinu, svar- aði hann. Það virðist ólíklegt að rik- ísstjóm sem þessi geti enzt Jengi f „vestrænu" ríki nú á dögum og fulltrúar íhalds- marma í þingmannapefndinni virtust trúa því að miklar breytingar lægju í loftinu. Ég er ekki jafn bjartsýnh og þeir. Of margir ákveðnir and- stæðingar stjómarinnar hafa verið gerðir hættullausir. Hins vegar er enginn vafi á því að þæði innan Grikklands og utan er verið að undirbúa uppreisn með vopnavaldi. Ný borgarastyrjöld hvílir eins og mara yfir grískum heimilum — en hershöfðingjaklíkan gæfi skapað slíkt ástand að því, mætti líkja við Vietnam í Evr- ópu. Aðeins fullt frelsi fyrir alla stjómmálaflokka,, alger valdasvipting konungsfjölskyld- unnar og hershðfðingja getur bjargað Grikklandi frá borgara- styrjöld. Stuðningur Bandaríkjamanna Það er sama hvort þeir Koll- ias eða Patakos eru gagnrýndir á þingmannafundum NATO, — það fer í taugarnar á þeim. En þingmannafundir ákveða ekki stefnu Nato og því síður stefnu Bandarikjanna. Bandarisk fjárfesting í Grikk- Iandi eyicst og Gouras utanrík- isráðherra miklaðist af því að erlendir fjármagnseigendur teldu Grikkland vera traustan vettvang tiJ fjárfestingar. Athen Daily Post birti grein meðan við vorum staddir í landinu og þar segir að hátt- Fyrri hluti þessarar grein- ar birtist i laugardagsblað- inu, en í seinni hlutanum, sem hér birtist, bendir Gustavsen á það, að her- foringjastjórnin í Grikk- landi gæti ekki setið degi lengur en Bandaríkjastjórn vill, að það eru Bandaríkja- menn sem ákveða á hverj- um tíma hve mikið frelsi og lýðræði skuli vera í hverju landi, og loks bend- ir hann á þá staðre.vnd, að samsvarandi valdarán gæti gerzt í Noregi — því að undirbúningi allra Nato- landa er eins háttað. Gæti slíkt valdarán einnig gerzt hér? settir foringjar í Nato hafi skoð- að grískan varnarbúnað og „lagt til að Grikkir fái aukna aðstoð, þar sem landið er nú vegna nýliðinna atburða fhér áreiðanlega átt við átökin fyr- ir botni Miðjarðarhafs og bað að sovézk herskip komu inn á Miðjarðarhaf) orðið eitt þýð- ingarmesta varnarvirki vest- rænna þjóða við austanvert Miðjarðarhaf. Sömu Natoaðilar leggja til, að núverandi ríkisstjórn hers- ins verði styrkt, þar sem hún ætli sér að berjast gegn komm- únismanum í Grikklandi. Það er vitað að markmið kommún- ista var að láta GrikkHand segja skilið við Nato, en bað hefði, svipt Nato varnaraðstöðu sinni á austurvæng bandalagsins. Fulltrúar Nato hafa lagt til að Grikkland fái efnahagsað- stoð til bess að landið verði sjálfu sér nægt í hvers konar iðnframleiðslu sem notuð er í . varnarmálum.‘' Þetta er birt í dagblaði sem er undir yfirstjórn herforíngja- stjórnarinnar og ég get ekki á- byrgzt sannleiksgildi þessarar fréttar. En hún er í samræmi við stærri mynd. Fyrsta röksemd Gourasar ut- anríkisráðherra fyrir valdarán- inu hinn 21. apríl var þessi: Það var framkvæmt til að koma í veg fyrir, að Grikkland segði skilið við Nato. Um svipað leyti lét bandaríski sendiherrann Talbot í ljós mikla gleði yfir því að bandarískt fjármagn hafði verið notað til I kringum grænu boroin ie Demaistre) sem er á góðri leið með aS verða sinnulaust rekald af eintómri spilafýsn. Ópersónuleg kynni við hin grænu borð spilavítisins verða nánari í 3. flokks hótelher- bergi, sem Jean hefur á leigu. Eftir að hafa unnið og tapað á víxl í nokkur kvöld vinna þau stóra peningaupphæð, kaupa nýjan bíl, falleg föt og flytja á 1. flokks baðstrandar- hótel. En spilaástríðan er sú sama og þau tapa öllum sin- um, selja bílinn . . . og tapa andvirði hans líka. í lok myndarinnar ganga þgu slipp og snauð út úr svilavítinu. Myndin er vel leikin, rðun- sæ og skemmtileg á köflum, en lætur lítið eftir sig. SS Bæjarbíó sýnir um þessar mundir frönsku myndina „Stúlkan með ljósa hárið“. Handrit og leikstjóm: Jacques Demy, Aðalhlutverk: Jackie ....... Jeanne Moreau Jean............ Claude Mann Myndin fjallar um ungan bankamann í París (Jean Fournier), sem vinnur mjög óvænt álitlega upphæð í fjár- hættuspilí. Verður þessi til- viljun til þess að hann, þrátt fyrir mótmæli föður síns, fer til Rivíerunnar i S-Frakk- landi til þess að freista gæf- unnar í hinum heimskunnu spilavítum/ sem þar eru. í fyrsta spilavítinu, sem hann rekst inn á, kynnist hann ljóshærðri stúlku (Jack- s-ítí'-" að reísa stóra verksmiðju í Grikklandi. Hið hlutlausa danska blað Information, sem er heldur Natosinnað, sagði hinn 17.- ág. „Bandaríkjástjóm ’ hefur á^veö- ið að halda éfram allri aðstoð við Grikkland sem áður, bví hún telur að herforingjastjórn- inni vérði ekki hnekkt. En það er vafamál hvort Banda- ríkjastjóm réiknar hér ekki dæmið skakkt eða er hér ver- ið að rugla saman orsök og af- leiðingu. HemaðarkHíkan hefur greinilega getað setið við völd vegna þess að ráðamenn í Wash- ington hafa aldrei beitt sér gegn henni.“ Það þarf ekki mikla þekk- ingu á stjórnmálum né við-' horfum í Grikklandj til að skilja að núverandi rfkisstjóm í Grikklandi gæti ekki haldið völdum degi lengur en Banda- ríkin vilja. En það táknar líka að kúgar- amir halda völdum svo lengi sem Bandaríkin kæra sig um það. Ef tifl vill verða fhaldssamir og frjálslyndir stjómmáOamenn látnir lausir. I Grikklandj verð- ur áreiðanlega — kannski bráðlega — snúið aftur til þess „lýðræðis“ sem var í landinu milli 1949 og 1960, þesgar þús- undir pólitískra fanga sátu í fangelsum og á djöflaeyjum. Þagnar þá almenningsálitið í hefminum? Verða þá flestir þeirra sem nú eru einlæglega öi-væntingarfullir vegna á- standsins í Gríkklandi ánægðir með þá staðreynd að „ástandið hefur batnað í Grikklandi", jafnvel þó þar sé ekki lýðræði í ckkar skilningi? Og Iátamenn sér lynda að það eru Banda- ríkin sem á hverjum tima á- kveða hve mikið lýðræði og frelsi skuli vera í löndum um allan heim? Þetta gæti gerzt hér Fáar bjóðir hafa orðið að þola jafn mikið og Grikkir. Hin nýja stefna George Papandreo- us og enn frekar efnahags- og fjármálastefna Andreasar Pap- andreous naut fylgi sósíalista í Grikklandi, því að þessi stefna kveikti vonir í brjóstum ann- arra en hins fámenna forrétt- indaaðals. í örfá ár hefur það verið reynt í Grikklandi að efla framfarir samkvæmt vestræn- um hugmyndum um lýðræði og fylgt var stefnu sem ekki var róttækari en stefna sósí- aldemókrata. Jafnvel sú stefna var barin niður á ruddalegasta máta. Enn f dag munu margir hugga sig með því að segja: „Slikt gæti aldrei gerzt hér“. Þeir ættu að vita að öll Nato- lönd hafa sína Promeþeusará- ætlun, að öll Nato-lönd hafa leyniþjónustu í samstarfi við CIA. Að öll Nato-lðnd hafa sín varúðarlög. Þetta gæti gerzt hér. Kirlcjan og þjóðfélagið: Sameigin/egur fundur presta á Vestfjörðum og SV-iandi Dagan 2. september var sam- eiginlegur fundur haldinn með Prestafélagi Vestfjarða og Hall- grímsdeild, prestafélagi Suð- vesturlands í Bjarkarlundi. Mættir voru tíu prestar af fé- lagssvæðunum. Aðalmálið var kirkjan og bióðfélagið. Framsögumaður var sr. Þorgrímur Sigurðsson á Staðarstað. Miklar umræður urðu um málið. Sr. Árni Pálsson, Söðulholti, sagði frá sex mánaða dvöl sinni i Eng- landi fyrir fáum árum og sýndi um leið skuggamyndir baðan, sem vöktu óskipta athygli fund- armanna. Svpfelld tillaga kom fram á fundinum: „gameiginlegur fund- ur Hallgrímsd’eildar og Presta- félags Vestfjarða haldinn í Bjarkarlundi 2.-3. sept. 1967 leggur áherzlu á nauðsyn bess, að hugmyndin um Kristnisjóð nái fram að ganga og skorar á Albingi að sambykkja frum- varp bess efnis, er lagt var fyr- ir síðasta þing. Fundurinn tel- ur og eðlilegt, að nokkrar breyt- ingar verði gerðar á núver&ndi prestakallaskipun Iandsins, en telur sjálfsagt, að í því efni verði farið eftir tillögum Kirkjuþings 1966“. í sambandi við fundinn var flutt guðsb.iónusta í Reykhóla- kirkju, sém sr. Sigurður Kristj- ánsson á Isafirði annaðist á- samt kirkjukór ísafjarðarkirkju, Sunnukórinn, sem tók sér ferð á hendur að Reykhólum í því skyni undir söngstjórn Ragnars H- Ragnars, skólastjóra og org- anleikara Isafjarðarkirkju. Er hér um messuskipti að ræða og er þess vænzt, að prestur og söngkór Reykhólakirkju flytji messu í Isafjarðarkirkju nú á næstunni. Eftir messu á Reykhólum sátu prestar og söngkór í boði prófastshjónanna á Reykhólum, frú Ingibjargar og Þórarins Þór. Að lpkúm komu svo prestar saman í Bjarkarlundi, þar sem fundi var slitið með bæn og sálmasöng. I i 1

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.