Þjóðviljinn - 20.09.1967, Side 6
g-sSÍBA----ÞiíðEWíííJWW-------WS®w8H*3agwr' 20, sepksnber S96SL
á lágu fargjöldunum
Þann 15. september ganga í gildi sérfargjöld tíl
eftirtaldnna staða:
Amsterdam, Bergen, Berlin, Brussel, Dub-
lin, Frankfurt am Main, Kaupmannahafn-
AR, Glasgow, Gautaborgar, Hamborgar,
Helsinki, London, Luxemborgar, Oslo,
Paris, Stavanger og Stokkhólms.
Gilda þau í 30 daga fró brottfarardegi. Síðasti
gjaldandi brottfarardagur er 31. okt. Fargjalda-
lækkun þessi nemur 25%. Fargjöld þessi eru fram
og til baka fargjöld. Hægt er að skipuleggja
hringferðir á grundvelli þeirra. (Routings).
Vetrarfarg'jöld til Luxemborgar ganga í gildi 1.
nóv. og gilda til 31. marz 1968. Gilda þau út allt
þetta tímabil og eru ekki miðuð við 30 daga gild-
istíma, en eru þau sömu að verðgildi. Rétt er að
benda á hagkvæmar ferðir strax eftir lendingu
Loftleiðaflugvéla til ýmissa stórborga á meginland-
inu svo sem Parísar og Frankfurt am Main með
langferðabifreiðum. — Sérstaklega ódýr fargjöld
og daglegar ferðir.
Enn fremur viljum viðvekja athygli á IT-fargjöld-
um okkar sem gilda til 31. okt. Unglingafargjöld-
in sem gilda á öllum Evrópuleiðum fyrir unglinga
á aldrinum 12—22 ára. Námsmannafargjöldunum
sem gilda í 2 ár. Við bjóðum upp á lánakjör
Loftleiða: helmingur fargjalds á leiðum þeim sem
flogið er með flugvélum þeirra, gegn 8% vöxtum
allt upp í eitt ár.
Við veitum þeim sem skipta við okkur alla fyrir-
greiðslu varðandi ferðalagið og kappkostum að
skapa viðskiptavinum okkar ódýra, góða og örugga
þjónustu. — Leitið viðskipta við okkur. Það
sparar yður fyrirhöfn og oft á tíðum peninga.
Höfum úrvalshótel um víða veröld.
LAND5BN t
FERÐASKRIFSTOFA
Laugavegi 54 — Símar 22875 og 22890.
RADI
NETTE
tækin eru byggð
fyrir hin erfiðustu
skilyrði
ÁRS ÁBYRGÐ
Radionette-verzlunin
Aðalstræti 18 sími 16995
Aðalumboð:
Einar Farestveit & Co. hf.
Vesturgötu 2.
Er það rétt
að fullorðið fólk geti lært erlend tungumál?
Já, það er rétt.
Fullorðinn maður er ÁHUGASAMUR — hann
veit HVERS VEGNA hann er að læra, hann kann
að meta GÓÐA KENNSLU — og honum finnst
námið SKEMMTILEGT.
Fullorðinn maður er góður nemandi.
Við vitum það. — Við höfum reynsluna.
Málaskólinn MÍMIR
Brautarholti 4 og Hafnarstræti • 15 —
sími 1 000 4 og 216 55 (kl. 1-7)'.
• Háðung aá flytja mn smíðina
Einar Ágústsson (til hægri) með einum viðskiptavina sinna i
nýju verzluninni, sem er að Lyngási 8, Garðahreppi.
• Ákveðinn í skoðunum og ó-
myrkur í múli er liinar
Ágústsson liúsasmíðameistari
sem um lielgina opnaði fyrstu
sérverzlun sinnar tegundar hér
á landi, verzlun þar sem ein-
göngu eru scldar útidyrahurðir
og allt sem til þeirra þarf.
— Það er þörf fyrir þetta, sagði
Einar, ómögulegt fyrir fólk að
þurfa að fara í þrjá eða fjóra
staði fyrir hverja útihurð, fá
kannski hurðina á einum stað,
læsinguna á öðrum, bréfalok-
una á þeim þriðja og svo fram-
,vegis.
Útihurðaverzlunin er þó að-
eins lítill hluti fyrirtækis Ein-
ars, Öndvegis h.f., verkstæðis
sem tekur að sér trésmíði í
húsbyggingar, gluggaeiningar,
dyraumbúnað og íleira, m.a.
gerði Einar tilboð í og fékk
smíði glugga og svalahurða í
Sl2 íbúðir framkvæmdaáætlun-
ar í Breiðholti. Hann tekur
einnig að 'sér smíði heilla húsa
ef svo ber undir og er fram-
tíðarhugsjónin að þróa verkstæð-
ið í verksmiðju sem framleiðþ-
einingar í íbúðarhús og selja
húsin tilbúin að öllu leyti.
— Það er hreinasta háðung
og mesta móðgun við íslenzka
iðnaðarstétt að vera að flytja
inn það sem hægt er að fram-
leiða jafn vel eða betur í land-
inu sjálfu, segir Einar, hvort
sem um er að ræða hurðir,
glugga eða heil hús. En það
virðist vera stefna „viðreisnar-
innar“ að drepa niður iðnað-
inn í landinu íyrir verzlunina.
Eða hvað á að kalla þnð þeg-
ar tollar á hráefni til vinnslu
í landinu sjálfu eru hnfðir
jafnháir eða hærri en á únn-
inni vöru? Hvort skyldi kosta
meiri gjaldeyri, efnið í þessa
hurð t.d. eða hurð sem smíðuð
er erlendis og flutt inn? Ekki
er erlenda hurðin ódýrari fyr-
ir kaupandann.
Nei, það er lítið varið í þessa
frjálsu samkeppni og þetta
svonefnda verzlunarfrelsi ef á
að hengja eina atvinnugrein
fyrir aðra!
13,00 Við vinnuna. — Kristín
Magnús les framhaldssöguna
„Karólu“.
15,00 Miðdegisútvarp. Ferrante
og Teicher leika á píanómeð
hljómsveit og sömuleiðis R.
Conway. M. Ry Andersen og
H- Hansen syngja lög úr
gömlum þýzkum kvikmynd-
um. Hljómsveit P. Krouders
leikur lög eftir Mackeben,
Winkler o.fl., P. Harris, Jan
Peearce, D. Ameche o.fl.
syngja lög úr söngleikjum. J.
MacDonald og N. Eddy
syngja lög eftir R. Friml og
V. Herbert-
16.30 Síðdegisútvarp. Búdapest-
kvartettinn leikur kvartett
nr. 38, eftir Haydn. I. Hábl-
er leikur á píanó þýzlca
dansa eftir Schubert. Y. Men-
úhin, R. Masters. E. Wall-
fisch, G. Aronwitz. M. Gen-
dron og D. Símpson leika
Scxtett nr. 2 eftir Brahms.
F. Corelli syngur Agnus
Dei, eftir Bizet.
17,45 Lög á nikkuna- T. Jacq-
ue o.fl. leika lagasyrpu og
F. Carica aðra.
19.30 Hörður Kristinsson tal-
ar um fléttur.
19,35 Taekni og vísindi. — Dr.
Haildór Þormar flytur erindi.
19,55 Sinfónía nr. 2 eftir Hild-
ing Rosenberg. Fílharmoníu-
svcit Stokkhólms leikur; H-
Blomsted stjómar.
20.30 Tvær smásögur eftir Sig-
urð Heiðdal: Á skautum og
Úff. Margrét Jónsdóttir les.
21.30 Skagfirzkar lausavísur. —
Hersilía Sveinsdóttir flytur.
21,45 Ellen-Margrete Edlers frá
Danmörku syngur sjö lög
eftir Weise. Við píanóið:
Guðrún Kristinsdóttir.
22,10 Kvöldsagan Tímagöngin,
eftir Murray Leinster. Eiður
Guðnason endar lestur sög-
unnar, sem hann þýddi sjálf-
ur (14).
22,35 Magnús Ingimarss. kynn-
ir músíJk af ýmsu tagi.
23,20 Fréttir í stuttu máli.
— Dagskrárlok.
sjónvarpið
Miðvikudagur 20. sejpt.
6,00 Grallaraspóarnir.
6,25 Denni dæmalausi. — Hlé.
8,00 Fréttir.
8,30 Steinaldarmennirnir.
8,55 Sumar á Grænlandi. —
Þessi mynd greinir frá
liínaðarháttum1 granna
vorra á GrænlandL
9,20, Gestur til miðdegisverðar.
Kviikmynd Monty Wooly,
Ann Sheridan og Bette
Davis leika.
EINKAUMB
VEltÐLÆKKUN
hjóltoairoar
kr. 625,—
kr. 1.900,—
ksr. 1.070,—
kr. 3.047,—
kr. 1.500.—
slongur
kr. 115,—
kr. 241,—
fcr. 148.—
kr. 266,—
kr. 150,—
500x16
650*20
670x15
750x20
820x15
TRADIIMG
SIMI 17373
Menntaskólanemar
Kaupum notaðar kennslubækur, glósur og stíla
í íþöku 25. og 26. sept. .kl. 16—19.
★
Seljum aftur 28. sept. kl. 19—21.
BÓKSÖLUNEFND M.R.
Trésmiðir — Járnsmiðir
Óskum að ráða trésmiði og jámsmiði til Straums-
víkurhafnar. — Upplýsingar á staðnum eða í
síma 52438.
HOCHTIEF-VÉLTÆKNI.
■ • r.. ’ V-V?'w 'ir
Einangrunargier
Húseigendui — Byggingameistarai.
Otvegum tvöfalt einangrunargler með mjög stutt-
um fyrirvara. t
Sjáum um ísetningu og allskonar breytingar á
gluggum. Útvegum tvöfalt gler í lausafös og sjá-
um um máltöku.
Gerum við sprungur í steyptum veggjum með
baulreyndu gúmmíefni.
Gerið svo vel og leitið tilboða.
SÍMI 5 11 39.
Nám og atvinna
Stúlkur, sem vilja læra umönnun og gæzlu van7
gefinna, geta komizt að í slíkt nám á Kópavogs-
hæli.
Námstíminn er 2 ár. Laun eru greidd námstím-
ann og húsnæði á staðnum fyrir nemendur. — Að
loknu námi taka gæzlusystur laun samkvæmt 13.
launaflokki Kjaradóms.
Nánari upplýsíngar veittar á staðnum. hjá yfir-
lækni eða forstöðumanni, og í síma 41504.
Reykjavík, 18. september 1967.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
A uglýsið í ÞjóðvHjanum
Síminn er 17 500
i