Þjóðviljinn - 20.09.1967, Qupperneq 10
Ensi ekið á menn
á zebrabraut
Enn var ekið á mann á merktri
gangbraut á Hringbraut við
Kennaraskólann í gærmorgun og
bar' það að með mjög likum
hætti og slysið sem þar varð
fyrir nokkrum dögum, bifreið
hafði numið staðar á vinstri ak-
rein til að hleypa manni yfir,
en önnur á hægri akrein ók við-
stöðulaust áfram og á manninn.
Þáð var maður á níræðisaldri,
Guðmundur H. Guðmundsson,
Ásvallagötu 65, sem fyrir slys-
inu varð og kastaðist hann upp
á vélarhlif bifreiðarinnar, barst
með henni 4—5 metra og kast-
aðist síðan í götuna. Guðmundur
var fluttur á slysavarðstofuna,
illa marinn. en ekki talinn
hættulega slasaður.
Telpa fyrir bíl
Um tvöleytið í gærdag varð
ung telpa fyrir bíl á mótumBóil-
staðahlíðar og Stakkahlíðar, þar
sem hún var að leika sér á hjóli.
Telpan meiddist á hendi og
rtiissti tönn, en var ekki talin
alvarlega slösuð.
Areksfar á blind-
hæð í ölfnsi
Það slys varð rétt fyrir kl. 10
í gærmorgun á blindhæð á móts
við Iiitla Land í ölfusi, að tveir
bílar með X og R númerum,
rákust þar harkalega á. Tveir
menn sem voru í X-bíInum
sluppu með skrámur, en í Rvík-
urbíln-um voru þrír menn, öku-
maður slapp ómeiddur, en
farþegamir meiddust og mun
annar þeirra hafa rifbrotnað,
Báðir bílamir eru nánast ónýtir
eftir áreksturinn.
Sagði lögreglan á Selfossi, að
árekstrar hefðu oft orðið á þess-
ari sömu bttindhæðogtaldi brýna
nauðsyn að hún yrði klofin.
árekstur á Akur-
eyri í gærkvöld
Harður árekstur varð á milli
bifhjóls og fólksbifreiðar á mót-
um Gránufélagsgötu og Geisla-
götu á Akureyri rétt fyrir kl. 10
í gærkvöld með þeim afleiðing-
um að ungur piíltur, sem var á
hjólinu, meiddist og var fluttur
á sjúkrahús, þó ekki talinn vera
hættulega slasaður.
ffljép fyrir bíl
Um tíuleytið í gærkvöld varð
það slys á Fríkirkjuvegi, að ölv-
aður maður hljóp fyrir bifreið,
sem kom niður Skálholtsstíg og
beygði til hægri. Kastaðist mað-
urinn í götuna og blæddi tals-
vert úr andliti hanl. Hann var
fluttur á Slysavarðstofuna.
Jtepnur veikjast af mjöli
úr ruslahaugum borgarinnar
■ Um síðustu mánaðamót voru losuð í ruslahauga Reykja-
víkurborgar, í lóni við Grafarvog, um 200 tónn af blautu
og skemmdu m'jöli úr Jökulfelli. Mun mjölið hafa skemmzt
í brunanum mikla í Borgartúni. Talsvert af mjölinu flaut
undir girðingu og út úr lóninu — og rak síðan á fjörur.
■ Allmargar kindur og hross í eigu Þorgeirs Jónssonar,
bónda í Gufunesi komust í mjölið og varð gerjunin í innyfl-
um skepnanna svo mikil að margar þeirra fárveiktust og
ein eða tvær kindur drápust.
Þjóðviljinn spurðist fyrir um
það í gær hjá Pétri Hannessyni,
íulltrúa borgarverkfræðings,
hvernig gengið hefði verið frá
mjölinu í Grafarvogi.
— Mjölið var grafið og hulið
jarðvegi, sagði Pétur, en þarna
er' stórstreymi og hefur mikið
af mjölinu losnað og farið undir
girðinguna sem er umhverfis
lónið. Erfitt er að festa girðingu
nækiiega þarxva og heíu>r kontóð
fyrir að myndazt hafa í hana
skörð, en mjölið fór þó ekki
út um skarð heldur undir girð-
inguna eins og fyrr segir.
Frágangur á ruslahaugunum
er eins góður og hægt er, sagði
þann ennfremur, og hafa nú
verið gerðar ráðstafanir til þess
að rusl komist eklá undir girð-
inguna eða í gegnum skörð.
En skemmda mjölið komst
sem sé út ú-r lón.in® og rak á-
fjörur með þedm afleiðingum að
10—12 hross og nokkrar kindur
í Gufunesi veiktust.
Fyrst varð Þorgeir bóndi var
við sjúkdóminn í skepnunum á
fimmtudagskvöldið er hann var
að smala hrossum. Páll A. Páls-
son yfirdýralæknir hefur síðan
unnið að því að rannsaka nokkr-
ar skepnanna sem veiktust og
krufði hann eina kind sem drapst
af veikinni.
Sagði Páll í stuttu viðtali við
blaðið í gær að þegar skepnur
ætu yfir sig af mjöli kæmi oft
fram eitrun. — Það kemur gerj-
un í þetta og veldur hún oft
hrossasótt eða kveisu, sem
þessu tilfelli var sérlega slæm,
ságði Páll. Hrossin urðu sljó,
slöpp og lystarlaus og fengu mik-
inn niðurgang. Síðan komu fram
eiturverkanir og fengu þau þá
þólgu í hófkvikuna og áttu þá
bágt með gang.
Frímnn fhlgnson sæmdur gullmerki í gær
í gær var Frímann Helgason
sæmdur gullmerki Samtaka í-
þróttafréttamanna, og afhenti
Sigurður Sigurðsson, formaður
samtakanna, merkið. Gat Sigurð-
ur þess í ræðu sem hann hélt
við þetta tækifæri, að Frímann
væri annar maðurinn sem hlýt-
ur gullmerki samtakanna, en
fyrstur var Bertedikt G. Waage
sæmdur merkinu fyrir tveimur
<ár>um.
\
Minntist Sigurður hins merka
starfs Frímanns sem brautryðj-
anda í skrifum um íþróttir í
dagblöð, en nú á næsta ári eru
30 ár liðin síðan Frímann tók
að sér ritstjórn íþróttasíðu Þjóð-
viljans.
Sagði Sigurður að gullmerkið
væri ekki veitt nema sérstök á-
stæða þætti til og aðeins með
einróma samþykki stjórnarinnar,
-og væru áreiðanlega aillir sam-
mála um að enginn væri betur
að þessum heiðri kominn en
Frímann Helgason.
Frímann þakkaði sýndan heið-
ur og rakti sjjittlega tildrögþess
að hann hóf að skrifa um iþrótt-
ir.
Myndin af Frímanni og konu
hans er tekin við afhendingu
gullmerkisins í gær. — (Ljósm.
Þjóðv. H. G.).
Hatjstveftíð hafm hjá Helgafelli
Arnór, Magnús A. og
Jón Ósknr í gærdng
Helgafell gefur .út margt íslenzkra bóka á þessu hausti.
Þrjár þeirra komu út í dag: Ásverjasaga eftir Amór Sigur-
jónsson, Gamanþættir af vinum mínum eftir Magnús Á.
Ámason listmálara og þýðingar á ljóðum Jóns Óskars á
frönsku.
Úr Fjalla-Eyvindi. Arnes og Tóta — Pétur Einarsson og litla dóttir hans, Margrét.
Leikfélagib að hef ja vetrar-
starfið — 3 ný íslenzk verk
Leikfélag Reyk'javíkur er ,að hefja vetrarstarfið og verða
á haustmisserinu sýnd fimm leikrit, þar af fjögur eftir
íslenzka höfunda. Þá er í undirþúningi skemmtun sem
haldin verður í næstu viku til ágóða fyrir húsbygginga-
sjóð félagsins og leiklistarskólinn er að hefja störf.
Sveinn Einarsson framkv.stjóri
Leikfélagsins skýrði svo frá á
blaðamannafundi í gær, að
fyrsta sýning félagsins á þessu
leikári yrði annað kvöld, kl.
8,30, og er það Fjalla-Eyvindur
Jóhanns Sigurjónssonar sem tek-
inn verður aftur til sýninga, en
hann var sýndur 54 sinnum á
síðasta leikári, ávallt fyrir fullu
húsi. Leikritið var frumsýnt á
70 ára afmæli félagsins 11. janú-
ar sl. og sýnt til enda leikársins
og nálgast sýningafjöldi á þess-
um vinsæla leik í Reykjavík nú
200, hann hefur tvisvar áður
verið sýndur hjá Leikfélaginu,
einnig í sambandi við Alþingishá-
tíðina 1930 og svo þegar Þjóð-
leikhúsið var opnað.
Undanfarið hafa staðið yfir
hjá Leikfélaginu æfingar á
frönskum gamanleik, Indíáua-
leik eftir Réne de Obaldia, sem
kom fram í Párís fyrir hálfu
öðru ári, náði feikna vinsældum
og hefur undanfarið mikið ver-
ið sýndur á Norðurlöndum og í
Þýzkalandi.
Leikstjóri í Indíánaleik er Jón
Sigurbjörnsson, sem er fástráð-
inn hjá Leikfélaginu í vetur og
er þetta fyrsta verkefni hans þar
í mörg ár. Hann hefur undan-
farin ár starfað við Þjóðleikhús-
ið og Stokkhólmsóperuna, en var
áður hjá Leikfélaginu.
Þýðingu Indíánaleiks hefur
Sveinn Einarsson gert og leik-
myndir Steinþór Sigurðsson, en
stærsta hlutverk leiksins, sem
gerist í villta vestrinu meðal
landnema, kúreka og indíána, er
í höndum Brynjólfs Jóhannes-
sonar. Indiánaleikur verður
frumsýndur í fyrri hluta októ-
ber.
3 ný islenzk leikrit
Sveinn Einarsson gat þess, að
Framhald á 7. síðu.
Ásverjasaga er allmikið verk,
um 400 bls. myndskreytt. Þar
segir frá nafntogaðri ætt sem
bjó að Ási í- Kelduhverfi á 15.
og 16. öld óg var hún mjög rið-
in við stórmál þeirra tíma. Höf-
undur segir í formála að þess-
ar aldir hafi verið dæmdar með-
al hinna myrku alda í sögu þjóð-
arinnar bæði að því leyti, aðhún
var lítt kunn þær alldir ogþjóð-
in hefði þá búið við litla kosti
og skilað litlum afrekum. Hafi
höfundur m.a. freistazt til að
setja saman þessa bók vegna
þess, að þetta tímalbil var lítt
kannað og að ýmsu ranglega
metið að hans dómi, reynt að
gera samfellda sögu úr þeim
samtímaheimildum,' sem til eru
og flestar eru varðveittar á ís-
lénzku fomforéfasafni. Arnór
Sigurjónsson er löngu þjóðkunn-
ur maður fyrir rit sín um ís-
lenzka sögu.
í bók Magnúsar Á. Árnasonar
eru þrjátíu og átta sjálfetæðir
þættir, sem einkum fjalla um
kynni hans af rithöfundum og
Sistamönnum. Meðal þeirra sem
koma við sögu i þessari bók eru
þeir Halldór- Laxness, Kjarval,
Steinn Steinarr, Erlendur í Unu-
húsi, Jón. Pálsson frá Hlíð og
margir fleiri.
Ljóðasafn Jóns Óskars nefnist
á frönsku „La nuit sur nos ep-
aules“ (Nóttin á herðum okkar)
og hefur Regis Boyer sendikenn-
ari annazt þýðinguna og skrifar
hann formála — í því em 28
kvæði úr tveim fyrstu ljóða-
söfnum Jóns. Það er skemmtilegt
til þess að vita að Ijóð Jóns
koma einmitt út á frönsku —
hann hefur sjálfur öðmm frem-
ur stundað það að íslenzka
•frönsk skáld.
1 næsta mánuði er boðuð mik-
il skriða bóka frá Helgafelli.
Éndurútgáfur á Undir Helga-
hnúk og Ljósvíkingi Laxness,
Saga Sjómannafélags Reykjavík-
ur eftir Skúla Þórðarson sagn-
fræðing, bók Jökuls Jakobssonar
og Bnltazars um Vestmannaeyj-
ar sem heitir „Suðaustan fjórt-
án“. Ennfremur „Fagurt er í
Eyjum“, endurminningar Einars
Fi-amhald á 7. síðu.
DHIDVIIIINN
Miðvikudagwr 20. septemiber 1967 — 32. árgangur — 21*. tölublað