Þjóðviljinn - 05.10.1967, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVTLJTNN — Fimmtudagur 5. oktðber 1967.
i
Ályktun Sósíalistafélags Reykjavíkur:
Breytt stjórnarstefna, sem tryggi hagsmuni
vinnandi fólks og sjálfsforræði þjóðarinnar
□
Á almennum félagsfundi, sem haldinn
var í Sósíalistafélagi Reykjavíkur í síðustu
viku, flutti Steingrímur Aðalsteinsson, formað-
ur félagsins, framsögu um ástandið í efnahags-
málurn og stjórnmálum og síðan urðu umræð-
ur um þau mál. Fundurinn samþykkti álykt-
un þar sem lögð er áherzla á nauðsyn þess að
.koma á raunhæfri samfylkingu alls þess fólks
sem vill breyta um stjórnarstefnu í landinu.
Ályktunin er í heild á þessa leið:
Á undanförnum veltiár-
um í þjóðarbúskap íslend-
inga, þegar uppgripaafli og
óvenjulega hátt verð á út-
fluttum sjávarafurðum
hefur leitt til þess, að þjóð-
artek'jumar hafa vaxið um
allt að 40% á fimm árum,
hefur launafóik í landinu
— sem með þrotlausri
vinnu hefur staðið undir
þessum mikla vexti þjóðar-
teknanna — ekki flengið
þær hækkanir á dagkaupi
sínu, sem svarar til hinnar
miklu dýrtíðar í landinu,
heldur hefur það neyðzt til
þess að sækja nokkurn
hiuta af þessari auknu
veltu með óhæfilega' löng-
vinnudegi, þannig að
um
allt upp í helmingur af
tekjum launþega er feng-
inn fyrir eftir- og nætur-
vinnu.
Óðaverðbólgan, sem
fylgt hefur þessari þróun,
og takmarkalaus innflutn-
ingur alls þess, sem verð-
bólgubraskararnir hafa
getað grætt á. hefur hins-
vegar leitt til stöðugt vax-
andi erfiðleika í atvinnu-
lífinu — jafnt hjá útflutn-
ingsatvinnugreinum, þrátt
fyrir mjög hagstætt verð-
lag á útflutnin.gsvörum,
sem hjá iðnaðar- og þjón-
ustufyrirtækjum, sem
byggja á innanliands-
markaði, en þola ekki
samkeppnina við hinn ó-
hefta innflutning.
Nú, þegar verðlag á
veigamiklum útflutnings-
vörum hefur lækkað veru-
lega, vaxa enn þessir erf-
iðleikar atvinnuveganna
— og krefjast úrlausnar.
Ríkisstjómin, sem með
állri stjómarstefnu sinni
undanfarin ár á sök á
þessum erfiðleikum a,t-
vinnuveganna, hefur þeg-
ar lýsjt þvi yfir, að hún
hyggst leysa erfiðleikana
á þann veg að skerða lífs-
kjör fólksins.
Það væri þó sannarlega
að heng'ja bakana fyrir
smið.
Sósíalistaflokkurinn —
sem forustuflokkur hins
vinnandi fólks — verður
að beita öllu afli sínu
gegn slíkri lausn á vanda-
málum atvinnulífsins. Til
þess verður flokkurinn að
skapa sér sameiginlega
skoðun á því, hvernig
leysa beri vandann — og
fylkja síðan fjöldanum til
baráttu fyrir þeirri lausn.
Sósíalistafélag Reykja-
víkur telur þess vegna,
að Sósíalistaflokkurinn
verði — á svo skömmum
tíma sem frekast er .unnt
— að vinna upp stefnu-
skrá um lausn efnahags-
málanna í samræmi við
hagsmuni hins vinnandi
fólks á grundvelli óskor-
aðs sjálfsforræðis íslenzku
þjóðarinnar.
Með slíka stefnuskrá
sem samstarfsgrundvöll,
ber flokknum síðan að
snúa sér til samtaka fólks-
ins og fá þau til að taka
saman höndum í sameig-
inlegri baráttu fyrir við-
hlítandi 'lausn þessara
málat
Komá þar að s'jálfsögðu
í fyrstu röð samtök verka-
lýðsins sjálfs — Alþýðu-
sambandið og aðrar stofn-
anir verkalýðssamtakanna
— en einnig önnur f jölda-
samtök. svo sem sam-
vinnuhreyfingin, sem á í
vök að verjast, einkum
með iðnaðarfyrirtæki sín
— og að meira eða minna
leyti samtök þeirra at-
vinnugreina^ sem við
mesta erfiðleika eiga að
glíma.
Loks ber einnig — á
þessum grundvelli — að
leita samstöðu við þau
stjórnmálasamtök, sem
kynnu að vera fáanleg til
að aðhyllast slíka stefnu-
skrá.
Markmiðið. á að vera
að koma á raunhæfri sam-
fylkingu alls þess fólks,
sem vill breyta um stjórn-
arstefnu í landinu. Þegar
slik samfylking tekst, á
hún vísan sigur í almenn-
um kosningum og getur
markað stefnu og þróun
bjóðmálanna“
I
Minningarorð
Magnús Þórarínsson
kennari
Magnús Þórarinsson var
Austfirðingur að ætt og fædd-
ur að Hrafnabjörgum í Hjalta-
staðaþinghá 14. nóv. 1897.
Hann var því nær sjötugur.
þegar hann andaðist.
Kvæntur var hann Önnu Sjg-
urpálsdóttur frá Hóli í Breið-
dal og áttu þau heimili þar um
nokkur ár. Þau eignuðust tvo
syni: Gunnar Þór og Pál, sem
báðir eru nú upp komnir.
Magnús hóf kennslu í heima-
byggð sinni, Hjaltastaðaþing-
há ,eftir nám í Eiðaskóla.
Að loknu kennaraprófi lá
leið hans til kennslu í Breið-
dal. Næst gerðist hann skóla-
stjóri við nýreistan heimavist-
arbamaskóla að Sþjöldólfsstöð-
um á Jökuldal. Þaðan fór hann
að bamaskóla í Fljótshlíð og
loks til Reykjavikur og kenndi
við Austurbæjarbamaskólann,
Hér í Reykjavík varð hann
fyrir því alvarlega áfalli að
lamast eftir byltu og lá heil-
an vetur á sjúkrahúsi. Hann
fékk fulla heilsu aldrei aftur
og kenndi stutt eftir þetta.
Magnús bar aldrei sitt barr
eftir byltuna.
Kynni okkar hófust í Kenn-
araskóia íslands og héldust æ
síðan.
Ég heimsótti Magnús að
kennslustörfum í farskólanum
i Breiðdal og heimavistarbarna-
skólanum að Skjöldólfsstöðum
á Jökuldal.
Magnús var sérstaklega sam-
vizkusamur í starfi og laginn
að koma fróðleik námsbókanna
á framfæri við börnin.
Hann var einlægur og hjarta-
hlýr og vildi nemendum sín-
um vel í hvívetna.
Við skólann að Skjöldólfs-
stöðum naut hann . samstarfs
Framhald á 9. sfðu.
Siðferði
gleðikonunnar
Ekki leynir það sér í Stak-
steinum Morgunblaðsins í
gær að ritstjóm blaðsins hef-
ur fulla samúð með fyrrver-
andi viðskiptamálaráðherra
Dana, Tyge Dalgárd, sem vik-
ið var úr starfi fyrir um-
mæli um utanríkisstefnu
danskra stjórnarvalda. Morg-
unblaðið segir að Dalgárd
virðist hafa „komið við býsna
veikan blett á danskri utan-
ríkisstefnu. Danir hafa á síð-
ustu árum reynt að láta að
sér kveða á alþjóðavettvangi,
m.a. með háværri andstöðu
gegn stefnu Bandaríkjamanna
í Víetnam, ýmis konar mót-
mælaaðgerðum gegn stjórn-
inni í Suður-Afríku og nú
að undanförnu gegn herfor-
ingjastjóminni í Grikklandi.
Kjami þess sem Dalgárd seg-
ir er að Danmörk sé svo lít-
ið ríki _með svo takmörkuð
áhrif, að þessar aðgerðir hafi
lítil sem engin áhrif en skaði
viðskiptahagsmuni Dana í
þessum löndum. Þeir eigi því
að hætta „rómantískum
hetjuskap" í alþjóðamálum
en hugsa um sig og sína
verzlun".
Þessi kenning Dalgárds og
Morgunblaðsins sýnir ekki
hvemig lítil ríki með tak-
mörkuð áhrif eiga að kom-
ast hjá þvi að taka afstöðu
til alþjóðgmála. ,Engin ríki
sem þátt taka í' alþjóðasam-
starfi komast hjá því að taka
slíka afstöðu, hvort sem þau
eru smá eða stór. Ríki sem
ekki hefur uppi andstöðu
gegn stefnu Bandarikjamanna
í Víetnam gerist í staðinn
bakhjarl þeirrar stefnu og
tekur á sig siðferðilega á-
byrgð af morðverkunum. Ríki
sem ekki beitir sér gegn fas-
ismanum í Suður-Afríku efl-
ir í staðinn gengi þeirrar
helstefnu. Riki sem ekki beit-
ir sér gegn ■ einræðisstjóm-
inni í Grikklandi tekur þá af-
stöðu að reyna að lengja líf-
daga þeirrar stjórnar. Hjá.
afstöðu verður ekki komizt,
nema einhverju ríki tækist að
einangra sig gersamlega frá
umheiminum að hætti ein-
setumunka.
Það fróðlega í boðskap
Dalgárds og Morgunblaðsins
er hins vegar kenningin um
það hvemig eigi að taka af-
stöðu. Afstaða á ekki að fara
eftir siðferðilegu og félags-
legu mati, ekki eftio- skilningi
á réttu og röngu, heldur ein-
vörðungu eftir fjárhagslegum
ábata; smáríki eiga að „hugsa
um sig og sína verzlun".
Stefnuna á að bjóða á al-
þjóðlegum markaði gegn
staðgreiðslu. Þetta er sið-
ferði gleðikonunnar sem býð-
ur blíðu sína fala hæstbjóð-
anda hverju sinni. Og raunar
gat Morgunblaðið ekki dregið
upp öllu skýrari mynd af for-
sendum islenzkrar utanríkis-
stefnu. — Austri.
með síldarafla, —
5001. eða meira
...... ........ * . «. *, , Aiiu
Síldarskýrslan:
134 skip
120 með
Vitað er um 134 skip, sem
afla hafa fengið síðan veiðar
hófust fyrir norðan og austan
land í vor. 120 þeirra hafa feng-
ið 500 lestir og meira og birt-
ist hér skrá yfir þau.
Lestir
Akraborg Akureyri 1.341
Akurey Reykjavík 1.796
Albert Grindavík 1.083
Amar Reykjavík 3.063
Arnfirðingur Rvík 1.804
Auðunn Hafnarf. 903
Ámi Magnússon Sandg. 1.615
Ársæll Sigurðss. Hafnarf 943
Ásberg Reykjavík 3.666
Ásbjöm Reykjavík 1871
Ásgeir RE • 3661
Ásgeir Kristján Hnífsd. 1.925
Barði Neskaupstað 3.204
Bára Fáskrúðsfirði 1.385
Bergur Vestmannaeyjum 819
Birtingur Neskaupst. 2.150
Bjarmi II Dalvík 1.576
Bjartur Neskaupst. 2.871
Björg Neskaupstað 1.228
Björgúlfur Dalvík 1.724
Björgvin Dalvík 1.242 ,
Brettingur Vopnafirði 2.641
Búðaklettur Hafnarf. 1.642
Börkur Neskaupst. 3.157
Dagfari Húsavík 4.405
Elliði Sandgerði 2.123
Engey Reykjavík 527
Faxi Hafnarfirði 1.925
Fífill Hafnarfirði 2.714
Framnes Þingeyri 1.333
Fylkir Reykjavík 3.696
Gidecm Vestmannaeyjum 1.050
Gísli Ámi Reykjavík 3.724
Gjafar Vestm. 1.289
Grótta Reykjavík 1.864
Guðbjörg ísafirði 3.218
Guðm. Péturs Bolungav. 2.777
Guðrún Hafnarf. 1.0S9
Guðrún Þorkelsd. Eskif. 2.905
Guðrún Guðleifsd. ÍS 3.424
Guðrún Jónsdóttir ÍS 7.92
Gullberg Seyðisf. 1.234
Gullver Seyðisf. 2.454
Gunnar Reyðarf. 1.898
Hafdís Breiðdalsvik 928
Hafrún Bolungavik 2.504
Halkion Vestm. 759
Hamravik Keflavik 1.007
Hannes Hafstein Dalvík 3.462
Haraldur Akranesi 913
Harpa Reykjavík 4.000
Heimir Hnífsdal 788
Helga Reykjavík 584
Helga II Reykjavik 2.974
Helga Guðmundsd. BA 2.561
Helgi Flóventss. Húsav. 1.253
Héðinn Húsavik 4.463
Hólmanes Eskifirði 1.698
Hrafn Sveinbjamars. GK 1.488
Huginn II. Vestm. 672
Hugrún Bolungav. 634 •
Höfrungur II. Akran. » 543
Höfrungur III. Akran. 2.646
Ingiber Ólafss. II. GK 1.589
Ingvar Guðjónsson GK 1.475
ísleifur IV. Vestm. 999
Jón Garðar, Garði 3.940
Jón Finnsson Garði 1.567
Jón Kjartansson Eskif. 4.701
Július Geirmundss. ÍS. 1.556
Jörundur II. Rvík 2.492
Jörundur III. Rvík 3.214
Keflvíkingur Keflavík 1.148
Kristján Valgeir Vopnaf. 3.972
Krossanes Eskif. 1.728
Ljósfari Húsavík 2.278
Loftur Baldvinss. Dalvík 1.837
Lómur Leflavik 1.495
Magnús Neskaupstað 1.827
Magnús Ólafsson GK 2.501
Margrét Siglufirði 1.449
Náttfari Húsavík 4.019
Oddgeir Grenivik 1.013
Ólafur Friðbertss. Súg. 1.325
Ólafur Magnússon EA 2,953
Ólafur Sigurðsson ÁK 2.302
Óskar Halldórsson Rvík 2.551
Pétur Thorsteinsson BA 1.286
Reykjaborg Reykjav. 2.298.
Seley Eskifirði 2.738
Sigfús Bergmann GK 568
Siglfirðingur Sigluf. 1.066
Sigurborg Sigluf. 1.918
Sigurbjörg Ólafsfirði 3.174
Sigurður Bjamason EA 2.488
Sig. Jónsson Breiðdalsv. 1.251
Sigurpáll Garði 1.800
1 Sigurvon Rvík 2.257
Skarðsvík Hellissandi 836
Sléttanes Þingeyri 2.810
Snæfell Akureyri 2.064
Sóley Flateyri 2.759
Sólrún Bolungavík 1.421
Stigandi Ólafsfirði 570
Súlan Akureyri 1.705
Sveinn Sveinbjörnss. NK 2.811
Sæfaxi Neskaupstað 1.713
Sæhrímnir II. Keflav. 538
Viðey Reykjavík * 1.095
Vigri Hafnarf. 2.197
Víkingur III. ísaf. 1.018
Vonin Keflavik 750
Vörður Grenivík 2.273
Þorsteinn Reykjavík 1.381
Þórður Jónasson EA 2.397
Þórkatla II. Grindavík 961
Ögri Reykjavík 597
Örfirisey Reykjavík 3.528
Öm Reykjavík 3.489
I
Sildarstúlkur — Síldarstúlkur
Norðursíld h.f., Raufarhöfn og Norðuxsíld h.f., Seyðisfirði óska
að ráða nú þegar nokkrar vanar síldarstúlkur. Söltun fer fram
innanhúss. — Öll venjuleg hlunnindi.
Nánari upplýsingar í símúm 5} 234 Raufarhöfn og 20055 Reykja-
vík.
Valtýr Þorsteinsson.
í
1
I