Þjóðviljinn - 05.10.1967, Blaðsíða 12
30-50% minni bú-
vélasala en í fyrra
1 síðasta hefti Búnaðarblaðs-
ins er sagt frá því að vélvæðing
í landbúnaðinum virðist ætla að
dragast saman þetta ár. Blaðið
hefur það eftir inn|Iyt jendum
landbúnaðarvéla að mikill sam-
dráttur sé í innflutningi, og að
sala ýmissa tegunda búvéla sé
allt upp í 30—50% minni á
þessu ári en því síðasta.
t>á segja innflytjendur að á-
berandi sé á þessu ári auknir
greiðsluerfiðleikar bænda. Á
undanförnum árum hafi bænd-
ur yfirleitt greitt vélar sínar og
tæki við móttöku og tallið það
sjálfsagt og eðlilegt. Nú hafi
hinsvegar brugðið svo við að
bændur hafi í auknum mæli ósk-
að eftir greiðslufresti í ýmsum
myndum.
Segir Búnaðarblaðið að óh'k-
legt sé að það sé skyndilega
orðin raunveruleg ósk bænda
„að taka upp afborgunarskil-
málafargan þéttbýlisins" eins og
blaðið orðar það, eða að búvéla-
markaðQrinn sé skyndilega mett-
aður. Orsaka þessara breytinga
sé heldur að leita í mun minni
fjárráðum bænda nú en undan-
farin' ár.
Jón Kjartanssm afíahæstur,
þrír Húsavíkurbátar næstir
Samkvæmt bátaskýrslu Fiski-
félags fslands hafði 21 skip feng-
ið 3000 lestir síldar eða meira
um síðustu helgi og var Jón
Kjartansson aflahæstur með
4701 lest en síðan komu þrír
Húsavikurbátar og einn Reykja-
vikurbátur, allir með 4000 lestir
eða meira.
Bisknp boðinn
til Grimsby
í dag, fimmtudaginn 5. októ-
ber, verður vígð nýreist sjó-
mannakirkja í Grimsby. Biskup
íslands, herra Sigurbjörn Einars-
son, hefur verið boðinn til þess-
arar kirkjuvígslu. Mun hann
taka þátt í vígsluathöfninni og
flytja síðan ávarp og kveðjur
frá kirkju Islands.
■ I Grimsby er árlega haldin
þakkarhátíð fyrir sjávarafla árs-
ins (harvest of the seefestival) og
ér‘ þá um leið minnzt drukkn-
aðra sjómanna. Biskup Islands
hefur verið beðinn að prédika
við þetta tækéfæri að þessu
sinni. Þessi hátíðaguðsþjónusta
fer fram á sunnudaginn kemur,
8. október, árdegis og verður
henni sjónvarpað.
Listinn yfir hæstu skipin leit
annars þannig út:
Jón Kjartansson SU 4701, Héð-
inn ÞH 4403, Dagfari ÞH 4405,
Náttfari ÞH 4019, Harpa RE4000,
Kristján Valgeir NS 3972, Jón
Garðar GK 3940, Gísli Ámi RE :
3724, Fylkir R£ 3696, Ásberg RE
3666, örfirisey RE 3528, örn RE
3489, Hannes Hafstein EA 3462,
Guðrún Isleifsdóttir IS 3424 Ás- j
geir RE 3361, Guðbjörg ÍS 3218,
Jörundur III. RE 3214, Barði NK
3204, Sigurbjörg ÓF 3174. Börk-
ur NK 3157>. Arnar RE 3063.
Afmælis D.D.R.
minnzt á morgui
íslenzk-þýzka menningarfélag-
ið efnir til samkomu í tilefni af
18. afmælisdegi Þýzka alþýðulýð-
veldisins á morgun, föstudaginn
6. októ'ber. Samkoman hefst kl.
8.30 í átthagasal Hótel Sögu.
Flutt verða ávörp og til
skemmtunar verður upplestur úr
leikriti Bertolts Breehts „Punt-
ila“. Erlingur Gíslason leikari
les. Þá leikur frú Agiies Löve
einleik á píanó og að lokum
verður stiginn dans.
Aukafundur SH
Ekkert vitað um horfnu flugvélina
Nær400manns leit-
aðu í allan gærdag
Síðdegis sama dag mun bisk-
up prédika í dómkirkjunni í
Lincoln, og síðan heimsækja
prestaskólann í Lincoln, en hann
er arftaki skólans sem Þorlák-
ur helgi biskup nam við á sinni
tíð.
(Frá skrifstofu biskups).
í gær barst Þjóðviljanum eftir-
farandi fréttatilk. frá Verka-
mannasambandi Islands:
Þann 2. október s.l. var hald-
inn fjölmennur fundur starfsfólks
við virkjunarframkvæmdirnar við
Búrfell- og var. þar einróma sam-
Fyrirhugað er að Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna efni til auka-
fundar um vandamál hraðfrysti-
iðnaðarins, nú á næstunni, og
hefur stjómin verið kölluð sam-
an á fund nú um helgina til að
ákveða hvenær fundurinn verð-
ur haldinn.
þykkt ályktun sú, sem hér fer
á eftir:
Almennur fundur starfsfólks
við Búrfellsvirkjun, haldinn að
Sámsstöðum mánudaginn 2. októ-
ber 1967, lýsir undrun sinni og
megnri óánægju vegna greinar
í gær var gerð víðtæk leit að
flugvélinni sem hvarf í fyrra-
dag yfir Húnaflóa eða Skaga-
firði, en án árangurs er Þjóð-
viljinn vissi síðast. AHt að 400
manns tóku þátt í Ieitinni á
Iandi úr lofti og af sjó. Leit-
þeirrar, sem birtist í sænska
blaðinu Dagens Nyheter 8. sept.
síðastliðinn.
I grein þessari, sem er viðtal
við Anton Johansson, sænskan
verkfræðing hjá Sentab, sem er
aðili að Fosskraft sf., er gefin
mjög röng og niðrandi hugmynd
um íslenzkt vinnuafl-
Um Ieið og fundurinn mótmæl-
ir harðlega þeim rangfærslum,
sem fram koma i nefndri grcin,
skorar hann á stjórn Fosskraft
sf. og ráðamenn við Búrfell að
koma á framfæri fullkomnum
■leiðréttingum, er birtist í Dagens
Nyheteer á ekki minna áberandi
hátt en umrædd grein, svo og
í íslenzkum blöðum.
Væntir fundurinn að leiðrétt-
ingunni verði komið á framfæri
innan tveggja vikna hér frá.
Verði stjóm Fosskraft sf. hins-
vegar ekki við þessum tilmælum,
lítur fundurinn svo á, að hún sé
sammála fyrmefndri grein og sé
þá reiðubúin að taka þeim af-
leiðingum, sem af því kynnu að
hljótasfc
inni verður haldið áfram í dag.
Hér á myndunum að ofan
sést er Hjálpai-sveit skáta var
að leggja af stað í leitina. Þetta
var um 70 manna hópur, úr
Reykjavík og Hafnarfirði, en
leiðangursstjóri var Tryggvi
Kristinsson og sést hann hér á
efri myndinni skýra fyrir leið-
angursmönnum hver áætlunin
er. Ætlunin var að aka vestur
í Búðardal og hafa þar bæki-
stöð, en síðan yrði tekin ákvörð-
un um hvemig leitinni yrði
hagað. Með í förinni voru sex
stúlkur sem verið hafa með
björgunarsveitinni nær tvö ár.
Þeirra hlutverk er einkum að
sjá um mat .fyrir björgunar-
sveitina og að veita sjúkrahjálp
ef með þarf.
Á neðri myndinni sjást' þrír
menn úr Björgunarsveitinni í
Hafnarfirði. sem getið hefur sér
frægðarorð við leit að týndu
fólki, og hafa þeir skátamir úr
Hafnarfirði alið upp sporhunda
sem oft hafa komið að góðu
gagni við leit. Á myndinni eru
talið frá vinstri: Ægir Ellerts-
son, Bjargmundur Albertsson
og Gísli Sigurðsson, sem ekki
lætur sig muna um slíkar svað-
ilferðir, þótt hann sé af létt-
asta skeiði sem sagt er. —
Ung stúlka kom að móli við
rannsóknarlögregluna fyrir stuttu
og kvaðst hafa tapað veski í Út-'
vegsbankanum á mánudaginrt.
Hafði hún lagt veskið frá sér á
miðstöðvarofn og síðan skroppið
aðeins frá. og var veskið horfið
er hún kom til baka. I veskinu
voru 800 krónur í eningum, 4.500
krónur í sparimerkjum og banka-
bók moð 1.500 krónum. Ef ein-
hver kynni að geta gefið upp-
lýsingar er hann beðinn að
hringja í rannsóknarlöspeglu'na.
'
*
fíokksstjórnarfundur
Sósíalistafíokksins
Midstjórn Sameiningarflokks alþýðu —
Sósíalistaflokksins boðar til flokksstjórn-
arfundar föstudaginn 27. oktober n.k.
Miðstjórn.
Starfsfólk við Búrfell möt-
mælir grein í sænsku blaði
Fimmtudagur 5. október 1967 — 32. árgangur 223. tölublað.
íþróttafélög Hafnar-
fjaríar húsnæðislaus
ÍBH heldur aukaþing um málið
í kvöld verður haldið auka-
þing Iþróttabandalags Hafnar-
fjarðar, sem stjómin hefur boðað
vegna stöðvunar framkvæmda
við byggingn íþróttahússins.
Sem kunnugt er hefur bygg-
ing íþróttahúss í Hafnarfirði
verið á döfinni hátt á annan
ératug, og munu nær tveir tug-
ir miHjóna króna komnar i
bygginguna. Samt sem áður er
la-ngt í land að íþróttahúsið verði
tekið í notkun og meirihluti bæj-
arstjómar Hafnarfjarðar ákvað i
sumar að stöðva frekari fram-
kvæmdir við bygginguna, þótt
fé væri veitt á fjárhagsáætlun
bæði frá ríki og bæ.
Nú er svo komið að bæði í-
þróttafélög Hafnarfjarðar, FH og
Haukar, sem eiga tvö af þrem
beztu handknattleiksliðum lands-
ins, eru á götunni með æfingar.
Síðustu ár hafa þessi félög haft
æfingatíma í Valsheimilinu en
eftir að badmintondeild var
stofnuð innan félagsins eru Vals-
menn ekki aflögufærir með hús-
næði fyrir handknattleiksmenn-
ina í Hafnarfirði.
I Hafnarfirði er ekki annað í-
þróttahús til en það sem byggt
var fyrir hálfri öld, er íbúar
bæjarins voru aðeins brot af því
sem nú er, og tekst ekki áð
fullnægja lögboðinni skólaskyldu
í leikfimi vegna skorts á hús-
næði, hvað þá að veita iþrótta-
félögunum nokkra aðstöðu.
Verður því fróðlegt að vita
hvað _ gerist á þessu aukaþingi,
sem ÍBH hefur boðað til vegna
breytingar íþróttahússins, og
mun Þjóðviljinn skýra frá þvi
síðar.
JóN. Sigurjjótis-
son sigurvegari
á hraðskákmóti
Jóhann örn Sigurjónsson sigr-
aði á hraðskákmóti Taflféllags
Reykjavíkur, sem. fram fór um
síðustu helgi í hinum nýjuhúsa-
kynnum félagsins að Grensás-
vegi 46.
Þátttakendur i mótinu voru um
50 talsins og tefldi hver kepp-
andi 18 sfeákir, en teflt var eft-
ir Monradkerfi. Jóhann örn hlaut
13'/j vinning, annar varð Bjöm
Þorsteinsson með 13% v. og
þriðji Jón Kristinsson með 13 v.
Haustmót TR hefst n.k. mið-
vikudag, 11. okt., og fer innrit-
un fram kl. 8—10, hinn 10. okt.
í húsakynnum félagsins að
Grensásvegi 46.
Agnes Löve, píanóleikari.
Ung listakona kemur heim
frá tónlistarnámi í Leipzig
Ung íslenzk kona, Agnes Lövc,
er nýkomin heim frá tón-
listarnámi í Austur-Þýzkalandi.
Fyrir tveim árum tok Agnes
þátt í samkeppni margra skóla
í píanóleik, fyrir hönd skólans
sem hún stundaði nám við.
Hlaut hún þá framlengingu á
námsvist við skólann fyrir góða
frammistöðu.
Þjóðviljinn hafði tal af Agn-
esi í gær og kvaðst hún hafa
stundað nám við Hoehschule fiir
Musik, í Leipzig undanfarin 7
ár. Agnes hefur þegar tekið til
starfa við píanókennslu hér
heima, kennir hún við Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar.
Eiginmaður Agnesar, Ingimar
Jónsson hefur stundað nám1 í
Leipzig í 8 ár. Um þessar mund-
ir er hann að Ijúka doktorérit-
gerð er' fjall-ar um íslenzka í-
þróttasögu. Ingimar verður
fyrstur Islendinga til að taka
doktorsgráðu í íþróttum.