Þjóðviljinn - 01.11.1967, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 01.11.1967, Blaðsíða 8
g StTJA — ÞJÓÐVXLJINN — Miðvikudagur 1. nóvemlber 1967, WINSTON GRAHAM: MARNIE 39 En ég þoldi ekki að spila fjár- heettuspil. Ég fékk hjartslátt þeg- ar ég gerði það. — Já, en ég veit ekki hvort ég geri það. En ég skal íhuga málið — og sjá hvemig landið liggur. — Það er um níuleytið í kvöld- drykk, ef þér getið. Rétt á eftir fór hann- Ég fylgdi hontim til dyra, ogþásagði hann: — Ef yður er meinlítið til mín, þá ættuð þér ekki að minn- ast á það við, Mark að ég hafi komið hingað Ég er að reka er- indi fyrirtækisins, og ég er ekki viss um að honum myndi líka það, að ég kæmi hingað til að hafa ofanaf fyrir yður. Ég á nefnilega ekki upp á pallborðið hjá honum, eins og þér vitið. Ég horfði á eftir honum þegar hann fór og ég hugsaði með mér: HARDVIÐAR UTIHURDIR TRÉSMIÐJA Þ. SKOLASONAR Nýbýlavegi 6 Kópavogi sími 4 01 75 nei, og þú átt ekki upp á pall- borðið hjá mér heldur- m fEFNI SMÁVÖRUR TÍZKUHNAPPAR Hárgreiðslan Hárgreiðslu- og snyrtistofa Steinu og Dódó Laugav. 18. III. hæð.flyfta) Sími 24-6-16. ' PERMA Hárgreiðslu- og snyrtistofa Garðsenda 21. SlMI 33-968 Sama kvöldið sagði Mark: — Ég er búinn að hringja í Roman og hann kemur í kvöldverð • á föstudag- — Ó — svo fljótt? Hvað sagði hann? — Ekkert s.érstakt. •! fyrstu vildi hann ekki hitta þig heima — í mannfagnaði. — Hvers vegna ekki? — Hann taldi heppilegra að hitta sjúkling sem sjúkling og ekki undir neinum öðrum kring- umstæðum. — Hvað sagðirðu um mig? — Sem allra minnst. En ég sagði að þú yrðir trúlega fús til að fara í meðhöndlun til hans, þegar þú værir búin að hitta hann. Nú var þetta allt komið svo nærri mér, og ég fylltist tauga- óstyrk. Mark virðist hafa orðið þess var, því að hann sagði: •— Ég er líka búinn að ‘ hringja í smiðinn og biðja hann að koma hingað í fyrramálið, svo að þú getir gefið honum fyrirmæli um, hvaða breytingar þarf að gera á gamla bílskúmum. Þú ættir að geta fengið Forio hingað um miðja næstu viku. Forio. Ég þoldi naumast að Mark skyldi standa þama hinn rólegasti og tala um hann. Því að Fbrio var mín einkaeign. fé- iagi minn og vinur- Ég vildi giaman fá hann hingað, en ég vildi hafa hann út af fyrir mig áfram. — Kemur hann einn? spurði ég. — Hann þama maðurinn sem kemur til kvöldverðar, á ég við? — Nei. mér datt í hug að við gætum boðið mömmu hingað líka. Hún hefur ekki komið hingað síðan við komum heim, og bá verður betta allt saman friálslegra og eðlilegra. — Já, sérstaklega fyrir mig sem verð eins og amaba undir smásiá. — Hann er alls ekki þannig. — Ég vildi óska að ég hefði aldrei lofað svo miklu sem að líta á hann. — Ef þér finnst hann alveg ó- þolandi, þá getum við reynt að finna annan. * — Já, meðal annarra orða. Mark — ég verð ekki heima á laugardagskvöldið. Ég ætla að hitta Dawn Witherbie- Við vor- um orðnar allgóðar vinkonur áð- ur en ég giftist bér. Og ég get ekki hætt að bfkkia hana svnna allt í einu. | — Nei, hvers vegna í ósköpun- um ættirðu líka að gera- það? Hyert hafið þið hugsað vkkur að fara? — Við erum ekki búnar að á- kveða það. Ætli við förum ekki til hennar. Við ætlum ekki að hittast fyrr en eftir kvöldmat. En það getur vel verið að é" komi seint heim. — Ég afþakkaði annars boð til okkar á laugardagskvöldið. Terry var að b.ióða okkur heim. — Af hverju neitarðu? Lang- aði þig ekki til að fara? — Það eru fáar manneskjur, sem ég gét ekki þolað. En Terry er einn hinna fáu- Ég veit ekki hvort þér fellur vel við hann, en sjálfur þoli ég varla að hafa hann fyrir augunum- Til allrar ó- haming.iu er ég tilneyddur að horfa á hann og tala við hann á hverjum einasta degi f vik- unni, en ég hef ails ekki hugsað mér að teygja þá samvininu yfir á kvöldin líka. Hann gekk yfir í hinn enda stofunnar til að hella í glas handa sér. — Það væri annars ágæt hugmynd að bjóða Rex og móður hans á föstudagskvöldið með þeim hinum. Við höfum þörf fyrir siðferðilegan stuðning þeirra f fyrirtækinu, og það væri því skynsamlegt að bjóða þeim, auk þess sem það væri vinsam- legt og hlýlegt. — Hafa þau mikil áhrif í fyr- irtækinu? — Já, Ne’Cvtón-Smith fólkið á talsvert magn af hlutahréfum og með hjálp þeirra get ég yfirleitt fengið vilja mínum framgengt. Það eru ekki nema átján prósent af hlutabréfunum á opnum mark- aði, og það kemur varla aldrei fyrir að þeir hluthafar komi á aðalfund og noti atkvæði sín. Við mamma eigum um það bil þrjátíu og tvö prósent af hlutabréfunum og hitt, um það bil þrjátíu og fimm prósent eru í höndum Hol- brookanna. — Já, en þá ert þú á grænni grein. — Ef til vill — og ef til vill ekki. Það hefur verið talsverð hreyfing á Rutland-hlutabréfum upp á síðkastið og verðið hefur hækkað geypilega. Ég veit að Newton-Smith mæðginin hafa fengið tilbbð frá kaupsýslufyrir- tæki um kaup á einhverju af hlutabréfum þeirra, og það er freisting fyrir þau- Ég er hins vegar að reyna 'að fá þau til að selja ekki. Kaupsýslufyrirtæki virðist ósköp sakleysislegt, en ef til vill kemur það fram fyrir þriðja aðila eða keppinauts í viðskiptum. — Vita Holbrookarnir þetta? — Já, auðvitað; þeir eru í stjóminni og tilheyra fjölskyld- unni — þótt ég óski þess stund- um að svo væri ekki. Allan föstudaginn var ég mið- ur mín af taugaóstyrk. Eins og uppeldi mitt hafði verið, var ég víst ekki sérlega vel til þess fall- in að umgangast heldra fólk. Mér leið verr í maganum við tilhugsunina um -að fá nokkrar rosknar manneskjur til kvöld- verðar en mér hafði liðdð þegar ég tók sjö hundruð fjörutíu og sex pund úr kassanum í Roxy- bíóinu í Manchester. Þetta með peningana var hægt aó gera með leynd án þess að nokkur vissi, fyrr en manni kom það ekki lengur við. En þetta? Ég á við, átti ég að fara til dyra og taka á móti þeim þegar þau komu eða átti ég að bíða þangað til þau voru komin úr yfirhöfn- unum; um hvað talaði maður við svona fólk, því að ekki var enda- laust hægt að tala um veðrið; hver bauð drykki og hvenær, og þegar við settumst til borð, átti ég þá að byrja að borða fyrst, eða átti ég að bíða eftir frú Rutland? Einhvern veginn tókst mér samt að komast í gegnum þetta allt- Frú Leonard gerði flest sem gera þurfti eins og venjulega- Á síðustu stundu, þegar einhver hringdi dyrabjöllunni, bilaði rennilásinn á kjólnum mínum, og af því að ég vildi ekki biðja Mark að hjálpa mér, yarð ég að smeygja mér úr kjólnum, laga rennilásinn, renna honum hálfa leið upp til vonar og vara, bg smeygja mér síðan aftur í kjól- inn. Og svo yar súpan reyndar of sölt og arinninn í stofunni trekkti ekki. , Þetta hefði ekki verið svo af- leitt, ef það hefði aðeins vérið fjölskylda Marks sem kom. En það fór alveg með það að hafa þennan Roman líka. Ég átti í fyrsta skipti að taka á móti þrem heiðursfélögum f fjölskyldunni og um lgið átti ég að gefa gaum að honum. Annars var dr. Roman alls ekki svo afleitur. Ég hafði búizt við hinu versta, svo að mér létti stórum, þegar þessi þreytulegi, hálfsköllótti náungi birtist, klædd- ur þrúnum ja,kkafötum, sem hefðu þurft að fara í hreinsun, bg síðum nærbuxum, sem sást í þegar hann krosslagði fæturna. Hann talaði um bömin sín tvö og skólann þeirra og ferðalag í útlöndum og um matarkiir sem hann þurfti að fara í, og hann serði það ekki eins og hann vaéri að fela leynda smás.iá, heldur eins og hann hefði áhuga á bví sem hann var að tala um. Við SKOTTA FÍFA auglýsir Stórkostleg verðlækkun á peysum og úlpum fyrir böm og fullorðna. Verzlið yður í hág — Verzlið í Fífu. Verzlunin FÍFA Laugavegi 99 (inng. frá Snorrabraut). I Klapparstíg 26 Siini 19800 BUÐfls* Condor HARPIC er flmandi efni sem hreinsar salernisskálina og drepur sýkla Það er verið að sýna hvernig fólk hefur dansað á ýmsum öldum. Ennþá er bara komið að tvistinu. Einangrunargler Húseigendur — Byggingameistarar. Útvegum tvöfalt einangrunargler með miög s+utt- um fyrirvara. Sjáum um ísetningu og allskonaT breytingar ð ?luggum Útvegum tvöfalt gler f lausaföe op siá- um um máltöku. ' Gerum við sprungur I steyptum veggjum með baulrevndu gúmmíefni Gerið svo vel og leitið tilboða. SÍMI 5 11 39. NÝKOMIÐ Peysur, úlpur og terylenebuxur. O. L. Laugavegi 71 Sími 20141. BÍLLINN Gerið við bíla ykkar sjálf Við sköpum aðstöðuna. — Bílaleiga. BÍLAÞJONUSTAN Auðbrekku 53. 'Kópavogi. — Sími 40145. Látið stilla bílinn Önnumst hjóla-. ljósa- og mótorstillingu. Skiptum um kerti, platínur. ljósasamlokur. — Örugg þjónusta. BÍLASKOÐUN OG STILLING Skúlagötu 32. sími 13100 Hemlaviðgerðir • Rennun; bremsuskálar. • Slípum bremsudælur. • Límum á bremsuborða. Hemlastilling hf. Súðarvogi 14 — Sími 30135.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.