Þjóðviljinn - 05.11.1967, Blaðsíða 1
&
Sunnudagur 5. nóvember 1967 — 32. árgangur r— 250. tölublað.
Frystihúsinu á
Flateyri lokað
□ Frystihúsi í eigu Fiskiðju Flateyrar h.f. var lokað
um síðustu helgi vegna ,f jórhagsörðugleika og 3 bátum sem
gerðir voru út við frystihúsið hefur verið lagt.
ENGIR
VIÐR'EÐU-
FUNDIR
Ekki hafði ríkisstjórnin boð-
að fulltrúa A.S.Í. og B.S.R.B.
á neinn nýjan umræðufund
um kjaramálin hegar Þjóð-
viljinn hafði sarhband við
skrifstofu Alþýðusambandsins
um hádegi í gær- Svo sem
kunnugt er hafa umræðu-
fundirnir aðeins verið tveir,
og á þeim síðari greindu full-
truar launamanna frá niður-
stöðum af könnunum sem þeir
höfðu látið framkvæma, og
var það aðalniðurstaðan að
ekki yrði fallizt á neinskonar
skerðingu á verðtryggingu
kaups. Síðan hefur ekkert
heyrzt frá ríkisstjórninni.
Flateyrarhreppi hafði verið
boðið að leigja frystihúsið til
áramóta, en hreppurinn treysti
sér ekki til að taka það á
leigu, bæði vegna þess að fyr-
irvari þótti of stuttur svo og
leigutími.
Rúmlega 500 manns búa á
Flateyri og má gera ráð fyrir
að tala vinnufærra sé eitthvað
á fjórða hundrað. Nokkrir hafa
farið burt og ráðið sig í vinnu
annarsstaðar. Flateyrarhjreppux
hefur nú hafið atvinnuleysis-
skráningu og þegar í fyrrakvöld
höfðu 2S látið skrá sig atvinnu-
lausa- og var kvenfólk þar í
meirihluta.
Sem fyrr segir hefur þremur
bátum sem gerðir voru út við
frystihúsið á-Flateyri verið lagt'.
Kaupfélag Önfirðinga var í
fyrrakvöld að semja um leigu á
einum þessara báta og mun
leigja bátinn út til áramóta.
Fjértán ræíur um æskulýðs-
é fundi borgurstjórnur
□ Á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í fyrrakvöld
urðu langar og almennár umræður um æskulýðsmál og
starf æskulýðsfélaga í borginni. Stóðu umræðurnar hátt
á þriðju klukkustund og tóku átta af 15 borgarfulltrúum
til máls og flestir tvisvar. Alls voru fhittar 14 ræður um
niálið.
Umræður þessar spunnust um
skýrslu um störf Æskulýðsráðs
Reykjavíkur á tímabilinu 1964-
1967 sem lögð var fyrir borgar-
stjórnina. Styrmir Gunnarsson
(í), formaður Æskulýðsráðs, gerði
grein fyrir skýrslu þessari og
skýrði hana nánar, en síðan töl-
uðu Sigurjón Björnsson (Ab),
Einar Ágústsson (F), Böðvar
Pétursson (Ab) sem sæti á í
Æskúlýðsráði, Páll Sigurðsson
(A), Sigríður Thorlacius (F), Jón
Snorri ÞorleifSson (A,b) og Gísli
.Halldórsson (í).
Allir voru ræðumenn sammála
um að Æskudýðsráð Reykjavík-
ur hefði unnið á margan hátt
lofsvert brautryðjendastarf á
undanförnum árum, en mörg
verkefni væru enn óleyst. 1 þessu
Framhald á 2. síðu.
Krafa um
\ v
rannsókn
A fundi borgarstjómar Rvíkur
í fyrrakvöld bar Sigurjón Björns-
son, borgarfulltr. Alþýðubanda-
lagsins, fram eftirfarandi fyrir-
spurn:
„Hvað miðar rannsókn þeirri
á starfsháttum Vöggustofu Thor-
valdsensfélagsins, sem borgar-
stjóm samþykkti á sl. vori' að
fala Barnaverndarráði Islands?"
Borgarstjóri las upp sem svar
bréf Barnaverndarráðs, þar sem
sagt er að ráðsmenn hafi kynnt
sér þessi mál, m.a. leitað upp-
lýsingar erlendis um þær kenn-
ingar sem nú eru uppi um rekst-
Framhald á 2. síðu.
1-----
Nú er skipt sköpum er Aust-
ur-Landeyjar, sem áður voru
umflotnar vatni og illfærar af
þeim sökum, eru famár að fá
vatn frá Vestmannaeyingum
I sem frá alda öðli hafa búið
við vatnsskort og orðið að láta
sér nægja það sem safnazt
hefur af þökum þeirra í rign- /
ingum.
★
Eins og áður hefur verið
sagt frá hér í blaðinu vinna
Vestmannaeyingar nú að mik-
illi vatnsveituframkvæmd, —
hafa .náð sér í vatn uppi und-
ir Eyjafjöllum og ætla að
veita því tíl Eyja. Er fram-
kvæmdum á landi að mestu
ECIR
l rERKALVÐF£!.Ó-G vifi've-gar mn ÍusJa inöh:
T ini iioðvifiú etuahassafiyreTðiÍLin xíkissCiÓTnajicjia
Jit' jekjuslíi-röútigu er i þeiin r'elast ■. eríj aljrérlega oJi
etnamuaid, og þá einacum barnmur^ut:.! Jjiilskyjdiim,
AM atdráHariaúst ‘.mdij þaS, sæotir þess að :ne2
um yerkaLýösbreyiiiigar ug rikissljumar Ciirnist úrr;
íéíta hessíiT bvríar á Jágtiíkjujinkiir.nn. Jlaj£ir Alþj
jutyvír:-ve:l ix-rkTil;övhrDy(ir!j;arínuT1rmbati,
ejQrdiagaJru.niva.rpl r3?is>stjómjrrinnaj nf jiossino si
má þar rilnetiui 3óía Sijriiríssnn Jormami Síomaaanaí
ÞuTÍelrson tonnnna Vc-ikalý risféiags
Sveinsdc.ltrir fnrmana Verkkkvean;
:r i ftafnarfin'iL Aðgen5,v er 'oiirt,
'
n í.'unagrmi er Jireíf! að ItaJLr hafi, ]ii
. afi byrðumiin sú ý-.fat skijit niðiiT
ra. Þeirr; ákvunV.ut br-fir is-jcmzkur r<
ntólzaæll rooð. rukuin, óg nndir þan rök tekur AM.
nieun
LslanJ
.>>■ nigtirTosu
FTaitípSarinúi
jiuiírar
Kratar á Akur
eyri taka
afstöðu
tJrklippan, sem myndin er
af hér að ofan, er úr Alþýðu-
manninum á Akureyri 26. okt.
sl., en Alþýðumaðurinn er
sem kunnugt er aðalblað Al-
þýðuflokksins á Norðurlandi.
í rammagreininni segir rit-
stjóri Alþýðumannsins frá
mótmælum verklýðsfélaganna
víðsvegar iiu land gegn efna-
hagsaðgerðum ríkisstjórnar-
innar og tekur afdráttarlaust
undir þá skoðun sem þar hef-
ur komið fram að sú tekju-
skerðing sem í þeim felist sé
algjörlega ofviða efnalitlu
fólki, einkum barnmörgum
fjölskyldum.
Þá vitnar ritstjórinn í að
margir forustumenn Alþýðu-
flokksins í verklýðsfélögunum
hafi mótmælt efnahagsráð-
stöfunum ríkisstjómarinnar
og vitnar í því sambandi f
þá Jón Sigurðsson, formann
Sjómannasambandsins, Skúla
Þórðarson, formann Verka-
Iýðsféiags Akraness, og Sigur-
rósu Sveinsdóttur, formann
Verkakvennafélagsins Fram-
iíðarinnar í Hafnarfirði, sem
öll hafa Iýst andstöðu sinni
við efnahagsaðgerðimar f við-
tölum hér í Þjóðviljanum.
ýc
Því ber vissulega að fagna,
að ritstjóri Alþýðumannsins
skuli taka svo einarða afstöðu
í þessu stórmáli fyrir íslenzka
alþýðu, og ætti að vera bend-
ing til forustumanna Alþýðu-
flokksins um það að ekki
nema Iítill hluti fylgismanna
þeirra stendur að baki þeim
og rikisstjórninni í þeirrj fyr-
irætlun að velta byrðunum af
hallarekstri ríkisbúsins á
herðar þeirra sem minnsta
hafa getu til að bera þær.
Nýtt vikublað,
Ostran, kemur út í vikunni
A morgun kemur út nýtt viku-
blað í Reykjavík og nefnist það
OSTRAN. tJtgefandi blaðsins er
ungur maður, Jón Lýðsson og er
hann jafnframt ábyrgðarmaður.
Ritstjóri er Ásgeir Ásgeirsson og
5 menn munu að staðaldri skrifa
I blaðið. Auk þess hefur dönsk
stúlka unnið að ljósmyndagerð
fyrir Ostruna. Skrifstofa blaðs-
ins er að Skólavörðustíg 16, en
það er prentað í Prentsmiðju
Þjóðviljans.
Ostran er 24 síöur og þar af
aðeins ein auglýsingasíða. Af
'efni þlaðsins má nefna viðital við
tvrær stúlkur sem dvalizt hafa á
Bjargi. Lýsa þær vist sinni þar
og fylgja myndir viðtalinú. Þá
er í Ostrunni viðtal við þrjá
ónaíngreinda róna í Reykjavík,
viðtal við Einar Diðriksen,
smyglara, og Flowers.
Tvær smásögur eriu í bllaðinu,
Sorg eftir Tsjékof og Undir
hlöðnirm vegg eftir Pébur Gunn-
arsson. Sagt er frá „fremsta og
fyndnasta spaugfuglinum“, Skota
nokkrum, og birtar nokkrar
teikningar hans, einnig er í Ostr-
unni grein í léttum dúr um Se-
bastian Bach.
Kom storkurinn með mig?
nefnist þýdd . grein utm vanda-
málið hvað segja skal börnum
um staðreyndir, önnur: Gulur
rauður grænn og blár — fjallar
sú um litasjónvarp.
Viðtal er við ungan organista
sem nýkominn er frá Englandi
og einnig viðtal við ungan- Þjóð-
verja sem hefur verið eitt ár í
Vietnam. Lýsir Þjóðverjinn
reynslu sinni í Vietnam og lífi
bandarískra hermanna þar.
Loks má nefna grein um kvik-
myndina Hver er hræddur við
Virginíu Wolf? og fileira efni er í
blaðinu.
Ostran kostar kr. 20 og kemur
út á morgun eins og fyrr segir.
Dagsbrúnor-
fundur ó dag
Eins og frá var skýrt hér í
blaðinu í gær verður haldinn fé-
lagsfundur í Verkamannafélag-
inu Dagsbrún í dag kl. 2 e.h.
í Iðnó.
Á fundinum verður rætt um
kjaramálin, aðgerðir og tillög-
ur ríkisstjórnarinnar og þær
viðræður sero fram hafa farið
að undanförnu milli ríkisstjórn-
arinnar og fulltrúa ASf og
BSRB. Þá verða kjörnir full-'
trúar á þing Verkamannasam-
bandsins og í nefndir.
Dagsbrúnarmenn eru hvattir
til að fjölmenna á fundinn. «
Bræla á miðunum
Eigi var veiðiveður á síldar-
miðunum fyrra sólarhring, og
voni flest skipin í landvari- Tvö
skip tilkynntu um afla, samtals
40 lestir.
Siglfirðingur SI 20 lestir, Ás-
geir RE 20 lestir.
Vestmanneyingar farnir að
veita vatni til A-Landeyja
lokið, en næsta sumar verður
neðansjávarleiðslan lögð. Hafa
nú Austur-Landeyingar samið
við Eyjabúa um að fá að
njóta góðs af, og fá þeir anga
af vatnsveitunni og hafa í
sumar lagt vatnsdrei'fikerfi
um alla sveitina- Er þessum
framkvæmdum, sem sennilega
er með þeim mestu er strjál-
býlt sveitarfélag hefur lagt í
hér á landi, nú lokið og var
skrúfað frá vatninu á föstu-
dag, en um kvöldið efnt til
mannfagnaðar í félagsheimili
sveitarinnar af þessu ti'lefni.
Á myndinni hér að ofan áést
oddviti Austur-Landeyinga,
Erlendur Árnason bóndi á
Skíðbakka, skrúfa frá krana
og hleypa vatninu inn á kerf-
ið, en nánar verður sagt frá
framkvæmdum ^ í næsta blaði.
(Ljósm. Þjóðv- vh).
*
i
1