Þjóðviljinn - 05.11.1967, Blaðsíða 10
J Q SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Sunnudagur 5. nóvember IðffL
\
WINSTON
GRAHAM:
MARNIE
42
er það fyrsta sem yður dettur
í hug?
— Sápa, tappi, vatn, regnvatn,
búar, babtistar, blóð, sviti, tár..
.. ég þagnaði skydilega, þvi að
munnurinn tók raunar af mér
ráðinn. Hvað var ég eiginlega að
bulla?
— Babtistar. sagði hann-
— Endurskírendur. Blóð lambs-
• ins, sagði ég. — Tár hans þvo
burt syndir þínar og gera þig
aftur hreina. Ég þagnaði og hló
við. Mamma fór með mig í kirkju
þrisvar á hverjum sunnudegi, og
dálítið hefur sem sagt loðað við
mig.
— Getið þ*r munað allt þetta
£rá því að þér vt>ruð sex ára?
— Þegar mamma var dáin, dró
Lucy Nye mig í kirkju, flýtti ég.
mér að segja. Hún var engu
betri en m&mma.
Og þannig héldum við áfram
ellan tímann. Megnið af ,tíman-
HARDVIDAR
UTIHURDIR
TRÉSMIÐJA
Þ. SK0LASONAR
Nýbýlavegi 6
Kópavogi
sími 4 01 75
W
TIZK
fEFNI
SMÁVÖRUR
TÍZKUHNAPPAR
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laagav. 18. III. haeð (lyfta)
Sími 24-6-16.
PERMA
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21. SÍMI 33-968
um snerist tal hans um þetta
leiðindaefni: vatn. Ég veit ekki
hvað það átti að þýða; en í miðju
kafi þótti mér þetta ekki lengur
gaman og ég hugsaði með mér
að hann gæti farið norður og
niður. Af hverju ætti ég að sitja
þarna og leggja mig svona fram.
Hann fékk peninga fyrir að sitja
þama, en ekki ég.
Og svo sátum við föst og þögð-
um langa stund, alveg þar til
hann minntist á þetta þrumuveð-
ur, og þá hugsaði ég mér að gefa
honum smátilbreytingu og ég
sagði honum frá Lucy Nye og
hvemig hefði staðið á þvi að
hún hefði gert mig frávita af
hræðslu við þrumuveður. En
jafnvel þegar ég sagði honum
það, fannst mér einhvem veg-
inn sem hann tryði ekki einu
orði af þvi sem ég sagði.
Þegar tíminn var liðinn, fann
ég á mér að ég hafði talað alltof
mikið — þegar á það var litið
hve fámál og innilokuð ég var
í eðli mínu......
Á föstudeginum kom ég til
hans staðráðin í því að segja
ekki neitt.
En það var alls ekki auðvelt
að standa við það, þvi að hann
byrjaði á því að segja: — Segjið
mér frá manninum yðar. Elskið
þér hann?
Ég svaraði: — Auðvitað geri ég
það, og ég sagði það með hárri
og fjörlegri og dálítið skerandi
rödd, þvi að þarna kæmi ég frem-
ur upp um mig með þvf að þegja
en þótt ég segði eitthvað.
— Hvað-'setjið þér í samband
við orðið ást?
Ég svaraði ekki- Eftir svo sem
fimm mínútur sagði ég: — tja —
kærleikur, koss .... hlýtt vina-
légt fang .... eldhús þar sem
logar á eldavélinni — komdu inn
í hlýjuna. elsku bam, það er
rigning .... og svo elskaði guð
heiminn að hann gaf son sinn
eingetinn .... að Forio þekkir
fótatakið mitt .... læða sem ber
kettlinginn sinn heim .... þegar
Stephen frændi kom á móti mér
á gangstéttinni. Gerið þér yður
þetta að góðu?
— Og kynlíf?
Ég geispaði. — Karlkyn og
kvenkyn. Lýsingarbrð enda á
euse í stað eux. Maður og kona
.... Adam og Eva .... bannsett-
ur skíthællinn þinn. Ég skal
lemja þig beint í fésið, ef þú
snertir mig aftur .... Ég þagn-
aði.
Það varð mjög löng þögn. A-
gætt, hugsaði ég, ég get beðið.
Ég held að fimm mínútur hafi
liðið í viðbót. — Hvað setjið bér
annars í samband við kynlífið
spuri hann,
— Forvitina sálfræðinga með
saurugan þankagang — ekkert
annað-
— Hvað setjip þér í samband
við hjónaband?
— Segið mér eiginlega hvað
þetta á að þýða? spurði ég. Ég'
fann að hann var að nálgast
kvikuna- — Mér leiðist þetta,
skal ég segja yður. Leiðist það.
Það varð svo hljótt, að ég
heyrði tifið í armbandsúrinu
mínu.
— Hvað setjið þér í samband
við hjónaband?
— Brúðkaupsklukkur. Kampa-
vín. Gamla skó. Gamla skó með
táfýlu. Brúðarmeyjar. Konfetti-
— Er það ekki brúðkaupið sem
þér eruð nú að hugsa um —
en ekki hjónabandið
— Þér sögðuð að ég ætti að.
segja það sem mér dyttí í hug.
Ég var allt í einu orðin alveg
fjúkandi vond-
Næsta þriðjudag lenti okkur
illilega saman og eftir það sagði
ég ekki orð í fullan hálftíma. Ég
lét eins og ég hefði sofnað. En
hann' trúði ekki á það. Svo fór
ég að telja í huganum. Ég taldi
upp í eitt þúsund og sjö hundr-
uð.
— Hvað setjið þér í samband
við orðið kona?
— Orðið kona? Ekki neitt ....
bara .... kona-
Ég slakaði á og fór að láta
mig dreyma að við Forio værum
að stökkva yfir hindrun.
— Kona, sagði hann löngu
seinna. Setjið þér ekkert í sam-
band við það orð?
— Það er kynlíf sem þér eruð
að hugsa um. Allar þessar króka-
leiðir og útúrdúrar eru í einum
og sama tilgangi, er ekki svo?
Því að kynlíf er það eina sem
fólk í yðar grein hefur áhuga á-
En ég get sagt yður það, að ég
hef engan áhuga á * því. Mark
vildi endilega að ég færi í með-
höndlun til yðar, vegna þess að
ég vil ekki sofa hjá honum. Og það
hefur hann auðvitað sagt yður,
er það ekki? Þannig er það sem
landið liggur. En ég kæri mig
ekki um að láta sejja mig í sýn-
ingarkassa eða troða mér undir
smásjá, þótt ég hafi mínar elgrn
hupmyndir um þessa hluti — og
haldi fast við þær hugmyndir.
Skiljið þér það? Það er sama
hvað ég hef sagt, þér hafið reynt
að skrumskæla það í ákveðnum
tilgangi. Ég þekki nógu marga af
yðar tagi. Flestir karlmenn hafa
saurugan hugsunarhátt og sál-
fræðingar eru í sérflokki hvað
það snertir- Ég vildi ógjarnan
vera konan yðar, það get ég sagt
yður. Eigið þér annars konu?
Eftir langa stund sagði hann:
— Haldið bara áfram. Segið allt
sem yður dettur í hug. En reynið
að slaka á meðan þér 4alið- Og
munið það líka, að það er ekkert
til sem getur hneykslað mig.
O, ég er nú ekki svo viss um
það. Þegar ég man eftir öllum
dónlegu vísunum sem Louise
kenndi mér. Fólk af hans tagi
þekkir víst ekki mikið af, slíku.
Svo sagði hann: — Sogið mér
frú Rutland — að því undan-
skildu að þér viljið ekki hafa
neitt kynferðissamband við
manninn yðar — eruð þér þá
glaðar og ánægðar?
Nú steinþagði ég.
— Ég á við, hvort yður finnist
þér vera ánægðar með lífið? hélt
hann áfram.
— Af hverju ætti ég ekki að
vera ánægð með lífið?
— Það kæmi mér mjög á óvart
ef þér væruð það,
— Að hugsa sér, sagði ég.
— Já, því að ég held að þér
lifið að mestu leyti balcvið gler-
vegg, áa þess að geta hrifizt eða
fundið til annarra tilfinninga til
annars fólks; ef ti-1 vill hafið þér
stundum slíkar tilfinnmgar,
vegna þess að þér neyðið sjálfa
yður til þess, vegna þess að þér
haldið að þér eigið að hafa þær
en ekki vegna þess að þér getið
ekki annað.
— Þér eru svei mér fróður um
tilfinningalíf mitt.
— Þér verið að reyna að móðg-
ast ekki. Ég er fyrst og fremst að
hugsa um að hjálpa yður. En er
það ekki rétt, að þér séuð ^tund-
um næstum hreyknar af þessu
einangraða lífi yðar, tilfinninga-
Ipga séð? Finnst yður þér ekki
vera hafnar yfir annað fólk —
þetta fólk sem lætur tilfinning-
arnar hlaupa með sig í gönur?
Og blygðist- þér yðar ekki þá
sjaldan það kemur fyrir yður.
Ég yppti öxlum og leit á klukk-
una.
— Og haldið þér ekki að þetta
yfirlæti eigi> að breiða yfir dýpri
og miklu leyndari tilfnnngu hjá
yður sjálfr — tilfinningu sem
kallast öfund? öfund til allra
þeirra sem eiga til heitar tilfinn-
ingar og þpra að láta þær í'ljós?
— Eruð þér kannski hrifinn af
móðursjúku fólki? Það er ég
ekki.
— Ég er alls ekki að tala um
móðursýki, heldur um eðlilegar
og sannar til finningar, sem eru
ómissandi þáttur í andlegu jafn-
vægi heilbrigðrar manneskju.
Ég togaði upp hlirann minn —
sem hafði reyndar alls ekki sigið
niður.
Hann hélt áfram: — En jafnvel
móðursýki er auðveldari viðfangs
en það sem að yður er. Þér hafið
gert skel í kringum sjálfa yður, bg
nú skel ég vörn fyrir tilfinning-
tim af öllu tagi- En ef þér losið
yður ekki við þessa skel, þá verð-
ur hún svo hörð og óvinnandi, að
yðar eiginlega sjálf visnar og
deyr innan við hana.
— Og þér haldið kannski að
allt þetta kjaftasnakk hér ætti að
geta hjálpað mér?
— Já, það getur hjálpað yður,
því lofa ég — en aðeins undir
vissum kringumstæðum. Og það
er þess vegna sem ég brýt eina
af öfrávíkjanlegum' reglum mín-
um og reyni að túlka vandamál
yðar alltof snemma. Að undan-
skildum fáeinum smágosum, þá
hafið þér allan tímann verið á
verði gagnvart yður sjálfri, frú
Rutland. I hvert sinn sem þér
voruð í þann veginn að sleppa,
út úr yður' orði sem hefði mátt
heimfæra undir frjáls hugrenn-
ingatengsl, þá hafið þér bitið það
í yður. Þetta er ekki óalgengt í
byrjun, einkum hjá konu með
viðhorf yðar — en það er mikill
munur á því' að þegja um ejtt-
hvað óafvitandi og því að leyna
SKOTTA
Cabinet
GOLDILOCKS pan-eleaner
«
pottasvampnr sem getur ekkl ryðgað
Svei mér þá, þú ert skárri þegar þú ert ástfiangin heádur en.
þegar þú ect í ástarsorg!
Einangrunarg/er
Huseigendux — Byggingameistarar.
Útvegum tvöfalt einangrunargier með m.jög sttifct-
um fyrirvara.
Sjdum um ísetningu og alskonar breytmgar 6
^luggum Útvegum tvöfalt gler í 1-ansaföð os sjá-
um um máltöku.
Gerum við sprungur í steyptum veggjum með
þaulreyndn gúmmfefni
Gerið svo vel og leitið tilboða.
SÍMI 51139.
NÝKOMIÐ
Peysur,’úlpur og terylenebuxur.
O. L. Laugavegi 71
Sími 20141.
BÍLLINN
Gerið við bíla ykkar sjálf
Við sköpum aðstöðuna. — Bílaleiga.
BÍLAÞJÓNUSTAN
Auðbrekku 53. Kópavogi — Sími 40145.
Látið stilla bílinn
Önnumsí hjóla-, ljósa- og mótorstjllingu.
Skiptum um kerti, platínur. ljósasamlokur.
— Örugg þjónusta.
BÍLASKOÐUN OG STILLING
Skúlagötu 32. sími 13100
Hemlaviðgerðir
• Rennun: bremsuskálar.
• Slípum bremsudælur.
• Límum á bremsuborða.
Hemlastilling hf.
Súðarvogi 14 — Sími 30135.
S