Þjóðviljinn - 05.11.1967, Blaðsíða 3
Sunnudagur 5. ndvember 1967 ~ t>JOÐVILJINN — SlÐA J
MÁLARINN
HIERONYMUS
BOSCH
Persónur í þessu myndasafni
eru Guð faðir og fjölskylda
hans öil, englamir og stór-
' dýrlingarnir sankti Antóníus,
sankti Kristófer og sankti
Jakob, vitringarnir frá Austur-
löndum, glataði sonurinn, páf-
ar, kardínálar, múnkar og
nunnur, furstar og aðalsmenn,
sjónhverfingamenn, ' þorparar,
ræningjar og allskonar lýður,
Fjandinn sjálfur og öll hans
skelfilegu handbendi, £ óhugn-
anlegu gervi.
Þar eru líka mannsmyndir
með fuglsfætur, skeljaðan
drekasporð, og nef, sem er
álnarlangur lúður, þar, eru
litlir menn í víðum kuflum.
með trekt á höfðinu, og ganga
á skautum eftir ísi lögðum
skurðum. Þar er lærður mað-
ur með gleraugu, sem siglir
dauðri önd og er reyrður inni
í búknum. en hendurnar komá
fram úr fjöðrunum og þeim
fómar hann í ráðaleysi, og sér
í andlit hans út um strúpann,
en fyrir framan það er gamalt
skjal, sem hann reynir að
lesa. Andarbáturinn berst fyr-
ir vindi, sem blæs í segl og
þenur það, en seglið er skata
& breiðum feldi.
Þá koma verur með fiðrild-
isvængi, klæddar herklæðum
og ríða hestum, sem að aftan
eru stór steinker. Þar er líka
sá hermaður, sem hefur haus-
kúpu af dýri í höfuðs stað, og
leikur á hörpu með járn-
hanzka, þar er stígvélaður
steinbítur, sem er að gleypa
nakta konu og byrjar á fótun-
um, tvífættur dreki sem er
eins og franskur bolabitur i
sjón, en stillir prúðan gang
á netlum hófum, og þar eru
svanir, leðurblökur, eðlur og
fiskar, sem sigla burt ásamt
með hinum heilaga Antóníusi
út í tæran himinblámann, en
lítill púki, sem heldur á afar-
stórum ljá, ekur sér á þrýsti-
loftsmótor, sem blæs frá sér
lofti á sama hátt og þekkist
meðal manna.
Lestina reka svo, af því sem
hér er talið, allir píslaárar
helvítis í allskonar múndéring-
um, hræðilegum og fáránleg-
tun. Margt fleira mætti telja.
Benda mætti á það hve allt
er óskiljanlegt, úr lagi fært
og yfir í annað kerfi, verald-
arheimurinn kominn í nýtt
horf, svo undur er á að líta,
en allt lýtur samt lögmáli
þessarar listar.
Hvern er verið að tala um?
Það er Hieronymus Bosch mál-
ari. Hann sótti efniviðinn i
myndir sinar úr lífinu í kring-
um sig, og það voru fleiri en
hann, sem sýndist heimurinn
vera hrokkinn úr liði.
Hver var Hieronymus Bosch?
Sumum kann að fkmast
þessari spumingu ofaukið, en
fþað er ekki víst að svo sé.
Maður sem ætlar að fara til
’s Hertogen Bosch (höHenzka,
á frönsku er þetta Bois le Duc,
á íslenzku Hertogaskógur), get-
ur átt á hættu að þurfa að
svará spurningum sem þess-
um:
„Ertu að tara til Hollands
til þess að skoða sýningu á
myndum eftir Bosch? Ætlarðu
nokkuð að kaupa?“ „Ertu vit-
laus, veiztu ekki að myndirn-
ar eru allar á söfnum og
mundu kosta miljónir hver
þeirra, ef þær væru til sölu?“
„Þá hlýtur hann að hafa verið
vellríkur, ha, var hann það?“
Þegar komið er á leiðarenda
kann að vera spurt hvort þetta
hafi nú verið nokkuð góður
málari, þá kastar tólfunum.
spyrjandinn kemur illilega upp
um sig.
Setjum svo að einhver spyrði
hvort hann héma H. C. And-
ersen hafi nokkuð ' getað skrif
að, —• og það maður frá Od-
ense.
En sannast að segja rru
fremur fátæklegar heimildir
um þennan mann og ævi hans.
Enginn veit með vissu fæð-
ingarár hans, en það var
einhvemtíma á árunum milli
1450 og 1460, að likindum.
Hann fæddist í ’s Hertogen-
bosch og var af málurum kom-
inn, og á þessum sama stað
Andlitsmynd af Hieronymus
Bosch, teiknuð af samtíma-
manni hans-
dvaldist hann og vann að mál-’
verkum sínum frá því um
1480 til 1516. en á þvi ári dó
hann. Árið 1486 fékk hann inn-
göngu í félag sem hét Bræðra-
lag vorrar frúar, eða Bræðra-
lag Mariu meyjar, og kallast
þá Jheronimus Antoniossoen
van Aken, eða Hieronymus son-
ur Antonniusar frá Aachen,
svo að líklegt er að hann sé
þaðan ættaður. N
Sagt er að hann hafi fengið
auðugt kvonfang, hafi átt
sveitasetur og haft vinnustofu
á torginu í s’ Hertogenbosch,
og víst er það að hann þurfti
engum afarkostum að sæta.
Greinilegt er að hjónabandið
var barnlaust. Bosch dó 9.
ágúst árið 1516, og var útför
hans gerð með mikilli viðhöfn,
og sést af þvi hve mikils hann
var virtur, einnig er hans
minnzt í kirkjubókinni með
lofsamlegum orðum. Þar stend-
ur: að H. Aquen, öðru nafni
Bosch, frægur málari, hafi dá-
ið árið 15h6.
Málverk eftir Bosch í safninu St. Germain en Laye.
Frægðarorð þetta er vel
vottfest. Þó að hann hafi að
líkindum aldrei ferðazt neitt,
en alið allan sinn aldur í
Norður-Brabant, hafði hann
löngu fyrir dauða sinn selt
flestum hinna stærri konunga
í Evrópu myndir sínar, og
snemma farið af honum frægð-
arorð. Gizkað hefur verið á að
Erasmus frá Rotterdam, sem
félagi var í Bræðralagi vorr-
ar frúar, eins og hann. hafi
aflað honum frægðar.
Um borgina sem hann fædd-
ist í og ól allan sinn ald-
ur, eru auðvitað ýmsar heim-
ildir. Þetta var álitleg verzl-
_ unarborg, og var þar ofið
klæði og smíðaðir hnífar, og
— nálar. Þetta var athafna-
samur staður en enganveginn
nein miðstöð lærdóms og
mennta. Miðaldalegar venjur
lifðu þar enn, svo sem þær
leiksýningar dularfullra hluta,
sem Bosch tók sjálfur mikinn
þátt í. Orð fór af því að hann
væri kunnugur gnostíkurum,
gullgerðarmönnum og galdra-
mönnum. en sannazt hefur
þetta ekki.
Hann fylgdist með nýjung-
um þeim sem fram komu um
hans daga. Þegar Gutenberg
prentaði biblíu sína var hann
að byrja að stálpast, fullorð-
inn þegar Kolumbus komst til
Ameríku og Vasco da Gama
til Indlands. Hann var jafn-
aldri Leonardo da Vinci, litið
eitt eldri en Cranach og Grúne-
wald, og hann lifði á þeim
tímum er kaþólska kirkjan átti
í sem mestum útistöðum, bæði
veraldlega og andlega. Lúther
fór ferðina frægu til Witten-
berg árið eftir að hann dó,
og Albrecht Dúrer kom til
’s Hertogenbosch fjórum árum
seinna. Ekki minnist hann
samt á Bosch i dagbók sinni,
og mun það varla vera ógáti
að kenna. Hvorugur hefði get-
að þýðst hinn, svo mikið er
víst.
Dúrer var maður hins nýja
tíma eins og Leonardo da
Vinci, og hann krufði með eig-
in hendi u.þ.b. þrjátíu lík.
Bosch var maður hins gamla
tíma, eða a.m.k. hefur Dúrer
hlotið að finnast hann vera
það. Samt mundi nútímamaður
fremur líta svo á að hann hafi
hvorki verið maður hins nýja
tíma né hins gamla, heldur
frjáls maður engu tímabili háð-
ur. Vígvélar þær, sem hann
málaði á léreft sín, ásamt
mönnum, ófreskjum og púkum,
eru engu ófurðulegri en hjá
Leonardo, en þær eru síður en
svo gerðar til að hafa not af
þeim, en það eru myndir Leon-
ardos. Tilgangur þeirra er all-
ur annar, þetta eru stríðstæki,
sem beita skal til sigurs í bar-
áttunni um sálir mannanna.
Flest annað lætur hann þjóna
þessu markmiði.
Og er hann þvi miklu frem-
ur af vorri öld heldur en
Dúrer
Isafninu i ’s Hertogenbosch,
listasafni Norður-Brabants,
er nú saman komið allt sem
náðst hefur til af myndum \
Bosch, og er sýning þessi hin
langstærsta, sém nokkru sinni
hefur verið haldin á málverk-
um hans. Samt er ólíku saman
að jafna, henni og hinni risa-
stóru Picasso-sýningu í París.
Þó að Hieronymus Bosch
hafi haft hin mestu áhrif á
málaralist á öldunum sem liðn-
ar eru eftir dauða hans, og þó
súrealistarnir og annar ný-
græðingur aldarinnar líti upp
til hans og telji hann standa
öllum framar, þekkjast ekki
nema þrátíu myndir, sem ör- "
uggt er um_ að hann hafi mál-
að.
Af þessum þrjátiu myndum
eru ekki nema sjö, sem merktar
eru með nafni hans og aðeins
eina af þeim, „Sankti Kristó-
fer“, hefur þeim sem fyrir sýn- .
ingunni standa, tekizt að fá að
láni úr Boymans-safni í Rott-
erdam.
Þetta má virðast heldur lit-
ið. Prado hefur afsagt að lána
„Heyvagninn“, og „Garð un-
aðssemdanna", og safnið í
Lissabon að lána „Freistingar
sánkti Antóníusar", og safnið
í Vín var ófáanlegt til að láta
af hendi meistaraverk það sem
í þess eigu er: „Dómsdagur".
Allar þessar myndir eru í
þremur álmum. Fleiri meistara-
verk vantar, og eru sumar i
höll Feneyjahertoga, aðrar í
Veiðihöllinni í Leningrad, og
safnið í Berlín á myndina „Jó-
hannes á eyjunni Patmos".
Raunar er þetta engin furða.
Það mátti vita það fyrirfram,
að forstöðumenn safnanna
mundu ekki samþykkja það,
að slík ómetanleg listaverk, og
auk þess vandmeðfarin og hætt
við skemmdum, væru send
langar leiðir, það má meiri
furðu gegna hve mikið Louvre,
Prado, Pinakotekið í Múnchen
og listasöfnin í Vín og Berlín
og ýms söfn á Niðurlöndum og
i Bandaríkjunum. hafa þorað
að lána
Það má vera að tuttugu
myndir af þeim 47, sem á sýn-
ingunni eru, séu rétt feðraðar,
en það nægir til að gera þessa
sýningu stórmerkilegan við-
burð
Þvi miður er engin aðgrein-
ing höfð milli þeirra mynda,
sepi öruggt má telja að Bosch
hafi málað, og hinna sem meiri-
eða minni vafi leikur á um.
í öllum þeim myndum, sem
Bosch málaði, eru myndir í
myndinni sjálfri. og atriðin
ótal. Háð og spott er hvergi
fjarri, ekki heldur bölsýnið, og
allt er þetta fáránlega fram
sett. Enginn sleppur, sízt prest-
ar og furstar, og skyldi engan
furða, því í samtímafrásögn
segir svo, að ;,konumar hafi
komið í kirkju í flegnum kjól-
um, til þess eins að pískra
saman. kyssa sína framhjá-
haldsmenn meðan verið var að
messa, og hórurnar stöfnuðu
til nýrra viðskipta í hinn sama
mund“.
Oft má okkur virðast Bosch
vera kynlegur fugl leyndar-
dómsfullur og mjmdir hans
sóttar í draumheim fremur en
vökuna, og líklegt er að sam-
tíðarmenn hans hafi haldið
hann vera vandlætara og kunn-
að betur en við að lesa úr
þessu táknmáli. Sumt af því
er ennþá öllum kunnugt: trekt-
in ofan á höfðinu á skurðlækn-
inum, sem tekur burt stein
eða kýli úr höfði galins manns,
táknar svikahrappinn, refsi-
tæki, hjól og gálgi tákna ill-
mennsku, grísarfótur, sem
hangir utan á treyju glataða
sonarins. eins og galdratæki,
merkir lán, en tréskeiðin og
kattarskinnið, sem hann hefur
líka, veldur böli, hið síðara,
en hitt táknar ósþilunarsemi.
Mörgum listfræðingi hafa
þótt myndir Bosch vandtúlk-
aðar, og eru aldrei á einu máli
um það, hvernig það skuli
gert, en miklu meira er um
það vert, að þær snerta okkur
nútímamenn, það er fjarri því
að þær séu okkur framandi
eða óviðkomandi. Þessi öld er,
svo sem hans öld var, öld mik-
illa umbrota milli hins meðvit-
aða vilja og hins ómeðvitaða,
milli trúar og efasemda, og
þessu hefur han lýst á sinn
annarlega hátt, bæði í þeás-
um ljótu draumsýnum og í
myndum, sem hann gerði um
sögur úr biblíunni. Við dá-
umst að því hve frumlega hann
fer að því að tjá sig. Og okk-
ur finnst engin furða þó að
fæðingarborg hans hafi viljað
minnast 450. ártíðar hans þó
að nokkuð seint sé, því liðið
er hálft ár framyfir. — Þessi
sýning er hin gagnmerkasta.
Kaffísala kvennadeildar Flug■
hjörgunars veitarinnar í dag
Myndin er tekin á stofnfundi kvennadeildar F lugbjörgunarsveitarinnar fyrir ári.
Kvennadeild -Flugbjörgunar-
sveitarinnar'fer nú af stað með
sína fyrstni fjáröflun, það er að
segja þar sem hún leitar til al-
mennings, enda' er deildin ekki
gömul, verður ársgömul núna í
nóvember. Konurnar ætla að
hafa kaffisölu í dag, sunnudag,
klukkan 3 í Blómasal Hótel
Loftleiða. Vona þær, að sem
flestir komi og njóti góðra veit-
inga *>g styðji gott málefni, en
markmið kvennadeildarinnar er
að styrkja Flugbjörgunarsveit-
ina í Reykjavík með fjárfram-
lögum, til þess að hún geti veitt
fullkomna þjónustu þegaráþarf
að halda. Þær vilja og þakka
öllum þeim, sem hafa stutt þær
og munu gera það með þvi að
drekka hjá þeira síðdegiskaffið.
t
t