Þjóðviljinn - 05.11.1967, Blaðsíða 5
Sunnudagur 5. nóvenxber 1967 — ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA j
Frá ársþingi Frjálsíþróttasambandsins:
Skipulagt útbreiðslustarf er
aðalverkefni FRÍá næsta ári
Ársþing Frjálsíþróttasam-
bands íslands fór fram í Rvík
um síðustu helgi, þ.e. dagana
2?. og 29. október. Fundinn
sátu, auk stjórnar og 'nefnda
sambandsins, fjölmargir full-
trúar frá sambandsaðilum.
Björn Vilmundarson, for-
maður FRÍ, setti þingið með
raeðu. Minntist hann í upphafi
þriggja félaga og áhugamanna
um frjálsar íþróttir, þeirra
Gunnars Steindórssonar, Guð-
mundar S. Hofdals og Bene-
dikts Jakobssonar. Bjöm mælti
á þessa leið:
Gunnar Steindórsson, lézt
23. nóvember 1966. Hann var
fæddur hér í Reykjavík 24.
október 1918, spnur hjónanna
Steindórs Björnssonar, efnis-
varðar frá Gröf og konu hans
Guðrúnar -Guðnadóttur frá
Keldum. Hann ólst upp í for-
eldrahúsum hér í Reykjavík,
stundaði nám við Héraðsskól-
ann að Núpi og síðan við Sam-
vinnuskólann. Gunnar starfaði
við ýmis verzlunarstörf um
ævina og kom s'ér hvarvetna
vel í starfi með dugnaði sín-
um og árvekni.
Gunnar hóf snemma af-
skipti af íþróttamálum og var
alla tíð mikill áhugamaður um
þau. Hann var virkur félagi í
íþróttafélagi Reykjavíkur um
árabil og formaður þess í nokk-
ur ár. Gurinar var aðeins 48
ára er hann lézt og er okkur
mikil eftirsjá að honum.
Eftirlifandi kona hans er
Sigríður Einarsdóttir.
Guðmundur S. Hofdal lézt
14. janúar sl. Hann var fædd-
ur 15. apríl 1883 í Mývatns-
sveit í Suður-Þingeyjarsýslu
og ólst þar upp. Hann fékk
isnemma áhuga á íþróttum, sér-
staklega glímu og var hann á
sínum tíma talinn frábær
glímumaður og var m.a. í hópi
ungmennafélgganna, sem sýndu
á' Olympíuleikjunum í London
1908.
Guðmundur var um árabil
vestan hafs en eftir að hann
kom heim, stundaði hann verk-
stjórastörf hér í Reykjavík og
úti á landi. Var hann virkur
félagi í íþróttafélagi Reykja-
víkur og stundaði glímukennslu
og var nuddari frjálsíþrótt.a-
manna um árabil m.a. þeirra
sem tóku þátt í Olympíuleikj-
unum í London 1948. Guð-
mundur var alla tíð áhugasam-
ur íþróttamaður og munu all-
ir þeir sem nutu handleiðslu
hans minnast hans sem góðs
félaga.
Benedikt Jakobsson lézt 29.
marz sl. Hann var fæddur 19.
apríl 1905 að Fossseli í Reykja-
dal. Hugur hans stóð snemma
til mennta, en slikt var ekki
öllum auðvelt á þeim árum.
Kom þó að því, eftir nokk-
um undirbúning hér heima,
að hann sigldi til Svíþjóðar
og stundaði nám við íþrótta-
kennaraskólann í Stokkhólmi
og lauk þaðan prófi 1931.
Hátíðarsamkoma
ai tilefni 50 ára afmælis Sovétríkjanna
í Háskólabíói 6. nóvember 1967.
EFNISSKRÁ:
Samkoman sett
Árni Bergmann, formaður Reykjavíkurdeildar
MÍR.
☆ ☆ ☆
Ávörp flytja:
Gylfi Þ. Gislason, menntamálaráðherra.
Nikolaj Vazhnov, ambassador Soúétríkjanna.
M. N. Sukhorútsjenko, aðstoðar-sjávarútvegs-
málaráðherra Sovétríkjanna, forseti
íslandsvinjafélagsins í Moskvu.
☆ ☆ ☆
Októberbyltingin 50 ára
Brynjólfur Bjarnason, fyrrverandi
menntamálaráðherra.
☆ ☆ ☆
Karlakórinn Fóstbræður syngur
Ragnar Björnsspn stjórnar.
HLÉ
Tónleikar sovézkra listamanna
Ljúdmila ísaeva, sópransöngkona.
Samúil Fúrer, fiðluleikari.
Undirleik annast Taisia Merkúlova.
☆ ☆ ☆ k
Kynnir verður Jón Múli Árnason.
Þegar heim kom tók hann
að sér íþróttakennslu bæði í
skólum og hjá íþróttafélöguij-
um í Reykjavík. Árið 1934
réðst hann til KR og var þjálf-
ari frjálsíþrótta þess félags ó-
slitið síðan. Árið 1948 varð
harin fastur íþróttakennari við
Háskóla íslands. Allt frá þeim
tima, að Benedikt kom heim
frá námi var hann mikill á-
hugamaður um alla líkams-
rækt, og er óhætt að fullyrða,
að Frjálsíþróttasamband Is-
lands og frjálsar íþróttir á
fslandi eiga engum manni eins
mikið upp að unjja, eins og
Benedikt Jakobssyni. Auk þess
að vera þjálfari KR um ára-
tugi var hann landsþjálfari og
þjálfari til undirbúnings og
þátttöku í flestum alþjóðamót-
um erlendis. Öllu þessu fylgdi
fnikið starf, en hann átti líka
því láni að fagna að sjá stóra
drauma rætast á þeim vett-
vangi.
Frjálsíþróttamenn > setti
hljóða, þegar þeir heyrðu dán-
arfregn Benedikts, svo var
hann tengdur þeim nánum
viriarböndum og þeirra starfi.
Slíkum örlögum bjóst enginn
við svo fljótt sem raun varð á.
Eftirlifandi kona Benedikts
er Gyða Erlendsdóttir.
Við söknum þessara þriggja
félaga okkar.
Góðir þingfulltrúar og g®st-
ir, ég bið -ykkur að standa á
fætur og votta þessum látnu
vinum okkar virðingu okkar og
-4? þökk og aðstandendum þeirra
samúð okkar.
FRI 20 ára
Síðan mælti Björn Vilmund-
arson:
Þetta er 20. ársþing Frjáls-
íþróttasambands íslands, en
eins og ykkur er öllum kunn-
ugt varð sambandið 20 ára
hinn 16. ágúst síðstliðinn.
Á þessum tímamótum vil ég
minnast þeirra sérstaklega, sem
i forystunni voru í upphafi.
Á stofnfundinum mættu 15
fulltrúar frá 9 félögum og
gengu þeir frá stofnun sam-
bandsins. Áður hafði ÍSÍ far-
ið með öll mál fyrir frjálsar
íþróttir. Fyrsti formaður FRÍ
var kjörinn Konráð Gíslason
og aðrir í stjórn voru kjömir
Jóhann Bernhard, Guðmundur
Sigurjónsson, Lárus Halldórs-
son og Oliver Steinn. í vara-
stjórn voru kjömir Sigurður
S. Ólafsson, Þórarinn Magnús-
son og Ólafur Sveinsson.
Þó að 20 ár séu ekki langur
tími er margs að minnast, því
starfið er margt. Ég ætla mér
þó ekki aðtrekja söguna í ein-
stökum atriðum. Hér er hvorki
staður né stund til þess. En,
eins og áður segir, minnumst
við forystumannanna með
þakklæti og allra þeirra mörgu
eiristaklinga, sem unnið hafa
fyrir sambandið síðan, bæði
méð því að sitja í stjóm þess
og á margvíslegan annan hátt.
Þrátt fyrir ýmis vandkvæði
held ég, að mér sé óhætt að
fullyrða, að Frjálsíþróttasam-
bandið hafi ávallt starfað af
miklum krafti og ráðizt í mörg
stórvirki, þó að fjármunir þess
hafi oftast verið af skomum
skammti. Frjálsíþróttamenn
hafa farið í margar keppnis-
ferðir á vegum FRÍ og árang-
ur 'oftast verið með miklum
ágætum. Þeir hafa borið hróð-
ur landsins um víða veröld.
Ég sé ekki ástæðu til að nefna
nein nöfn sérstaklega, en ég
held að mér sé óhætt að full-
yrða, að þessir afreksmenn hafi
lyft nafni íslands hæst í heimi
íþróttanna.
Stjóm FRí á hinum ýmsu
tímum hefur jafnan leitað að
leiðum til að auka veg frjálsra
íþrótta á hverjum tímt. Með
Bikarkeppni FRÍ, Unglinga-
-
margvísleg
bandið.
störf fyrir sam-
lÍH
Guðmunduir Hermannsson — cinn þcirra frjálsíþróttamanna hér
á landi sem unnið hafa hvað athyglisverðust afrck á þessu ári.
keppni FRÍ og Þríþraut FRÍ
hefur verið farið inn á nýjar
leiðir, sem við bindum miklar
vonir við.
Starfið á liðnu ári
Starfsemi sambandsins var
með svipuðu sniði á liðnu
starfsári eins og áður. Tala
sambandsaðila var óbreytt og
samstarfið við héraðasambönd-
in og 'lþróttasamband lslands
ágætt.
Meistarmótin bæði innanhúss
og utan fóru fram í öllum ald-
ursflokkum, eins og reglugerð-
ir segja til um. Reynt var að
dreifa mótunum á nokkra staði
á landinu.
Bikarkeppni FRÍ fór fram i
2. sinn og tókst með ágætum
og tóku 7 aðilar þátt í henni.
Afmælismót fór fram hér á
Laugardalsvellinum í tilefni
20 ára afmælisins og tóku þátt
í því 7 erlendir íþróttamenn.
Unglingakeppni fór fram sömu
daga.
Nefndir sambandsins störf-
uðu eins og áður. Útbreiðslu-
nefnd sá um keppni miUi hér-
aðsskólanna „Keppni úr fjar-
lægð“ og vann nú Laugaskóli í
Þingeyjarsýslu bikar Sam-
vinnutrygginga til eignar.
Þríþraut FRÍ og Æskunnar
fór nú fram í fyrsta skipti og
tóku alls 3580 skólanemendur
þátt í henni. Úrslitakeppni fór
fram í júnímánuði að Laugar-
vatni og dvöldu 36 þátttakend-
ur þar i 2 daga í boði FRl.
Væntum við mikils af keppni
þessari í framtíðinni, en hún
verður endurtekin haustið
1968 og sumarið 1969.
Útbreiðslufundir voru haldn-
ir á nokkrum stöðum á land-
inu þar sem flutt voru erindi
og sýndar kvikmyndir.
Laganefnd staðfesti fyrir
sitt leyti 15 ný íslenzk met
á árinu, sá um að keppt var .
eftir gildandi reglum, skipaði
nýja frjálsíþróttadómara og
gaf út Afrekaskrá 1967.
Samskipti við útlönd voru
nokkur á árinu. Sótt voru Í>ing
frjálsíþróttasambands Norður-
landa og Colender- þing Evr-*
ópu. Tekið þátt 4 Bikarkeppnj
Evrópu í Dublin. Unglingar
tóku þátt í stórmóti í Stav-
anger með góðum árangri og
Tugþrautarmenn í Norður-
landameistaramóti í Kaup-
mannahöfn og landskeppni í
Austur-Þýzkalandi.
1 tilefni 20 ára afmælisins
úthlutaði stjórnin Garpsmerki
FRÍ til 69 karla og 7 kvenna.
Ennfremur voru 15 einstak-
lingar heiðraðir á árinu fyrir
Fjárhagslegii
erfiðleikar
Eins og um mörg undanfar-
in ár, hefur fjárskortur mjög
háð allri starfsemi Frjáls-
íþróttasambandsins þó að ráð-
izt hafi verið í allmörg verk-
efni á árinu. Stjómin hafði
fullan hug á því að lækka
skuldir undanfarinna ára, en
því miður hafa verkefnin orð-
ið það fjárfrek, að skuldir
hafa enn hækkað. Þetta hefur
valdið vaxandi áhyggjum inn-
an stjórnarinnay. en hún hef-
ur velt fyrir sér ýmsum leið-
um til tekjuöflunar. Nokkrar
tekjur hafa orðið af söfnun
auglýsinga og styrkja meðal
fyrirtækja, einstaklinga og
stofnana, en raunverulega fjar-
stætt að byggja starf sam-
bandsins á slíku. Stefna veró-
ur að því með einhverjum ráð-
um, að eigi verði um frekari
rekstrarhalla að ræða á næstu
árum og gera áætlun um að
greiða niður þær skuldir, sem
fyrir eru.
Enn eitt starfsár Frjálsí-
þróttasambandsins er liðið. Ég
held mér sé óhætt að full-
yrða að árið hefur verið við-
burðaríkt og að heldur hafi
þokazt í rétta átt. Við ýmis
vandamál hefur verið að etja
en stjómin hefur reynt að
mæta þeim með festu og á-
ræðni og eigi látið þau koma
í veg fyrir eðlilega þróun
mála.
Ný verkefni bíða næsta árs
bæði hér heima og erlendis,
en aðalverkefnið verður skipu-
lagt útbreiðslustarf, sem vinna
verður af kostgæfni og nota
verður allt hugsanlegt fjár-
magn sem til næst.
Við erum bjartsýnir um
framtíðina, því við treystum
á hið unga íþróttafólk, sem
halda mun merkinu á loftL
Skapa verður því þá aðstöðu
til æfinga og keppni, sem því
ber. Það verður að gera þá
Jcröfu til hins opmbera. að
það styrki mun betur hið
frjálsa íþróttastarf en verið
hefur, bæði með betri kennslu
og betra húsnæði. Frjáls-
íþróttafólk gerir þá kröfu að
þegar verði bætt svo aðstaða
í hinni nýju íþróttahöll í Laug-
ardal að hægt verði að hafa
þar fullkomin íþróttamót á al-
ijjóðamælikvarða. Ef slíkt verð-
ur ekki hægt verður að hefjast
þegar handa um byggingu
slíks húss. Framtíð frjáls-
íþrótta hér á laridi er undir því
komin, að slík aðstaða skapist
vegna hins stutta keppnistíma-
bils að sumrinu.
Samþykktir
þingsins
Að setningarræðu lokinni
var gengið til dagskrár og
voru forsetar þingsins kjörnir
Eiríkur Pálsson, Hafnarfirði
og Þórður B. Sigurðsson,
Reykjavík, ritarar voru Snæ-
björn Jónsson og Höskuldur
Þráinsson.
• Mörg mál lágu fyrir þingi,
m.a. skýrsla stjórnarinnar og
reikningar fyrir sl. starfsár.
Þingið samþykkti eftirfar-
andi tillögur:
1. — Ársþing Frjálsíþrótta-
sambands íslands 1967 sam-
þykkir að alþjóðareglur um
frjálsíþróttakeppni skuli gilda
á öllum frjálsíþróttamótum á
íslandi, og felur stjóm sam-
bandsins að sjá um, að al-
þjóðareglumar verði þýddar
og gefnar út, strax og I.A.A.F.
hefur sent frá sér nýja útgáfu
þeirra með breytingum þeim,
Framhald á 9. síðu.
/
i