Þjóðviljinn - 09.11.1967, Page 10
10 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 9. nóvember 1965.
WINSTON
GRAHAM:
MARNIE
45
— Af tveimur ástæðum. En
þær eru báðar mjög persónuleg-
ar og þér ’finnst þaer kannski
ekki koma þér við. Að mínu áliti
er Terry mjög óskemmtilegt ein-
tak af mannlegri veru. Stöku
sinnum vorkenni ég honum, en
yfirleitt er mér meinilla við hann
og allt sem hann táknar. Hann er
alls ekki á réttri hillu sem for-
stjóri í fyrirtaekinu. En á hinn
bóginn er mér ekki ljóst, hver
hans rétta hilla er. Veizt þú
það? Hann er svo skelfilega
klúðurslegt samband af getu-
leysi og hroka, að það er naest-
um ógerlegt að fá manneskju út
úr þeirri kös- Hann vill vera
kaupsýslumaður í stórum stíl, en
það verður hann aldrei. Hann
vill vera mikið kvennagull og
leggur sig allan fram í því til-
liti: en ég held honum takist
það ekki. Hann er yfirborðs-
maður, kannar aldrei neitt til
hh'tar. hann er sundurgerðarmað-
ur í klæðaburði og hefur vit á
TRÉSMIÐJA
Þ. SKCLASONAR
Nýbýlavegi 6
Kópavogi
sími 4 01 75
Hárgreiðslan ,
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laagav. 18. III. hæð (lyfta)
Síml 24-6-16.
PERMA
Hárgreiðslu- og snyrtistofá
Garðsenda 21. SlMl 33-968
að safna að sér nýjustu orða-
tiltækjum og talsháttum úr ýms-
um áttum, gerir sig spennandi
með pókerkvöldum og jazzsam-
komum. Skilurðu það, Marnie,
ef hann væri í rauninni það sem
kallað er ómenni, þá gæti ég
betur sætt- mig við hann; en
hann hefur ekki einu sinni burði
til að vera ómenni. Hann er bara
lítilmótlegur. Og auk þess er
hann ómerkilegur. Sjáðu nú til
að mynda þetta með Glaston-
bury Investment Trust — já, bað
er þér að þakka að ég komst
að því öllu saman. Ég hef ekki
minnzt á neitt við hann. En
þetta er einkennandi fyrir hann.
Ég hef ekkert við það að athuga
þótt honum sé illa við mig; en
ég ksgri mig ekki um að hann
fari á bak við mig.
— Hvað hefurðu hugsað þér
að gera — í sambamdi við það
pukur á ég við?
— Ég veit það ekki- En þar
kemur einmitt hin ástæðan til
þess að þú átt ekki að taka þátt
í þessum pókerkvöldum. Eins og
á stendur finnst mér að þú sem
eiginkona mfn getir ekki leyft
þér að vera með sinn fótinn
í hvorum herbúðum. I>að kæmi
fremur til greina, ef yfirlýstur
ófriður væri á milli okkar. En
svo er ekki ermþá.
Ég fór að safna saman leir-
tauinu á morgunverðarborðinu.
— Ég get ekki þolað að verið
sé að fara á þak við mig, sagði
hann, og þetta fbrpestar hverja
einustu stund mína á skrifstof-
unni. Ég sagði Rex frá Glaston-
bury Investment Trust, og hann
hefur fengið þá furðulegu hug-
mynd að ætla að bjóða Holbrook-
feðgunum og okkur til kvöld-
verðar einhvern tíma á næst-
unni í von um að skapa nota-
legt andrúmsloft, sem gæti orðið
til þess að þeir leystu frá skjóð-
unni. Ég sagði honum, að það
væri gersamlega tilgangslaust, en
hann segir að hann ætli að
minnsta kosti að láta einskis ó-
freistað til að halda gamla fjöl-
skyldufyrirtækinu í horfinu.
— Hvenær vill hann fá okkur
í kvöldverð?
-r— Ég veit það ekki. Það verð-
ur varla í næstu viku, en kannski
i hinni vikunni. En nú veiztu
hvemig málunum er háttað. Og
nú skilurðu sjálfsagt líka að þú
getur ekki verið þekkt fyrir að
dveljast hjá Terry á öllum tím-
um sólarhringsins-
Ég setti óhreinu diskana yfir
á teborðið, sem var á hjólum.
Þegar eitthvað var útskýrt frá
grunni fyrir mér, þá gat ég
næstum alltaf séð þegar ég hafði
rangt fyrir mér. En í svipinn
var ég full af þrjózku. Og það
hefur vist verið auðséð á mér,
því að eftir nokkra stund sagði
hann: — Þetta líf sem við lifum
saman, hlýtur að verða að telj-
ast dálitið undarlegt, finnst þér
ekki?
— Það var ekki tillaga mín að
við lifðum lífinu saman.
— Nei — en þú samþykktir
trliöguna samt.
— Þú veizt nákvæmlega hvers
vegna ég féllst á hana.
— Ég vil ógjarnan gera óþarfa
veður út af hlutunum, Mamie . .
ég hef sjálfur lagt gmndvöllinn
að þessum lífsháttum mínum . .
og þínum . . . sem við verðum að
halda áfram fyrst um sinn. Ég
geri mitt bezta til að þú getir
farið þínar eigin leiðir — cg
með þeim hraða sem þú kýst.
Það er ekkert við það að athuga,
«g við höfum komið okkur sam-
an um það — ef það fer í taug-
amar á mér, þá get ég sjálfum
mér um kennt. En það er ekki
innifalið í samningum okkar að
þú getir farið út með Terry eða
farið í veizlur hjá Terry. Mér
þykir leitt að þú skulir hafa
haldið, að það kæmi til greina,
Mamie, því að svo er ekki. Það
kemur alls ekki til greina.
13.
Stundum varð mér hugsað til
lykla Marks, sem hann tók upp
úr vasanum á hverju kvöldi og
lagði frá sér í svefnherberginu;
en meðan ég var hjá honum
gat ég svo sem ekkert gert við
lyklana þá.
Um þetta leyti var það mesta
ánægja mín að vera alúðleg við
Richardsfjöldskylduna og ná-
granna hennar. I húsinu við hlið-
ina á þeim bjuggu tveir gamlir
menn. Annar var blindur og
hinn hálfblindur, og þeir fóru
oft út að ganga og leiddust og
þá varð þetta eina auga að koma
í stað fjögurra, sögðu þeir, og
það var alveg furðulegt hvað
þeir voru glaðir og nægjusamir;
en það var ósköp að sjá hvernig
allt leit út inni hjá þeim og það
leiddist mér, svo að einn daginn
fómm við frú Leonard þangað
saman og tókum til óspilltra
málanna rneð vorhreingemingu.
Ég fann líka gluggatjöld, sem
voru gömul, en þó hundrað sinn-
um betri en gömlu druslurnar
sem þeir höfðu haft fyrir glugg-
unum hingað til- Gömlu menn-
imir tveir urðu alveg agndofa af
undrun, en þeir vora mjög þakk-
látir. Qg, svo komst ég að því,
að þeir kunnu líka að meta kök-
urnar mínar.
Það var einmitt í þeirri viku
sem dr. Roman sagði við mig:
— Nú er þriðji mánuðurinn um
það þil að hefjast hjá okkur,
frú Rutland. Okkur miðaði tölu-
vert í janúar, en nú finnst mér
eins og við séum komin í ein-
hverja sjálfhéldu. Ég hef því
verið að velta fyrir mér, hvort
jrér gætuð hugsað yður að láta
dáleiða yður?
— Dáleiða mig? Hvem?
— Mig. En ég verð þó að segja
yður strax, að ef þér samþykkið
það ekki af fúsum vilja, þá er
það alveg tilgangslaust- Það er
ekki hægt að dáleiða neinn gegn
vilja hans.
— Já, en af hverju getum við
ekki bara haldið áfram á sama
hátt og hingað til? spurði ég-
— Ég held að það gæti hjálp-
að okkur yfir núverandi erfið-
leika. 1 síðustu fimm skiptin
hefur okkur ekki miðað neitt
áfram.
Það virtist alveg hættulaust.
— Hvenær finnst yður að við
ættum að byrja?
— Núna — ef þér samþykkið
það-
— Allt í lagi mín vegna. Á
ég að loka augunum?
— Nei. Eftir andartak bið ég
yður að horfa á silfurhringinn
héma, sem ég ætla að halda
á lofti. En fyrst ætla ég að
draga rimlatjöldin betur fyrir.
Eftir svo sem tuttugu mínút-
ur sagði hann þurrlega: — Jæja
— ég hefði svo sem mátt búast
við þessu-
— Hvað eigið þér við með því?
—r Þér látizt samþykkja að ég
dáleiði yður. En í raun og vera
streitizt þér á móti af öllu afli.
— Það geri ég alls ekki. Ég
hef gert allt sem þér hafið sagt
mér að gera.
Ég kunni betur við að hafa
hann fyrir framan mig eins og
núna- Hann stóð og var að fága
gleraugun sín, og hann var þreytu-
legur- Þegar hann tók af sér
gleraugun mátti sjá pokana und-
ir augunum.
— Þér gerið alltaf það sem ég
segi yður, frú Rutland, en alltaf
í sterkri innri andstöðu. Ef þér
hefðuð ekki verið svo athyglis-
verður persónuleiki hefði ég gef-
izt upp fyrir mörgum vikum.
— Það þykir mér leitt.
— Er það satt?
Rödd hans gaf til kynna að
hann gæti vel hugsað sér að
notfæra sér það-
— Ef yður þykir það í raun
og vera leitt, má ég þá koma
með »ðra tillögu? Ég get á annan
hátt, sem sé með sprautu, fram-
kallað sama ástand og verður
í dáleiðslu. "Þér hafið ef til vill
heyrt minnzt á pentothal? Það
hefur engin óþægileg aukaáhrif
og ég ,er sannfærður um að það
myndi hjálpa okkur báðum.
Ég horfði á neglumar á mér.
r— Mér finnst rétt að ég beri það
undir Mark.
Hann andvarpaði. — Eins og
þér viljið, frú Rutland- Þér gefið
mér svar á föstudáginn.
A föstudaginn sagði ég við
hann: — Mér þykir það leitt,
en Mark er ekki hrifinn af þeirri
hugmynd að þér nctið deyfilyf.
Það er kannski grilla í honum,
en hann er á móti alls konar
sprautum.
— Ágætt.
— En getum við ekki haldið
áfram í nokkrar vikur á sama
hátt og hingað til? Mig hefur
dreymt svo undarlega síðan ég
kom hingað síðast og —
— Ég geri ráð fyrir að þér eéuð
sjálfar andvigar pentothal-sprautu
— er það ekki sannleikurinn i
málinu?
— Mark vill það að minnsta
kosti ekki, sagði ég.
— Og þér sjálfar ekki heldur,
eða hvað?
— Hvers vegna ætti ég að
vilja það? Það er ekki rétt að
gera slíkt við aðra mannvera.
Þá fær maður — vald yfir henni.
Og mér fyndist eins og — eins
og ég ofurseldi mig gensamlega.
Seinna spurði hann: — Hvers
gætuð þér óskað yður af til-
veranni — auk þess sem þér
hafið þegar öðlazt?
— Af hverju spyrjið þér að
því?
— Segið mér hvort þér eigið
nokkrap óskir og vonir um fram-
tíðina. Þér erað tuttugu og
þriggja ára- Flestar ungar kon-
ur á yðar aldri óska þess að
giftast. Þér eruð giftar, en þér
getið ekki sætt yður við hjóna-
bandið sem slíkt.
— Ég hef ekkert á móti því
að búa með manni, ef hann lætur
mig aðeins í friði.
— Langar yður til að eignast
böm?
— Nei;
— Hvers vegna ekki? Það er
þó eðlileg löngun hjá flestum
konum.
— Ekki Öllum konum.
— Hvers vegna viljið þér ekki
eignast böm?
— Mér finnst óverjandi að
setja börn í þennan heim —
eins og heimurinn er,
— Það gæti verið ástæðan til
þess að þér eignuðust ekki böm.
En það er engin ástæða til þess
að hafa enga löngun til að eign-
ast böm.
— Ég sé engan mun á því.
— Þér erað að reyna að koma
með skynsamlega skýringu á
eðlisbundinni tilfinningu.
— Það getur vel verið.
FÍFA auglýsir
\
Stórkostleg verðiækkun á peysum og úlpum fynr
böm og fullorðna.
| Verzlið yður í hag — Verzlið í Fífu.
| Verzlunin FÍFA
Laugavegi 99 (inng. frá Snorrabraut).
rjl
\
HAZE AIROSOL hreinsar andrúmsloftið á svipstundn
SKOTTA
— Hvað ertu með í töskimni þinni?! Ég heyrði greinilega að ein-
hver sagði; Næsta lag sem við spilum er....
Finangrunargler
Húseigenduz — Byggingameistarar.
Útvegum tvöfalt einangrunargler með mjög stutt-
um fyrirvara.
Sjáum um ísetningu og allskonaT breytingar á
fluggum. Útvegum tvöfalt gler í lausafög og sjá-
um um máltöfcu.
Gerum við sprungur i steyptum veggjum með
baulrevndu gúmmíefni
Gerið svo vel og leitið tilboða.
SÍMI 5 11 39.
NÝKOMID
Peysur, úlpur og terylenebuxur.
O. L. Laugavegi 71
Sími 20141.
BÍLLINN
Gerið við bíia ykkar sjálf
Við sköpum aðstöðuna. — Bílaleiga.
BÍLAÞJÖNOSTAN
Auðbrekku 53. Kópavogi. — Sími 40145.
Láfið sfilla bílinn
Önnumsí bjóla-, ljósa- og mótorstillingu
Skiptum um kerti, platínur, ljósasamlokur
— Örugg þjónusta. ^
BÍLASKOÐUN OG STILLING
Skúlagötu 32, sími 13100
Hemlaviðgerðir
, • Rennun; breimsuskálar.
• Slípum bremsudælur.
• Límum á bremsuborða.
Hemlastilling hf.
Súðarvogi 14 - Simi 30135.
♦
*
4
4