Þjóðviljinn - 10.11.1967, Síða 1
ASÍ kallar saman ráðstefnu um kjaramál
□ Síðdegis í gær kom miðstjóm
Aiþýðusambands íslands saman til
fundiar til þess að ræða viðhorfin í
kjaramálunum eftir að slitnað er að
kalla upp úr viðræðum' milli launþega-
samtakanna og ríkisstjórnarinnar.
□ Að því er Þjóðviljinn fregnaði i
gærkvöld mun miðstjómin hafa ákveð-
ið á fundi sínum að kalla saman ráð-
stefnu forustumanna verklýðsfélaga
innan ASÍ til þess að ræða málin og
mun hún hefjast n.k. mánudag kl. 4
síðdegis hér í Reykj avík.
DMUINN
FöstEdagar 10. nóvember 1967 — 32. árgangur 255. tölublað.
Fulltrúar launþegasamtakanna höfn-
uðu nýium tillögum ríkisstjórnarinnar
ViSrœSum aSila lokiS en jbó
mun rœff um einsfök cifriSi
□ í fréttatilkynningu sem Þjóðviljanum barst
í gærkvöld frá ríkisstjorninni og viðræðunefnd
ASÍ og BSRB segir að á fundi þessara aðila í
gærmorgun hafi forsætisráðherra komið með þá
gagntillögu við kröfu launþegasamtakanna um
að vísitala á laun haldist óslitið, að kaupgjalds-
vísitalan verði látin hækka um 3% vegna lækk-
unar niðurgreiðslnanna. — Ekki átti þessi hækk-
un þó að koma til framkvæmda öll í einu heldur
í þrem áföngum með 6 mánaða millibili — 1% í
einu! Einnig bauð ríkisstjórnin 5% hækkun fjöl-
skyldubóta með tveimur eða ’fleiri bömum.
□ Að loknu fundarhléi hafnaði viðræðunefnd
ASÍ og BRSB tillögum ríkisstjórnarinnar og lýstu
nefndarmenn allir yfir nema einn að nefndin
teldi sig ekki geta tryggt vinnufrið í landinu með
því að samþykkja þessar tillögur.
□ Fréttatilkynningin fer í heild hér á eftir:
Að boði ríkisstjórnarixinar hóf-
<s>-
<S>-
Hverjir fengu
sumarbústaði
á Þingvöllum?
★ Friðun Þingvalla hefur verið
mikið á döfinni að undan-
förnu. Á alþingi kom málið til
umræðu nú í vikunni í sam-
bandi við þingsályktunartil-
Iögu sem Magnús Kjartans-
son flytur um endurskoðun
laganna um friðun Þingvalla
og er ræða hans, er hann
flutti fyrir tillögunni, birt á
opnu blaðsins í dag.
★ Þá er í nýútkomnu hefti Sam-
vinnunnar birtur listi yfir
alla þá sem fengið hafa lóð-
ir í Iandi þjóðgarðsins á
Þingvöllum hjá Þingvalla-
nefnd eða eiga þar sumarbú-
staði frá fyrri tíð. Mun mörg-
um forvitni á að lesa þann
lista og því birtum' við hann
á 10. síðu blaðsins I dag.
<1
Sumarbústaðir í Þingvallalandi.
— Á myndinni sjást bústaðir
sem byggðir ern í þjóðgarðinum.
ust viðræður við 12 manna sam-
eiginlega nefnd frá Alþýðusam-
bandi Islands og Bandalagi
starfsmanna ríkis og bæja hinn
24. október síðastliðinn. Á þeim
fundi varð samkomulag um, að
launþegasamtökin skipuöu tvær
starfsnefndir til að kynna sér
umfang og éðli vandamálanna.
Þegar nefndirnar höfðu lokið
störfum, var haldinn annar fund-
ur 12 manna nefndarinnar og
fulltrúa ríkisstjórnarinnar. Lagði
12 manna nefndin þá fram svo-
hljóðandi svör:
„1. Það er ófrávíkjanlegt
af nefndarinnar hálfu
að vísitala á laun hald-
ist óslitið-
2- Ncfndin taldi, að auka
mætti verulega tekjur
ríkissjóðs með auknu
skattaeftirliti og betri
skattheimtu.
3. Þá taldi nefndin unnt að
spara verulegar upphæð-
ir á gjaldabálki fjárlaga.
4. Það var krafa nefndar-
innar, að verðlagsákvæði
yrðu gerð víðtækari og
verðlagseftirlit bætt.
5. Þá Iagði nefndin áherzlu
á, að. innlend iðnfram-
Ieiðsla yrði efld, til þess
að auka atvinnu og
vinnutekjuir og þar með
tekjur ríkissjóðs, og til
þess að halda jafnvægi í
þjóðarbúskapnum útávið.
I þessu skyni skyldi
takmarkaður innflutning-
ur á þeim vörum, sem
unnt værí að framleiða
með jafnóðum árangri í
landinu.
0. Að lokum lét nefndin í
ljós, að hún tcldi síður
en svo háskalegt, miðað
við núverandi samdrátt-
arhorfur, þótt elnhver
Framhald á 7. síðu.
Flytja ber utanríkismálin af reyfarastig-
inu yfir á vettvang hins rúmhelga dags
8 sendiherrar í Norðvestur-Evrópu — enginn í Asíu eða Rómönsku Ameríku
□
□
Þetta frumvarp fjallar ekki um sjálfa stefnuria í utan-
ríkismálum, sagði Magnús Kjartansson í framsöguræðu
um frumvarp þriggja Alþýðuibandalagsþingmanna um
breytingar á lögunum um utanríkisráðuneyti íslands
og fulltrúa þess erlendis, en miálið var til 1. umræðu á
fundi neðri deildar Alþingis í gær.
„Hér er aðems lagt til að ákvörðunarvald Al-
þingis verði aukið á þessu mikilvæga sviði, að
þingmenn taki að telja utanríkismál sjálfsagt
starfssvið sitt, að þau séu flutt af reyfarastig-
inu yfir á vettvang hins rúmhelga dags“.
Hér fara á eftir kafiar úr
framsöguræðunm:
★ Alþingi sniðgengið
í greinargerð fyrir frumvarpi
því sem ég flyt hér ásamt hátt-
virtum 4. þingmanni Austur-
landskjördæmis og háttvirtum
9. þingmanni Reykvíkinga er
vikið að því að Alþingi hefur
mjög mismikil afskipti af mála-
flokkum. Á sumum sviðum tek-
ur alþingi ákvarðanir um hin
smæstu framkvæmdaatriði, off-
stundum fer fjarska mikill tími
í það að ræða um hvort friða
eigi rjúpuna eða leyfa að skjóta
hana, hvernig fara eigi að því
að drepa mink og veiðibjöllu,
hvort kaupa eigi eða selja til-
teknar eyðijarðir, hvort atkó-
hólprósentan í bjór eigi að vera
nokkrum hundraðshlutum meiri
eða minni. En önnur svið og
engu veigaminni koma naumast
til kasta alþingis þegar undan
eru skildar nokkrar meginregl-
ur. Meðal þeirra mála sem al-
þingi sinnir tiltölulega lítið eru
utanríkismál. Stjórnarvöldin þera
þau mál naumast undir alþingi
nema um sé að ræða samninga
við önnur ríki sem um er rætt
í 21. grein stjórnarskrárinnar
og fela í sér afsal eða kvaðir
á landi eða landhelgi. Raunar
hefur yíkisstjórnin um langt
árabil í þokkabót sniðgengið
alþingi á mjög ósæmilegan hátt
með því að neita að hlíta þeim
ákvæðum þingskapa sem mæla
svo fyrir að utanríkismál skulí
ávallt borin undir utanríkismála-
nefnd alþingis. Hafa utanríkis-
ráðherrar reynt að réttlæta þau
lagabrot með því að halda því
fram að sumir nefndarmenn
hafi brugðizt trúnaði sem þeim
var sýndur, en hafa þó aldrei
getað sannað þá staðhæfingu.
★ Eru utanríkismál James
Bond-reyfari?
Ákæran um trúnaðarbrot er
annars táknræn um afstöðu
sumra forustumanna til utan-
ríkismála. Þeir virðast vera und-
ir mjög sterkum áhrifum frá
njósnasögum þeim, sem nú eru
mjög í tízku og kenndar eru
við James Bond og aðrar reyf-
arahetjur. Þeir virðast líta á
þennan málaflokk sem einhvers-
konar spennandi samsæri, í
stíl við njósnir og gagnnjósnir.
Sumir utanríkisráðherrar hafa
ekki aðeins sniðgengið alþingi
heldur hafa þeir gert utanríkis-
málin að einhverskonar einka-
máluim sínum; þeir hafa ekki
einu sinni rætt þau innan rík-
isstjórnar. Þess eru mörg dæmi
að íslendingar hafa fyrst feng-
ið fréttir um mikilvægar ákvarð-
anir í utanríkismálum okkar í
erlendum blöðum eða erlend-
um útvarpsstöðvum, og stund-
um hafa æðstu starfsmenn ut-
anríkisráðuneytisins ekki haft
hugmynd um gerðir og ákvarð-
anir ráðherrans, yfirboðara
síns. Allt er þetta laumuspil yf-
irleitt einber barnaskapur. Ut-
anríkismál, eru ekkert meiri
launungarmál en önnur við-
fangsefni landsmanna, og ég
hygg að það komi ákaflega sjald-
an fyrir að utanríkisráðherrum
okkar berist vitneskja um mál
sem raunveruleg ástæða sé til
að halda leyndum. Öll er þessi
afstaða sérstaklega tengd tíma-
biþ kalda stríðsins, þegar til-
finningar og ástríður voru í
fyrirrúmi fyrir raunsæju mati,
en riú er orðið tímabært að því
óeðlilega hugarástandi sloti.
★ Eðlilegt viðfangsefni
Alþingis
Það er tilgangur þessa frum-
varps að gera utanríkismálin að
eðlilegu viðfangsefni alþingis.
Ekki ætti að þurfa að færa rök
að því hér á þessum stað hversu
mikilvæg utanríkismál eru. Þau
eru tengd þjóðarhagsmunum
okkar á fjölmörgum sviðum; ut-
anríkisviðs* *ripti eru einn veiga-
mesti þáttur í efnahagskerfi okk-
ar og raunar veigameiri en hiá
flestum þjóðum öðrum; við telj-
um réttilega að afstaða ís-
lands til ýmissa alþjóðamála sé
tengd mannorði okkar og heiðri.
Alla þessa málaflokka þárf að
ræða gaumgæfilega og leyfa
andstæðum sjónarmiðum að veg-
ast á 4 eðlilegan og lýðræðis-
legan hátt; það má ekki vera
neitt einkamál ráðherra eða
embættismanna hvaða ákvarð-
anir eru teknar fyrir íslands
Framhald á 3. síðu.
18%
hœkkun
á hitaveitu°
gjöldum
I sambandi við efnahags-
málafrumvarp ríkisstjórn-
arinnar hafa hækkanir á
hitaveitugjöldum verið boð-
aðar hér í borginni. Borg-
arstjóri upplýsti á blaða-
mannafundi í gærdag, að
hitaveitugjöld ættu að
hækka um 18%. ,
Ráðstöfunarfé var hætt
að hrökkva fyrir afborgun-
um á Iánum og vöxtum
samfara auknum fram-
kvæmdum og reyndist
þannig óumflýjanlegt að
hækka hitaveitugjöldin,
sagði borgarstjóri.
I