Þjóðviljinn - 10.11.1967, Síða 2
2 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 10. nóvember 1967.
□ Forráðamenn handknattleiksdeildar Fram boðuðu
blaðamenn á sinn fund í tilefni af komu júgóslavnesku
meistaranna PARTIZAN. sem leika gegn Fram í íþrótta-
húsinu í Laugardal n.k. sunnudag kl. 4. — Leikurinn er
liður í Evrópubikarkeppni meistaraliða og er þetta fyrri
leikur li^anna; hinn síðari fer fram 19. nóvember í Júgó-
slavíu.
Lið 'Partizan.
Evrópukeppnin í handknattleik:
Tekst Fram að vinna
Partizan á sunnudag?
Sem kunnugt er eru Júgo-
slavar með beztu handknatt-
leiksþjóðum heims, og hefðu
Framarar vart geta fengið
sterkari mótherja en þetta lið,
Partizan. Til marks um styrk-
leika liðsinns má geta þess að
ekki færri en 5 leikmenn þess
eru í landsliði Júgoslava. Ferill
Partizan í júgoslavneskum
handknattleik er með fádæm-
um. Félagið var stofnað fyrir
aðeins 10 árum eða 1957. Árið
eftir kom'ust þeir í 1. deild og
urðu Júgoslavíumeistarar sama
ár. Síðan urðu þeir meistarar
aftur 1961 og 1967. Bikarmeist-
ari varð félagið 1960 og hefur
Geng-
islækkun
lÆargt bendir til þess að
stjómarflokkarnir hafi fyrir
löngu ákveðið að lækka gengi
ísilenzku krónunnar, endahafa
þeir á sex undanfömum árum
skert verðgildi krónunnar um
meira en helming. Verðbólga
hefúr verið hér þrefalt örari
að jafnaðd en í helztu við-
skiptalöndum okkar,' og af-
leiðingin hefur 'orðið sú að
erlendur gjaldeyrir er orðinn
ódýrasta varan sem hér er á
boðstólum, enda er hinn
margrómaði gjaldeyrissjóður
nú að gufa upp. Seryúlegt má
telja að Brasilíufaramir hafi
lagt í leiðangur sinn í haust
í því skyni að ræða þessi al-
varlegu vandamáll við ráða-
menn Alþjóðabankans og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins, og fá
hjá þeim nauðsynlegar heim-
ildir til þess að framkvæma
nýja gengislækkun, þá þriðju
á sama áratugnum. Er það-
leyfi trúléga geymt í traust-
ustu hirzlu Seðlabankans.
En stjómarflokkarnir vilja'
halda þannig á gengislækkun
sinni að þeir geti kennt öðr-
um um. Þá skortir manndóm
til þess að koma fram fyrir
þjóðina af einlægni og Eýsa
yfir því að þeir hafi haldið
svo herfilega á málum á
mesta velgengnistímabili í
sögu þjóðarinnar pð kerfið sé
að hry’nja, útflutningsatvinnu-
végirnir að stöðvast og gjald-
eyrisforðinn að þrjóta. 1 stað-
inn setja þeir á svið svoköll-
uð bjargráð sem öllum er ljóst
að engu munu bjarga. Þeir
haga þeim ráðstöfunum þann-
ig að lengra verður ekld
gengið í ósvífiiini árás á kjör
þeirra sem lákasta afkomu
hafa í þjóðfélaginu, svo að ó-
hjákvæmilegt er fyrir verk-
lýðssamtökin að hnekkja þeim
árásum. En þá er ætilun
stjómarvaldanna að kenna
verklýðshreyfingunni um;ráð-
herrarnir ætla að setja upp
sakleysissvip og segja: Við
vildum fyrir alla muni tryggja
gengi íslenzku krónunnar en
verklýðshreyfingin gerði okk-
ur það ókleift — það er hún
sem ber ábyrgð á gengislækk-
uninni! Áróður af þessu tagi
er þegar tekinn að láta á sér
kræla, m.a. í forustugrein
Morgunblaðsins í fyrradag.
Vafalaust eru þessar ráð-
stafanir stjómarflokkanna í
samræmi við nútímaaðferðir f
áróðurstækni og stjórnmála-
blekkingum, en sú „vísinda-
grein“ er sem kunnugt er há-
þróuð í Bandaríkjunum. En
skyíldu valdhafarnir ekki eiga
eftir að reka sig á það að þeir
eru ekki staddir. í hinu vest-
ræpa stórveldi, heldur á ís-
landi, þar sem fólk kann enrt
að leggja saman tvo og tvo.
— Austri.
komizt tvisvar í úrslit þar síð-
an. 1961 komst liðið í úrslit
í Evrópúbikarkeppninni en
tapaði naumlega fyrir v-þýzku ^
meisturunum Göppingen, 11-13.
Júgóslavamir koma á laugar-
dag til Reykjavíkur og koma
með leiguflugvél sem bíður eft-
ir þeim fram á þriðjudag, þvi
liðið leikur aukaleik hér við
F-H- á mánudagskvöld. Með
liðinu koma a.m.k. 60 aðdáend-
ur liðsins frá heimabæ þess,
Bjelovar, sem er aðeins 20 þús.
manna bær. Sem kunnugt er
þá tíðkast það mjög erlendis
að góðir leikmenn skipti um
félag. Partizan státar af þvi að
hingað til hefur enginn utan-
bæjarmaður leikið með liðinu,
og er það afrek út af fyrir sig,
þegar tekið er tillit til þess
hvað Bjelovar er lítill bær og
hvað liðið hefur náð langt.
Framarar tefla fram sínu
sterkasta liði, en sem kunnugt
er þá hefur einn þeirra bezti
maður, Ingólfur Óskarsson, ver-
ið meiddur í hendi og hefur
ekki verið með að undanfömu,
en mun nú vera búinn að ná
sér. Miklar vonir erunúbundn-
ar við Framliðið og þær
minnkuðu ekki eftir leik þess
við danska liðið Stadion fyrir
nokkmm dögum sem Framar-
ar unnu auðveldlega, 12-8- Það
væri óskandi að þeim gengi
jafn vel á sunnudaginn gegn
Júgoslövum, en hrasddur er ég
um að þeir séu mun sterkari
en danskurinn.
Dómari i leikiium verður
Norðmaðurinn Einar Friede-
lund en markadómarar þeir
svarabræður Valur Benidikts-
son og Magnús V. Pétursson.
Eftirtaldir leikmenn koma
hingað með Partizan:
Markverðir:
Zvono Jandrokovic, 28 ára gam-
all iðnfræðingur. Hefur leik-
ið 33 landsleiki.
Boris Bradic, tvítugur lögfræði-
stúdent.
Miroslav Dolenec, 24 ára í-
þróttakennari.
Útileikmenn:
Miroslav Pribanic, 22 ára gam-
all járniðnaðarmaður. Hefur
leikið 20 landsleiki.
Drago Cukovic 27 ára gamall
verkfræðingur.
Marijan .Tak.sekovic, 25 ára gam-
all hagfræðingur-
Zeljko Jandrokovic, 25áragam-
all eðlisfræðingur. Hefurleik-
ið 1 landsleik.
Hrvoje Horvat, 21 árs lögfræði-
stúdent. Hefur leikið 33 lands-
leiki.
Albin Vidovic, 24 ára gamall
tannlæknir. Hefur leikið 20
landsleiki.
Nikola Hasan, 25 ára gamall
vélfræðingur.
Ivan Djuranec, 25 ára gamall
hagfræðingur. Hefur leikið 63
landsleiki, eða fleiri en nokk-
uf annar í liðinu.
Vlado Srpiljanic. 17 ára gam-
all nemi.
Jðsip Pecina, 26 ára gamall
landmælingamaður.
Vidoslav Purgar. 23 ára gam-
all iðnfræðingur.
Milan Djeric, 20 ára gamall
lögfræðistúdent.
Þjálfari liðsins er Zeljko Seles.
Margir árekstrar
Allmikil hálka var í Rvík í
gær og um fimmleytið e.h. er
blaðið hafði tal af lögreglunni
höfðu orðið hér 16-17 árekstrar.
Enginn þeirra var alvarlegur og
munu ekki hafa orðið slys á
mönnum.
Um svipað leyti höfðu orðið
tveir árekstrar í Hafnarfirði,
annar á Strandgötu, hinn á
Hvanneyrarbraut. Munaði engu
að einn bíllinn ylti í sjóinn,
en svo fór þó ekki sem betur
fer. Engin slys urðu í þessum
árekstrum heldur.
FOSSKRAFT
Óskum að ráða:
1. Jámsmiði og ■ bifvélavirkja með reynslu í við-
haldi þungavinnuvéla, stórra vörubifreiða,
loftþjappa og þrýstiloftsverkfæra.
2. Jámsmiði í nýsmíði, vélaniðursetningar og
sverar pipulagnir.
3. Pípulagningamenn.
Upplýsingar á Suðurlandsbraut 32.
Ráðningarstjóri.
DANSK-ISLENZKA FELAGH):
KVIKMYNDASÝNING
í Nýja Bíó laugardaginn 11. þ.m. kl. 2 e.h. Sýndar verða
tvær kvikmyndir: Litmynd frá giftingu Margrétar ríkis-
erfingja Dana og Renriks prins, og mynd frá uppvaxtar-
árum ríkiserfingjans.
Öllum er heimill aðgangur á meðan húsrúm leyfir, börn-
um þó aðeins í fylgd með fullorðnum. — STJÓRNIN.
FIFA auglýsir
Ódýrar úlpur, peysur og regnkápur á börn og
fullorðna, einnig terylene-buxur j öllum stærðum
og regngalla á böm.
Verzlið yður í hag. — Verzlið í Fífu.
Verzlunin FÍFA
Lau’gavegi 99 (inngangur frá Snorrabraut).
Fundur í Samtök-
um sveitarfélaga í
R-neskjördæmi
Fulltrúafundur i Samtökum
sveitarfélaga í Reykjanesum-
dæmi verður hafldinn n.k.-laug-
ardag, 11. nóv., kl. 14 í Sjálf-
stæöishúsinu í Hafnarfirði. Þar
mun ríkisskattstjóri halda er-
indi um staðgreiðslukerfi skatta
og svara fyrirspumum. Þing-
menn Reykjaneskjördæmis eru
boðnir á fundinn. Auk fasta-
fulltrúa eru allir sveitarstjóm-
armenn í kjördæminu vel-
kiomJiir.
Thorvaldsensfélagið heldur
• •
KVOLDSKEMMTUN
;
í Súlnasal Hótel Sögu, sunnudaginn 12. nóv. kl. 20.30.
Til skemmtunar verður:
1. Sýning á þjóðbúningum Norðurlanda.
2. Tvísöngur: Sigurveig Hjaltested og Guðmundur
Guðjónsson með undirleik Skúla Halldórssonar.
3. Danspör frá Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar.
4. Nýr skemmtiþáttur. — Bessi og Gunnar.
5. Happdrætti. — Allt glæsilegir vinningar.
Ágóðinn rennur til kaupa á húsbúnaði í viðbótarbyggingu
barnaheimilis við Sunnut'org.
Aðgöngumiðar seldir á Thorvaldsensbazar laugardaginn 11.
nóve nber kl. 9-12 og í anddyri Súlnasals Hótel Sögu sama
dag kl. 15-17 og við innganginn.
Borðpantanir á saima tíma. — Kvöldverður framreiddur frá
kl. 19 á sunnudagskvöld. -— Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar
leikur fyrir dansi til klukkan 1 e.m.
* *
SKEMMTINEFNDIN.