Þjóðviljinn - 22.11.1967, Side 10
(
f
Mikið f jör í verzkjni>Fmi:
Kaupmenn ákveSnir aS taka ekki skell
gengislækkunarínnar á sínar herSar
— sumir iaka vör-
ur úr umferð —
aðrir hætta af-
bofgunarskilmál-
um og afslætti
■ □ Mikið fjör var í verzl-
unarviðskiptum í borginni í
gær og fyrradag og virðist
fólk sannarlega ætla að nota
þá peninga sem það á áður
en væntanleg gengisfelling
skellur yfir. Kaupmenn eru
líka ákveðnir í að tapa sem
minnst á gengislækkuninni.
en fara tvær leiðir: Sumir
selja sem þeir mega, aðrir
hafa lokað fyrir sölu í bili
þar til fréttist af örlö.gum
krónunnar. ganga jafnvel
svo langt að segia beint út
að þeir selji ekki fyrr en
elrtir gengislækkun og þá á
■'öfnunarverði. sem þeir kalla
fcvo
Það sem fk51k hefur einkum
hug á að kaupa þessa dagana eru
tæki og vélar ýmiskonar og hef-
ur verið mikil sala í sjónvarps-
tækjum og öllum heimilistsekj-
lim, svo sem þvotta- og upp-
þvottavélum, ísskápum, frysti-
kistum o.s.frv. Þá hafa þeir sem
standa í íbúðarbyggingum eðli-
lega reynt að verzla eftir getu og
mikið hefur verið keypt af hús-
gögnum. Reyndar má segja að
mikil sala hafi verið á öllum
hlutum,. stærri og smærri, og
mikil ös í verzlunum, — fólk
jafnvel rokið til og keypt jóia-
gjafir frekar en ekkert.
Kaupmenp hafa brugðizt mis-
jafnlega við ástandinu, sumir
selt eftir mætti, en aðrir dregið
úr sölu, tekið vörur úr umferð
meðan þeir bíða átekta og gefa
ýmsir þá skýringu að varan sé
ekki lengur til eða hreint út að
þeir ætli ekki að selja fyrr en
eftir gengislækkun.
Þá virðist algengt að vörur,
sem undanfarin ár hefur verið
venja að selja með afborgumim,
en 5-10% afslætti ella. sé greitt
út í. hönd, séu þessa dagana að-
eins seldar með staðgreiðslu og
yfirleitt ekki gefinn áður boðinn
afsléttur. þótt við höfum að vísu
einnig haft fregnir af heiðarlegri
kaupmönnum, sem haldið hafa á-
fram afslættinum.
Margir höfðu samband við
blaðið í gær vegna þessara nýju
afgreiðsluhátta, einnig höfðu
mjög margir kvartað t.il verð;-
lagsst.jóra og gert fyrirspumir, að
því að hann sagði Þjóðviljanum.
Samkomulagið svikið
Maður nokkur , sem er að
byggja sagði blaðinu t.d. frá því
að hann hefði í síðustu viku á-
kveðið kaup á eldavélasamstæðu
í ibúð sína og varð samkomu-
lag að viðkomandi verzlun léti
hann hafa samstæðuna með af-
borgunarskilmáium. Fyrstu út-
borgun átti hann að greiða við
móttöku, en síðan vissa upphæð
a mánuði. Var ákveðið að hann
sækti vélarnar á mánudag í þess-
ari viku. Þegar maðurinn kom í
verzlunina á mánudagsmorgun
var honum hinsvegar tjáð, að
ekkert yrði úr kaupunum nema
hann greiddi út í hönd, en vél-
arnar skyldu geymdar fyrir hann
meðan hann næði í meiri pen-
inga, sem hann yrði að koma
með fyrir lokun samdægurs. Af-
slátt vegna staðgreiðslu fengi
hann hins vegar engan. Mjög
margt fólk, var í búðinni að
skoða og kaupa og sagðist mað-
urinn ekki hafa þorað annað en
ganga að þessu, þar sem hann
óttaðist að annars fengi hann
ekki eldavélina fyrr en eft.ir
Miðvikudagur 22. nóvember 1967 — 32. árgangur — 265. tölublað.
Umferðaröryggisnefnd Akur-
eyrar stofnuð á dögunum
Mikil ös hefiyr verið í Radíóbúdinni á Klapparstíg. Myndin tekin þar í gærdag. (Ljósm. Þjóðv. A. K.j.
gengialækkun og þar með verð-
hækkun.
Annar maður hafði skoðað
baðkar í ýmsum verzlunum og
loks ákveðið eina gerðina og
ætlaði að kaupa í fyrradag. Var
nóg til af þessum baðkerum á
laugardagsmorgun, en þegar
hann kom í búðina á mánudag
var honum sagt að kerin væni
ekki til lengur. — Eg veit ekki
hvort það var satt, eða hvort
þeir vildu ekki selja.
„Jöfnunarverð“ leyfi-
legt?
Annars staðar var gengið
hreinna til verks og viðskiptavin-
um sagt hreint út að vörur yrðu
ekki seldar fyrr en eftir gengis-
lækkun, og fréttum við af a.m.k.
tveim verzlunum þar sem lýst
var yfir að viðkomandi vará yröi
þá seld á ,,jöfnunarverði“. Verzl-
anir sem ekki vilja selja voru
'ŒSLSSSr*’- 08 *" . Nýtt vandamál
Þá bar þegar í gær nokkuð ,á | sneri blaðið sér til ráðu-
vöruskorti í matvöruverzlunum, , neytisstjóra viðskiptamálaráðu-
sem stafar af því að heildsatar
hafa margir hverjir neitað að
selja smákaupmönnum vörur
meðan örlög krónunnar eru ó-
ráðin. Þannig var víða ekki
hægt að fá sykur og' kaffi í verzl-
unum í gær.
Ekki samtök
Þjóðviljinn sneri sér til Björg-
vins Schram, formanns Félags
íslenzkra stórkaupmanna <>g
spurði hvort heildsalar hefðu
stofnað til samtaka um að selja
ekki vörur þessa dagana, en
hann neitaði því og sagði að
engin samtök væru um slíkt, þar
tæki. hver og einn sína ákvörð-
un sjálfur. Sagði Björgvin að
margir heiildsalar væru með 6-
borgaðar vörur, sem þeir hefðu
fengið greiðslufrest fyrir erlendis.
Væru það einkum matvörur eins
og kornvörur, hveiti og sykur,
svo og byggingavörur.
neytisins, Þórhalls Ásgeirssonar,
og spurði hvort kaupmenn gætu
samkvæmt lögum neitað að selja
vöru sem þeir hefðu í verzlun-
um sínum.
Áleit Þórhallur að ekkert í
lögum gæti skipað þeim að selja
vöruna ef þeir vildu það ekki
sjálfir og sagði að í þetta skipti
horfði öðruvísi við en í fyrri
gengislækkunum. Áður hefði var-
an verið borguð áður en hún
kom til landsins, en nú værí flutt
inn með greiðslufresti og skuld-
uðu þvi margir fyrir vörunni er-
lendis. Væri þvi kannski ekki
hægt að skylda þá til að selja
hana nú þótt þeir eigi hana í
verzluninni.
Á 8. hundrað miljónir?
Þessar vörukaupaskuldir er-
lendis munu að því er gizkað
hefur verið á nema á 8. hundr-
að miíljónum, en ekki fékk blaðið
töluna staðfesta í gær. Sagði
Sigurgeir Jónsson hagfræðingur
hjá Seðlabankanum aðveriðværi
að reikna hana út ásamt fleiru.
Framhald á 7. síðu.
□ Eins og þegar hefur
komið fram í fréttum er
skipulögð upplýsinga- og
fræðslustarfsemi í sambandi
við H-daginn nú hafin af
fullum krafti. Sl. laugardag,
komu Pétur Sveinbjarnar-
son og Kári Jónasson, starfs-
menn Upplýsinga- og
fræðslumiðstöðvar H-umferð-
ar, og Hannes Hafstein frá
Slysavamafélagi íslands til
Akureyrar og héldu þar furíd
með umferðarnefnd Akureyr-
ar, en formaður hennar er
Ófeigur Eiríksson bæjarfóg-
eti. Einnig sat Bjami Ein-
orsson bæ'i'qrc+ióri fundinn
Á fundi þessum var ákveðið
að setja á stofn umferðarörygg-
isnefnd Akureyrar, sem vinina
mun að umferðaröryggismálum
i samvinnu við bæjaryfirvöld
Akureyrar. Þetta er fyrsta um-
ferðaröryggisnefndin af mörgum
sem áformað er að stofna utan
höfuðborgarsvæðisins undir for-
ystu Slysavarnafélags íslands nú
á næstunni. Landinu hefur veríð
skipt í 18 umdæmi í þessu sam-
banda, en hverju umdæmi verð-
ur síðan skipt í starfssvæði. Til
starfa í þessum nefndum mun
veljast fólk úr þeim samtökum
og félögum sem hafa munu um-
ferðarmál á stefnuskrá sinni.
Verkefni nefndanna er að sjá um
skipulagningu og framkvæmd á
fræðslu og upplýsingastarfsemi á
sinu starfsvæði i samræmi við á-
ætlanir H-nefndarinnar. Verður
leitast við að fá sem flesta til
samstarfs og virkrar þátttöku.
Starfsemi nefndanna verður
margþætt, svo sem að annast út-
" ^ ^ jl|ll|||l[IHI| • . 4 ' - j
gáfu og7eða dreifingu á bækling-
um um umferðamál og vegna H-
dagsins, efna til funda um þessi
mál, skipuleggja heimsóknir til
einstaklinga sem af einhverjum
áslæðum geta ekki aflað sér
fróðleiks um þessi ’ mál og að
stofna til samvinnu við félög og
fyrirtæki svo eitthvað sé nefnt.
Umferðaröryggisnefnd Akureyrar
hefur þegar vérið skipuð og eiga
sæti í henni sjö menn.
Umferðarkerfinu breytt
1 lok mánaðarins er áætlað að
byrjað verði að setja niður
stengur vegna færslu umferðar-
merkja á Akureyri, en stengur
og undirstöður undir þær eru nú
þegar tilbúnar. Staðsetning um-
ferðarmerkja verða nú jafnframt
endurskoðuð.
í samræmi við umferðabreyt-
inguna verður umferðarkerfið á
Akureyri endurskipulagt, og er
tæknilegur undirbúningur þess
máls- á lokastigi.
Framhald á 7. síðu.
Kvenfélag
sosíalista
Félagsfundur í kvöld,
miðvikud. kl. 8.30 í Tjam-
argötu 20. — Dagskrá:
1. Áríðandi félagsmál.
2. Guðrún Guðvarðardótt-
ir segir frá fulltrúaráðs-
fundi Alþjóðasambands
lýðræðissinnaðra kvenna í
Prag. en hún sat fundinn
fyrir hönd félagsins í októ-
bermánuði sl.
Kaffi. — Almennt rabb.
Stjórnin.
JOSEF SUK EINLEIKARI
Á NÆSTU TÓNLEIKUM
Næstu tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar Islands verðahaldn-
ir í Háskólabíói á fimmtudaginn
kemur undir stjóm Bohdans
Wodiczko. Fyrst leikur hljóm-
sveitin hinn bráðskemmtilega
forleik Rossinis að óperunni
„ítalska stúlkan í Alsír‘‘.
Annað Vfrkið á efnisiskránni
er fiðlukonsert Beethovens. Þetta
er eitt göfugasta verk, sem sam-
Islenzk-þýzka menning-
arfélagið:
Islenzk-þýzka menningariélag-
ið heldur skemmtifund í Leik-
húskjallaranum á morgun,
fimmtudaginn 23. nóv. kl. 21.
Sigurður A. Magnússon segir
frá leikhúslífi í Austur-Berlín.
Kaffiveitingar.
Félagsmenn eru hvattir til að
sækja fundinn.
Fundur í Kjördœmisróði Vesturlands
Síðastliðinn sunnudag var
haldinn fundur í kjördæmisráði
Alþýðubandalagsins í Vestur-
landskjördæmi og er meðfylgj-
andi mynd tekin af fulltrúunum
er hann sóttu. Á myndinni eru,
talið frá vinstri, sitjandi: Gunn-
ar Bja.nason Akranesi, Jóhann
Ásmundsson Kverná í Grundar-
firði, Guðmundur V. Sigurðs-
son Borgarnesi, Bjarnfríður Le-
ósdóttir Akranesi, Olgeir Frið-
finnsson Borgarnesi og Geir
Jónsson - Borgarnesi. — Stand-
andi: Guðmundur Guðmundsson
Grundarfirði, Jón Stefánsson
Vatnshoiti í Staðarsveit, Björn
Guðmundsson Grundarfirði, Guð-
mundur M. Jónsson Akranesi,
Sktíli Alexandersson Hellissandi,
Ársæll Valdimarsson Akranesi,
Gunnlaugur Bragason Akranesi,
Guðmundur Þorstelnsson Skálpa-
stöðum í Lundarreykjadal, Jenni
R. Ólason Stykkishólmi, Einar
Karlsson Stykkishólmi, Ingvar
Ragnarsson Stykkishólmi, Sigy
urður Br. Guðbrandsson Borg-
arnesi, Kristján Benediktsson
Víðigerði í Reykholtsdal, Erling-
ur Viggósson Stykkishólmi og
Jónas Árnason Reykholti.
Rúmlega 5000
manns sáu her-
námsáramyndina
Sýningum er nú lokið í Há-
skólabíói á heimildarkvikmynd
Reyni® Oddssonar um hemáms-
árin 1940—1945,. fyrri hluta. Var
myndin sýnd í rétta viku og
urðu sýningar nær 20 talsins, en
aðsókn reyndist ekki mikil. Alls
sáu mjmdina um 4500 manns,
auk 500—600 boðsgesta á frum-
sýningu. Kvikmyndin mun ekki
verða sýnd aftur í Háskólabíói,
en ætlunin er að sýna hana í
minna húsi og hefur Stjömúbíó
verið nefnt í því sambandi.
ið hefur verið fyrir fiðlu og
hljómsveit, en sú var samt tíðin,
að konsertinn var talinn óspil-
andi og ofviða venjulegu fólki
að hlustá á hann.
Einleikarinn í konsertinum er
tékkneski fiðlusniUingurinn Jósef
Suk- Suk er af frægri ætt tón-
listarmanna. Nægir þar að nefna
langafann
Antonín Dwr-
ák og afann,
tónskáldið Jós-
ef Suk. Suk
er tæplega fer-
tugur að aldri,
hann var enn
nemandi inn-
an við tvítugt,
þegar Tónlist-
arháskólinn í
Prag sendi hann sem fulltrúa
fiðludeildar sinnar til annarra
landa. Síðan hefur Jósef Suk
borið hátt merki tékkneskrar
tónmenntar ^im víða veröld,
bæði sem einleikari og forfiðl-
ari í Prag-kvartettinum eða
Suk-tríóinu. Árið 1960 hlaut
hann „Grand prix des dis»ues“
fyrir upptökur sínar af verkum
eftir Janðcek og Debussy-
Lokaverk tónleikanna er Kons-
ert fyrir hljómsveit eftir oólska
tónskáldið Witold Lutoslawski.
Konsertinn var saminn á ámn-
um 1950—‘54 undir sterkum á-
hrifum frá þjóðlegri pólskri iríús-
ik og tónlist Bartóks, og bykir
eitt glæsilegasta verk sinnar teg-
undar, Lutoslawski er eitt virt-
asta tónskáld okkar tíma. um
það vitnar margskonar viðurkenn-
ingar, verðlaun pg medalíur,
greinar og bækur skrifaðar um
hann og beiðni um og kaup
nýrra verka. frá mörgum lönd-
um.